Alþýðublaðið - 29.10.1958, Síða 1

Alþýðublaðið - 29.10.1958, Síða 1
Krúsijov og Nóbei. í GÆRDAG var skýrt frá því í Moskvu, að Boris Pas- ternak, seni að þessu sinni hlaut bókmenntaverðlaun Nobels, hefði verið rekinn úr rithöfundafélaginu rúss- neska og sviptur heiðurs- nafnbótinni „sovétrithöfund ur“. í dag birtir Alþýðublaðið viðtal, sem sænskur mennta maður átti við hann í byrjun október. Það er á 3. síðu. Viðbrögð rússnesku stjórn arvaldanna við fregninni um sigur Pasternaks á bók- menntasviðinu hafa að sjálf- sögðu vakið heimlsathygli. Útskúfun hans stangast ó- þyrmilega á við lýsingar valdhafanna á fre]sinu_aust- an járntjalds. Hér gerir danskur Jilað.a.- teiknari góðlátlegt grín að skelfingunni, sem virðist hafa gripið Krústjov & Co. þegar fregnin um Nóbelsverð launin barst til Moskvu. VATÍKANIÐ, þriðjudág — NTB. ítalski kardínálinn An- gelo Giuseppe Roncá'lli, pat-! ríark í Feneyjutn, var'.í dag Roncalli. kjörinn páfi, og tók hann sér nafnið Jóhannes XXIII. Ron- calli var kjörinn páfi í ell- eftu atkvæðagreiðslu kardín- álanna. Steig þá hvítur reyk- ur upp af Sixtínsku kapell- unni og var þá ljóst, að pát'í hafði verið kjörinn. A örfá- um mínútuni) Isafnaðist gíf- urlegur mannfjöldi saman á torginu við Péturskirkjuna til þess að hylla hinn nýkjörna páfa. Einn kardínálanna gekk ! fram á svalir Péturskirkjunn- ar og mælti: Vér höfum páfa, og laust maiinfjöldinn upp fagnaðarópum. Klukkustund síðar birtist hinn nýi páfi á svölunum og lýsti blessun yf- ir borginni og heiminum (urbi et orbi). Var honum tekið miað miklum fagnaðarlátum, sem Framhald á 5. síðu. Englnn iogari í landhelgi. SÍÐDEGIS í gær var enginn erlendur togari að veiðum inn- an fiskveiðitakmarkanna hér v-ð land. Ætíunin að tryggja Baltic Trad- ing Co. milljóna-vöruskipti ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur fregnað. að Lúðvík Jós- efsson, viðskiptamálaráðherra, hafi nýlega misnotað alvarlega stöðu- sína sem ráðherra í þeim tilgangi að skapa milljónaviðskipti fyrir eitt af heildsölufyrirtækj um kommúnista hér í bæ. Reyndi ráðherrann að beita áhrifum sínum til að fá opi-nberar stofnanir, sem fjalia um viðskipta- og gjaldeyrismál, til að leyfa mjög ó- venjuieg viðskipti fyrir Baltic Txading Co. Ef áform viðskiptamálaráðherra takast mun þetta kommúnistá- fyrirtæki væntanlega græða hundruð þúsunda króna. Viðskipti þau, sem Lúðvík Jósefsson hefur barizt fyrir, eru þau, að Baltic Trading Co. verði ieyft að selja allmikið magn af lýsi í vöruskiptum til Finn- lands, en hingað til hefur lýsi eingöngu verið selt fyrir harðan gjaldeyri. Vill Lúðvík, að Baltic Trading Co. fái samtímis heimild til að flytja inn silkisokka og aðra slíka vöru fyrir lýsið. Slík viðskipti hafa hingað til ekki verið leyfð vegna alvarlegs skorts á frjálsum gjaldeyri. Þessi viðskipti fóðra kommúnistar með því, að lýsið verði selt til Finnl. fyrir eitthvað hærra verð en fáanlegt er á heimsmarkaði, en Finnar munu vafalaust jafna sér verðmuninn á lýsinu með því að selja silki- sokkana er því nemur dýrari. Að öðrum kosti eru slík vöruskipti algerlega óhugsandi. Þessi tíðindi hafa þegar bor- izt nokkuð út í rað.r kaupsýslu manna í Reykjavík, Og hefur Alþýðublaðið frá þeim frétt, að fyrirspurnir annarra fyrir- tækja þess efnis, hvort þau geti fengið slík forréttindi, sem Baltic Trad.ng Co. eru ætluð, hafi enga áheyrn fengið. Það fylgir frétt þessari, að Lúðvík Jósefsson hafi sem viðskipíamálaráðherra sltrifað bréf bæði til útflutnings- nefndar og Landshankans og mælt eindregið með því, að þessi viðskipti verði leyfð. I •gær tókst blaðinu ekki að fá staðfestingu á þessu, en það kemur væntanlega fljótt í Ijós, hvort viðskiptamálaráð- Húla-gjarðirnar. eru komnar til landsins. Meðfylgjandi mynd tók ljós- myndari blaðsins á Hverfis- götunni í gær. Húla-fárið hefur farið eins og eldur í sinu um löndin. Hvernig leikur maður húla-leikinn vinsæla? Maður bregður gjörðinni um sig miðjan, set ur snúning á hana og lætur hana svo halda áfram að snúast nneð því að aka sér í mjöðmunum! herra landsins hefur sem slík ur staðið í bréfaskriftum við þjóðbankann og opinberar Lúðvík nefndir til að' reyna að ko»ia til leiðar óvenjulegum við- skiptum fyrir heildsölufyrir- tæki kommúnista. Slíkt er aS sjálfsögðu reginhneyksli í embættí af hendi manns, sem fer með eitt af æðstu ernbæít- um þjóðarinnar. FR.TÁLS GJALDEYRIR EITT MESTA VANDAMÁLIÐ Mörg mndanfarin ár hefur eitt atvarlegasta vatidamál í ut Framhald á 5. siðn.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.