Morgunblaðið - 07.10.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÖBER 1977
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRA MANUDEGI
UÍJJÆT^ÍIM'UU
næstu sex mánuðum reyndum við
að fá leyfi til að taka þau með til
tslands. Við vitum að margir
hundar hafa komist inn f landið
með eða án leyfis. En þegar ég
loks fékk leyfið fyrir milligöngu
góðs manns, sem skildi hvaða
áhrif þetta gæti haft á börnin,
komst ég að þvi að búið var að
lóga dýrunum. Þessi gæludýr
voru það eina sem börnin áttu
eftir að við höfðum tapað öllu,
heimiiinu, bílnum, húsgögnun-
um. Ég hafði reynt að fá utan-
rfkisráðuneytið f lið með mér til
að bjarga dýrunum fyrir börnin,
en allt kom fyrir ekki. Hvert sem
ég fór eftir hjálp var sama svarið:
skilningsleysi, axlayppingar og
ruddamennska. Það er dapurlegt.
En f væntanlegri bók minni
mun ég koma dýravinum á óvart,
þvf ég veit að guð hefur heyrt
bænir barna minna og þau munu
hitta dýrin dag einn, en það verð-
ur ekki hér á landi. Hver sem les
og skilur bókina „The Psychic
Power of Animals" mun skilja
hvað ég á við hér.
Sonja R. Haraldsson.“
Reikningar
Þeir aðilar, sem hafa reikninga á Iðnkynningu í
Reykjavík eða Iðnkynningu í Laugardalshöll,
skulu skila þeim að Hallveigarstíg 1, fyrir 16.
október n.k.
IÐNKYNNING í REYKJAVÍK
Þessir hringdu . . .
0 Prentvilla
Nýlega barst Velvakanda
þetta skilti sem stendur við einn
þann stað á Islandi þar sem er-
lendir ferðamenn hafa gjarnan
viðdvöl.
Ekkert er við staðinn að athuga,
en á skiltinu er „prentvilla", sem
enskumælandi ferðamenn henda
sennilega gaman að. t enska texta
skiltisins er skrifað t f stað d í
orðinu admittance, f sjálfu sér
ekki afgerandi villa en bendir þó
til takmarkaðrar kunnáttu á rit-
uðu ensku máli
0 Gott erindi þakkað
Arni Helgason:
„Ég hlustaði með gaum-
gæfni á sunnudag á erindi
Kristjáns frá Djúpalæk í útvarp-
inu og var mjög hrifinn af þvi og
er honum innilega þakklátur fyr-
ir. Það var auðfundið að þarna
talaði maður ábyrgðartilfinningar
og þjóðhollustu, sem því miður er
ekki alltof mikið af í dag. Kristján
frá Djúpalæk flytur jafnan mál
sitt skýrt og innilega og talar jafn-
an þannig til fólksins að það fer
ekki milli mála hvað hann mein-
ar. 1 erindum sínum er hann mað-
ur uppbyggingar og er því mikill
fengur að fá þessi erindi í fjöl-
miðla, og vil ég ekki láta hjá Ifða
að þakka honum fyrir. Með kærri
kveðju.“
Frá málefnum útvarps snúum
við okkur að sjónvarpinu.
SKÁK
Umsfón:
Margeir Pétursson
Haustmót T.R. 1977 er nú hafið.
1 fjórðu umferð mótsins kom
þessi staða upp í B flokki i viður-
eign þeirra Sigurðar Jónssonar,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Sævars Bjarnasonar.
31. Rf6+ — Kh8, 32. Rh5! — De7
( Ef 32. .. Dxg6 þá 33. Dxf8+ —
Kh7, 34. Rf6+) 33. Dxc8 — Dd6,
34. Kh3 — Kg8, 35. Dc8 — Dc7,
36. Dxe6+ og svartur gafst upp
um leið.
% Um enskukennslu
sjónvarps
Ein með áhuga:
— Ég vil gjarnan fá að
vekja á því athygli að ensku-
kennslan sem nú er f sjónvarpi og
reyndar útvarpi lfka er ekki á
nógu hentugum tíma. T.d. geta
mæður og feður, sem eru með
smábörn ekki notið hennar því
hún er kl. 19 á miðvikudögum og
kl. 18.15 á laugardögum f sjón-
varpinu og á laugard. kl. 17 í
útvarpi. Ég held að þessa tfma
verði einnig að hafa að kvöldi til
þegar minnstu börnin eru komin f
ró, því þessi enskukennsla virðist
mjög skemmtileg og er áhuga-
verð. En hún er sem sé að mfnu
áliti á annatfmum fyrir marga og
þvf beini ég þeim tilmælum til
sjónvarpsins að hugað verði að
öðrum tíma fyrir hana einnig.
HÖGNIHREKKVÍSI
Það þarf meira til en eiliheimilaleikfimi!
S\G6A V/öGPk £ \/LVEkAW
Auglýsing
til félagsmanna F.Í.B.
í undirbúningi er hópferð til London. Brottför
að kvöldi 21. okt., heimkoma miðvikudags-
kvöld 26. okt. En á þessum tíma er mikil
bílasýning í London. Þeir félagsmenn er áhuga
hafa á ferð þessari eru beðnir að hafa samband
við skrifstofu félagsins fyrir 1 4 okt n.k.
Félag íslenskra Bifreiðaeigenda,
Skúlagötu 51, sími 29999.
Brúður sem gráta þegar snuðið
er tekið frá þeim
Eigum þrjár gerðir. Sendum í póstkrcfu.
LEIKFANGAVER
Klapparstig 40. S — 12631.
Aðstoð íslands við
þróunarlöndin auglýsir
Framkvæmdastofnun aðstoðar Noregs við þró-
unarlöndin (NORAD) hefir óskað eftir því að
auglýstar yrðu á íslandi 10 kennarastöður við
Institute of Development Management í
Tanzaníu, en sú stofnun er rekin af þrem
Norðurlandanna, Danmörku, Finnlandi og Nor-
egi
Af stöðum þessum eru fimm á sviði reiknings-
halds og endurskoðunar. Þrjár á sviði stjórnun-
ar. Ein í tölfræði og áætlanagerð og eina í
landbúnaðar- og samvinnuhagfræði eða hag-
fræði eða próf löggiltra endurskoðenda, enn-
fremur er góð enskukunnátta nauðsynleg.
Gert er ráð fyrir þvi, að þeir sem ráðnir verða
hefji störf frá n.k. áramótum. Umsóknarfrestur
er til 25. október.
Nánari upplýsingar um einstök störf verða
gefnar á skrifstofu Aðstoðar íslands við
þróunarlöndin, Lindargötu 46, (efri hæð) Rvk.,
opin mánudaga og miðvikudaga kl. 14 30 —
1 7.00. Þar fást einnig umsóknareyðublöð.