Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1977
57
Þessi hersveít úr safni Fairbanks var seld á 800 sterlingspund.
Tindátasafn selt á £9.000
+ Einkasafn leikarans
Douglas Faribanks Jr. af
tindátum var nýlega selt
á uppboði í London. Sam-
tals voru þetta 3 þúsund
tindátar og heildarverðið
sem fékkst fyrir þá var
rúm 9 þúsund sterlings-
pund. Faribanks byrjaði
söfnun sína þegar hann
var 12 ára en þá gaf faðir
hans honum nokkra tind-
dáta. Faribanks sem nú
er 67 ára seldi safn sitt
vegna þess að eftir að
hann seldi hús sitt f Kali-
forníu hafði hann ekki
pláss fyrir það. Hann seg-
ist þekkja hvern einstak-
an hlut af safni þessu.
Margir kaupendurnir
voru Amerfkanar.
Tindátar eins og þessir
voru áður seldir sem
leikföng en árið 1966 var
farið að framleiða þá úr
plasti og þessir gömlu
tindátar eru nú safngrip-
ir.
+ Söngvarinn og
skemmtikrafturinn Nat
Russel hefur að því er
hann segir sjálfur, f
hyggju að draga sig í hlé
frá hinu erilsama starfi
sínu og gerast rithöfund-
ur. Innan skamms kemur
út bæði í Danmörku og
USA fyrsta skáldsaga
hans sem hann nefnir
„On his way some-
where“. Efni bókarinnar
sem á dönsku hefur hlo't-
ið nafnið „Brödrene“ er
að mörgu leyti líkt sjón-
varpsþáttunum „Rich
man, poor man“ en ný-
lega var byrjað að sýna
þá f fslenzka sjónvarpinu
á sunnudögum og nefn-
ast þeir þar „Gæfa eða
gjörvileiki“. Bók Russels
á að gerast á æskudögum
föður hans í Missisippi,
Chicago og New York.
„Þetta er það sem mig
hefur dreymt um f mörg
ár,“ segir Nat Russel sem
hefur unnið að þessari
fyrstu bók sinni í fimm
ár og hann er þegar
byrjaður á bók númer
tvö.
, *««!
, ***’
,»»«
.***
Nýkominn
straufrír
sængurfatnaður
frá Dorma,
hannaöur af
Mary Quant.
Urval mynstra.
álrammar
Rammið sjálf inn
i hverjum pakka eru tveir ál-listar
með samsetningum
og leiðbeiningum.
KULICKE Plastpack.
Glært plast, karton og bak
Allt í einum pakka.
Algengustu stærðir.
Innan viss ramma — Kulicke ramma.
csiznzcÞ-