Morgunblaðið - 21.09.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977
Nýttfjarskipta-
kerfi fyrir Skafta
fellssýslurnar?
ÞEGAR Lóranstöðin á Reynis-
fjalli verður lö«ð niður um ára-
mót, eins os f.vrirhugað er, fer
aðvörunar- og fjarskiptakerfi Al-
mannavarna fvrir Vík í Mýrdal og
V-Skaftafellssýslu að verulegu
leyti úr skorðum. Þar hefur verið
sólarhringsvakt allan ársins
hring 02 sagði (íuðjón Petersen,
forstöðumaður Almannavarna
ríkisins, í gær að taka yrði af-
stöðu tii þessarar breytingar fyrr
en seinna.
Sagði Guðjón að verið væri að
o
INNLENT
ihuga hvort hægt væri að setja
upp i Skaftafellssýslum og
Mývatnssveit sams konar fjar-
skiptakerfi og notað er hjá Al-
mannavörnum i Reykjavik. Sagði
Guðjón að trúlega yrði óskað eftir
að fá að setja upp slík kerfi i
Mýrdalnum og i Mývatnssveit og
trúlega myndu þá bæðí svæðin
tengjast beint inn á Reykjavíkur-
svæðið. Aðspurður um hvort slík-
ar framkvæmdir væru ekki kostn-
aðarsamar, svaraði Guðjón þvi til
að svo væri alls ekki, ef sami
háttur yrði hafður á og í Reykja-
vík, en nauðsyn bæri til að taka
ákvörðun um þetta fljótlega.
Hjá Almannavarnaráði ríkisins
er um þessar mundir unnið að
lokaskipulagningu öryggiskerfis
fyrir Skaftafellssýslurnar með
Kötlugos í huga. Væri það einkum
viðbragðsskipulagið, sem talið
hefði verið á ýmsan hátt ófull-
nægjandi.
Reknetabátar fengu
upp í 400 tunnur
NOKKRA síðustu daga hefur afli
reknelabáta frá Ilöfn í Hornafirði
Þaraþurrkun
fram að jólum
„ÞETTA hefur gengið sæmi-
lega hjá okkur,“ sagði Ómar
Haraldsson, verksmiðjustjóri
Þörungavinnslunnar, í samtali
við Mbl. I gærkvöldi. „Það
verður að vísu hlé á vinnslu
um na‘stu mánaðamót þegar
heimamenn taka við rekstrin-
um, en það verður ekki í lang-
an tíma. Stöðvunin verður að-
allega vegna þess að þang-
skurðarmenn eru nú að tínast
íýmis önnur störf, svo sem að
smala rollum og fleira. Vatnið
hefur ekki verið nógu hagstætt
hjá okkur, því dadurnar sem
voru settar niður I holurnar
skiluðu ekki auknu vatns-
magni uppá yfirborðið. A
na>stu vikum hefjum við til-
raunir með þaraþurrkun en
hún fer fram á svipaðan hátt
og þangþurrkunin. Þaraþurr-
kunin verður fram undir jól,
en þarinn er trollaður upp
með skipinu okkar, Karlsey."
Þá sagði Omar að þeir byggj-
ust við loðnu til þurrkunar í
marz eins og s.l. vetur. en sú
tilraun tókst vel. Þá voru
þurrkuð um 50 tonn af loðnu
fyrir sænskan markað, í
hunda- og kattafæðu, en Ömar
kvað markaðsmöguleika svo til
ótæmandi.
verið tregur, eða þar til í fyrrinótt
, að nokkrir bátanna fengu mjög
góðan afla í Lónsdýpi eða allt að
400 tunnur í lögn. Reyndar var
aflinn misjafn og fengu sumir
ekkert.
Jens Mikaelsson, fréttaritari
Morgunblaðsins á Höfn, sagði i
gær, að bátarnir hefðu flestir ver-
ið að veiðum í Lónsdýpi, þar hefði
Steinunn SH fengið 400 tunnur,
Fylkir NK um 400 tunnur og Gull-
faxi SF .'100 tunnur. Margir bátar
hefðu verið með 80—100 tunnur,
en sumir ekki neitt eftir nóttina.
Unnið var af fullum krafti í gær
á Höfn við söltun og frystingu á
síld.
HAFRANNSÖKNARSKIPIÐ Árni Friðriksson aðstoðaði vélbát-
inn Öfeig 2 frá Vestmannaeyjum á laugardaginn og dró bátinn
inn til Vestmannaeyja. Var báturinn á trolli undan Ingólfshöfða
er hann fékk í skrúfuna, en skorið var úr skrúfunni i Eyjum.
Óskar Sæmundsson tók meðfylgjandi mynd frá borði í Árna
Friðrikssyni.
Vinnumála-
sambandið
sendir mann
á Sauðárkrók
ENGIR fundir voru vegna deilu
Verkalýðsfélagsins Fram og
Kaupfélags Skagfirðinga um röð-
um starfsmanna i flokka í gær.
Það er vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna, sem fer með
samningsgerðina af hálfu Kaup-
félagsins og að sögn Bjarna
Thors, starfsmanns Vinnumála-
sambandsins, fer einn starfs-
manna þess norður til Sauðár-
króks í dag, miðvikudag, til að
leita lausnar á deilunni. Sagði
Bjarni að fundur yrði með deilu-
aðilum þegar maðurinn kæmi
norður.
Sáttatillaga í
deilu BSRB og
ríkis lögð fram
SÁTTATILLAGA sáttanefndar í
deilu BSRB og rikisvaldsins var
lögð fram í gærkvöldi hjá Torfa
Hjartarsyni sáttasemjara, en að
sögn Torfa er hér um að ræða bók
upp á 40 vélritaðar síður. Sáttatil-
lagan er nú til athugunar hjá
deiluaðilum og einnig ýmsum
starfsmannafélögum sveitarfé-
laga.
50 millj. kr. til vega-
bóta í Mývatnssveit
Nýtt verð á
hrossakjöti
SEXMANNANEFND hefur að
ósk Hagsmunafélags hrossa-
bænda ákveðið verð á hrossakjöti.
Samkvæmt því verður verð á
hverju kílói af folalda- og trippa-
kjöti til framleiðenda 295 krónur
en I smásölu kostar kílóið 482
krónur í heilum og hálfum
skrokkum. Verð á kjöti af full-
orðnum hrossum er hins vegar
20% lægra. 1 fyrra var verðið til
framleiðenda 220 krónur á hvert
kíló og nemur hækkunin milli ára
því 33,7%, og er það jafnmikil
hækkun og orðið hefur á verðlags-
Framhald á bls. 19.
AKV'EÐIÐ hefur verið að veita
allt að 50 milljónum króna til
vegarlagningar frá Reykjahlíð að
Skútustöðum. Er þegar hafist
handa við þessa vegagerð og á
henni að vera lokið fyrir desem-
herbyrjun vegna hugsanlegra
umbrota og flutnings fólks úr
Reykjahlíð og Vogum.
Vegurinn á þessu svæði er viða
mjög erfiður yfirferðar að vetrin-
um og snjóþungur. Það fé sem
fengist hefur til þessara fram-
kvæmda kemur frá þremur aðil-
um, að sögn Gúðjóns Petersens
hjá Almannavarnaráði ríkisins.
Viðlagatrygging héfur heitið
20—25 milljónum króna, vinnu-
vélaeigendur nyrðra munu leggja
fram 10—15 milljónir króna og
ríkissjóður siðan greiða það sem á
vantar.
Sagði Guðjón Petersen að þess-
ar vegabætur væru fyrst og‘
Skarð í stærstu
þró Kísiliðjunnar
Rættum breytingu á hitaveitulögn Reykjahlíðar
Þróarveggur í stærstu þró Kísil-
iðjunnar við Mývatn hrundi að
hluta í fyrrinótt og við það sópað-
ist burtu um 30 metra röravirki
hitaveitunnar í Reykjahlíð. Varð
Viðgerð á hverri holu
í Bjarnarflagi gæti
kostað 20-30 milljónir
TEKIST hefur að gera við eina holu í viðbót í Bjarnarflagi og eru nú tvær borholanna á svæðinu virkar.
Að sögn Karls Ragnars, verkfræðings hjá Orkustofnun, eru ákveðnar áætlanir um hvernig staðið skuli að
viðgerð á holum 4 og 5 á svæðinu, en það er bæði seinlegt og áhættusamt verk.
Sagði Karl Ragnars að i síðustu
umbrotum i Bjarnarflagi hefði
orðið mikið tjón á borholum þar
og væri ekki hægl að meta það í
krónum á þéssu stigi málsins, en
ljóst væri að það myndi nema
milljönum króna. Sagði hann að
ekki væri fjarri Iagi að áætla að
viðgerð á hverri holu á svæðinu
gæti kostað á bilinu 20—30 millj-
ónir króna. Sagði Karl að oku-
stofnunarmenn væru alls ekki úr-
kula vonar um að takast mætti að
gera við holur 4 og 5, en hins
vegar hrundi hola 7 í síðustu um-
brotum og væri hún afskrifuð, i
bili að minnsta kosti.
Það er hola 8, sem nú hefur
tekist að gera við og framleiðir
hún nú orku ásamt holu 10 á
svæðinu, sem ekkert breyttist í
síðustu látum. Holu 8 var lokað i
sumar eftir hrinuna i april, en þá
jókst í henni rennsli og þrýsting-
ur, og virðist hún ekki hafa breytt
sér að nýju að sögn Karls
Ragnars. Næsta verkefni verður
hola 14 og á að reyna að gera við
hana, en upp ú þeirri holu gaus i
siðustu umbrotum. Hola 5 gekk
upp og verður reynt við hana
síðar.
byggðin hitalaus þar til í gær-
kvöldi er lokið var við viðgerð á
veitunni. Skarðið i þróarvegginn
var um 4—5 metra langt, en talið
er að leynd sprunga hafi verið í
•veggnum eftir síðustu jarð-
skjálftahrinu.
„Það er alltaf eitthvað að gera
mönnum lífið leitt hér,“ sagði
Þorsteinn Olafsson framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar í samtali við
Mbl. í gærkvöldi," en við reynum
að klóra í bakkann og nú er verið
að undirbúa bráðabirgðaráðstaf-
anir til að fylla upp í skarðið sem
m.vndaðist í gær. Hins vegar ligg-
ur það fyrir að við verðum að taka
þrærnar rækilega í gegn fyrr en
seinna ef þær eiga að duga eitt-
hvað."
Þorsteinn kvað ætlunina að
setja hráefni i tvær af þremur
þróm verksmiðjunnar fyrir vetur-
inn en þriðja þróin er alveg ónot-
hæf. Stærsta þróin sem skemmd-
ist nú er 100x120 metrar og tæp-
lega 8 metra djúp.
1 gær var unnið að viðgerð á
hitaveitunni, en samkvæmt upp-
lýsingum Jóns Illugasonar var
m.a. rætt um það hjá hreppsnefnd
i gær hvort breyta ætti legu á
hitaveitulögnum og hvort leggja
ætti nýja lögn úr öðru efni fyrir
veturinn, en núverandi leiðslur
eru úr asbesti.
fremst gerðar með brottflutning
fólk s í Vogum og Reykjahlíð i
huga, en einnig frá Kröflu og
Kísiliðjunni. Hins vegar væri litið
svo á að varnaraðgerðir vegna
Kísiliðjunnar sjálfrar væru verk-
efni tryggingaraðila og eigenda
fyrirtækisins.
Að undanförnu hefur Almanna-
varnaráð átt viðræður við ýmsa
aðila um aukið öryggi íbúa á fyrr-
enfndum svæðum m.a. Vegagerð
ríkisins, Póst- og síma og dóms-
málaráðherra. Að sögn Guðjóns
Petersen hafa allir þessir aðilar
tekið mjög vel óskum um úrbætur
til að auka öryggi.
Fjölsimalínum verður á næst-
unni fjölgað úr Reykjahlíðar-
hverfinu og þeim íbúum, sem
ekki hafa síma verður tryggð lág-
marks símaþjónusta, þá ef til vill
með handvirkum simatækjum,
svo viðvörunarkerfi, sem er á sim-
um fái þjónað tilgangi sínum. Þá
Framhald á bls. 19.
Ríkisstjórnin veit-
ir JóniL. Arna-
syni yiðurkenningu
A fundi ríkisstjórnarinnar i gær
var rætt uin hið frækilega skákaf-
rek Jóns L. Arnasonar, sem eins
og kunnugt er hefur hlotið heims-
meistaratign í unglingaflokki. A
rikisstjórnarfundinum var ákveð-
ið að veita Jóni viðurkenningu
fyrir frábæra framgöngu,
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, er viðurkenningin ekki i
formi peningagjafar. Þá heldur
menntamálaráðherra kvöldverð-
arboð í Ráðherrabústaðnum i
kvöld til heiðurs Jóni L. Arna-
syni. _
Leiðrétting
í MINNINGARGREIN i blaðinu í
gær misritaðist föðurnafn Láru
Jónasdóttur, en í fyrirsögn stóð
Jónsdóttir. Er beðizt afsökunar á
mistökunum.