Morgunblaðið - 05.11.1977, Síða 30

Morgunblaðið - 05.11.1977, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977 Minning: Guðni Eiríksson bóndi Votumgri F. 24. deseniber 1889. D. 30. oklóber 1977. Guðni Eiriksson bóndi að Vota- mýri andaðist að Elliheimilinu Grund 30. október síðastliðinn. Langvarandi veikindum sem nú lauk með þessum hætti tók hann af karlmennsku og æðruleysi. Síð- astliðin ár hefur hann verið meira og minna undir læknishendi, lengst á Vifilsstöðum en nú siðast- liðið ár að Ási í Hveragerði. Hann var mjög þakklátur fyrir alla hjálp og hjúkrun á þessum stöð- urn öllum. Guðni var fæddur að Votamýri og tók við búi af föður sínum. Ég kom til hans kaupakona fyrir 30 árum. Þá dvaldi ég hjá þeim hjón- um eitt sumar. Þetta sumar misstu þau son sinn, uppkominn, af slysförum. Ég kynntist því þá hvað hægt er að taka því óum- flýjanlega af miklu hugrekki og stillingu og sá hversu útréttar vinarhendur eru megnugar á sorgarstundum. Þau hjón voru vinmörg og trygg vinum sinum. Hjá þeim dvöldu börn á sumrin, sum lengur eða skemur.. Guðni var góður húsbóndi. Hann kunni þá list að láta öðrum finnast þeir vera einhvers megnugir og hafði einlægan áhuga á annarra hag. Börn og unglingar undir hans stjórn vildu allt fyrir hann gera og lögðu sig fram við öll störf. Guðni var félagslyndur maður, Ijúfur í viðmóti og bjartsýnn að eðlisfari. Hann starfaði lengi í kirkjukór Skeiðamanna og tók þátt í félagslífi sveitunga sinna svo lengi sem hann gat. Ekki verður Guðna minnst án þess að konu hans sé getið en hún er látin fyrir mörgum árum. Kona Guðna var Guðbjörg Kol- beinsdóttir, mikilhæf og góð kona. Þeirra hjónaband var með afbrigðum farsælt. Þau máttu helzt ekki hvort af öðru sjá og báru hvort annars byrðar. Þau nutu bæði mikillar mannahylli og voru elskuð og virt af sveitungum sínum. Guðni var mjög vinnusam- ur maður og hafði mikinn áhuga á búskap. Bjartsýni og óbilandi kjarkur, gerði honum kleift að stunda búskap fram á elliár. En hann naut þá aðstoðar Eríks son- ar sfns og Elínar tendadóttur sinnar við erfiðustu störfin og fékk hjá þeim ýmsa aðra hjálp. Nú eru tekin við jörðinni sonar- sonur Guðna, Benedikt Kolbeins- son, og kona hans. Þrjú börn Guðbjargar og Guðna komust til fullorðinsára, öll gift. Ég sendi þeim innilegar samúðar- kveðjur. Guðni dvaldi heima að Vota- mýri svo lengi sem heilsa og kraftar leyfðu. Hann hafði ríka þörf fyrir að vera sjálfbjarga og búa að sínu sem allra lengst. Að lokum þakka ég Guðna tryggð og vináttu i minn garð og mun minnast hans sem eins bezta manns sem ég hefi kynnst. Guð blessi minningu hans. Ólöf Stefánsdóttir. í dag verður til moldar borinn frá Olafsvallakiikju í Skeiðum Guðni Eiríksson bóndi að Votu- mýri þar í sveit, en hann gekk á vil feðra sinna hinn 30. október sl. Með Guðna er genginn gegn og merkur maður, sem sakir mann- kosla sinna mun verða þeim, er honum kynntust, eflirminnilegur og einkar kær. Guðni var fæddur að Votumýri á aðfangadag jóla árið 1889. Hann ól allan sinn starfsaldur á Skeið- uni, þeirri gjöfulu og fallegu sveit, lengsl af á föðurleifðinni Votumýri. Starfsdagur Guðna var óvenju langur, því hann stundaðí búskap þar til fyrir þremur árum, en þá var hann nær 86 ára gamali. Var hann þá farinn að heilsu, en fram að því hafði guð gefið hon- um góða heilsu. Auk búskapar stundaði Guðni sjóróðra frá suð- urströndinni á árabátum margar vertíðir rétl eftir aldamótin. Þótti hann harðsækinn ræðari og fóru sögur af þvi, að hann reri vík á stærstu og sterkustu menn, en t Útför móður minnar, ODDRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Réttarholtsvegi 77, fer fram fr^ Fossvogskirkju mánudaginn 7 nóvember kl 1 5 00 Fyrir hönd vandamanna, Þórarinn Hafberg. t JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR Smyrlahrauni 2, Hafnarfirði andaðist á St Jósepsspitala i Hafnarfirði þann 4 nóvember Fym hönd aðstandenda Hanna Valdimarsdóttir Guðrún Andrésdóttrr. t Þökkum ínnilega öllum þeim mörgu, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útfór eiginmanns mins, föður okkar og afa ÓLAFS KRISTJÁNSSONAR, frá Mýrarhúsum, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði á S|úkrahúsi Akraness, fyrir frábæra hjúkrun í veikindum hans Oddrún Jónsdóttir, Jón Ólafsson, Margrét Jónsdóttir Halldóra Ólafsdóttir, Hermann Torfason, Ársæll Ólafsson, Kristján Ólafsson, Elsa Pétursdóttir, Ölafur Hallgrimsson, Elin Jónsdóttir, Oddrún Sverrisdóttir, Pálmar Einarsson, Guðrún Sverrisdóttir Hreinn Vagnsson. hvorki, var Guðni bár vexli né kraftalegur í þeim skilningi. (iuðni var einn þeirra vor- manna íslands, sem lögðu, til sjávar og sveita, kjölinn að þvi velferðarþjóðfélagi, sem við yngri menn erum bornir i og lítum á sem sjálfsagðan hlut. Hygg ég að fáir yngri menn geri sér fyllilega grein fyrir því hversu gífurlega vinnu Guðni og margir samferða- menn hans lögðu í brautryöjenda- starfið, svo að ekki sé minnst á þrautseigjuna og áræðið. Laun erfiðisins hlaut Guðni ekki í pen- ingum né lífeyrissjóðsréttindum, heldui- á þann hátt að sjá þjóð sína rísa úr öskustónni eftir alda- langa þjáningu og niðurlægingu. Þætti mörgum slík laun þunnut þrettándi í dag. Ungur varð ég þeirrar gæfu að- nótandi að fá aö dveljast á heimili Guðna og Guðbjargar konu hans að Votumýri á sumrum. Minning- arnai' frá þeim samvistum eru einhverjar þær dýrustu, er ég geymi. Voru þau hjón mér og öðr- um börnum, sem hjá þeint dvöld- ust, sem bestu foreldrar. Þegar i æsku fannst mér sem Guðni væri gæddur ríkari mannkoslum en flestir aðrir menn. Aldrei mælti manni annað en velvilji og upp- örvun. Slíkt var ekki lítils virði á þeirn aldri, þegar manni fannsl sem við börnin mættum litluni skilningi hjá fullorðna fólkinu og værujn oftast fyrir þá eitthvað spennandi var að gerast. Skap- höfn Guðna var þannig að þar ríkti jafnlyndi. Skipti engu. til hvaða verks var gengið, öll voru þau jafngild og þurftu að vinnast. Glaölyndur var Guðni, fastur fyr- ir, æðrulaus og trygglyndur. Jafn- framt var Guðni mikill gæfumað- ur, þótt vissulega hafi sorgin drepið á dyr á heimili hans. Ung- ur gekk hann að eiga Guðbjörgu Kolbeinsdóttur frá Stóru- Mastungum í Eystri Hreppi, mikla sómakonu og kvenskörung. Lifðu þau í farsælu hjónabandi i hátt á sjötta áratug, en Guðbjörgu missti Guðni fyrir rúmum ellefu árum. Þeim varð fjögurra barna auðið og lifa þrjú föður sinn, þau Kolbeinn bifvélavirki á Selfossi, Eiríkur bóndi og smiður á Votu- mýri og Hallbera sauntakona í Reykjavík. Son, Tryggva Karl, misstu þau ungan af slysförum og var hann öllum harmdauði, er til hans þgkktu. Þau hjón áttu þó líkn í raun, sem var trúin á al- mættið. Var hún einlæg og fölskvalaus. Eftir fráfall Guð- bjargar átti ég oft á vökukvöldunt tal við Guðna um eilífðarmálin. Kornst ég þá að því hversu trúin getur gert manninn ótrúlega sterkan og það jafnvel í mestu raunum, svo ekkert fær þar á unniö. Nú þegar Guðni hefur yfirgefið hið jarðneska lif, er mér bæði ljúft og skylt aö minnast góðs og veglynds manns. Slíkunv manni var ekki aðeins gott að kynnast, heldur ómetaniegt sakir þess veganestis, sem hann skilur eftir sig okkur sem eftir lifuin til handa. Blessuö sé Eiríkssonar. minning Guðna I. S. Guðni Eiríksson Votamýri, Skeiðum, er látinn. Hann fæddist á Votumýri 24. des. 1888. Guðni var elstur systkina sinna. Foreldr- ar hans voru hjónin Eiríkur Magnússon bóndi, Votumýri, og kona hans Hallbera Vilhelmsdótt- ir. Guðni ólst upp í föðurhúsum, en fór ungur til sjós, eins og tilt var um unga rnenn í þá daga, hann þótti afbrágðs sjómaður og góður ræðari. Hann var i veri i Þorlákshöfn. Guðni hafði í æsku gaman af íþróttum og var talinn með betri glímumönnum. Hann var vel vaxinn, grannbyggður og sterkur, skapið ört en samt ljúft, hreyfingar hans og fas einkennd- ist af léttleika og öru geði. Hann hafði gantan af að spjalla um landsins gagn og nauðsynjar og fylgdist vel með. Átti hann þá til að gefa orðum sínum rneiri áherslu með smáhöggi á öxl við- mælanda. Hann hafði ákaflega gantan af léttu gríni, enda var hann glaður og léttur í lund. Guðni álti því láni að fagna að eignast góða og vel gefna konu, Guðbjörgu Kolbeinsdóttur frá Stóru Mástungu í Gnúpverja- hreppi og áttu þau fjögur börn, Kolbein, Eirík, Ilöllu og Tryggva Karl. Einnig ólu þau upp Sigríði B. Eiríksdóttur bróðurdóttur Guð- bjargar. Ég undirritaður var einn- ig svo lánsantur að fá að dvelja hjá þeim heil sjö ár i bernsku Nokkur kveðjuorð: Gísli Jónsson frá Arnarhóli í VE. Gísli var fæddur 23. janúar árið 1883 að Arnarhóli í Vestur- Landeyjum. Hann andaðist i Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 26. október s.l. 94 ára, 9 mánaða og tveim dögum betur. Viðburðarríku lifi alþýðu- manns er lokið og skal þess minnst hér með nokkrum orðum. Sólveig Gisladóttir, Brynjólfsson- ar Jónssonar, var móðir Gísla, f. að Söndum undir V-Eyjafjöllum 16.9 1838. Með henni ólst hann upp. Jón var fæddur 27.9. 1828, Brandssonar Guðmundssonar frá Uxahrygg og Sperðli. Föður síns naut Gísli ekki. Er hann síðastur barna Jóns er kveður þetta Iíf. Hálfsystkini hans 30 að tölu hafa öll kvatt lífið, en skilja eftir sig stóran ættarboga, sem að líkum lætur. Jón Brandsson var stór bóndi og kynslóð á undan sinni samtíð. Bjó hann á einni af bestu jörðum Landeyja, Fíflholti hinu vestra og síðar að Ey. Tímanleg velgengni Jóns fólst í hyggjuviti, með vatns- veitu á lendur sínar, búhyggind- um við heyöflun, hvernig hann á undap öðrum hóf slátt, setti hey i galta og notaði sleða á vetrum við heimflutning. Menn hristu höfuð yfr verkum Jóns, þetta var nýtt og ekki rikjandi hefð. Hjá Jóni var forðabúr sveitarinnar. Miðlað i heyleysi til sveitunga. Þar voru skepnur vel aldar og allt fólkið hafði nægju til hnífs og skeiðar. Eins og gefur að skilja hafa drög legið til þjóðsagna um jafn stórbrotinn mann, sem Jón Brandsson var. Þrátt fyrir meira en 80 ár i gröf sinni, þá hafa ritsóðar ætlað að mata sig og aðra með ávirðingum hans. Aldir með árlegum ríkisstyrk, með fjármun- um skattborgaranna. Slfkt þáði Jón Brandsson aldrei. Hann hafði fyrir öllu sínu. Merkir samtíðar- menn hans, eins og ljúfmennið Kristján Þórðarson frá Vestur- Fiflholtshjáleigu, síðar Reykjadal í Vestmannaeyjum, Kristján Gunnarsson frá Flötum í Eyjum og Þorsteinn Ólafsson trésmiður frá Fagradal, þekktu allir Jón Brandsson og voru sumir í heimili hans. Enginn þeirra hafði nægj- aniega sterk orð til að Iýsa Jóni minni, og er ég þeim ævinlega þakklátur fyrir þau góðu og lær- dómsríku ár. Guðbjörg og Guðni voru sér- staklega samhent og báru þau niikla virðingu hvort fyrir öðru. sem skapaðist af innilegri ást hvors til annars. Guðbjörg var mjög fötiuð kona. en þrált fyrir það fylgdi hún manni sínum næst- um hvert sem hann fór, við störf og til nágranna, sérstaklega hin seinni ár, er þau voru orðin ein við búskapinn. Mátti oft sjá þau saman akandi á dráttarvélinní og þykir mér ekki ólíklegt að Guðni hafi þá iðulega sungið við rausl með sinni mjúku bassaröddu. Guðni var rnjög söngelskur og hafði fagra bassarödd. Hann tók mikinn þátt í kórstarfi á Skeiðun- um, sem var mikið stundað á tímabili. Ég ntan mörg kvöld að vetri tii er ég var lítill snáði er þeir feðgar voru að æfa raddir og æfa sig saman aó maður gat ekki á sér setið að taka undir og hafði Guðni gaman af. Búskapur fór Guðna vel úr hendi, hann var mikill og góður skepnuhirðir og naut þess að eiga góða gripi. Hann var hestamaður góður og átli alltaf góða hesta. bæði reiðhesta og dráttarhesta. Guðbjörg hafði oft gaman af bónda sínum á vorin, er hann átti von á að fá folöld og var orðinn óþolinmóður að bíóa að þau fædd- ust og sagði þá gjarnan: ,,Það er eins og þú eigir von á barni,“ enda man ég varla eftir Guðna kátari en eitt vorið er hann fékk gullfallegan jarpan hest undan uppáhaldshryssunni sinni. Þetta varð einn síðasti reiðhesturinn hans. Guðni var rnikill trúmaður nteó óbilandi trú á framhaldslif, enda efast ég ekki um að þar verði margir góðir vinir til að fagna komu hans nú, á þessu hausli. Hin síðari ár hefur Guðni átt við mikla vanheilsu að stríða og orðið að fara á milli spítala og hæla. Alls staðar kom hann sér jafnvel og ég held að segja megi að hans var saknað á hverjum stað. Jafnframt talaði hann um að þessi staður sem hann nú væri á, væri sá besti, enda var hann sér- staklega þakklátur fyrir alla um- önnun og aðhlynningu. Ég vil að lokum þakka Guðna frænda fyrir allar stundir sem ég og fjölskylda min áttum með hon- um og Guðbjörgu, maður var allt- af viss um að vera aufúsugestur hjá þeim og maður naut þess aó vera i návist þeirra. Nú er þessum lifsróðri Guðna lokið og hann hefur stýrt farsæl- lega um boða og sker og er að lokum kominn í örugga höfn. Friður sé með honum. V'ilhjálmur Sigtryggsson. Brandssyni fyrir það sem gott var, einnig sérlega mikill skepnu- vinur og kunni með þær að fara og njóta arðs af þeim. Ógæfa hans í ástamálum og það sem því fylgir má hér liggja milli hluta og verð- ur engum til ávinnings, með smjatt á þeim. „Sá yðar sem synd- laus er kasti fyrstur steini.“ Þegar Gisli var fermdur, í nú niðurlagðri kirkju í Sigluvík, þá hafði hann alist upp á 16 bæjum. Slíkt var beiskjublandið fyrir hann. En á misjöfnu þrífast börnin best. En þetta uppeldi og hrakningar var nokkuð sem Gisli sætti sig aldrei við og bar beiskju til allt lifið. Honum var það sann- arlega lausn að fara úr sveitinni og til sælu Eyjanna. Þar var hann aldrei hungraður né leið skort. Gisli hóf sjómennsku frá Land- eyjasandi á „Gæfu“ með Einari Þorsteinssyni frá Arnarhóli, er siðar varð tengdafaðir hans. Það var miklu betra að róa úr Eyjum og meiri aflavon en frá sandinum, þvi lá Ieið Gísla þangað. Réðst hann fyrst í skipsrúm með Ásteiri Guðmundssyni frá Litlabæ, á róðraskipinu Herjólfi. Síðar hjá Guðmundi Magnússyni á Litlu- Löndum á einu stærsta skipi þá við Suðurland, er hét ísak. Síðar á Trú með Guðlaugi frá Hallgeirs- ey. Þaðan fór hann á mótorbát og gerðist sameignarmaður í útgerð. Var það á Vikingi með Vilmundi Friðrikssyni frá Hjarðarholti. Eft-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.