Morgunblaðið - 05.11.1977, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 05.11.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. XÓVEMBER 1977 5 Makaskipti— sem eru borg- inni hagkvæm — og meginóskir SVR uppfylltar A FUNDI borgarstjörnar 3. nóvember lá framnii samningur til staófestingar á makaskiptum milli borgarsjóðs og b.vggjenda væntanlegs húss að Hafnarstræti 22. Hið væntanlega hús mun rísa af grunni við norðurenda Lækjar- torgs þar sem nú stendur verzl- unarhúsið Hafnarstræti 22. Borgarstjóri Birgir tsleifur Gunnarsson (S) gerði grein fyrir samningnum og rakti sögu máls- ins sem mun vera orðin nokkuð löng. Húsið mun fullteiknað að utan í samræmi við skipulag svo og að nokkru leyti að innan. Hús- ið verður þrjár hæðir, sú neðsta verður inndregin og einnig sú efsta. í húsinu er gert ráð fyrir að SVR muni fá aðstöðu, og var tvisvar rætt a.m.k. um málið á fundi stjórnar SVR. A neðstu hæð verða m.a. veitingastofa og smá- verzlanir og mun sameiginlegt rými sem SVR fær með þeim vera 206 ferm., þar af verður eign borgarsjóðs 103 ferm. Húsnæðinu mun húsbyggjandi skila SVR til- búnu undir tréverk. Borgarstjóri sagði að húsbyggjandi hefði sam- þykkt þá kvöð, að á neðstu hæð yrði rekin veitinga- og verzlunar- þjónusta með svipuðu sniði og á Hlemmi. Svæðið sem SVR fær til afnota verður inni í gegnum mitt húsið frá suðri til norðurs. I stað þess svæðis sem SVR færi inni í húsinu fær húsbyggjandi 68 ferm. undir húsið af lóð borgarinnar. Utan við neðstu hæðina, undir skyggninu fær húsbyggjandi aö nafninu til 155 fem. en þar verður gangstétt. Frá gangstéttinni mun húsbyggjandi ganga i samræmi við óskir borgarinnar og verður stéttin að sjálfsögðu almennings- gangstétt. Þetta mun aðeins vera formsatriði vegna byggingarlags hússins. Auk þessa mun hús- óyggjandi greiða ellefu milljónir króna fyrir bílastæði. Lorgarstjóri sagði að meginósk- ir SVR hefðu verið uppfylltar. Hann sagði að ef litið væri á fjár- hagshliðina væri staðreyndin eftirfarandi. Borgin léti af hendi lóð samkvæmt markaðsverði að verðmæti 39 milljónir eða þar um bil. í staðinn fær hún húspláss sem fokhelt myndi kosta 20 millj- ónir og er það um 30% byggingar- kostnaðar en eins og borgin fær húsnæðið verður verðmætið 60—65% af byggingarkostnaði. Gangstéttin greiðist sem helm- ingur fasteignamatsverðs. Birgir ísleifur sagði: „Við ætlum engum borgara að leggja land undir gangstétt án þess að fá greiðslu fyrir sé um almenningsgangstétt að ræða.“ Málið liggur því skýrt fyrir og óskir stjórnar SVR hafa verið uppfylltar að mestu leyti sagði borgarstjóri að lokum. Sigurjón Pétursson (Abl) sagði, að þarna væri borgin að afsala sér 223 ferm. af landi sínu í miðborginni. Innganga væri öll um pláss SVR og húsið væri ein- kennilegt í laginu. Sigurjón sagði þetta hagkvæman samning fyrir lóðarhafa en ekki borgina, þetta væri dýrt, óhagkvæmt og algjör- lega ástæðulaus rausn. Því myndi hann greiða atkvæði á móti þessu. Borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins óskuðu bókaó: „Samn- ingur sá sem fyrir liggur um makaskipti á tilteknum fjölda fer- metra lóðar og húsnæði í væntan- legri byggingu að Hafnarstræti 20 og 22 er að okkar dómi mjög við- unandi fyrir borgina. Strætis- vagnarnir fá um 100 ferm á 1. hæð hússins til eignar og fullnæg- ir það þörfum þeirra fyrir far- þega og vagnstjóra. í staðinn læt- ur borgin af hendi u.þ.b. 68 ferm. lóðar undir umrædda byggingu. Þar sem sú kvöó fylgir byggingar- rétti á þessum lóðum, að umhverf- is húsið skuli vera almennings- gangstétt yfirbyggð teljum við Sérstakt línu- og neta- svæði út af Faxaflóa SjávarHtvegsráðuneytið hefur eins og á síðast liðnu hausti gefið út reglugerð um sérstakt línu- og neta- svæði út af Faxaflöa. Samkvæmt reglugeró þessari eru allar botn- og flotvörpuveiðar bannaðar, tímabilið 10: nóvember 1977 til 15. maí 1978 á svæði út af Faxaflóa, sem markast af línu, sem dregin er réttvísandi vestur af Sandgerðisvita i punkt 64°02’4 N og 23°42’0 V, þaðan réttvísandi norður í punkt 64°20’0 N og 23°42’ V og þaðan réttvísandi í austur. í frétt frá sjávarútvegsráðu- neytinu segir, að reglugerðin sé sett vegna beiðni frá Utvegs- mannafélagi Suðurnesja og að fenginni umsögn Fiskifélags' A kortinu sést veiðisvæðið fyrir línu og net. íslands, en veruleg aukning hafi orðið á línuútgerð frá Suður- nesjum undanfarin ár. Sparisjódurinn í Keflavík 70 ára Mánudaginn 7. nóv. eru liðin 70 ár frá stofnun Sparisjóðsins í Keflavík. Aðalhvalamenn að stofnun sjóðsins voru Þorgrímur Þórðarson, læknir í Keflavík, og Kristinn Daníelsson, prestur að Útskálum. Sparisjóðurinn er einn af öflugustu sparisjóðum lands- ins og nemur innstæða viðskipta- manna meira en 1600 millj. króna. Stjórnarformaður er Þor- gríniur St. Eyjólfsson, en spari- sjóðsstjórar eru Páll Jónsson og Tómas Tómasson. eðlilegt, að land undir þá gang- stétt verði ekki reiknað lóðarhafa á fullu verði enda ieggi hann gangstéttina og annist viðhald hennar. Þá mun lóðarhafi greiða fyrir bifreiðastæði eins og reglur borgarinnar segja til um eða 11 milljónir." Borgarfulltrúar Al- þýðubandalagsins gerðu stóra bókun en þar segir m.a.: „Við teljum að fyrirliggjandi samning- ur sé borginni mjög óhagkvæmur og að með honum sé verið að gefa lóðarhafa Hafnarstrætis 22 milljónatugi af almannafé." Þá segir í bókuninni, að svæði SVR muni nýtast illa það sé óreglulegt og eigi að nýtast með öðrum.. Borgarstjóri, Birgir ísleifur Gunnarsson, óskaði bókað: „Hluli af þeirri lóð, sem borgin afhendir þ.e, 155 ferm. af 223 ferm., er afhent með þeirri kvöð, að þar verði um aldur og ævi almenn- ingsgangstétt. Hér er um aó ræða lóðarræmu meðfram húsinu sem lendir undir skyggni er önnur hæð myndar. Fráleitt er að reikna svæðið lóöarhafa á fullu verði eins og borgarfulltrúar Alþýöu- bandalagsins vilja. Samnings- drögin gera ráð fyrir að helming- ur fasteignamatsverðs greiðist fyrir þann lóðarhlut. Rétt er og að benda á, að 1. hæð er inndregin samkvæmt kröfu skipulagsyfir- valda.” Samningurinn .var síöan stað- festur af borgarstjórn meö at- kvæöum borgarfulllrúa Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar- flokks. Blómstrandi stofulyng (Erika), er nú einnig fáanleg á íslandi, stofulyng er úrvals pottablóm, sem blómstrar fram eftir vetri ( Komið og skoðið blómaúrvalið hjá okkur aldrei meira en nú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.