Morgunblaðið - 21.09.1977, Síða 18

Morgunblaðið - 21.09.1977, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977 Nýr skuttogari til N eskaupstaðar Nuskaupslart. 20. scpl. FIMM hundruð tonna skuttogari hættist i flota Xeskaupstaðar í das- Hann hcitir Birtingur NK 119 og var keyptur í Frakklandi. Skipið er bysKt 1975 í Póllandi en Kasngerðar breytingar hafa verið gerðar á skipinu í Englandi. Rannsóknin heldur áfram í GÆl! var unnið að rannsókn vegna sprengingarinnar í Flug- eldaiðjunni á Akranesi, en ekkert nýtt kom fram í rannsökninni. S:mkvæmt upplýsingum Helga Daníelssonar rannsóknarlög- reglumanns mun rannsóknin standa yfir næstu daga. Aðalvél skipsins er Cretell 1500 hestöfl. Eigandi er Síldarvinnslan sem á tvo togara fyrir en skip- stjóri er Birgir Sigurðsson, 1. stýrimaður Jón Einar Jöhannsson of> 1. vélstjöri er Þór Hauksson. Báturinn Magnús NK 72 kom frá Noregi í dag Þar sem skipið var lengt og yfirbyggt, en eftir lenginíiuna mun hann bera um 450 tonn. Eigandi Magnúsar er Ölver h.f., en skipstjöri er Jön Ölversson. — AsKi'ir Dalborg sel- ur rækjuna Tilboð í Hjalteyr- arhúsin opnuð BUIÐ er að opna þau tilboð sem Landsbanka Islands bárust i eign- ir bankans á Hjalteyri við Eyja- fjörð. en samkvæmt upplýsingum Stefáns Péturssonar, lögfræðings Landsbankans, eiga bankastjörar bankans eftir að fjalla um tilboð- in ofi verður það væntanlega gert öðru hvorum megin við næstu helgi. Slátruðu 11 þúsund seiðum í Laxalóni HALDIÐ var áfram i gær við að eyða laxaseiðunum í Laxeldis- stöðinni í Laxalóni og voru tekin seiði úr eldishúsum. AIIs var eytt í Kær 11 þúsund KÖnKU.seiðum og Kera þeir, sem að eyðingu vinna ráð fyrir að enn eigi þeir eftir u.þ.b. tvegKja daga verk. I gær- kvöldi var samtals búið að eyða .‘54 þúsund seiðum. Að sögn rannsóknarmanna á Keldum er tíðni Kreinilegra sjúkdómaein- kenna í seiðunum, sem tekin voru úr eldishúsinu ok valin til rannsókna af handahófi heldur lægri en í seiðunum úr eldis- kerjunum utanhúss. Engin loðnuveiði ENGIN loðnuveiði hefur nú verið í tvo sólarhringa, en um helgina rak ís yfir veiði- svæði loðnuskipanna og hafa þau lítið getað aðhafst síðan. Andrés Finnbogason hjá Loðnunefnd tjáði Morgunblaðinu í gær, að auk rekíssins, kvörtuðu skip- stjórar loðnuskipanna undan svartaþoku og þungri undir- öldu. Umferðarslys Framhald af bls. 32. upplýsingum lögreglunnar var bifreiðinni ekið mjög rólega hring á vellinum. Slysið varð með þeim hætti að drengurinn, sem var að vega salt, féll af leiktækinu, og mun hafa lent fyrir afturhjóli bilsins án þess að ökumaður tæki eftir. Mun hjól bilsins hafa farið yfir höf- uð drengsins og þegar ökumað- urinn gætti að í speglinum sá hann drenginn liggjandi fyrir aftan bílinn. í Gautaborg R/EKJUTOGARINN Dalborg frá Dalvík lagði í gær af stað I sína fyrstu sölufcrð, en togarinn á að sclja um 85 lcstir af rækju og fiski f Gautahorg á mánudag. Jóhann Antonsson fram- kvæmdastjóri SöltunarfélaK-s Dal- vikur, sem á togarann, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þeir hefðu fengið kaupendur að rækjunni í Svíþjóð og ættu menn von á ágætis verði fyrir rækjuna. —Jákvæð viðbrögð Framhald af bls. 32. borgarstjóri," og jafnframt að stefnt verði að því að næsta heimsmeistaraeinvigi fari fram hér. Ég tel það vera Reykjavík til álitsauka að vera orðin eins konar höfuðból skáklistar í heiminum og er reiðubúinn til þess að beita mér fyrir fram- gangi þessa máls innan borgar- stjórnar Reykjavíkur og stuðla að því að keppnin geti farið fram hér. Ég minni á í þessu sambandi að þegar einvígi Sapsskys og Horts var haldið hér, gekk borgin i ábyrgð fyrir 1 millj. kr. ef halli yrði á rekstri þess skák- móts. Til þeirrar greiðslu kom ekki, en þar er fordæmi um stuðning í þessum efnum. Þá tel ég einnig vera auðvelt að sigla þessu máli í höfn og æski- legt að sem víðtækast samstarf milli fyrirtækja og opinberra aðila geti tekizt á þessum vett- vangi.“ “Vilji hjá Flugleiðum fyrir framkvæmd málsins" Örn O. Johnson forstjóri Flugleiða sagði í samtali við Mbl. að það gæti vel komið til greina að Flugleiðir tækju þátt i framkvæmd málsins. „Við erum fylgjandi þvi að styðja við bakið á þessum málum og það er ástæða til þess að ganga á lagið út þvi að þetta hefur gef- ist eins vel og raun ber vitni með auknum skákáhuga og frammistöðu okkar ungu manna. Við myndum ekki neita því að ræða þátttöku i fram- kvæmd þessa máls, því staða Islands í skákheiminum hefur aukið hróður landsins og við höfum áhuga á að framhald verði á þvi ef mögulegt er. Það er vilji fyrir þessu innan félags- ins og því er sjálfsagt að kanna alla möguleika á að ýta þessu máli úr vör." „Sjálfsagt að kanna allar leiðir til lausnar." Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra sagði í samtalinu við Morgunblaðið að þetta mál hefði ekki verið rætt i ríkisstjórninni, en persónulega kvaðst hann hafa áhuga á því að sem flest merk skákeinvigi fari fram hérlendis. „Það er mikils virði fyrir landið í heild og æsku landsins sérstaklega að kynnt sé undir hollum hugðar- efnurn" sagði Vilhjálmur, „skákin hefur átt vinsældum að fagna í þeim efnum. Ég tel heil- brigt að menn leiti úrræða sam- eiginlega til þess að leysa þetta mál, þvi ekki er alltaf hægt að ætlast til að rikið standi eitt sér bak við alla hluti án þátttöku annarra. Mér finnst þetta mjög áhugaverð hugmynd. ísland stendur framarlega á þessu sviði, bæði með snjaila skák- menn og snjalla forsvarsmenn skákiþróttarinnar, en ég tel að það fari saman. Ef unnt er að fá þetta einvígi hingað tel ég sjálf- sagt að kanna allar leiðir til lausnar." „SlS mun leggja sitt lóð á vogarskálina." „Sambandið hefur stutt þessi skákmót hér og afstaða okkar er jákvæð," sagði Erlendur Einarsson forstjóri Sambands islenzkra samvinnufélaga, í samtali við Mbl. i gærkvöldi. „Persónulega tel ég mjög mik- inn feng i því fyri landið að fá spennandi skákmót, bæði vegna áhuga innan lands og vegna mikillar landkynningar sem líkum mótum fylgja á er- lendum vettvangi. Eins og getið var um í leiðara Morgunblaðs- ins í dag, þá hafa hin meiri háttar skákmót hér aukið hróð- ur landsins. Ég tel þvi alls ekki útilokað að SlS vilji leggja eitt- hvað af mörkum til þess að af þessu geti orðið og ef aðilar taka sig saman um málið er enn líklegra að SlS leggi sitt fram. Það þarf að kanna hvað likleg- ur kostnaður er, kanna hvað pakkinn kostar og fá síðan sem flesta til þess að leggja eitthvað af mörkum. Þetta er eitt af þessum málum sem ekki er hægt að ætlast til þess að nái fram að ganga nema menn slái til og vinni saman að þvi.“ „Augljóst hvað um er að vera“ „Ég býst við því að við mynd- um vera tilbúnir til að hjálpa til við framkvæmd slíks skákein- vigis ef það kæmi upp,“ sagði Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins h.f. í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Eftir þessa siðustu atburði og glæsilega frammistöðu okkar manna, þá sér maður hvað er um að vera og hvert stefnir. Það liggur einnig fyrir að ein- vigi Spasskys og Fischers hefur kveikt skákáhugann í þeim ungu skákmönnum sem nú hafa jafnvel skipað sér í fremstu röð skákmanna i heim- inum með því að vinna heims- meistaratitil. Það er því auðséð hvað það þýðir að standa fyrir mótum sem vekja áhuga manna og forvitni. Eg geri alveg ráð fyrir því að unnt sé að ná end- um saman i þessu máli, því ugg- laust vilja margir leggja hönd á plóginn.” — Súpukjöt Franthald af hls. 32. Verð á heilslátri með sviðnum haus var ákveðið 1069 en var áður 834 krónur. ' Ef hausinn er sagaður má bæta 8,40 krónur viðsöluverð hvers hauss. Við sölu á kindakjöti i heilum skrokkum frá sláturhúsi beint til neytenda skal verðið vera 9 krónum lægra á kíló i hverjum verðflokki. Annar verðflokkur kostar i heilum skrokkum ósundurteknum, 763 krónur hvert kfló. Verð til framleiðenda var ákveðið 633,84 krónur á hvert kiló í fyrsta verðflokki og í öðrum verðflokki 570,29 krónur. Bændur fá nú 246,63 kr. fyrir hvert kíló af gæruum. Verð á ull var ákveðið sem hér segir og er verðið miðað við eitt kiló: Urvalsflokkur 879,37 kr. 1. verðflokkur 633,19, 2. verðfl. 253,98, 3. verðfl. 95,67, svart 879,30, grátt 633,19 og mórautt 1035,82. — Utanríkis- ráðherra Framhald af bls. 32. og breytt um málin, þó talið hafa mest fjallað um samskipti þjóð- anna. M.a. hafa mál varnarliðsins i Keflavik verið til umræðu og grundvelli mögulegra breytinga á þeim vettvangi, en við höfum þó ekki lagt fram neinar tillögur i þeim efnum. Hins vegar munum við gefa út sameiginlega yfirlýs- ingu eftir viðræðurnar við Vance um helgina," sagði Einar að lok- um. I dag fer Einar ásamt fylgdar- liði til Colorado Springs, en i dag mun hann m.a. skoða aðalstöðvar bandarfkjaflota í Norfolk. — Soðnar kartöflur Framhald af bls. 32. þær voru teknar upp. Um helgina var einnig mældur hiti í Grjótagjá og reyndist hann 46 stig þar sem hún er heitust. í sumar hefur vatnið í gjánni alltaf verið að hitna. — Krísiján. — Flugeldaiðjan Framhald af bls. 17 reynd hreinasta dauðagildra. Og þeir, sem þar vinna nota þetta orð um hana og telja hana stórhættulegan vinnustað vegna hættu á keðjuverkandi sprengingum. Annað er að ég hef heimsótt Benwell- flugeldaverksmiðjurnar í Eng- landi og þar er um 50 timbur- húsum dreift á 10 hektara. Aðeins pappírsvinnan er þar í stórum sal og skrifstofubygg- ingin er eina steinhúsið. Allt er þetta svo rammlega girt. Ég get nefnt sem dæmi, að þegar ég var inni í skrifstofu hjá þeim, þá var komið með flugelda til að sýna mér, en áður slökktu þeir á rafmagninu, en húsið var hitað upp með rafmagni. Þannig gengur þetta ekki til lengdar, nema menn séu alltaf vakandi yfir örygginu. Og þó er árveknin ekki nóg ein sér. Það hefur kviknað í hjá mér, án þess þó að slæmt hafi hlotizt af. Og það hafa orðið slys hjá þeim sprenglærðu mönnum, sem vinna i Tívoli-verksmiðjunum. Þannig er nauðsynlegt, þótt menn telji sig gæta fyllsta öryggis að dreifa hættunni sem mest og það verður aldrei gert öðru vísi en með því að hafa verksmiðjuna í sem flestum aðskildum byggingum." F'lugeldaiðjan í Garðabæ heldur nánu sambandi við Tívoliverksmiðjuna í Dan- mörku. „Þegar ég var að læra hjá þeim, varð ég að borga stóran pening fyrir lærdóminn og svo uppskriftir, sem ég keypti." segir Þórarinn. „Þessar uppskriftir verð ég að geyma svo, að aðrir komist ekki i þær. Þær mega ganga áfram innan fjölskyldunnar en í annarra hendur mega þær ekki koma. Samstarfið við Tívolí hefur reynzt mér vel og þeir láta mig til dæmis alltaf vita, þegar þeir eru komnir með ein- hverjar nýjungar í framleiðsl- unni.“ Og Flugeldaiðjan er sann- kallað fjölskyldufyrirtæki. Auk Þórarins vinnur kona hans, sonur þeirra og dóttir hjá verk- smiðjunni en starfsfólkið er fimm talsins. Þegar við spurðum Baldur Þórarinsson að þvi í gær, hvort nokkur skrekkur hefði hlaupið í hann við atburðinn á Akra- nesi, svaraði hann. „Auðvitað litum við á slysið sem hörmu- legan atburð. En út frá okkar starfi, held ég að þetta hafi ekki vakið neinn ótta með okkur. Við höfum byggt þetta hérna upp eftir okkar eigin þekkingu, þó það þýði engan veginn að við séum blind fyrir þeim hættum, sem rekstrinum eru samfara. En við erum með þetta i mörgum húsum og ákveðin efni geymum við sitt í hverju lagi.“ I lokin spurði Mbl. svo Þórarin, hvort hann ætti von á einhverjum aðgerðum almennings gegn Flugelda- iðjunni vegna þess, sem fyrir kom á Akranesi. „Það er ekki nema eðlilegt að ótti hlaupi í fólk við svona atburði," svaraði hann. „Einkanlega þegar málið snýst um hættulega hluti, sem almenningur hefur litla sem enga þekkingu á. Eg hef sótt um að fá aðra lóð hjá bæjarfélaginu. en þeir hafa ekki getað uppfyllt skilyrði um 50 metra radius frá verksmiðju i næstu byggð. Hér eru þó 150 metrar i næstu hús, þannig að með þá fjarlægð og lækinn erum við mjög vel í sveit sett. En tvimælalaust vil ég færa mig og fá lóð, þar sem við get- um byggt fyrirtækið upp til frambúðar og girt athafna- svæðið vandlega af.“ — Geir í Moskvu Framhald af bls. 1 sækja ýmis söfn. Annað kvöld verður svo opinber kvöldverður Kosygins forsætisráðherra til heiðurs Geir Hallgrímssyni og konu hans. I föruneyti Geirs hér i Moskvu er Björn Bjarnason skrif- stofustjóri forsætisráðuneytisins og kona hans Rut Ingölfsdóttir, Pétur Thorsteinsson sendiherra og kona hans Oddný Thorsteins- son og svo sendiherra Islands í Moskvu, Hannes Jónsson. Moskvublaðið Pravda birti i morgun forsfðufrétt og mynd i tilefni heimsóknarinnar og sagði að hún myndi þjöna frekari þró- un samskipta tslands og Sovét- ríkjanna báðum þjóðum i hag og þróun Detente og auknu öryggi i Evrópu og heiminum öllum. Verða viðskipti og önnur tengsl helztu umræðuefni forsætisráð- herranna á fundunum á morgun. — Schleyers Framhald af bls. 1 myndi hjálpa honum til að komast yfir árásina í Köln og fangavist- ina. Þau væru sannfærð um að hans innri styrkur myndi hjálpa honum til að mæta öllum erfið- leikum i þessu máli, hver sem leikslok yrðu. Sagðist frú Sehley- er vona að ræningjarnir myndu bera manni hennar þennan boð- skap. — Dayan Framhald af bls. 1 mynd að setja upp sjálfstætt ríki, en sem fulltrúar fólks sins engu að síður. ísraelar hafa áður sagt að þeir hafi ekkert á móti því að Palestínumenn eigi t.d. fulltrúa i sendinefnd Jóradníu. Dayan vildi ekki staðfesta á blaðamannafundinum að hann hefði átt fund með leiðtogum Araba og sagði að þótt hann hefði átt slíkan eða slíka fundi myndi hann ekki skýra frá þeim, því að það gæti „komið hinunt aðilanum i vanda.“ — Kínverskt listafólk Framhald af bls. 5. ánægð að sjá að á siðuslu árum hafa samskipti okkar i milli stöðugt aukist á stjórnmála-, viðskipta- og menningarsvið- inu. Þessi heimsókn sendi nefndarinnar til lands ykkar veitir okkur gott tækifæri til að læra af íslenzku þjóðinni. Seinna á þessu ári mun Arnþór Helgason vera formaður fyrir íslenzkri sendinefnd sem fer í vináttuheimsókn til Kína. Þessi samskipti sýna að vináttubönd- in eru stöðugt að styrkjast." — Oswald Framhald af bls. 14. þeirri trú að hópurinn ætti að gera árás á vopnageymslu til að afla m^iri skotvopna. Siðan hafi hún verið send aftur til Miami hinn 20. nóvember eða tveimur dögum áður en Kennedy var drepinn.Jiosch situr nú í fangelsi i Venezuela i sambandi við sprengingu i kúbanskri vél á sl. ári. Blaðið hefur haft samband við Frank Sturgis og segist hann ekki vita til að hann hafi nokkru sinni hitt Oswald en hann segist hafa þekkt Diaz og Bosch í nokk- ur ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.