Morgunblaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
222. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 7. OKTÖBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Enginn skáld-
skapur verður til
án mannúðar”
— sagdi ljóðskáldid Aleixandre, sem
fékk bókmenntaverðlaun Nóbels í gær
□----------------------------------------------------------------□
Sjá grein Jóhanns Iijálmarssonar
um skáldið á bls. 10.
□ ---------------------------------------------------------------□
Madrid, Stokkhóimi. 6. okl. Reuter. — ArP.
„ÞETTA kemur mér skemmtilega á ðvart. Ég hafði ekki gert ráð fyrir
að ég kæmi til greina, enda hafði ég ekki séð nafn mitt f hópi þeirra
sem Ifklegastir hafa verið taldir. En ég býst ekki við neinum breyting-
um á Iffsvenjum mfnum," sagði Vicente Aleixandre, sem fékk Bók-
menntaverðlaun Nóbels f dag.
Aleixandre er aldurhniginn, 79 ára gamall, og heisluveill. Hann
hefur verið sjúklingur f nærfellt hálfa öld og búið við hálfgerða
einangrun f áratugi, eða eftir að borgarastyrjöldinni lauk þar sem
vitað var að hann var ekki hlynntur Francostjórninni.
Skáldið fræga Argentinumað-
urinn Jorge Luis Borges fagnaði í
kvöld að Aleixandre hefði fengið
Bókmenntaverðlaun Nóbels. —
„Þetta er gleðiefni. Aleixandre er
frábært skáld“ sagði Borges, sem
V
Israelar til
alls búnir —
segir Sadat
Kairó. 6. okt. Reuter.
ANWAR Sadat, Egyptalandsfor-
seti, sagði í sjónvarpsviðtali sem
haft var við hann í Kairó í tilefni
þess að fjögur ár eru liðin síðan
hið svokallaða Yom Kippurstrfð
hófst, að Israelar myndu á hverri
stundu lýsa yfir neyðarástandi.
Hann sagði þeir myndu gera og
aðrar ráðstafanir, hliðstæðar
þeim sem þeir hefðu gripið til
skömmu áður en Sex daga stríðið
brauzt út 1967.
Sagðist Sadat hafa fengið upp-
Framhald á bls. 19.
Sadat
Atlaga gegn
sex-klúbbum
London, 6. okt. Reuter.
LÖGREGLA lét greipar sópa í
níu klúbbum f þorginni, sem
hafa á boðstólum kynæsandi
myndir. Gerði lögreglan upp-
tækar um 50 kvikmyndir, mn>-
jafnlega langar og misjafnlega
djarfar.
Ýmsir forystumenn slikra
klúbba voru hinir hryggustu
og sögðu að þetta benti til að
lögregluyfirvöld ætluðu að
herða eftirlit með þessari
starfsemi sem nyti mikilla vin-
sælda meðal borgarbúa, eink-
um karlmanna á ákveðnu ald-
ursskeiði, þ.e. frá 45—75 ára.
sjálfur hefur komið til greina við
úthlutun þessara verðlauna svo
að árum skiptir. Borges sagðist
þekkja vel verk Aleixandres og
væri hann mjög vel að verðlaun-
um þessum kominn.
I forsendum sænsku Akademi-
unnar sagði að Aleixandre hefði
fengið verðlaunin vegna þess að
„hann hefði i skáldskap sínum
verið ljóðrænn og skapandi og átt
rætur í spánskri ljóðlistarhefð.
Skrif hans vörpuðu ljósi á stöðu
mannsins í alheimi." Einnig er
vikið að þvi að haft sé i huga að
hann hafi verið hljóðlegt og yfir-
lætislaust tákn andstöðunnar
gegn einræðinu í landinu.
Aleixandre var einn félaga í
hinum fræga skáldahópi sem
kenndi sig við árið 1927 og lét að
sér kveða í listalífi Spánar fyrir
borgarastyrjöldina. Fremstur i
þessum hópi var skáldið Garcia
Lorca. Þegar ýmsir skáldbræður
hans og vinir flýðu land eftir
styrjöldina, komst hann hvergi
vegna veikinda sinna og bjó
lengst af í hálfgerðri einangrun i
litlu húsi í Madrid og var ekki
mikið þekktur utan Spánar. Þó
var hann þýddur á nokkur erlend
Framhald á bls. 31
Blaðamenn ræða við skáldið Vicente Aleixandre á heimili hans f Madrid f gær,
fimmtudag, eftir að honum hafði verið tilkynnt að hann hefði fengið bókmennta-
verðlaun Nóbels.
Bandaríkin á Belgradráðstefnunni:
Austur- Evrópuríkin
virða ekki mannréttíndi
Belgrad. 6. okt. Reuter
AÐALFULLTRtJI Bandartkjanna á Belgrad-ráðstefnunni, Arlhur J.
Goldberg, lýsti þvf yfir f ræðu sinni f dag að kommúnistaþjóðir hefðu
dregizt fangt aftur úr f þvf að framfylgja ákvæðum um mannréttindi
sem samþykkt hefðu verið að Helsinkiráðstefnunni fyrir tveimur
árum. Ræða Goldbergs er sögð einhver snarpasta atlaga að
kommúnistarfkjum vegna þessa og kom nokkuð á óvart hversu Gold-
berg tók djúpt f árinni.
Hann sagði að svo langt væri
frá því að mannréttindi væru virt
í mörgum löndum kommúnista, í
afstöðu til þeirra lægi mesta djúp
milli austurs og vestur. Hann
sagði að enn neyddust fjölskyldur
Flugránið:
Alsírstjórn baðst afsökimar
vegna árásar á blaðamann
Alsfr, Ncw York, «. okt. Rcutcr. AP.
ALSlRSKA stjórnin fordæmdi í
dag ruddaskap tveggja þarlendra
lögregiumanna gagnvart frönsk-
um sjónvarpsmanni, Louis
Giminez, en ráðist var á hann við
störf, þegar hann var að freista
þess að taka myndir af lendingu
japönsku vélarinnar með flug-
ræningja, fanga og gfsla f Alsír
fyrir fáeinum dögum. Var maður-
inn barinn illilega og konu hans
voru veittir áverkar, en hún var
með honum og er fréttamaður
fyrir Financial Times og News-
week í Alsír. 1 yfirlýsingu stjórn-
arinnar f dag sagði að rannsókn
yrði fyrirskipuð f málinu.
Ekki hefur spurzt til japönsku
hryðjuverkamannanna eftir að
þeir komu til Alsir. Stjórn Alsir
sagði í dag, að hún hefði engar
frekari skyldur við japönsku
stjórnina, þar sem orðið hefði ver-
ið veið beiðni hennar um að leyfa
vélinni að lenda og þá hefði einsk-
is annars verið krafist. Sérfræð-
ingar segja að það hafi vakið
gremju stjórnvalda í Alsir að Jap-
anir hafi JátiJ að þvi liggja að þeir
ætlist til aðgerða í málinu að
hálfu Alsírmanna.
í fréttum frá New York í dag
sagði að það hefði farið framhjá
flugræningjunum að um borð
voru gimsteinar sem metnir eru á
1,8 milljón dollara og komst ein
flugfreyjanna með gimsteinana
frá borði. Hefðu gimsteinarnir
verið í litlum pakka sem bersýni-
lega hefði ekki vakið athygli ræn-
ingjanna.
til að búa aðskildar vegna þessar-
ar afstöðu, ferðafrelsi og fleira
væri af skornum skammti og
mætti svo lengi telja.
Skömmu áður en Goldberg hélt
ræðu sína hafði aðalfulltrúi
Sovétrikjanna talað, Yuli
Vorontsov. Hann lagði rfka
áherzlu á að Sovétríkin tryggðu
þegnum sínum mannréttindi með
stjórnarskránni svo og væru þeim
tryggð réttindi í félagslegu og
efnahagslegu tilliti. Hann sagði
að allir þátttakendur ættu að sýna
raunhæfa viðleitni til að tryggja
að ráðstefnan bæri árangur.
Vorontsov sagði að i sumum vest-
rænum ríkjum væri reynt að
grafa undan detente, en það
mætti ekki takast.
Eftir að Goldberg hafði lokið
máli sínu siðar um daginn var
Vorontsov spurður álits á
ræðunni. Hann sagði að ræðan
hefði verið full æsingsleg og
snúist alltof mikið um mann-
réttindi. „Mannréttindi eru að
visu þýðingarmikil mál, en fleira
Framhald á bls 18.
Arthur Goldberg, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna á Belgradráð-
stefnunni. M.vndin var tekin í gær
er Goldberg var í forsæti á
ráðstefnunni og skömmu áður en
hann flutti ræðu sína.
Fylgi Carters dvínar ögn
New York. 6. okt. AP
NBC-sjónvarpsstöðin birti ( dag
nióurstöður nýjustu skoðana-
kannana um afstöðu bandarfskra
borgara til Carters forseta og
kemur f Ijós að f fyrsta skipti eru
færri en helmingur ánægðir með
frammistöðu forsetans f Hvíta
húsinu.
Nánar tiltekið lýstu 46%
spurðra því yfir að þeir væru
ánægðir, en í siðustu skoðana-
könnun í júní voru 56% mjög
ánægðir
spurðra i
með forsetann
febrúar sl.
og 60%
Skoðanakannasérfræðingar
segja að fólk sem spurt hafi verið
hafi ekki getað nefnt sérstök
atriði hjá Carter sem ástæða væri
til að lýsa fögnuði með. Margir
hafi nefnt verðbólguna í landinu,
samninginn um Panamaskurðinn
og, Bert Lance málið sem dæmi
um það sem ekki væri nægilega
forsetanum í hag.
Sprengju-
gabb í
Jumboþotu
Vaneouver, 6. okl. Reuler
JCMBO-ÞOTA frá banda-
ríska flugfélaginu PAN AM
sem var á leið til Tókíó með
292 innanborðs var látin lenda
fyrirvaralítið f Vancouver f
lýanada eftir að bréfmiði
fannst á salerni þotunnar, þar
sem sagði að sprengjur væru
um borð. Lending tókst með
ágætum. Var vélinni ekið út á
afskekkta flugbraut og
farþegar látnir fara frá borði í
skyndingu. Mjög nákvæm
sprengjuleit sem framkvæmd
var í vélinni bar ekki árangur.
Framhald á bls 18.