Morgunblaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1977 Bankameiut bíða eft- ir tilboði frá bönkum Hveravirkni við Bjam- arflag eykst stöðugt SVÆÐI það umhverfis Bjarnar- flají, sem aukin hveravirkni hef- ur verið á, stækkar sioðust nýiega opnuðust mjöfí kröftun gufuaugu skammt norðan Bjarnarflagsstöðvarinnar og spúa þau gufu í líkingu við horholu. A Hafa selt fyrir 154 millj. kr. í 12 söluferðum ÞAÐ sem af er haustinu hafa íslenzk skip selt ísfisk í V- Þýzkalandi og Belgíu f.vrir tæpar 154 milljónir króna. Alls hafa verið farnar 12 sölu- ferðir, 11 til Þýzkalands og 1 til Belgíu, og er heildarafli skipanna 1235 lestir. Ekki verða fleiri sölur í þessari viku, en eftir helgi sel- ur Vestri BA í Þýzkalandi og Ólafur Jónsson GK í I)an- mörku, og verður það fyrsta ísfisksala fslenzks skips þar í landi. Maðurinn sem fórst Agnar Bragi Aðalsteinsson. MAÐURINN, sem fórst í bílslys- inu á vegamótum Suðuriandsveg- ar og þrengslavegar um miðjan dag í fyrradag hét Agnar Bragi Aðalsteinsson, vélamaður, til heimilis að Rauðalæk 41, Reykja- vík. Agnar Bragi var á 50. aldurs- ári, er hann lézt, fæddur 21. janú- ar 1928. Hann lætur eftir sig konu og þrjú börn. Bjarnarflagssvæðinu eru stöðug- ar breytingar og er vegurinn að stöðvarhúsinu vart fær fyrir hver- um, enda virðist svo sem jörðin sé að sjóða þar f sundur. Bjarnar- flagsstöðin er starfrækt og fram- leiðir nú um 2 til 2,5 megawött. Samkvæmt upplýsingum Hjart- ar Tryggvasonar f skjálftavakt- inni á Kröflusvæðinu eru engin umbrot á Kröflusvæðinu sjálfu. Landris heldur áfram og hækkar landið um 6 til 7 millimetra á degi hverjum, sem er svipað því sem verið hefur áður á þessu ári. Eng- ir skjálftar mælast um þessar mundir. í Léttsteypunni mynduðust fyrir um það bil hálfum mánuði ailmiklar sþrungur í gólfi á húsi fyrirtækisins og sté upp af sprungunum um 100 stiga heit „ÞAÐ sem hefur komið mér mest á óvart á þessu móti fyrir utan óstuðið á sjálfum mér er frammi- staða Miles, sem tók geysimikinn sprett á mótinu og hafnaði í öðru sæti þrátt fyrir tap í sfðustu um- ferðinni," sagði Friðrik Ólafsson stórmeistari í samtali við Mbl. í gærkvöldi eftir að Interpolis- skákmótinu var lokið. „Um Karpov er það að segja, að hann sýndi mikið öryggi og mjög heil- steypta taflmennsku. Þetta hefur hann nú sýnt aftur og aftur, þann- ig að það er Ijóst að hann er verðugur heimsmeistari og það svo, að enginn getur ógnað hon- um í bili, nema einhver komi fram úr fylgsni sínu.“ Friðrik sagði, að hann hefði aldrei náð sér á strik i mótinu, eins og þessi „hörmungarúrslit'' bæru með sér, en þetta er i fvrsta skipti í 27 ár, sem Friðrik verður neðstur á skákmóti. Fyrirlestur um jarðhitamál DR. PATRICK Muffler frá U.S. Geologieai Survey, Menlo Park, í Bandarikjunum flytur i dag fyrir- lestur í boði Orkustofnunar að Hótel Esju klukkan 10.00 árdegis. Fyrirlesturinn nefnist:, Methods for regional assessment of geothermal resources. Alit áhuga- fólk um jarðhitamál er hvatt til að fjölmenna. gufa. Hefur gólfið lyfst umhverfis sprungurnar, en menn hafa reynt að steypa í þær. Er greinilega mikill gufuþrýstingur undir húsi Léttsteypunnar. Hjörtur Tryggvason kvað menn óttast að eitthvað kynni að fara að gerast í Bjarnarflagi og það jafn- vel að gjósa. Svæðið, sem hvera- virknin er á hefur stækkað mikið og er kraftur í því meiri en áður. Gólf stöðvarhússins í Bjarnarflagi er nú orðið 60 til 70 gráða heitt, en Hjörtur kvað stöðvarhúsið ekki í hættu, nema tæki að gjósa á svæðinu. Kvað hann ástándið heldur líta illa út. Ef gos yrði í Bjarnarflagi myndi hitaveitan í Mývatnssveit að öllum líkindum verða óstarfhæf, þar sem hitinn í hana er fenginn úr borholu úr Framhald á bls. 19. „Ég hef ekki getað sinnt taflinu sem skyldi síðustu mánuði og það kemur svo þannig út, að þótt ég leitaðist við að gera fína hluti, þá vafðist allt fyrir mér og ýmsir leíkir andstæðinganna komu yfir míg eins og reiðarslag, enda þótt þeir væru einfaldir og rökréttir í stöðunni." Friðrik sagðist búast við, að hann lækkaði um ein 20 skákstig við þetta mót. Friðrik mun dvelja í Hollandi áfram á vegum Interpolisfyrir- tækisins og tefla fjöltefli. BANKAMENN hafa boðað verk- fall frá og með 26. október og neyti sáttasemjari lagaheimildar sinnar til þess að fresta verkfall- inu f 15 daga sVo sem hann hefur gagnvarl BSRB, mun banka- mannaverkfall koma til fram- kvæmda 10. nóvember næstkom- andi, hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma og sáttatillaga verið felld við allsherjaratkvæða- greiðslu. Sólon Sigurðsson, for- maður Landssamhands banka- manna, kvað næsta Iftið hafa gerzt síðan verkfallið var boðað sfðastliðinn mánudag. Sólon kvað engar viðræður hafa farið fram frá því á mánudag, er verkfallsboðunin var formlega af- hent. Þá höfðu bankamenn fengið bréfleg boð um kauphækkun, sem Sólon kvað vera hliðstæða sátta- tillögu sáttanefndar rikisins gagn- vart BSRB. Höfnuðu bankamenn því tilboði, en það hafði i för með sér 13,9% meðaltalshækkun á alla flokka. Siðan fylgdu sömu áfanga- hækkanir og gert var ráð fyrir í sáttatillögunni, 1,5% hinn 1. nóvember, 3% 1. desember, 3% hinn 1. júni, 3% 1. september 1978 og 3% 1. júli 1979. Sólon kvað kröfur bankamanna vera langt yfir þessu og sagði hann bankamenn enn ekki hafa tekið afstöðu til þess, hvað þeir hugsanlega gætu sætt sig við, þar sem þeir hefðu enn ekki fengið tilboð frá bönkpnum, sem gæfi tilefni til slíks. FLUTNINGASKIPIÐ Austri var nú í vikunni selt á uppboði í Reykjavík vegna vanskila út- Stöðva ekki fiskverzlun FISKMAT ríkisins sér , um verðflokkunarmat um leið og viðskipti eiga sér stað milli fiskseljenda og fiskkaupenda — sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ís- lenzkra útvegsmanna, í viðtali við Morgunblaðið í gær. „Ef fiskmatsmenn eru sfðan ekki til staðar þegar aflinn kemur að landi, munu kaupandi og seljandi leysa þetta sameigin- lega án fhlutunar fiskmats- ins.“ Kristján kvað málin oft hafa verið leyst á þennan hátt, þrátt fyrir tilvisl Fiskmats ríkisins. Því kvað hann verkfall fisk- matsmanna ekki mundu koma í veg fyrir að menn höndluðu með fisk sem áður. Verkfallsboðun bankamanna skal lögum samkvæmt minnst vera með 15 daga fyrirvara. Þeir boðuðu verkfallið með 23ja daga fyrirvara í von um að hægt væri að nota þann tíma til þess að ná samkomulagi eins og Sólon Sigurðsson sagði í viðtali við Mbl. í gær. Ef ekki næst samkomulag, á sáttanefnd eða sáttasemjari að hafa lagt fram sátttatillögu fyrri 21. október og verður síðan um hana allsherjaratkvæðagreiðsla Framhald á bls. 19. Góð loðnu- veiði í gær og gærkvöldi VEÐUR batnaði mikið á loðnu- miðunum við Kolbeinsey í fyrri- nótt og í gærmorgun voru mörg skip komin á miðin þar. Voru þau að kasta þar í gær og gærkvöldi og seint í gærkvöldi frétti Morgun- blaðið að mörg þeirra væru komin með mjög góðan afla, þótt þau væru ekki enn búin að tilkynna um magn. Eitt skip, Hrafn Svein- bjarnarson GK, var þó lagt af stað til lands með 270 tonn eða full- fermi. Sum skipanna fengu 300—400 tonna köst í gær, en annars stóðu torfurnar frekar djúpt og var erfitt að ná loðnunni. gerðarinnar. Skipið var slegið norskum aðila, sem var fyrsti veð- hafi í skipinu og var upphæðin 40 milljónir króna eða sem svaraði til krafnanna í skipið, að sögn Friðjóns Skarphéðinssonar, yfir- borgarfógeta. Sama útgerðarfyrirtæki missti einnig nýverið annað skip sitt, Suðra, þar sem það gat ekki staðið við skuldbindingar sínar gagn- vart brezkum lánadrottni og var það síðan selt á uppboði í Rotter- dam fyrr á þessu ári. 28 erlend veiði- skip við landið Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæzlunnar voru 28 erlend fiskiskip við landið í gær. Flest voru v-þýzk eða 15 togarar, og voru flestir á Reykjanes hrygg, þá voru 4 belgískir togarar við landið, 5 fær- eyskir línubátar og 3 fær- eyskir togarar. Lugmeiermálið: Piltamir fengu 1250 þús. hvor PILTARNIR tveir, sem komu lögreglunni á spor þýzka af- brotamannsins Ludvigs Lug- meiers í sumar hafa nú fengið verðlaun frá Þýzkalandi fyrir þátt þeirra í málinu. Eirfkur Kristján Gissurarson og Jökull Hafþór Jóhannesson fengu hvor um sig 1250 þúsund ís- lenzkar krónur, eða jafnvirði 13.850 þýzkra marka. Svo sem fram kom á sinum tíma, hittu þeir vin Lugmeiers mjög drukkinn fyrir utan veit- ingahúsið í Glæsibæ og voru vasar hans úttroðnir af erlend- um peningaseðlum. Gerðu þeir lögreglunni viðvart og var Lug- meier handtekinn skömmu síð- ar, en hann hafði í millitíðinni komið akandi að Glæsibæ og tekið vin sinn, Bandaríkja- mann, upp i bílinn og síðan ekið á brott. Lögreglan elti bíl- inn og náði i Lugmeier, sem gafst upp eftir að hafa veitt mótspyrnu fyrst i stað. 1 fórum Lugmeiers fannst hluti fengs úr bankaráni, sem hann hafði framið í Þýzkalandi, samtals 277 þúsund mörk. Bankinn hafði tryggt féð hjá tryggingafélagi og hét trygg- ingafélagið 10% af þvi fé sem fyndist úr ráninu þeim, sem gæfi upplýsingar er leiddu til handtöku bankaræningjans. Tryggingafélagið hefur nú greitt piltunum verðlaunin og hafði þýzka sendiráðið hér á landi milligöngu í málinu. Framhald á bls. 19. Frammistaða Miles kom mér mest á óvart — fyrir utan eigin ófarir, segir Friðrik Olafsson Austri seldur á upp- boði fyrir 40 millj. kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.