Morgunblaðið - 21.09.1977, Side 19

Morgunblaðið - 21.09.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977 19 Huldunuerin (Róska) villir sveininn unga_ Ólafiir Lil jurós ríður í hlað Róska undirbýr kvikmynd um stofnun Alþingis LISTAKONAN Róska hefur nýlega lokið við gerð kvikmyndar i lit og ber myndin nafnið Ólafur Liljurós. Róska hefur selt ítalska sjónvarpinu eintak af myndinni og er þegar búið að setja ítalskt tal inn á myndina Þá er myndin til skoðunar hjá íslenzka sjónvarpinu, sænska sjónvarpinu og fleiri erlendum sjónvarpsstöðvum annaðist Þrándur Thoroddsen og Angelo LoConte Hljóðupptöku annaðist Jón Hermannsson Myndin var tekin að mestu á Skógum i safnhúsinu þar, en búninga iánaði Þjóðleikhúsið Megas samdi tónlist ina í myndmm og er hún leikin á flautu, gítar og fiðlu Er tónlistin samin upp úr þjóðlögum Ólaf Liljurós leikur Dagur Sig- urðarson skáld, Sigrún Stella Karls- dóttir ieikur Eddu bóndadóttur, Þrándur Thoroddsen ieikur bóndann. Megas ieikur hornrekuna á bænum. Guðlaug Guðjónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir og Jón Gunnar Árnason leika hjú á bænum Þá leikur Ásgeir Einarsson týndan mann og þær Róska og Birna Þórðardóítir leika huldukonur. en Birna var jafnframt skrifta Jón Gunnar sá um leikmyndina Myndm fjallar um það er Þór Ásmundarson (Dagur Sigurðarson) kemur ríðandi af heiðum í leit að hrossum föður síns Rekst hann á bæ Þrándar. sem býður honum að gista samkvæmt góðum og gömlum sið Fer siðan þráðurinn um gistinótt þá og dagns þar sem orlög spinna þræðr sina til þess er Ólafur Liljurós kyssir banakoss sinn Róska hefur nú i undirbúningi að gera kvikmynd næsta sumar um stofnun Alþingis íslendinga en italska sjónvarpið mun standa straum af kostnaði þeirrar myndar. sagði Róska í samtali við Morgun- biaðið í þeirri kvikmynd kvað hún verða mikiar fjöldasenur. leikarar yrðu islenzkir en óráðið væri um tæknimenn Ólafur Liijurós fjallar um huidu- sagnir. en Róska varpar fram þeirri spurningu hvort slikar sagnir séu ekki í rauninm settar á svið til þess að koma glæpum mennskra manna á hulda vætti Kvikmyndin Ólafur Liijurós er 35 min löng. en aðspurð kvaðst Róska ekki vita hvort hún yrði sýnd í kvikmyndahúsum Hún kvaðst ekki eiga kvikmyndahús sjálf og spurningtn væri um það hvort emhver vildi sýna myndina Þó kvaðst hún hafa áhuga á að ferðast um landið með myndina og kynnast viðbrögðum fólks og sögnum sem berast manna á milli um huldar verur Róska leikstýrði myndinni ásamt italska kvikmyndagerðarmanninum Manrico Pavoletloni. kvikmyndun — og sú mcnnska (Sigrún Stella) klædd holdi og blóði, villir ekki sídur Liljurósina. — Hrossakjöt Framhald af bls. 2 grundvplli iandbúnaðarvara á þessu tímabili. Viö veröákvörðun sexmanna- nefndar geröi Gunnar Hallgríms- son, einn af þremur fulltrúum neytenda i nefndinni. sérstaka bókun og sagði þar aö hann teldi aö ekki heföi náðst að fylgja fram því markmiði. sem rætt hefði ver- ið um við verðákvörðun sl. haust, að fækka hrossum i iandinu. Hefði Hagsmunafélag hrossa- bænda þá talíð að hross i landinu væru of mörg og verðákvörðun ætti að geta stuðlað að fækkun þeirra. Gunnar sagði i bókun sinni að nú sýndu tölur hins vegar að hrossum hefðí fiöleað heldur. — 50 millj. til vegabóta Framhald af bls. 2 er verið að athuga með radiófjöl- simasamband frá Skútustöðum i Vaðlaheiði, eða annan heppilcgan stað, þar sem símalinan. sem not- uð er. liggur yfir Eldárfarveginn og gæti þvi gefið sig ef hraungos vrði á sva?ðinu. bessi hlið á Chiquita er öllum kunn. Hér er svo önnur hRð á Chiquita. 11 NYR ÞJONUSTUSTAÐUR i HÁALEITI 'BYÐUR UPP A----------------------- SMURT BRAUÐ — BRAUÐTERTUR — NAPOLI PIZZA — FRANSKAR KARTÖFLUR — HAMBORGARA — OSTBORGARA — PYLSUR — SAMLOKUR HEITAR OG KALDAR — ÍS. ALLAR STÆRÐIR — SALAT OG . SÓSUR — ÍSMOLAR ofl ofl NESTI AUSTURVERI Opið kl. 8 - 23.30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.