Morgunblaðið - 07.10.1977, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÖBER 1977
12
Sæmundur Auðunsson
skipstjóri — Minning
Fæddur 4. október 1917.
Dáinn 30. september 1977.
Það var á haustdögum árið
1938, að fundum okkar Sæmund-
ar Auðunssonar bar fyrst saman.
Þá settumst við báðir í Stýri-
mannaskóla Islands. Aður hafði
ég enginn kynni haft af Sæmundi,
en varð þess skjótlega vis, að þar
fór enginn meðalmaður. Hann gat
sér þegar traust og vinsældir
skólabræðra sinna með traustri
og virðulegri hógværð. Þegar á
unga aldri hafði Sæmundur
myndað sér skoðanir á vandamál-
um þjóðfélagsins og hvað stæði til
bóta. En þvi miður var hann, bæði
þá og síðar, of hlédrægur til þess
að koma þeim á framfæri; honum
var annað betur gefið en að berja
bumbur fyrir sjálfum sér. Þó gat
ekki hjá því farið, að slíkur
maður yrði sóttur ráða.
II.
Að loknu burtfararprófi úr
Stýrimannaskólanum vorið 1940
fór Sæmundur á sjóinn. Þá geis-
aði síðari heimsstyrjöldin.
Sæmundur fór sem stýrimaður á
b/v Garðar frá Hafnarfirði og var
á þvi skipi til haustsins 1941, að
hann réðst sem 1. stýrimaður á
b/v Vörð frá Patreksfirði og
sigldi á honum til stríðsloka árið
1945. Þá fór hann í land og var
eitt ár í landi, en réðst svo til
Útgerðafélags Akureyringa og
tók við skipstjórn á fyrsta togara
þess félags, Kaldbaki, vorið 1947.
Er síst of mælt, þótt sagt sé, að
með farsælli skipsstjórn á því
skipi hafi Sæmundur lagt fram
verulegan skerf til þess að gera
Akureyri að blómlegum útgerðar-
stað togara.
Við áramótin 1950—1951 tók
Sæmundur við skipstjórn á b/v
Harðbak, eign sama félags, einn
af seinni nýsköpunartogurunum,
en nokkru stærri en Kaldbakur.
Með Harðbak var Sæmundur til
ársins 1956.
Árið 1956 tók Sæmundur við
forstöðu Fylkis h.f., eftir lát Aðal-
steins heitins Pálssonar skip-
stjóra, aðaleiganda þess félags. Þá
um haustið sökk b/v Fylkir, eign
Fylkisfélagsins, þegar tundurdufl
sprakk i vörpunni við skipssíðu.
Sem betur fór varð mannbjörg.
Eftir að Fylkir sökk, var lítið
um að vera hjá fyrirtækinu. Fór
Sæmundur þá sem skipstjóri í
nokkrar ferðir á skipum, sem
send voru í fiskileit. Aður hafði
hann farið í slíkar ferðir á b/v
Harðbak. Hér má og geta þess, að
í júlímánuði 1956 fór Sæmundur i
fiskileit á b/v Fylki til Austur-
Grænlands. I þeirri ferð fundust
gjöful fiskimið. Voru ein þeirra
kennd við Sæmund, en hann rit-
aði smá blaðagrein og baðst und-
an þvi að miðin væru við hann
kennd og bað um að þau yrðu
nefnd „Fylkismið“, hefur það
nafn haldist síðan. Af Fylkismið-
um hefur komið mikill og góður
afli.
Árið 1957 eignaðist Fylkisfélag-
ið nýjan Fylki. í aprilmánuði 1958
fór Sæmundur til fiskileitar á
nýja Fylki til Austur-Grænlands
og fékk þá góðan afla af þorski á
Fylkismiðum, en það var í fyrsta
skipti sem þorskur veiddist að
nokkru marki við A-Grænland.
Síðar um sumarið fór Sæmundur
tvær ferðir til fiskileitar á Ný-
fundnalandsmið. í þessum
ferðum fundust áður óþekkt mið,
sem kölluð voru Sundáll og Ritu-
banki, og fékks þar feiknamikill
karfaafli. Þau karfamið voru síð-
an um árabil stunduð af íslensk-
um togurum með mjög góðum ár-
angri.
I árslok 1966 hætti Sæmundur
framkvæmdastjórastarfi hjá
Fylkisfélaginu, sem þá hætti tog-
araútgerð, og réðist í ársbyrjun
1967 sem framkvæmdastjóri til
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og
gegndi því starfi til haustsins
1970. Fyrir áramótin 1970/1971
tók hann við skipstjórn á rann-
sóknaskipinu Bjarna Sæmunds-
syni, sem þá kom nýtt til landsins.
Var Sæmundur með það skip allt
til dánardægurs, en hann lést i
svefni á heimili sínu aðfaranótt
30. september s.l.
III.
Sæmundur var fæddur a Minni-
Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd 4.
október 1917. Foreldrar hans
voru hjónin Vilhelmina Þor-
steinsdóttir og Auðunn Sæmunds-
son, kunnur sjósóknari á sinni tíð.
Sæmundur ólst upp í stórum syst-
kinahópi, elstur bræðranna, en
þeir eru allir vel þekktir togara-
skipst jórar.
Árið 1939 lést móðir Sæmundar
og var yngsta barnið þá tæplega
sex ára að aldri. Strax og kraftar
leyfðu fór Sæmundur að hjálpa til
við heimilisstörf, en með útgerð
og sjósókn stundaði faðir hans
búskap. Sæmundur vandist því
frá barnæsku öllum algengam
störfum, sem þá var títt, og
snemma fór hann að róa með
föður sínum.
Sæmundur var gjörvilegur
maður að vallarsýn, mikill um
herðar og þrekinn, framkoman
róleg og æðrulaus, en slík er oft-
ast framgang;a þeirra manna, sem
eru en sýnast ekki. Sæmundi
Auðunssyni hæfði vel orðið karl-
menni. Þegar b/ Skúli fógeti
strandaði við Grindaiík 11. apríl
1933, var Sæmundur i áhöfn tog-
arans, aðeins 15 ára gamall. Var
þá á orði haft, að skipsbrotsmenn
hefði þurft að styðja i land nema
einn 15 ára ungling, sem gekk
óstuddur. Löngu síðar var Sæ-
mundur spurður að þessu í blaða-
viðtali og gerði þá lítið úr; hins
vegar hefði honum verið kalt, ís-
lensku ullarnærfötin, sem móðir
hans bjó honum hefði þá líklega
bjargað lífi hans, en ekki tímdi
hann að skera göt á stígvélin sín
sem voru full af sjó. Á þeirri tíð
voru skipsrúm á togurum eftir-
sótt og nokkuð mun hafa verið
spunnið í þann ungling 15 ára,
sem þá stóð fyrir sínu í vinnu á
togurum. Enda fékk Sæmundur
fljótlega annað skipsrúm og
þurfti ekki að kaupa sér ný stig-
vél.
IV.
Það eru nú nærfellt 40 ár, sem
ég hefi þekkt Sæmund Auðuns-
son. Ég þekkti hann náið persónu-
lega og sem sjómaður tel ég mig
geta metið störf hans og framlag
til islensks sjávarútvegs og fiski-
rannsókna. Sem skipstjóri fór
hann oft eigin leiðir, treysti
reynslu sinni og viti, þótt ekki
hefði hann í hámælum. Hann
vissi vel, að ekki er allur lær-
dómur á bókina skráður og að
mörgu höfðu gamlir menn tekið
eftir um göngu fiskjar og legu
miða. Sæmundur nam bæði af eig-
in reynslu og með lestri fræðirita
og jók við. Mátti reyndar fletta
upp í honum sem bók í flestu þvi
sem hann hafði lesið um þau efni.
Fáir íslenskir skipstjórar hafa á
einu ári komið með meiri afla að
landi en hann.
Sæmundur hafði mikið yndi af
skák og var góður bridgespilari.
Viðlesinn var hann og stálminn-
ugur. Yndi hafði hann af ljóðum
og mat mest Einar Benediktsson
allra skálda. Snilld Einars og dýpt
í hugsun heillaði Sæmund.
Árið 1947 kvæntist Sæmundur
eftirlifandi konu sinni, Arndísi
Thoroddsen. Þau áttu tvö börn,
Auðun og Ingibjörgu.
Að leiðarlokum vil ég og fjöl-
skylda mín þakka Sæmundi Auð-
unssyni og fjölskyldu hans ótald-
ar ánægjustundir. Við, sem þekkt-
um Sæmund vel, höfum öll misst
mikið og þjóðarskaði er að slíkum
manni. En hvað er það hjá sorg og
missi konu hans og barna.
Þeim bið ég guðs blessunar.
Einar Thoroddsen.
Maðurinn með ljáinn ríður
geyst þessa dagana. Meðal þeirra,
sem fyrir höggi hans verða, eru
menn á góðum aldri, og í kunn-
ingjahópinn koma uggvænleg
skörð.
Engum kom dauðinn til hugar,
sem sá Sæmund Auðunsson skip-
stjóra, hraustmenni að burðum og
hýran á brá. Sízt varði okkur svo
skörp skil lífs og dauða, þegar við
sátum með honum að tafli þrír
félagar sólarhring áður en hann
var allur.
Sæmundur var búinn að vera
einn félaganna í litlum, óformleg-
um skákklúbb um árabil, og er
okkur nú mikil eftirsjá að honum
úr þeim þrönga hóp. Sæmundur
var afbragðs hugkvæmur og
skemmtilegur skákmaður, og
hann hafði yndi af þeirri list. At-
vinna hans á sjónum leyfði hon-
um ekki sem skyldi aö taka þátt í
skákfundum okkar, en þeim mun
meiri var þá tilhlökkunin og til-
breytingin að fá að heyja við hann
snerru, þegar hann var í landi, og
ekki mun hann hafa fýst þess
síður. Er óhætt að fullyrða að
hann fór yfirleitt ekki með skarð-
an hlut frá skákborði fremur en
borði á skipi sínu, en hann var
sem kunnugt er aflasæll togara-
skipstjóri fyrr á árum.
Við félagarnir þökkum honum
og frú Arndisi Thoroddsen konu
hans margar góðar samverustund-
ir á heimili þeirra hjóna og endra-
nær, og henni og börnum þeirra
skal tjáð innileg samúð í fyrir-
varalausri sorg þeirra.
Eitt sinn sló ég því fram við vin
minn Sæmund, hvort hann tæki
mig e.t.v. einhvern tíma með sér i
eina ferð á „Bjarna Sæmunds-
syni“ mér til hvíldar og hressing-
ar i sjávarlofti á sjávaröldum.
Ekki tók hann því allfjarri, og
nokkru seinna spurði hann mig
raunar, hvort ég væri til í tuskið.
F // A T
f.
og
goður
bíll
Verð kr.
'g&T bíll sem hentar J&v
f sérlegavel Jf 1.380.000,-
ísienzkum Ti| öryrkja kr.
aðstæðum veðri ^ . no
og vegum.
i,«
Til afgreiðslu nú þegar
FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI
Davíð Sigurðsson lif.
SÍÐUMÚLA 35. sími 85855.
SOKKA
BUXUR
K.SKAGFJÖRÐ HF.S.24120
í 1 Jð * I; u i
* j , > < /
i