Morgunblaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTOBER 1977 5IMAK iM 28810 car rental 24460 bílaleigan GEYSIR BORGARTÚNI 24 LOFTLEIDIR E 2 1190 2 11 38 Fa III /I /í/í.ll 'AiAjm 22*0*22- RAUOARÁRSTÍG 31 FERÐABILAR hf. Bílaleiga. sími 81260. Fólksbílar, stationbílar. sendibíl- ar. hópferðabílar og jeppar. Örninn er seztur eftir írska rithcfund- inn Jack Higgins í þýðingu Ólafs Ólafs- sonar, lcgfræðings. Þessi afburða frá- scgn, um starfsemi þýzku leyniþjónust- unnar, á enskri grund, veturinn 1943, er nú búið að kvikmynda og er verið að sýna hana þessa dagana í Hafnarbíói. BÓKIN FÆST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM Lerftur h.f. AlM.YSINdASIMIVN F,K: 22480 útvarp Reykjavlk FÖSTUDIkGUR 7. október MORGUNNINN 7.00 Morgunuivarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnana kl. 8.00: Kristján Jónsson les þýðingu sfna á „Túlla kóngi“ eftir Irmelin Sandman Lilius (7). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Spjallað við bændur kl. 10.05. Morg- unpopp kl. 10.25. Morguntón- leikar kl. 11.00: Georges Bar- boteu og Geneviéve Joy leika Adagio og Allegro fyrir horn og pfanó op. 70 eftir Robert Sehumann / Elfriede Kiinschak, Vin/enz Hladky og Maria Hinterleitner leika Divertimento ó D-dúr fyrir tvö mandólín og sembal eftir Johann Conrad Sehlick / Walter Trampler og Búda- pestkvartettinn leika Strengjakvintett nr. 1 f F-dúr op. 88 eftir Johannes Brahms. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SIÐDEGIÐ 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Svona stór“ eftir Ednu Ferber. Sig- urður Guðmundsson þýddi. Þórhallur Sigurðsson les (9). 15.00 Miðdegistónleikar Tékkneska fílharmonfusveit- in leikur „Skógardúfuna", sinfónískt Ijóð eftir Antonín Dvorák; Zdenek Chalabala stjórnar. Pál Lukáes og Ung- verks ríkishljómsveitin leika Konsert fyrir lágfiðlu og hljómsveit eftir Bélá Bartók; János Ferencsik stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 Júlíferð til Júgóslavíu. Sigurður Gunnarsson fyrrum skólastjóri flytur fyrri hiuta ferðasögu sinnar. 18.10 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÖLDIÐ_______________________ 19.35 Úr atvinnulífinu. Magn- ús Magnússon viðskiptafræð- ingur sér um þáttinn. FÖSTUDAGUR 7. október 1977. 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Prúðu leikararnir (L) 1 þessum þætti heimsækir leikkonan Twiggy leikbrúð- urnar. Þýðandi Þrándur Thorodd- sen. 20.55 Heitnsókn til Sovétrfkj- anna. Nýlokið er fyrstu opinbcrri heimsókn forsætisráðherra íslands til Sovétríkjanna. ls- lenska sjónvarpið gerði fréttaþátt f þessari ferð. Eiður Guðnason fréttamað- ur stýrir þessari dagskrá. Kvikmyndun Sigmundur Arthúrsson. Hljóðupptaka Sigfús Guðmundsson. 21.55 Stutt kynni (Brief Encounter) Bresk biómvnd frá árinu’ 1945, byggð á einþáttungn- um „Stille Life" eftir Noel Coward. Laura og Alex hittast af til- viljun á járnbrautarstöð. Þau eru bæði í farsælu hjónabandi, en laðast hvort að öðru og taka að hittast reglulega. Þýðandi Ragna Ragnars. 23.20 Dagskrárlok. 20.00 Fyrstu tónleikar Sin- fóníuhljómsveitar tslands á nýju starfsári, haldnir f Há- skólabíói kvöldið áður; — fyrri hluti. Hljómsveitar- stjóri: Páll P. Pálsson. Ein- leikarar: Guðný Guðmunds- dóttir, Hafliði Hallgrímsson og Philip Jenkins. Tvö tón- verk eftir Ludwig van Beet- hoven: a. „Coriolan"- forieikurinn op. 62, b. Þríkonsert fyrir fiðlu, selló, píanó og hljómsveit op. 56. - Jón Múli Árnason kynn- ir tónleikana- 20.50 „Þetta er matarhola". Sigmar B. Hauksson talar við Gústaf Gíslason á Djúpavogi um búskap í Papey. 21.15 Einsöngur: Karl Frisell syngur lög eftir norska tón- skáldið Agathe Backcr- Gröndahl. Liv Glaser leikur á píanó. 21.30 Utvarpssagan: „Víkur- samfélagið" eftir Guðlaug Arason. Sverrir Hólmarsson les (15). 22.10 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Dægradvöl" eftir Bene- dikt Gröndal. Flosi Ólafsson les (19). 22.40 Áfangar. Tónlistarþátt- ur sem Ásmupdur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson stjórna. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Skjárinn kl. 20.55 Sjónvarpið sýnir frá Sovétför for- sœtisráðkerra Á DAGSKKÁ sjónvarpsins klukkan 20.55 í kvöld hefst klukkustundar dagskrá sem sjónvarpió hefur látið gera um opinbera heimsókn Geirs Hall- grímssonar forsætisráðherra til Sovétríkjanna nú fyrir skömmu. Sem kunnugt er fór Geir Hallgrímsson forsætisráðherra í opinbera heimsókn til Sovét- rikjanna í boði Sovétstjórnar- innar í lok septembermánaðar. 1 Moskvu átti forsætisráðherra Við komuna til Moskvu við upphaf hinnar opinberu heimsóknar. Geir Hallgrfmsson og Alexei Kosygin kanna heiðursvörð. viðræður við rússneska ráða- menn en hélt síðan ásamt fylgd- arliði í kynnisferð til Sovétlýð- veldanna Armeníu og Georgíu. 1 föruneyti forsætisráðherra voru m.a. blaðamenn nokkurra íslenzkra fjölmiðla og hafa birzt greinar og fréttaþættir eftir þá að undanförnu, þ.á. m. hér í Morgunblaðinu. Eiður Guðnason, fréttamaður Sjónvarpsins, stýrir dagskránni í kvöld og ætti aó vera forvitni- legt að sjá hvaða augum sjón- varpsmenn líta á heimsóknina. Kvikmyndun annaðist Sig- mundur Arthúrsson og hljóð- upptökuna annaðist Sigfús Guðmundsson. Dagskrárliður þessi hefst sem áður segir kl. 20.55. Sjónvarp kl. 21.55: Vel gift, en. .. Sjónvarpió sýnir í kvöld brezku þíómyndina Stutt kynni, eða Brief Encounter, eins og hún heitir á frummál- inu. Myndin var geró árið 1945, byggð á einþáttungunum „Still Life“ eftir Noel Coward. Leik- stjóri myndarinnar er Bretinn David Lean, sem þótti á þessum tíma einn athyglisverðasti leik- stjóri Bretlands, en hann stýrði m.a. myndinni Oliver Twjst. Með aðalhlutverkin fara Celia Johnson og Trevor Howard. Söguþátturinn er í stuttu máli á þá leið, að Laura og Alex hittast af tilviljun á járn- brautarstöð. Þau eru bæði vel gift, en laðast hvort að öðru og taka að hittast reglulega. Mynd- Celia Johnson og Trevor Howard f hlutverkum Lauru og Alex f kvikmynd kvöldsins. in sýnir svo hversu málin þró- ast. Trevor Howard fæddist í Kent í Englandi árið 1916. Lék fyrst í léikhúsi og þótti góður Shakespeare-leikari. Hann gegndi herþjónustu i heims- styrjöldinni síðari. Að henni lokinni hóf Howard að leika í kvikmyndum og er Stutt kynni hans þriðja mynd. Síðan lék hann m.a. í Umhverfis jörðinni á 80 dögum, Orrustan um Bret- land og Ryan’s Daughter. Celia Johnson fæddist í bæn- um Riehmond í Surrey á Eng- landi árið 1908. Nam leiklist i Royal Academy of Dramatic Art í London. Fyrsta hlutverk hennar á leiksviði í London var í Hundrað ára, árið 1929 og fyrst kom hún fram á leiksviði í New York árið 1931, þá sem Ófelía i Hamlet. Fyrsta kvik- mynd hennar var tekin árið 1942. Vanalega leikur hún inn- hverfar en tilfinninganæmar konur, og þykir hún einmitt sýna það vel í kvikmyndinni Stutt kynni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.