Morgunblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977
23
Steinþór Gestsson:
Hlutfallsleg lækkun verð-
bólguvaxtar og ríkisútgjalda
Tengist kaupgjaldsvisitala verði út-
flutningsafurða og þjóðartekjum?
STEFNURÆÐA forsætisráðherra, Geirs Hallgrímssonar, sem
flutt var við útvarpsumræður á Alþingi í fyrrakvöld, var birt í
heild í Mbl. í gær. Hér fara á eftir lauslegir efnisþræðir úr
ræðum þingmanna í útvarpsumræðu i framhaldi af máli
forsætisráðherra.
„FRAMSOKIVI GENGUR
ÍHALDSERINDA"
Gils Guðmundsson (Abl) sagði sjálf-
stæðismenn hafa deilt hart á vinstri
stjórn fyrir 29 milljarða fjárlög á sinni
tíð Nú stæðu þeir sjálfir að 1 29 millj-
arða fjárlögum Þannig hefði hin
..sterka, borgaralega stjórn" staðið að
ríkisfjármálunum, enda hefði sjaldan
setið hér dáðlausari ríkisstjórn, né
slappari þingmeirihluti, þrátt fyrir fjöl-
menni sitt.
Gils sagði ríkisstjórnina handbendi
auðvaldsafla, sem hyggðust græða á
vinnu annarra Hún hefði í þeirra þágu
rekið hér verðþenslustefnu ASÍ og
BSRB hefðu náð nokkrum varnarsigr-
um, enda væri ekki hægt að stjórna
þessu landi í andstöðu við verkalýðs-
hreyfinguna
Gils deildi hart á Framsóknarflokk-
mn, sem hefði harðlæst öllum dyrum
að hugsanlegri vinstri stjórn og varpað
sér skilyrðalitið í ihaldsfletið Vitnaði
hann til Þrymskviðu, þar sem Freyja
var sögð ..óðfús i Jötunheima" Siðan
hefði Framsókn gengið ihaldserinda
Þar kæmu m a til gerðir hennar i
..herstöðvamálum” (varnarmálum). af-
stöðu til launafólks í landinu, gengis-
lækkanir og vísitöluskerðing í „her-
stöðvamálum" hefði Framsókn sporð-
rennt fyrri afstöðu sinni.
Gils (junniaugur
(■udmundsson. Finnsson.
útþennslu og mannaráðningum um
sinn Ýmsar framkvæmdir, sem stofn-
að hefðu til erlendra skulda, s.s. orku-
væðing og nýting jarðvarma, skiluðu
sér aftur i gjaldeyrissparnaði
Gunnlaugur sagði Framsóknarflokk-
inn til viðræðu um hvoru tveggja
persónulegra val kjósenda i kosningum
og nokkrar leiðréttingar á vægi at-
kvæða, t.d varðandi uppbótarþing-
sæti Flokkurinn hefði raunar verið
einn um að halda uppi vörnum fyrir
persónulegt kjör á sinni tið
Allrar aðgátar er þörf i efnahagsmál-
um þjóðarinnar, sagði Gunnlaugur
Hinsvegar er þjóðin betur i stakk búin
til að mæta og leysa úr vandamálum
sinum en nokkru sinni fyrr
SEGJA ÞARfTTpF-
ÁHÖFNINNI_______________
Benedikt Gröndal (A) sagði að gfatt
hefði verið á hjalla er stjórnarskútan
leysti landfestar og stóru flokkarnir
tveir hófu samsiglingu fyrir þremur
árum Þjóðarskútan hefði hinsvegar
villst í þoku verðbólgunnar Yfirmenn
hefðu lítt kunnað i siglingafræði Er
ekki rétt að skipta um áhöfn, spurði
Benedikt Gröndal — Ekki hefði tekizt
að sigrast á verðbólgunni Ekki tekizt
að tryggja stéttafrið Greiðslujöfnuður
væri enn óhagstæður Erlend skulda-
söfnun óhófleg Aðhald í opinberum
BcMiedikl Jón Árm.
Gröndal. Héðinsson.
gegn verðbólgu Erlendar skuldir taka
nærri 20% af gjaldeyristekjum okkar i
afborganir og vexti, sagði hann Flest
hefur gengið úrskeiðis hjá þessari rikis-
stjórn, sem þó er umkringd spreng-
lærðum sérfræðingum og ráðgjöfum
Agaleysi er alls staðar i þjóðlifinu en
þó mest á æðstu stöðum og í
embættismannakerfinu Þar hefur ekki
verið stefnt í aðhaldsátt Þvert á móti
afskræmir verðbólgan þjóðfélagið
Þrátt fyrir hækkun vaxta væri i raun
um rýrnun sparifjár að ræða hjá banka-
kerfinu sem næmi allt að 14 milljörð-
um í heild á sl ári Þetta er hróplegt,
sagði þingmaðurinn Fjárlögin hafa
vaxið um 100 milljarða i höndum
rikisstjórnarinnar Við fljótum nú.
sagði Jón, á háu útflutnmgsverðlagi,
sem getur brugðist, og náðarlánum
útlendra, sem eru tvíeggjuð
Siðan vék Jón að valfrelsi kjósenda í
komandi þingkosningum Með þvi að
samþykkja ágætt frumvarp Jóns
Skaftasonar (F) um óraðaðan fram-
boðslista, þar sem kjósendur númer-
uðu við frambjóðendur eftir eigin mati
væri þetta valfrelsi tryggt, strax á sumri
komanda Nú reyndi á þingmenn,
hvort þeir meintu og stæðu við stóru
orðin um persónulegra kjör og meiri
áhrifarétt hvers einstaklmgs í þjóðfé-
laginu Nú er tækifærið, sagði Jón
Ármann Næsta tækifæri kemur ekki
fyrr en eftir fjögur ár
LÍFDAGAR
RÍKISSTJÓRNAR
FJARA ÚT
Karvel Pálmason (SFV) sagði að
lifdaga hæstvirtrar rikisstjórnar vera að
fjara út Nú væri flutt stefnuræða
„byggð á forsendum, sem geta brugð-
ist”, eins og forsætisráðherra hefði
orðað það Og þá vrði að arina til enn
Karvel Stefán
Pálniason. Valseirsson.
Hvatti Gils launafólk til að hætta
stuðningi við „stéttaandstæðinginn"
og smiða sér pólitisk vopn í kjara-
baráttunni. Alþýðubandalagið væri sá
vettvangur þar sem verkafólk gæti náð
vopnum sinum
ATVINNUÖRYGGI
OG LANDHELGIS
___________SIGUR______________
Gunnlaugur Finnsson (F) vitnaði til
ræðu forsætisráðherra um þau við-
fangsefni sem framundan væru Hann
minnti á þann árangur sem náðst hefði
i tið núverandi rikisstjórnar, m a. með
Óslóarsamningi, í þá veru að hreinsa
200 mílna fiskveiðilandhelgi okkar af
erlendri veiðisókn Afstaða stjórnar-
andstæðinga til Óslóarsamkomulags
væri þeim verðugur vitnisburður.. sem
þeir kysu ekki að hafa hátt um nú Þá
hefði tekist að tryggja atvinnuöryggi
um gjörvalt landið, þrátt fyrir efna-
hagsáföll i upphafi stjórnarferilsins
Gunnlaugur sagði að augljósar vær-
ingar á hægri væng íslenzkra stjórn-
mála sýna það, að ríkisstjórnin hefði
ek-ki verið eins „auðsveip" tilteknum
þjóðfélagsöflum og stjórnarandstæð-
ingar vildu vera láta Það væri tákn-
rænt að öfgaöfl til vinstri og hægri
hefðu runnið saman i eitt í gagnrýni
sinni á rikisstjórnina Meðan svo væri,
væri hún á réttri leið
Siðan ræddi Gunnlaugur um upp-
byggingu atvinnulifs i strjálbýli, til
sjávar og sveita, en þaðan kæmi
meginhluti þeirrar verðmætasköpunar,
sem til yrði i þjóðarbúskapnum, bæði
til innanlandsneyzlu og gjaldeyrissköp-
unar Víst þyrfti að gæta hófs og sparn-
aðar i rikiskerfi, en ekki væri unnt að
draga saman segl í fræðslukerfi og
heilbrigðiskerfi, svo dæmi væru nefnd
Hinsvegar þyrfti að sporna við frekari
framkvæmdum takmörkuð — Mest
bæri á aðhaldi þar sem sizt skyldi i
heilbrigðis og fræðslumálum Hinsveg-
ar sýndi Kröfluævintýrið þverskurðinn i
aðhaldsstefnu rikisstjórnarinnar Boð-
uð væri stórhækkun á bensinverði til
vegaframkvæmda Hvort er sú gjörð
aðhald um framkvæmdir eða i verð-
lagsmálum, spurði hann
í stefnuræðu forsætisráðherra hægri
stjórnar i Sviþjóð hefði verið fjallað um
barnaleikvelli, dagheimili, bæjarlýð-
ræði, fatlað fólk, baráttu gegn eiturlyfj-
um: þ e mannleg vandamál og við-
fangsefni Forsætisráðherra okkar tal-
aði hinsvegar um efnahagsmálin ein,
frelsi i gjaldeyrismálum og verðlags-
málum Ólafur Thors sveigði Sjálf-
stæðisflokkinn frá ihaldsstefnu til
fjöldafylgis á sinni tið, sagði Benedikt
Núverandi leiðtogar flokksins stefna í
öfuga átt í samstjórn núverandi flokka
hefur Sjálfstæðisflokkurinn gleymt víð-
sýni Ólafs og Bjarna og Framsóknar-
flokkurinn félagshyggju og samvinnu-
stefnu Alþýðubandalagið er og sundr-
að og staðnað. sagði Benedikt, heldur
sér uppi á ímynduðum Evrókommún-
isma
Alþýðuflokkurinn starfar hins vegar
fyrii opiium tjöldum. hefur sett sér ný
lög uij > ja stefnuskrá, hefur mætt vilja
folk„ • ■ prófkjör Straumurinn liygur
til /^iþýöullokksins, sagði Benedikt
sk.ip.. parf pólitískan grundvöll fyrir
stéiíjí:iði, jöfnun á kosnmgarétti, leið-
réitinyu skattalöggjafar Sameina þarf
þjóðind til átaka í vanda efnahagslifs
og veiðbólgu, skapa samstöðu i
þjóðarfjölskyldunni
VALEFNI KJOS
ANDANS MA
TRYGGJA NU ÞEGAR
Jón Ármann Héðinsson (A)taldi
rikisstjórnina hafa brugðist i andófi
harðari aðgerða Við þvi skyldi þjóðin
búin Þjóðin ætti að vera i viðbragðs-
og hættustöðu. eins og fólkið á Kröflu-
svæði Og talað væri um aðhald Það
kæmi fram i Viðishússkaupum og
Seðlabankahúsi i Reykjavik — en sam-
drætti úti á landi Karvel sagði efna-
hagslif þjóðarinnar ekki i hættu sökum
þess, að launafólk tæki of mikið til sín.
Það væru aðrir sem hlytu of mikið af
kökunni
Karvel sagði að forsætisráðherra tal-
aði um viðbrögð og samstöðu sem
„virðingu veki" Virðing og traust á
efnahagsaðgerðum núverandi rikis-
stjórnar færi hinsvegar þverrandi.
bæði innanlands og erlendis Raunar
bera allir hinir hefðbundnu stjórnmála-
flokkar ábyrgð á þessari þróun og
afleiðingum hennar. Núverandi stjórn-
arflokkar hafa trónað á valdastóli i
áratugi, og þá ýmist i samstjórn með
Alþýðuflokknum eða Alþýðubandalag-
inu Rætur viðblasandi spillingar og
vandamála liggja til þeirra allra
Karvel sagði blandað hagkerfi okkar
engu að síður heillavænlegasta kerfið,
sem við gætum tileinkað okkur Það
þyrfti aðeins aðhald frá ríkisvaldinu
Þá ræddi Karvel forystu Vestfirðinga
í kjaradeilum sl sumar Þeir höfðu
höggvið á hnútinn og leyst deilurnar
Launafólk og vinnuveitendur á Vest-
fjörðum hefðu tekið höndum saman
heima í héraði og leyst sin vandamál
— með gagnkvæmum skilningi, bæði
á launaþörf vinnuþega og afkomu at-
vinnuvega
Siðan vék Karvel að fjárlögum. sem
nú hækkuðu um 50% Hækkun milli
ára í vmstri stjórn hefði hinsvegar ekki
verið nema 44% Nú ætti og að vega
að gerðum kjarasamningum með þvi
að boðuð bensinhækkun kæmi ekki
inn i visitölu Samdráttaraðgerðum i
ríkisframkvæmdum væri og bemt alfar-
ið gegn landsbyggðinni Ekkert fjár
magn væri ætlað til byggðalinu fyrir
Vestfirði. svo dæmi væri tekið
STÓRSTÍGAR
FRAMFARIR OG
FRAMKVÆMDIR Á
NOKKRUM
______ÁRATUGUM___________
Stefán Valgeirsson (F) sagði is-
lenzka þjóð hafa staðið að stórstigum
framkvæmdum og framförum á_nokkr-
um áratugum. hlutfallslega meiri en
þekktust með nokkurri annarri þjóð
Um 75% af ibúðarhúsnæði þjóðarinn-
ar i dag væri byggt á fáum áratugum
Alhliða framkvæmdir i atvinnuupp-
byggingu viðs vegar um land hefðu og
verið miklar Ekki siður i ýmsum þjón-
ustugreinum, s.s. á sviði heilbrigðis-
og menntamála Nefna mætti og orku-
ver og jarðvarmanýtingu Miðað við
framkvæmdir, sem eru að baki, væru
erlendar skuldir. þó miklar væru, ekki
óeðlilegar Þessar framkvæmdir allar
hefðu hinsvegar dregið til sin fjár-
magn, sem komið hefði út i minm
einkaneyzlu hér á landi en verið hefði í
nágrannalöndum Þetta hefði valdið
óróa og kröfugerð
Stefán sagði alla bölva verðbólgunni
en fáa reiðubúna til að leggja á sig
timabundnar kvaðir til að færa hana
mður i það sem tekizt hefði i nágranna-
löndum Vixlhækkanir hér ættu sér fá
fordæmi E.t.v. væri æskilegra og
raunhæfara að miða kaupgjaldsvísitölu
við útflutningsverð afurða okkar eða
þjóðartekjur sem væri heilbrigðari leið
en nú væri við lýði Nauðsynlegt væri
nú að draga nokkuð úr fjárfestmgu,
bæði til að draga úr spennu á vinnu-
markaði. og til að færa fjármagn. frá
fjárfestingu yfir i rekstur atvinnuveg-
Gylfi Þ. Mcinþór
Gíslason. Gcstsson.
vmnu- og viðskiptalífs, m a til að
'rY99ja betri nýtingu auðlinda okkar og
vinnuafls
2. Taka þarf upp samræmda stjórn
á heildarfjárfestingu þjóðarinnar Tak-
marka þarf fjárfestingu verulega frá þvi
sem verið hefur Fylgja verður aðhalds-
stefnu i fjármálum rikis og bankamál-
um Vextir verða að vera nægilega háir
til að varðveita sparifé landsmanna.
þann veg að innlendur sparnaður geti
komið í stað erlendra lána til að fjár-
magna framkvæmdir
3. Fyrirtæki i sjávarútvegi. þurfa að
bindast samtökum um. hvern veg sam-
ræma á sókn i fiskstofna, hvar landa
skuli afla i samræmi við æskilega sókn.
og að veiði og vinnsla skiptist 'skyn-
samlega milli fyrirtækja og landshluta.
svo eðlilegt jafnvægi sé milli arðsemis-
sjónarmiða og atvinnusjónarmiða
4. Iðnaðurinn er vaxtarbroddur ís-
lenzkrar efnahagsþróunar, ekki aðeins
stóriðja, sem þó er forsenda hag-
kvæmra virkjana. heldur ekki siður
hvers konar annar iðnaður Nútimaleg-
ur iðnaður þarf að vera snar þáttur i
nýrri efnahagsstefnu
5. Örlagarík mistök hafa átt sér stað
i málefnum landbúnaðar um áratugi
Framleitt hefur verið langt umfram inn-
anlandsþörf Fjárfestmg í landbúnaði
hefur því ekki skilað eðlilegum arði í
þjóðarbúið Á þessu ári greiða skatt-
borgarar hálfan þriðja milljarð króna
með landbúnaðarafurðum. sem fluttar
eru út, til neyzlu hjá öðrum Frá þessari
stefnu verður að vísu ekki snögglega
vikið En stefna þarf að þvi að fram-
leiðsla landbúnaðar fari ekki fram úr
mnlendri eftirspurn
6. Orkan er þriðja auðlind þjóðar-
innar Hagnýta þarf þessa auðlmd með
hyggilegum hætti Dæmi um óhyggi-
lega nýtingu er Kröfluvirkjun. þar sem
10 milljarðar liggja án þess að skila
IVIaKiiús Torli Svava
Ol alsson. J akohsdól I ir.
anna, sem ættu ugdir högg að sækja
Aðalatriðið væri þó. þrátt fyrir allt, að
halda uppi þvi atvinnuöryggi sem tek-
izt hefði að tryggja um land allt á
starfstima núverandi ríkisstjórnar
Frumskylda þjóðfélagsins er að tryggja
þegnum sinum atvinnu og afkomu
Þessi framkvæmdasamdráttur. sem nú
er talinn nauðsynlegur. verður hins-
vegar að koma jafnt mður á alla riki.
sveitarfélög. fyrirtæki og einstaklmga
Stefán vék að Óslóarsamnmgi, er
tryggt hefði endanlegan islenzkan sig-
ur i landhelgismálum. brottför breta af
íslandsmiðum Stjórnarandstæðingar
væru þögulir mjög um afrek sin gegn
þessum sigursamningi rikisstjórnarinn
ar Hlutur Framsóknarfl i landhelgis-
málum. fyrr og síðar. væri umtalsverð-
ur Þá ræddi Stefán launakjör bænda
og hlutverk og þýðingu landbúnaðar.
fyrirhugaðar vegaframkvæmdir o fl
Vandamál eru framundan. nú sem
ævinlega, en þjóðin er betur búin und-
ir að leysa viðfangsefm sin en nokkru
smm fyrr. ef hún er samtaka í við-
brögðum sinum
HEIÐARLEGRA
AÐ VÍSA VEG
EN GAGNRÝNA
EINVÖRÐUNGU
Gylfi Þ. Gislason (A) sagði þjóð-
félag okkar sjúkt á margan veg Óða
verðbólga, erlend skuldasöfnun. upp-
lausn í siðferðilegum efnum. sukk i
stjórnkerfi Hann hygðist ekki deila á
aðra hér að lútandi. öll værum við í
einhverri sök, en hins vegar benda á
nokkrar leiðir sem fara þyrfti að hans
dómi Þessar leiðir yrði að ganga i
áföngum á nokkrum tima Patentlausn
fyrirfyndist ekki
1. Gera þarf átak í hagræðmgu at-
þjóðarbúinu nokkrum arði Arðsemis-
sjónarmið þurfa emkum að ráða ferð
um virkjunarframkvæmdir, sem og
eðlileg byggðasjónarmið
7. Urelt kerfi rikir um verðlagsákvarð-
anir. sem jafnvel stuðlar að hærra
vöruverði Hér skortir samkeppni i við-
skiptum, sem leitt gæti til lækkaðs
verðs Þróun islenzkra bankamála
hefur og verið óheppileg Stórir rikis-
bankar eiga í harðn samkeppni um
takmarkað sparifé landsmanna. Það er
ekki hagkvæmt að svo margt fólk sinm
bankaviðskiptum sem nú er sagði
Gylfi
8. Stuðla þarf að aukmm hag-
kvæmm i rekstri atvinnuveganna. sem
auka mun þjóðartekjur Stefna þarf að
meira réftlæti í skiptingu þjóðartekna
Endurbæta þarf ríkjandi kerfi trygginga
og heilsugæzlu Alla þjónustu hms
opinbera við almenning ætti að sam-
eina i eitt velferðarkerfi
9. Bæta þarf úr ágöllum skattakerf-
is. m a hætta álagningu tekjuskatts á
venjulegar launatekjur
10. Endurskoða þarf sjálfkrafa
breytingar á launum og verði landbún-
aðarafurða. i kjölfar breyttrar fram-
færsluvisitölu. Þetta kerfi er órökrétt og
getur reynst skaðlegt Komast þarf út úr
þessum vitahrmg Hlutdeild launþega i
vaxandi þjóðartekjum mætti tryggja
með þvi að tengja laun þeirra visitolu
um þróun þjóðartekna
1 1. Efla þarf lýðræði i landmu. jafna
kosningarétt og tryggja val kjósenda
milli frambjóðenda betur Nátengt slik-
um réttindum er bætt réttargæzla
Jafnrétti fyrir lögum og traust og heil-
brigð stjórnsýsla eru aðalsmerki lýð-
ræðis
12. Aðgerðir hverskonar þarf að
reisa á grunni nýs hugarfars þjóðarinn-
ar. ráðamanna og almennmgs, sem
byggði á fornum dyggðum. ráðdeild
Framhald á bls. 26
Sagt frá útvarpsumræðum um stefnuræðu forsætisráðherra