Morgunblaðið - 21.09.1977, Page 17

Morgunblaðið - 21.09.1977, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977 17 l.jósiii. Mlil Krirtþjiifur Flugeldaiðjan að Þórsmörk í Garðabæ. í fremsta húsinu fer fram blvs og stjörnuvinna og hleðsla á flugeldum. hvað á sfnum tíma, til vinstri er púður- og stjörnulagersgeymsl- an, bak við fremsta húsið er birgðageymslan og þar á bak við er húsið, sem pappírsvinna fer frarn í og rafmagnsinntakið er í. Til hægri er svo húsið, þar sem framleiðslan er sett saman. Af myndinni er ekki hægt aðgreina þá fjarlægð, sem er ámilli húsanna þriggja í miðjunni, en hún er svipuð og frá samsetningarhúsinu yfir að hinum. Aætluð framleiðsla fyrirtækisins I ár er 25.000 flugeldar og 25.000 blvs. Hef ekki komið mér til vinnu frá því slysið varð — segir Þórarinn Símonarson, f orst jóri Flugeldaið junnar AÐALATRIÐIÐ er að halda þessu öllu eins aðskildu og frekast er hægt. Hættan við verksmiðjuhúsið á Akranesi var sú, að þar var alltof mikið undir sama þaki án þess að ég vilji að ðkönnuðu máli vera að gera að því skóna á neinn hátt, hvernig þetta hörmulea slys vildi til. Ég þekkti ekki Helga heitinn Guðmundsson persónu- lega, en þegar ég frétti um slysið á Akranesi um hádegis- hilið á sunnudag, varð mér svo mikið um, að ég hætti strax að vinna og hef ekki hafl mig í að byrja aftur ennþá", sagði Þórarinn Símonarson, flugelda- og hlysasmiður í Garðahæ, í samtali við Mbl. i gær, en Þórarinn rekur nú einu flug- eldaverksmiðjuna á landinu. Flugeldaiðjuna að Þórsmiirk í Garðabæ. Þegar Mhl. spurði Þórarinn, hvort hann myndi grípa til einhverra nýrra larúðarráðstafana nú, svaraði hann: „Eg vil leggja á það áherzlu, að ég er á engan hátt að leggja dóm á það sem gerðist í Fliigeldagerðinni en ég hef ákveðið að breyta um með til- raunaskotin hjá mér. Við höfinn að vísu alltaf gætt þess að fara vel frá húsunum, en ég tel nú, að það sé of mikil áhætla að vera með tilrauna- skot hér á lóðinni. Það er svo lítið sem út af má bera; skot geta geigað og allt mögulegt átt sér stað, ef blandan er ekki nákvæmlega sú rétta." I gær komu menn frá öryggis- eftirliti ríkisins, rafmagnseftir- Iitinu og rafmagnsveitu Reykja- víkur í Flugeldaiðjuna og skoð- uðu þar allt hátt og lágt. Flug- eldaiðjan er til húsa í fimm litlum aðskildum timbur- húsum. ,,Það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt öryggisatriði, að hafa þetta ekki i sam- hyggðum húseiningum," sagði Guðmundur Eiriksson öryggis- skoðunarmaður, í samtali við Mbl. Eyjólfur Sæmundsson efnaverkfræðingur var i för I samsetningarhúsinu Séð inn í hleðsluklefann fyrir flugelda. Séð inn I púðurgeymsluna, þar sem ( gær voru um 250 kg af púðri og stjörnulagerinn. með Guðmundi og þegar Mbl. spurði hann, hvort hann gæti eitthvað sagt um meðferð eða geymslu hinna ýmsu efna í Flugeldaiðjunni sagðist hann engan dóm vilja leggja á málið fyrr en hann hefi velt fyrir sér þeim upplýsingum, sem hann hefði fengið, en hann myndi svo skila öryggiseftirlitinu skýrslu um málið. Þetta var i fyrsta skipti sem menn frá öryggiseftirlitinu koma i Flug- eldaiðjuna, en eins og frant kom í Mbl. í gær eru engin ákvæði í gildandi lögum eða reglugerðum um það, hvernig flugeldaverksmiðja skal vera byggð upp. Jón Gamalielsson rafmagnseftirlitsmaður sagði í samtali við Mbl., að hann gerði ekki ráð fyrir neinum athuga- semdum frá rafmagnseftirlit- inu varðandi búnað Flúgelda- iðjunnar," eins og er. Raflagnir virðast vera mjög nýlegar og Þórarinn Sltronarson það er ekki langt siðan að farið var hér yfir allar raflagnirnar í heild," sagði Jón. „Hins vegar eru húsin misgömul og i raf- kerl'inu eru þvi ýmsir eldri hlutar, sem rétt er að fylgjast vel með og kanna betur." Þórarinn Simonarson sagði að auk rafmagnseftirlitsmanna heföu menn frá eldvarnaoftir- litinu heimsótt Flugeldaiðjuna og gefið ýntis ráð varðandi slökkvitæki og annað og sagði Þórarinn. að eftir iillum þeim ábendingum hefði verið farið. Sem fyrr segir eru húsakvnni Flugeldaiðjunnar fimm hús. I einu fer fram samsetning fram- leiðslunnar, i öðru er rafmagns- inntak og þar fer fram ýmis pappirsvinna. siðan eru tvær aðskildar geymslur; önnur fyr- ir fullunna vöru og hin fyrir púður og stjörnulager og i fimmta húsinu fer fram blysa- gerð og stjörnuvinna og hleðsla á flugeldum i aðskildum klef- um. Þar eru einnig geymd ýmis efni og pappi sniðinn í flugelda. „Aðalatriðið er að halda þessu öllu eins aðskildu og hægt er," sagði Þórarinn Simonarson, „Við notum miili 20 og 30 efni til framleiðslunnar, sem flesl eru eldnærandi, Jiannig að það er undirstöðuatriði að skilja alltaf í milli. Það er til dæmis útilokað að hafa saman púður til flugeldagerðar og klórat-og litarefni til blysgerðarinnar. Þess vegna er mjög nauðsyn- legt að hreinsa vandlega eftir hverja umferð og þá má ekki gleyma vinnugallanum og meira að segja er nauðsynlegt að hreinsa út i hvért skipti. sem farið er úr cinum lit i annan. Við höfum hagað framleiðslunni þannig, að á vorin vinnum við að blysunum. síðan vinnum við stjörnurnar að sumrinu og hleðsla á flugeldunum fer svofram að haustinu til. Öll afgangsefni bleytum við svo upp í vatni, en þessi efni leysast öll upp og eru þannig óskaðlcg með öllu," Þegar Mbl. spurði Þórarin, hvers vegna hann hefði byggt fyrirtækið upp i aðskildum húsurn, sagði hann: „Þegar ég lærði flugelda- og blysasmið hjá Tivolíverksmiðjunum 1958, þá var verksntiðjan svona upp byggð: öll i smáskúrum, enda þótt nýja verksmiðjan. sent þeir tóku i notkun 1966 eða 67 sé öll undir einu þaki. Kaupmanna- hafnarborg á Tívoli og gerð nýju verksmiðjunnar réðu fyrsi og fremst aðrir en þeir, sem þar vinna. Og þó verksmiðjan sé falleg á pappirnum. þá er hún i Framhald á hls. 18 'JF ' *■ Eyjólfur Sæmundsson, efna- verkfræðingur öryggiseftirlits- ins, kannar geymslu og með- ferð efna hjá Flugeldaiðjunni I gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.