Morgunblaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1977 Höfuðmeinsemd! efnahagslífsins Dagblaðið Vísir fjall- ar um íslenzka verð- bólguþrðun á þessa leið: „Verðbólgan hefur lengi verið ein höfuð- meinsemd efnahagslffs- ins. Núverandi ríkis- stjórn hafði náð nokkr- um árangri við að draga úr hraða verðbólgunn- ar, eftir þriggja ára setu. Sfðustu mánuði hefur hins vegar sigið á ógæfuhliðina á nýjan leik og ný verðbólguhol- skefla blasir við, ef ekk- ert verður að gert. Alþingi kemur saman í næstu viku til sfðasta þinghalds fyrir kosn- ingar. Ekki er ólfklegt, að efnahagsmálin komi til kasta þingsins á næstu mánuðum, þó að enn sjáist engin merki þess, að sérstakar ráð- stafanir séu á döfinni f þvf skyni að draga úr verðbólgu og treysta stöðu atvinnuveganna. Sfðan vaxtabreyting- in var ákveðin hafa eng- ar alvöru ráðstafanir verið gerðar f efnahags- málum. Og sannleikur- inn er sá, að vaxtabreyt- ingin var málamiðlun milli stjórnarflokkanna og gekk þar af leiðandi allt of skammt. Enn sem komið er hefur hún haft óveruleg áhrif. Ef menn hafa f raun og veru áhuga á að koma að jafnvægi f þjóðarbúskapnum þarf að leggja kákið á hill- una. Annað hvort er að ná pólitískri samstöðu um markvissar aðgerðir í efnahags- og peninga- málum eða láta skeika að sköpuðu. Gerviað- gerðir eins og gjaldeyr- isskömmtun og bann við verðhækkunum, sem þegar eru orðnar, skipta engu máli í þessu sambandi. 1 mörgum tilvikum eru þær verð- bólguhvetjandi, þegar til lengdar lætur. Kjarni málsins er sá, að ævikjör manna verða ekki bætt meðan verið er að greiða verðbólgu- skuldirnar. Það er sá kaldi veruleiki, sem við blasir, og bæði stjórn- málamenn og hags- munaforingjar verða að horfast f augu við, ef þeir meina eitthvað með því að segjast vera á móti verðbólgu. Leið- in að þvf marki liggur ekki f loforðum um hærra kaup og aukin rfkisumsvif." Hættuleg fjármálalegu siðferði „Það er ekki nóg að vilja vinna bug á verð- bólgunni. Menn þurfa Ifka að vilja það sem til þarf svo að það megi verða. Verðbólgu- meinsemdin verður ekki læknuð án fórna og ekki án samvinnu ríkisvalds og verkalýðs- hreyfingar. Án slíkrar pólitfskrar samvinnu verður afturbatinn hægur, ef hann er þá mögulegur. Efnahagsráðgjafi ríkisst jórnarinnar, forstöðumaður Þ j óð h agsst of n u n ar- innar, er einn af al- færustu hagfræðingum landsins. Þó að pólitfsk- ar hugmyndir ráði ekki störfum efnahags- ráðgjafa hefur það ugg- laust haft jákvæð áhrif á samskipti rfkis- stjórnarinnar og verka- lýðshreyfingarinnar að hann er sósíaldemó- krati. Sfðastliðinn vetur starfaði á vegum rfkis- stjórnarinnar svonefnd verðbólgunefnd undir forystu forstöðumanns Þjóðhagsstofnunar. Nefnd þessi átti m.a. að vinna að þvf að sam- ræma sjónarmið ólfkra stjórnmálaflokka og hagsmunasamtaka. Að þessu leyti náði nefndin þó engum árangri, enda var þess ekki að vænta án ákveðinnar póli- tfskrar forystu. Markmiðið með þessari nefndarskipun á sfnum tfma var gott, en það vantaði alvöruna á bak við. Nefnd, sem á að hafa það hlutverk að vinna að pólitfskri sam- stöðu um viðnáms- aðgerðir gegn verð- bólgu, þarf að lúta póli- tfskri forystu. A það skorti og því varð nefndin hvorki fugl né fiskur. Þegar tilraun af þessu tagi hefur einu sinni mistekist getur reynst erfitt að reyna á. nýjan leik. En eigi að sfður er fyllsta ástæða til að hvetja til þess að þess verði freistað á ný að ná pólitfskri sam- stöðu um markvissar og alhliða aðgerðir gegn verðbólgunni. Núverandi ástand veldur ekki aðeins ringulreið í efnahags- og viðskiptamálum, heldur grefur það und- an siðferðilegum stoð- um þjóðlífsins." (f^) krommenie gólfdúk: níðsterkur, einstæð hönnun, hagstætt verð og það er auðvelt, að halda honum hreinum. Hvers getið þér krafist frekar af gólfdúk? á m ■ Seljum málningavörur oq marqt fleira. Gólfdúkur á gólf og veggi! Síöumúla 15 sími 3 30 70 7 Snyrtistofan Hótel Loftieiðum sími 25320 & SSíx Heiga Þóra Jónsdóttir, íyí fótaaSgerða og snyrtifræðingur. Heimaslmi 36361. ^»j^jpaj£»^»jp»^»j$»^»j£»j|»^» Andlitsböð, húðhreinsun, fótaaðgerð, handsnyrting, litun. fjar- lægi óæskileg hár af fótleggjum og andliti. Llkamsnudd — partanudd 1 flokks aðstaða Dag- og kvöldtímar (sama verð), vinn aðeins með og sel hinar viðurkenndu SANS — SOUCIS snyrtivörum og Revlon Opið á laugardögum Stjórnunarfélag íslands SÍMANÁMSKEIÐ Símanámskeið verður haldið að Skipholti 37 á vegum SFI í október eins og hér segir: 13. október kl. 14.00—1 7.00 14. október kl. 14.00 — 18.00 15. október kl. 9.15 — 12.00 Samtals 9.45 klst. Fjallað verður um starf og skyldur sím- svarans, eiginleika góðrar rímraddar. sím- svörun og símtæki, kynning á notkun símabúnaðar, kallkerfis og fleira. Auk námskeiðsins verður farin kynnisferð í Landsímahúsið með þátttakendum. Námskeiðið er einkum ætlað þeim, sem starfa við simsvörun. hvort sem um er að ræða hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Leiðbeinendur verða: Helgi Hallsson. fulltrúi og Þorsteinn Óskarsson, simaverkstjóri Þátttaka tilkynnist í sima 82930 Biðjið um ókeypis upplýsingabækling Bjóöum alls konar mannfagnaö velkominn. Vistleg salarkynni fyrir stór og smá samkvæmi. Veisluföng og veitingar að yöar ósk. Hafiö samband tímanlega. HÓTEL LOFTLEIÐIR Sími 22322

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.