Morgunblaðið - 05.11.1977, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977
Verðgildi fyrstadagsumslaga
í síðasta þætti, 22. okt. sl., var
fjallað um islenzk fyrstadags-
bréf eða umslög og saga þeirra
rakin í helztu atriðum. Söfnun
þessara umslaga hefur aukizt
verulega á liðnum árum og
jafnvel áratugum. Er enginn
vafi á, að margir láta stimpla þó
nokkurt magn á útgáfudegi
nýrra frímerkja. Hér hlýtur því
að liggja að baki einhvers kon-
ar fjárfestingar- eða gróðasjón-
armið, þvi að ella létu menn sér
einungis nægja nokkur umslög,
þ.e. fyrir söfn sin og svo til
skipta við vini sína erlendis,
þar sem söfnun fyrstadagsum-
slaga er ekki síður algeng en
hér á landi.
Þá er komið að spurningunni
um það, hvers virði þessi um-
slög eru, ef og þegar menn vilja
losa sig við þau. Eins og siðast
var drepið á, verða svör við
þeirri spurningu tæplega ein-
hlít og fara eftir ýmsu.
Af sjálfu sér leiðir, að hér
ræður mestu um verð framboð
og eftirspurn, og á það jafnt við
um kaup og sölu. Minnst er til
af fyrstadagsumslögum frá ár-
unum fyrir stríð og fram að
stofnun lýðveldisins 1944. Verð
þeirra er þvi tiitölulega hátt og
oft geipihátt. Sænski verðlist-
inn Faeit skráir flugmerkin frá
1934 á 1600 s. kr. eða um 70 þús.
ísl. krónur. Hér hefur krónan
FPímerki
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
því ávaxtað sig glæsilega þrátt
fyrir alla verðbólgu, því að
nafnverð merkjanna var 4.05
kr. á sínum tima. Þetta verð
stafar líka af því, að þess konar
umslög má væntanlega telja á
fingrum sér, svo að þeir eru
fáir, sem geta gert sér vonir um
að eignast eintak, a.m.k. með
öllum merkjunum á. Umslag
frá 1935 með Dynjanda og
Heklu eru í sama lista virt á um
79 þús. krónur, svo að þar hefur
krónan gert enn betur í blóðið
sitt, því að nafnverð merkjanna
var aðeins 1.10 kr. Frímerki
með mynd sr. Matthíasar frá
sama ári voru að verðgildi 50
aurar, en áætlað verð fyrsta-'
dagsumslaga með þeim er í
Facit um 35 þús. krónur. í fyrra
var kort með þessum merkjum
á, stimpluðum á útgáfudegi,
selt hér á uppboði fyrir 19 þús.
Oceíanc/
Reykjavík
277
Stimplað á útqóludegi
Ftert day cavmt
Verðmætasta fyrstadagsumslag lýðveldisins.
eða 22.800 með söluskatti, en
síðan hefur listaverð hækkað
um rúm 20%. Tvö af merkjun-
um úr þessum flokki voru
seinna yfirprentuð. 35 aura
merkið var gert að 5 aura merki
árið 1939. Nokkuð er óljóst um
útgáfudag þessa bráðabirgða-
merkis, en þó skrásetur Faeit
fyrstadagsumslag með því á og
metur á um 66 þús. krónur. Þar
hefur fimmeyringurinn þá
hækkað riflega! Árið 1941 var
svo 3 aura merkið yfirprentað
og gert að 25 aura merki. Þar er
allt ljóst um útgáfudag og um-
slög vel þekkt. Fremur eru þau
samt sjaldgæf, enda metin á um
35 þús. krónur. í siðasta þætti
var mynd af fyrstadagsumslagi
með Geysisfrimerkjum frá
1938. Verðgildi merkjanna var
1.20 kr., en útsöluverð þess kon-
ar umslags er 7500 kr. hér í
verzlunum. Mörg önnur dýr
umslög væri hægt að nefna hér
til viðbótar, en ekki er ástæða
til að lengja þáttinn með slíkri
upptalningu.
Þetta geipiháa verð fyrsta-
dagsumslaga frá árunum kring-
um 1940 hefur eðlilega fælt
marga safnara frá, enda að von-
um erfitt að ná i sum umslögin.
Af þeim sökum hafa margir
takmarkað söfnun sína við
stofnun lýðveldisins 1944. Gizk-
ar Magni R. Magnússon í Frí-
merkjamiðstöðinni á, að hlut-
fallið sé hér um 20 á móti ein-
um lýðveldinu i vil. Þeir í Frí-
merkjamiðstöðinni hafa byrjað
að gefa út fréttablað, FM-
fréttir, sem dreift er meðal við-
skiptavína verzlunarinnar og
annarra áhugamanna um fri-
merkjasöfnun. Jafnhliða því
sem þetta litla blað er auglýs-
ingablað fyrir Frimerkjamið-
stöðina, verða birtar þar ýmsar
fréttir, sem safnarar geta haft
gagn af að heyra. í 2. töiublaði
frá i júní sl. er skrá yfir islenzk
frimerki og fyrstadagsumslög
frá 1944, sem til sölu eru þess-
ari verzlun. Geta safnarar og
aðrir þar glöggvað sig á útsölu-
verði umslaga, en það mun
svipað í öðrum frimerkjaverzl-
unum, að því er ég bezt veit.
Segja má, að flestum sé við-
ráðanlegt að eignast fyrstadags-
umslög frá lýðveldinu, og mörg
þeirra hafa tæplega hækkað
meir i verði en sem svarar verð-
falli krónunnar i óðaverðbólgu
liðinna ára — og því miður
mörg tæplega það. Þegar þetta
er haft í huga, er ljóst, að hagn-
aður af miklum kaupum verður
sjaldan mjög mikill. Yfirleitt
halda samt há verðgildi hlut
sínum nokkurn veginn, enda
ævinlega miklu minna stimþlað
af þeim á útgáfudegi en lágum
verðgildum, sem þorri manna á
auðvelt með að kaupa í ein-
hverjum mæli. Dýrasta umslag
eftir 1944 er með 25 kr. fri-
merki af Alþingishúsinu frá
1952. Er útsöluverð þess i verzl-
unum hér 33 þús. krónur, enda
mun það ekki fáanlegt nema
stöku sinnum og mun hverfa
nær samstundis og það kemur
fram.
Mér hefur skilizt á kaup-
mönnum, að offramleiðsla háfi
verið á ýmsum umslögum eftir
1960 og þá um leið á stundum
offramboð. Við það fellur verð
þeirra af sjálfu sér, og oft verða
þau illseljanleg um einhvern
tíma. Hins vegar mun yfirleitt
hörgull á fyrstadagsumslögum
fyrir 1960, einkum þó ákveðn-
um útgáfum. Bolli Davíðsson í
Frímerkjahúsinu lætur allvel
af sölu fyrstadagsumslaga í
verzlun sinni og segist í reynd
selja mest af umslögum eftir
1960, þó að framboð þeirra sé
oft mikið. Jón R. Kjartansson
frímerkjakaupmaður tjáði mér
nýlega, þegar ég færði þetta
mál í tal við hann, að með
skömmu millibili hefðu þrír
menn komið til sín með tölu-
vert af fyrstadagsumslögum
eftir 1960, sem þeir vildu selja.
Hins vegar kvaðst hann eiga
svo mikið óselt, að hann treysti
sér ekki til að kaupa umslög til
viðbótar. Hann gat þess jafn-
framt við mig, að öll eldri um-
slög færu, um leið og þau kæmu
fram hjá sér.
Enda þótt einhverjum þyki
þetta ekki glæsifréttir að öllu
leyti, finnst mér engin ástæða
til að örvænta. Ég vildi einung-
is koma þessari vitneskju minni
á framfæri við lesendur þessa
þáttar, þvi að sjálfsagt er að
,gæta hófsemi hér sem annars
staðar.
Þá er eitt atriði, sem ég er
ekki viss um, að allir safnarar
fyrstadagsumslaga geri sér
næga grein fyrir. Víl ég þvi að
lokum minnast sérstaklega á
það hér. Langflestir líma frí-
merkin á óárituð umslög og láta
svo stimpla þau. Árituð fyrsta-
dagsumslög eru að mínu viti
miklu skemmtilegri söfnunar-
gripur og i rauninni sjálfsagt að
senda þau eðlilega póstleið,
a.m.k. þegar nafnverð merkj-
anna hrekkur einnig fyrir
ábyrgðargjaldi. Þá verður send-
ingin skrásett og viðtökupóst-
hús á að bakstimpla umslagið,
þegar það kemur til þess. Því
miður vill oft verða misbrestur
á þeirri reglu. En umslög, sem
þannig berast viðtakanda,
halda örugglega betur verðgildi
sínu til söfnunar en óárituð um-
slög.
Dagur frímerkisins 8. nóvember
Dagur frfmerkisins 8. nóv.
Næstkomandi þriðjudag
verður Dagur frímerkisins hér
á Iandi og þá að vanda notaður
sérstimpill á pósthúsinu i
Reykjavík. Hefur póststjórnin
látið teikna í hann opnu úr riti
sinu: íslenzk frímerki i hundr-
að ár 1873—1973. Á þennan
hátt vill hún auðsæilega minna
frímerkjasafnara á ritverk
þetta, sem komið hefur út á
þessu ári i íslenzkri og enskri
útgáfu.
Frímerkjasafnarar í F.F.
minnast dagsins eins og um
fjölmörg undanfarin ár með
sýningu frímerkjaefnis í römm-
um á nokkrum stöðum í borg-
inni. Verða rammarnir til sýnis
næstu daga á eftir. Vegfarend-
um gefst þannig kostur á að
kynnast ýmsum hliðum frí-
merkjasöfnunar. Þá er ástæða
til að ætla, að ýmis aðildarfélög
L.l.F. úti á landi taki nú virkan
þátt í útbreiðslustarfsemi dags-
ins og þá með einhverju sýning-
arefni. Safnarar á Selfossi hafa
gert þetta um nokkur ár, en
ekki er ósennilegt, að svo verði
einnig í Kópavogi, Hafnarfirði
og Garðabæ og eins á Akureyri
og Húsavík að þessu sinni.
Þá hafa safnarar i Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði og
Garðabæ ákveðið að hittast í
Gyllta salnum á Hótel Borg að
kvöldi þessa dags og gera sér
nokkurn dagamun. Eru allir
safnarar hvattir til að sækja þá
samkomu, en hún hefst kl.
20.30. Umsjármaður þessa þátt-
ar mun flytja erindi i kvölddag-
skrá Ríkisútvarpsins um is-
lenzk frímerki og frimerkja-
söfnun. Á fyrstu árum Dags fri-
merkisins voru stöku sinnum
flutt erindi um þessi efni á
þeim vettvangi, en þvi miður
féll það svo alveg niður. Þar
sem öll félög frímerkjasafnara
á landinu hafa nú sameinazt í
L.Í.F., hefur stjórn sambands-
ins fullan hug á, að slíkur er-
indaflutningur verði fastur lið-
ur á Degi frimerkisins. Jafn-
framt er það von stjórnarinnar,
að Dagur frimerkisins verði til
að efla tengsl og samvinnu allra
aðildarfélaga L.Í.F. og hvetja
sem flesta, bæði unga sem
aldna, til aö sinna þessari hollu
og skemmtilegu tómstundaiðju,
frimerkjasöfnun.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar.
Tvlmenningskeppni. B.H. er
nú lokið. Þessir urðu efstir:
Björn Eysteinsson
— Magnús Jóhannsson 796
Kristján Olafsson
— Ölafur Gislason 771
Jón Gislason
— Þórir Sigursteinsson 726
Albert Þorsteinsson
— Sigurður Emilsson 708
Arni Þorvaldsson
— Sævar Magnússon 706
Einar Árnason
— Þorsteinn Þorsteinsson699
Bjarnar Ingimarsson
— Þórarinn Sófusson 698
Ásgeir Ásbjörnsson
— Gisli Arason 692
Meðalskor 660.
Þeir Björn og Magnús urðu
því tvímenningsmeistarar fé-
lagsins og er þeim hér með ósk-
að til hamingju með glæstan
sigur. Þeir félagar rufu loks
200 stiga múrinn í siðustu um-
ferðinni er þeir fengu 203 stig.
Þeir Ásgeir og Gísli sem spil-
uðu i „lakari“ riðlinum fengu
samt stærsta halið eða 226 sem
er 68,5% skor.
Næsta mánudag hefst aðal-
sveitakeppnin og er fólk hvatt
til að fjölmenna. Ekki verður
sveitakeppnin þó spiluð i einni
lotu heldur verður einu og öðru
skemmtilegu troðið inn á milli.
Bridgedeild
Rangæinga.
Tveimur uniferðiim af finim
er nú lokið í tvíniennings-
keppninni hjá okkur. en önnur
umferðin var spiluð 26. októ-
ber.
Röð efstu para:
Sigríur Ottósd. —
Ingólfur Böðvarsson 260
Margrét Helgadóttir —
Hersveinn Þorsteinss. 257
Anton Guðjónsson —
Stefán Gunnarsson 245
Pétur Einarsson —
Sigurleifur Guðjónsson 231
Þorsteinn Sigurðsson —
GunnarHelgason 230
Guðmun.día Pálsdóttir —
Árni Pálsson 229
Jón L. Jónsson —
Jónatan Jakobsson 228
Guðmundur Þórðarson —
Ingólfur Jónsson 227
Meðalárangur 216.
Hæstu skor í síðustu uniferð
fengu Margrét og Hersveinn,
136.
Þriðja umferð verður spiluð
9. nóvember.
Brlflge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag kvenna:
Nú er lokið 19 unifer
35 i „baroníeter" — tv
ingskeppni félagsins. og
eftirtaldar konur efstar:
Dóra Friðleifsd.
Sigriður Ottösd.
Laufey Arnalds —
Asa Jóhannesd.
Halla Bergþórsd. —
Kristjana Steingrímsd.
Alda Hansen —
Nanna Agústsd.
Sigrún Isaksd. —
Sigrún Olafsd.
Vigdis Guðjónsd. —
Hugborg Hjartard.
Guðríður Guðmundsd. —
Kristin Þórðard.
Aðalheiður Magnúsd. —
Kristín Karlsd
Ingibjörg Halldórsd. —
Sigríður Pétursd.
Júliana Isebarn —
Margrét ^rgeirsd.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
ðum af
írnenn-
eru nú
stig
2998
2992
2979
2947
2861
2824
2810
2795
2767
2760
Meðalskor: 2584 stig.
Næstu fjórar umferðirnar i
þessari keppni verða spilaðar
mánudagínn 7. növember n.k. í
Domus Medica. og hefjast kl.
19.30 stundvíslega.
Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Lokið er 5 kvölda tvl-
menningskeppni I bridge.
Atta efstu voru þessir.
Viðar G uðmundsson
Pétur Sigurðsson 1139
Ragnar Þorsteinsson
Eggert Kjartansson 1130
Þórarinn Arnason
Finnbogi Finnbogason 1116
Einar Jónsson
Gísli Benjamínsson 1109
Viðar Guðmundsson
Haukur Zophaniusson 1108
Kristinn Óskarsson
Einar Bjarnason 1093
Hermann Ólafsosn
Sigurður Kristjánsson 1081
Edda Thorlacius
Sigurður Isaksson 1028
Munið hraðsveitakeppnina
sem hefst 7/11 kl. 19.45 stund-
víslega.
Bridgefélagið
Ásarnir
Kópavogi
Sl. mánudag hófst hjá félag-
inu 3 kvölda hraðsveitakeppni.
Þátttaka er sæmileg, en mætti
vera betri. Að keppni þessari
lokinni hefst sjálf aðalsveita-
keppnin, sem verður 8 umferða
Monrad-keppni.
Staða efstu sveita að lokinni
fyrstu umferð i nv. keppni, er
þessi:
Vigfús Pálsson (Skúli Einars-
son, Þorlákur Jónsson og Hauk-
ur Ingason) með 315 stig.
Ólafur Lárusson (Rúnar Lárus-
son, Lárus Hermannsson og
Hermann Lárusson) með 305
stig.
Ármann J. Lárusson (Sverrir
Ármannsson, Einar Þorfinss.
og Sigtryggur Sigurðsson) með
304 stig.
Guðbrandur Sigurbergsson
(Jón Páll Sigurjónsson, Oddur
Hjaltason og Jón Hilmarsson)
með 300 stig.
Meðalskor er 288 stig
Næsta umferð verður spiluð
á mánudaginn kemur.
OL..
........ :---- ' -