Morgunblaðið - 07.10.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1977
11
Hannes Guðbrandsson
Hækingsdal, áttræður
1 dag 7. okt. á Hannes í
Hækingsdal áttræðis afmæli.
Hann er fæddur 7. okt. 1897 í
Eyrarútkoti i Kjós, en þar hófu
foreldrar hans, Guðbrandur
Einarsson og Guðfinna
Þorvarðardóttir, búskap 1894.
Fluttist Hannes með foreldrum
sinum að Hækingsdal 1905, og þar
hefur hann átt heima æ síðan.
Sýnir það andlega framsækni
Hannesar, að hann leitaði sér
mennta á búnaóarskðlanum að
Hvanneyri, og lauk hann þaðan
prófi 1921.
Tveim árum síðar eða 1923 tók
hann við búi í Hækingsdal af
foreldrum sínum. Hóf hann strax
að bæta jörðina, og var nám hans
á Hvanneyri honum mikil lyfti-
stöng og hvatning við þetta mikil-
væga starf hans. Var Hækingsdal-
ur ein best ræktaða og uppbyggða
jörðin í sveitinni, er Hannes fékk
hana Guðbrandi syni sínum í
hendur til ábúðar.
En þótt Hannes hafi nú fengið
öðrum bú sitt í hendur, þá hefur
hann þó ekki meó öllu hætt af-
skiptum af búskapnum. Allt fram
til þessa hefur Hannes að mestu
einn hirt um féð á vetrum, þótt
margt hafi verið. Nei, Hannes
hefur ekki setið auðum höndum.
þótt bú hans sé nú komið í annars
hendur, enda býr hann við góða
heilsu, og er hinn léttasti bæði á
fæti og í lund.
Ekki hefur Hannes farið var-
hluta af erfiðleikum og sorg um
dagana. Hannes var tvíkvæntur,
en missti báðar konur sínar eftir
skammar samvistir. Fyrri kona
hans var Guðrún Gísladóttir.
Hana missti hann frá ársgömlum
syni þeirra 1923, eða sama árið og
hann hóf sjálfstæðan búrekstur í
Hækingsdal. Seinni kona hans
var Guðrún Sigríður Elísdóttir.
Hann missti hann 1944 frá sjö
ungum börnum. Mæddi nú mikið
á andlegu og líkamlegu þreki
Hannesar við þennan missi,' því
nú stóð hann uppi með sjö börn,
hið elsta 15 ára og yngsta 2 ára.
Ekki lét hann þó bugast þótt
þungt væri áfallið, heldur hélt
áfram búskapnum ótrauður, án
annarrar hjálpar en þeirrar, sem
börn hans gátu veitt honum. Var
það honum mikil stoð, að nú var
Haukur, sonur hans frá fyrra
hjónabandi, uppkominn, sem
hjálpaði föður sínum mikið við
bústörfin.
Brátt uxu svo börnin upp, og
urðu honum styrk stoð og hjálp
bæði utanbæjar og innan. Með
hjálp þeirra ræktaði hann jörð-
ina, breytti mýrum og móum í
grasgefin tún. Byggði ný gripahús
og hlöður og reisti myndarlegt
íbúðarhús.
Þótt Hannes væri hinn áhuga-
samasti og atorkymaður hinn
mesti i sinum eigin búskap, og
ætti lengi ekki vei heimangent
sökum hinna ungu og móðurlausu
barna sinna, sem segja má, að
hann hafi orðið að ganga jafnt í
móður sem föðurstað, hefur hann
alltaf verið mikill féiagshyggju-
maður, og tók mikinn þátt í
félagsmálum sveitar sinnar. Þjóð-
félagsmálin hefur hann líka látið
til sín taka, og hefur verið þar
sterkur og ósveigjanlegur hlekk-
ur.
Hannes er bæði vel ritfær og á
lika gott með aó koma fyrir sig
orði. Hefur hann yfirleitt verið
hinn traustasti maður i hverju því
máli, sem hann hefur látið til sín
taka.
Eins og gefur að skilja hlýtur
hver sá maður, sem býr yfir slík-
um eiginleikum sem Hannes ger-
ir, að verða valinn til forustu í
félagsmálum sveitar sinnar, og er
þar eingin undantekning með
MÁNUDAGINN 10 október n k verð-
ur dregið í happdrætti Iðnkynningar i
Reykjavik Aðalvinningur i happdrætt-
inu er 45 ferm sumarhús framleitt af
Húsaiðjunni Verðmæti hússins er kr
4 6 milljómr kr uppsett Aukavinnmg-
ar eru alls 50 talsins hver að verðmæti
kr 28 000 — Eru það kven- og karl-
fatnaður framleiddur af Dúk hf og
Hannes. Mun ég nú aðeins
minnast örlítið á félagsstörf hans
fyrir sveit sína, en ég tek það
fram, að hér er aðeins stiklað á
fáu einu.
Um langt skeið átti Hannes sæti
i hreppsnefnd Kjósarhrepps eða
þangað til hann baðst undan
endurkjöri. Formaóur var hann í
fjárræktarfélagi Kjósarhrepps.
Sportver hf Heildarverðmæti vinninga
er því kr 6 millj kr
Tilgangur happdrættisins er tvíþætt-
ur Annars vegar sem einn liður i hinni
viðamiklu iðnkynningu í Reykjavík og
hins vegar sem tekjuöflun upp í hinn
mikla kostnað. sem Iðnkynning i
Reykjavík hefur leitt af sér.
Stjórnarnefndarmaóur í búnaðar-
félagi Kjósarhreppps. Réttar-
stjóri Kjósarréttar um langt
skeið. Stjórnarmaður í veiðifélagi
Kjósverja. Gjaldkeri sjúkrafélags
Kjósarhrepps um tima. í stjórn
Bræðrafélags Kjósarhrepps, og
formaður ungmennafélagsins
Drengs um skeið.
Öll þessi félagsstörf hefur nú
Hannes losað sig við, flest fyrir
mörgum árum. Er það þó ekki af
því, að hann hafi skort andlegt né
líkamlegt þrek til að taka virkan
þátt i félagsmálum sveitar sinnar
lengur, heldur hefur hann talið
sjálfsagt að vikja, svo að hinir
yngri kæmust að.
Hannes er raungóður maður og
sannur vinur vina sinna. Hann er
undirhyggjulaus og má treysta
honum í hvivetna. Á ég margar
góðar minningar um samskipti
okkar og samverustundir, bæði á
gleðimótum og kyrrum stundum.
Með þakklæti í huga fyrir öll
okkar kynni óskum við hjónin af-
mælisbarninu alls velfarnaðar
núna við byrjun niunda tugarins.
Kristján Bjarnason.
Verð hvers miða er kr. 400. — . Eru
þeir til sölu i happdrættishúsinu, sem
staðsett er í Lækjargötu fyrir framan
Gimli Er það opið daglega kl
10 00—21 00
Framkvæmdastjóri happdrættisins
er Sigurður Ágúst Jensson og veitir
hann allar upplýsingar i sima 24473
eða 29360
Happdrætti Iðnkynningar — Dregið 10. október
TROÐFUL
BÚÐ AF
NÝJUM
HAUST-
VÖRUM
★ Peysur
★ Jakkar
★ Mussur
★ Blússur
★ Töskur