Morgunblaðið - 21.09.1977, Side 15

Morgunblaðið - 21.09.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MJÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977 15 Meðferð málsins með nákvæmlega sama hætti og tíðkanleg er Greinargerð menntamála- ráðherra um Laugaveg 166 BLAÐINU barst í gær eftir- farandi greinargerd frá mennta- málaráðherra vegna kaupa á Laugavegi 166: Vegna fyrirhugaðra kaupa á húseigninni Laugavegur 166 til afnota fyrir menntamálaráðu- neytið og stofnanir, sem undir það heyra, vil ég greina frá eftir- farandi. Menntamálaráðuneytið leigir húsnæði á Hverfisgötu 6, i Ingólfsstræti 9 og víðar. Þrengsli eru til verulegs baga og raunar ekkert rúm fyrir þýðingarmikla starfsþætti s.s. bókasafn og fundi. Á Hverfisgötu 6 er þriggja mánaða uppsagnarfrestur. Fyrir stuttu þurfi ráðuneytið að rýma þrjú herbergi. Var hluti fjölritunarstofu tekin til nota fyrir viðkomandi starfsfólk. Er það vægast sagt óhentugt og kostaði nýjar innréttingar. Ríkisútgáfa námsbóka starfar í eigin húsnæði á tveim stöðum i bænum. Þrengsli valda miklum erfiðleikum og útiloka eðlilega þróun. Fræðslumyndasafn ríkisins býr við leiguhúsnæði. Ríkisútgáfan hefir um alllangt skeið leitað eftir kaupum á húsnæði. Til mála kom m.a. að kaupa 4. og 5. hæð á Laugavegi 166. En burðarþol var miðað við iðnrekstur en ekki lager (i þessu tilviki blaða og bókalager, sem er mjög þungur) svo það hentaði ekki. Við athugun kom í ljós að öll húseignin var til sölu. Er nú hugsað að Ríkisútgáfan kaupi tvær neðstu hæðifnar. Er burðar- þol þeirra nægilegt fyrir starf- semi útgáfunnar. Þeim þarf fremur litið að breyta. Leitað hefir verið eftir nýju leiguhúsnæði fyrir menntamála- ráðuneytið, en ekki fengist neitt hentugt. Þegar i ljós kom að Laugavegur 166 var til sölu, öll eignin, um 5 þús. fermetrar, þótti rétt að kanna hvort þar fengist sæmilega hentug aðstaða fyrir greindar stofnanir allar saman. Hagkvæmast væri að allt stjórn- arráðið væri undir sama þaki. Þvier ekki til að dreifa. Ekki er heldur vitað um fala byggingu í miðbænum, sem rúma mundi menntamálaráðuneytið allt auk fleiri stofnana. Þótti því rétt að leita eftir kaupum á Laugavegi 166, enda semdist um verð og greiðsluskilmála. Undanfarna mánuði hafa starfsmenn menntamálaráðuneyt- isins, Ríkisútgáfu námsbóka og fjárlaga- og hagsýslustofnunar unnið að málinu, kannað aðstæður og verðhugmyndir seljanda og leitast við að meta verðmæti hússins í því ásandi sem það er í nú og hvað kosta mundi að gera það upp og búa til þeirra nota, sem fyrirhuguð eru, ef keypt urði. Niðurstaðan af þessari athugun er sú, að húsið sé falt á 259 m kr. og að sú fjárhæð sé ekki óeðlilega há miðað við ástand þess. Áætlað er að viðgerð og innréttingar kosti um 340 m kr. Er sú áætlun lausleg en byggð á fenginni reynslu við önnur verk. Eg tel að versti kosturinn fyrir rikið sé að leigja. Það verður dýrt til lengdar, óöruggt og veldur ýmsum öðrum óþægindum fyrir leigjandann. Besti kosturinn er að rikið byggi sjálft fyrir starfsemi sina. Ekki er fyrirsjáanlegt að byggt verði á næstunni yfir þau ráðu- neyti, sem nú leigja. Má kalla útilokað fyrir hér nefndar stofn- anir, eins og nú er komið málum þeirra, að biða eftir því. Að minni hyggju er það sæmi- legur kostur að kaupa gamalt og gera upp, ef kaupverð telst eðli- legt. Er þá út af fyrir sig til bóta að þurfa sem minnst tillit að taka til innréttinga sem fyrir eru. En meginhluti Laugavegs 166 eru óinnréttuð vinnu- og lagerðsvæði. Verði kaupin gerð mun Ríkisút- gáfan kaupa tvær neðstu hæðirn- ar eins og fyrr segir og m.a. reka verslun sina á jarðhæðinni. Heimild til þeirra kaupa er i fjár- lögum þessa árs. Menntamála- ráðuneytið mundi kaupa þrjár efri • hæðirnar. Verð þeirra fullbúinna yrði fyllilega sambæri- legt við verð þeirra fasteigna, sem rikið hefir nýverið keypt, t.d. fyrir rannsóknariögreglu rikisins og bæjarfógetaembættið i Kópa- vogi. Var það verð talið eðlilegt miðað við byggingarkostnað skrif- stofuhúsnæðis og þau kaup afgreidd ágreiningslaust frá fjár- veitinganefnd á sinum tima. Nokkuð hefir verið skrifað um þessi fyrirhuguðu húskaup i blöð að undanförnu. Er eðlilegt að menn velti því fyrir sér hvernig húsið komi til með að nýtast og hvort umtalað kaupverð sé eðli- legt verð fyrir 5 þús. fermetra í þessu tiltekna húsi eins og ásig- komulag þess er nú. Það skiptir meginmáli. Stjórnmálaskoðanir seljanda sé ég aftur á móti enga ástæðu til að ræða fremur en t.d. skoðanir þeirra fjölmörgu dugandismanna sem nú leigja rikinu hús sin. Það er mikið skrifað um að Laugavegur 166 sé tötralegur út- lits. — Niðurnidd jörð stendur til bóta ef hún fær aðhlynningu. En auðvitað lækkar slikt ástand kaupverð jarðar. Sama ætla ég að gildi um hús i sölu. Sé viðhaldi áfátt lækkar það verðgildi þeirra en þarf hvorki að útiloia eðlilegt kaupverð né hagkvæma nýtingu. Þess má að lokum geta að meðferð þessa máls er með nákvæmlega sama hætti og tíðkanleg er þegar fjallað er um húsnæðismál einstakra ráðuneyta og stofnana, sem undir þau heyra. Reykjavík, 20. september 1977 Vilhjálmur Hjálmarsson Moldarsala í Kópavogi Hin árlega moldarsala Lions- manna í Kópavogi fer fram á laugardag og sunnudag, en allur ágóði af sötunni rennur aó vanda til Hknarmála. í fréttatilkynningu Lions-klúbbsins um þetta efni eru garðeigendur minntir á, að garð- yrkjufræðingar telja að nú sé einmitt hinn heppilegasti tími til þess að fá heim mold og láta hana frjósa í vetur og „brotna1'. Moldinni er að sjálfsögðu ekið heim til kaupenda, sem geta gert pantanir sínar þegar í dag og allt fram að helgi. UPPLÝSINGAR OG INNRITUN ER í SÍMUM: 52996 FRÁ KL. 1-6 76228 FRÁ KL. 1-6 84750 FRÁ KL 10-12 OG 1-7 KENNT VERÐUR: Barnadansar —- Jassdans— Stepp— Samkvæmisdansarnir — Gömludansarnir — Jitturbug Rokk — Nýjustu Táningadansarnir — „Plantation, Hasa, Bulb og fl KENNSLUSTAÐIR: Félagsheimili Fylkis og Kópavogsskóli Akranes: Reykjavik: Seljabraut 54 Kópavogur: Fleim Ingólfscafé Safnaðarheimili Hamraborg 1 Hafnarfjörour: Hella: Skúlagötu 32 Langholtssóknar Digranesskóli Iðnaðarmannahúsinu Hellubio Nýr bíll á íslandi Komið og skoðið LADA 1600 Verð ca. 1585 þús. Hagstæðir greiðsluskilmálar Bilreiðar & Landbúnaðarvélar hí. i Sudurlandsbraut 14 - lleykjavik • Sími lltllion LADA 1600 ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Þl ALT.LÝSIR l’M ALLT LAND ÞEGAR ÞL ALGLÝSIR I MORGLNBLAÐINL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.