Morgunblaðið - 07.10.1977, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTOBER 1977
VtK>
MORfí-dK/
KflFF/NO
S-j,
Ég flýg aldrei aftur á þessum
kjarakjörum flugfélaganna.
Verðum við ekki að leita að-
stoðar?
£g held hann hafi stigið ofaná
sjálfan sig?
Innflutning-
ur gæludýra
„Ég las hjá Velvakanda bréf
dagsett 24. september, „Förum
betur með hross í stóðréttum", og
1. október „Um dýraspítalann“
eftir Marlus Helgason. Einnig hef
ég nýlokið við að lesa bók, „The
Psychic Power of Animals", eftir
Bill Schul. Þá bók ætti sérhver
Islendingur að lesa og vona ég
reyndar að hún verði þýdd sem
fyrst. Hvað dýrum viðvikur þá
eru Islendingar næstum eins og
barbarar miðað við aðrar þjóðir
og má minna á hina rausnarlegu
gjöf sem dýraspítalinn var og
spyrja hvort slfkt þurfi að vera á
forsíðufréttum?
Ég veit að mjög hæfur enskur
maður hafði verið kjörinn til að
starfa við dýraspftalann á siðasta
ári. En viljið þið vita hvað varð
um þann unga mann? Hann mátti
ekki taka hund sinn með hingað.
Ég hugsa að hundurinn hafi ekki
getað talað neina fslenzku!
Ég kom til tslands fyrir ári eftir
að hafa búið ásamt börnum mfn-
um þremur í Bandarlkjunum, og
kom ég aftur af ástæðum sem eru
svo ótrúlegar, en ég nefni þær
ekki hér; reyndar er ég að skrifa
bók um það mál. Við höfum tapað
öllu og horfum nú upp á fátækt
hérna. Við áttum m.a. tvo gælu-
hunda, 250 dala hollenskan
Keeshond og svartan og hvftan
„tomcat", sem rétt eins og lítill
krakki þurfti að hjúkra og annast
um og gerði það hinn hundurinn,
sem ekki átti hvolpa. Þessi dýr
uxu upp ásamt litilli dóttur
minni, sem nú er 4 og hálfs árs
gömul. Hún og bróðir hennar
voru mjög hænd að dýrunum.
Þessi tvö dýr hafa farið með
okkur um 11 fylki Bandarfkjanna
og þau hafa gætt húss og eigna
fyrir okkur. Þegar við fórum frá
Bandarkjunum urðum við að
skilja þau eftir I Flórfda og á
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Endalaus talning slaga, punkta
og möguleika ásamt nýtingu
þéirra eru aðalhjálpartæki varn-
arspilarans. ()g þegar allt þetta
dugir ekki verður að treysta á
ímyndunaraflið og trúna á að
hægt sé að hnekkja spilinu.
í dag fá lesendur sér sæti i
vestur og nýta þessi hjálpartæki í
vörn. Allir utan hættu en suður
gaf.
Norður
S. DG76
H. G4
T. 643
L. G1052
Vestur
S. K
H. ÁKD1086
T. A5
L. D874
Sagnirnar gengu þannig:
Surtur Voslur Nordur Austur
1 S 2II 2 S pass
4 S allirpass
Það er eðlilegt að spila út
hjártaás og síðan kóng. Austur
lætur tvist og þrist en suður sjöu
og nfu. Hvaða spili fínnst lesend-
um vestur ætti að spila í þriðja
slag?
Fátt virðist til bjargar. Við sjá-
um þrjá slagi og ekki þýðir að
búast við hjálp frá austri. Hann á
sennilega ekkert háspil. Og spaða-
kóngurinn virðist dæmdur til að
falla i ásinn.
Þvi ekki gefa suðri innkomu á
blindan!
Norður
S. DG76
H. G4
T. G43
L. G1052
Vestur
S. K
H. AKD1086
T. Á5
L. D874
Austur
S. 432
H. 532
T. 9872
L. 963
Suður
S. Á10985
H. 97
T. KDG10
L. ÁK
Sagnhafi svinar ekki trompi
nema við gefum honum innkom-
una, og það gerum við með því að
spila hjartadrottningu. Hver veit
nema hann falli í gildruna.
L'
RETTU MER HOND ÞINA
F ramhaldssaga eftir
GUNNAR HELANDER
Benedikt Arnkelsson
þýddi
62
rigna yfir réttláta og rangláta,
segir I Biblfunni.
Forss lét sig síga niður á
jörðina, hallaði sér að steinin-
um og hlustaði áhugalitill.
— Haltu bara áfram, ég er
viðbúinn hinu versta.
— Nú segja kristin fræði —
kennisetningarnar mundir þú
segja — að VIÐ eigum fyrir
okkar leyti að elska á sama
hátt, af þvi að Guð elskaði okk-
ur að fyrra bragði — enda þótt
við verðskulduðunt ekki kær-
leika hans. Þá er til dæmis ekki
spurt að þvf, hvort svert-
ingjarnir séu verðugir eða
óverðugir heldur er einfaldlega
haldið áfram að vinna að
kristnihoði. Agape á að berast
um okkur til annarra manna.
Við Eigum að vera farvegur
apap
— Heyrðu, eigum við ekki að
halda áfram ferðinni?
— Nei, hestarnir verða að
hvíla sig svolftið lengur. Þú
sleppur ekki strax. Það er að
segja: Fyrst framan af finnst
okkur svertingjarnir vera
tónelskir og glaðir og viðmóts-
þýðir á allan hátt...
— Ekki mér.
— Nei, en mér fannst það.
Og svo þreytumst við á þeim og
viljum helzt fara heim. En þá
minnumst við þess, hvers vegna
við komum hingað. Agape. Og
þá er eins og okkur sé lyft yfir
umræðurnar um kynþátta-
vandamálin og manngerð svert-
ingjanna. ALLIR ménn eiga að
njóta miskunnsemi og réttlætis
hvernig sem þeir eru.
Erik fannst hann vera óhress
og illa fyrir kallaður til að
hugsa. Hann varð að taka sig á
til að gcta svarað.
— Að þú skulir geta haldið
þessu áfram I slfkum hita.
Jæja, þetta eru svosem merki-
legar kenningar, sem þú heldur
fram. En það er hægt að berjast
fyrir réttlæti öllum til handa
þó að menn séu ekki írúhneigð-
ir. Venjuleg, eðlileg mann-
gæzla ætti að geta það, eða
hvað?
— Það kann svo að vera. En
til þessa hefur enginn komið
hingað og starfað meðal svert-
ingjanna af manngæzku einni
saman.
örn naut þess út f yztu
æsar að predika. Hann hélt á
sfðustu brauðsneiðinni, í hend-
inni, en gieymdi að borða.
Ilann hélt áfram:
— Reyndar veit ég ekki,
hvort þessi svokallaða al-
menna. einfalda manngæzka
ER eins almenn f landi, þar
sem agape-kenningin hefur
ekki mótað almenn viðhorf
fólks kynslóð eftir kynslóð. Ég
býst við, að algengast sé, að
menn séu metnir eftir því,
hvert gagn mcgi hafa af þeim.
Forss var orðinn gramur.
—Þú miðar sem sé lífsvið-
horfið og kristnihoðsstarfið við
aðeins eitt: Að Guð er til og að
hann er agape, kærleikur.
Jæja, en hvernig veiztu, hvort
Guð er til? Ekki er mér kunn-
ugt um, að nein sönnun sé til
fyrir þvf.
Örn hvessti vopn sfn, ánægð-
ur á svip. Þetta var ekki i frysta
sinn, sem hann svaraði þessari
spurningu.
— Hvers konar sönnun viltu
fá?
Forss tíndi nokkra maura,
sem skriðu upp eftir fæti hans.
Hann hafði ekki beinlinis ein-
beitt sér að umræðuefninu.
— Tja, ef það skal sannað, að
maður sé til, þá verður vfst að
spyrja þá, sem hafa séð þann,
sem um er að ræða, eða tala við
hann. Það er meira að segja
hægt að mæla viðkomandi eða
setja hann á vog.
— Gott og vel, en andlegan
veruleika er þó væntanlega
ekki hægt að SANNA á þennan
hátt? Ilvernig eígum við að
geta sannað, að persónuleika
þfnum eða sálariffi sé á þennan
veg farið eða hinn? Með því að
skipta þér í svo og svo mörg
kíló, beinhnútur og lítra af
blóði og vega þig? Persónuleik-
inn finnst Ifklega ekki á þann