Morgunblaðið - 09.11.1977, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9! NÖVEMBER 1977
9
/ <4
Samkomulag um öll atriði
nema launastigann hjá BHM
SÁTTAFUNDUR var í kjaradeilu
BHM og ríkisins í fyrrakvöld og á
þeim fundi náðist samkomulag
um svo til öll atriði önnur en
iaunastigann, að því er Guðríður
Þorsteinsdóttir á skrifstofu BHM
tjáði Morgunblaðinu í gær.
Guðríður sagði að á næstu
tveimur dögum kæmi í ljós, hvort
samkomulag næðist um launastig-
ann, og ef svo yrði ekki færi málið
fyrir kjaradóm, sem siðan ætti að
hafa lokið störfum fyrir 21.
nóvember n.k.
Staðgreiðslukerfið
að þýzkri fyrirmynd
MATTÍHAS Á. Mathiesen,
fjármálaráðherra, sagði í
fjárlagaræðu sinni á AI-
þingi í gær, að stefnt yrði
að staðgreiðslukerfi skatta
að þýzkri fyrirmynd. Ráð-
herrann sagði, að skamm-
ur tími væri til stefnu, þar
sem staðgreiðsla skatta
hefði í för með sér miklar
breytingar á öllum störf-
um við álagningu og inn-
heimtu og krefðist því
mikillar vinnu við endur-
skipulagningu skatta-
kerfisins. Engu að síður
teldi hann mögulegt að
framkvæma þetta á svo
stuttum tíma en ýmislegt
væri ómótað um nánari út-
færslu kerfisins.
Fjármálaráðherra sagði, að í
vetur yrði lagt fyrir Alþingi nýtt
frumvarp um tekju- og eignar-
skatt. I því verður fylgt þeirri
meginstefnu, sem fram kom í
frumvarpinu í fyrra en hins vegar
verður það frábrugðið í ýmsum
veigamiklum atriðum. Sérsköttun
hjóna svo og sérsköttun foreldra
og barna þarf að taka til athug-
unar í ljósi staðgreiðslu, sagði ráð-
herrann ennfremur.
Sjávarútvegsráðherra í Færeyjum;
Viðræður um gagn-
kvæmar fiskveiðar
Frá slysstað á Keflavíkurveginum. Ljósm. Mbl. Heimir Stfgsson.
Bílslysið á Keflavíkurvegi:
Ungur Reykvíkingur
lézt af völdum áverka
UNGUR Reykvíkingur, farþegi
I annarri fólksbifreiðinni, sem
lenti f árekstri á Keflavfkurvegin-
um f fyrrakvöld, andaðist f Land-
spítalanum um kl. 6 f gærmorgun
af völdum áverka er hann hafði
hlotið í árekstrinum. Maðurinn
sem lézt hét Magnús Sigurðsson,
22ja ára að aldri og til heimilis að
Granaskjóli 34 í Reykjavík. Ilann
lætur eftir sig unnustu.
Areksturinn varð með þeim
hætti, eins og greindi í frétt Mbl. i
gær, að Citroén-bifreiðin sem
Magnús heitinn var i tók að rása í
hálku á veginum og skall hún
þvert framan á fólksbifreið úr
Keflavík sem á móti kom. Alls
slösuðust sjö manns í árekstrin-
um sem var mjög harður, en eftir
því sem bezt er vitað munu aðrir
sem í bifreiðunum voru ekki lífs-
hættulega slasaðir.
Magnús Sigurðsson.
F j ármálaráðherra:
Uppsafnaður söluskattur
endurgreiddur á næsta ári
Þórshofn, 8. nóvember.
MATTHlAS Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra átti í morgun
óformlegar viðræður við fær-
eysku landstjórnina og eftir fund-
inn var eftirfarandi fréttatil-
kynning send út.:
A meðan sjávarútvegsráðherra
Islands var í heimsókn í Færeyj-
um dagana 6. til 10. nóvember
áttu sér stað óformlegar viðræður
milli sjávarútvegsráðherrans og
F járm álaráðherra:
Ríkisfjöl-
miðlar
brugðust
MATTHlAS A. Mathiesen,
fjármáiaráðherra, sagði f fjár-
Iagaræðu sinni á Alþingi f
gær, að hann teldi, að sáttatil-
Iaga í kjaradeilu opinberra
starfsmanna hefði verið felld
vegna þess að hún hefði ekki
verið kynnt nægilega vel.
Að sjálfsögðu er það á valdi
félagsmanna að samþykkja eða
hafna sáttatiilögu en það hlýt-
ur að vera lágmarkskrafa að
efni sáttatillögu sé kynnt á
hlutlægan hátt, sagði fjármála-
ráðherra og bætti við: „A það
tel ég að hafi verulega skort að
þar hafí fjölmíðlar brugðizt,
einkum ríkisfjölmiðlar.“
Rækjuveiði haf-
in í Öxarfirði
RÆKJUVEIÐI hófst f Öxarfirði f
fyrradag, og var veiðin leyfð eftir
að rannsóknaskipið Dröfn hafði
kannað miðin þar og f Ijós komið
að tiltölulega Iftið var af seiðum f
firðinum.
Samkvæmt því sem Jón B.
Jónasson deildarstjóri í sjávarút-
vegsráðuneytinu tjáði Morgun-
blaðinu í gær, þá hefur verið
heimiluð veiði á 1650 lestum af
rækju í Öxarfirði i vetur, og er
aflanum skipt á milli Kópaskers
og Húsavíkur. 12 bátar hafa feng-
ið leyfi til að stunda þessar veið-
ar.
færeysku landstjórnarinnar um
framhald á veiðum færeyskra
skipa á íslandsmiðum á árinu
1978 og eins um framhald á veið-
um íslenzkra skipa í færeyskri
fiskveiðilögsögu.
Landstjórnin skýrði frá fær-
eyskum fiskveiðum á yfirstand-
andi ári og fór þess á leit að
færeysk skip fengju að halda
áfram veiðum á Islandsmiðum á
næsta ári.
Báðir aðilar sættust á að hefja
formlegar samningaviðræður um
þessi mál um n.k. mánaðamót eða
í byrjun desember undir forsæti
íslenzka utanríkisráðuneytisins."
A þessu ári mega Færeyingar
veiða samtals 17 þús. lestir af
fiski á Islandsmiðum, sem skiptast
þannig, að 8.000 ionn eru þorskur
og 9.000 tonn aðrar tegundir.
Fram til þessa hafa Færeyingar
veitt 6.350 lestir af þorski og 8.312
tonn af öðrum fisktegundum og
frá 1. október er veiði Færeyinga
á íslandsmiðum 66 tonn af þorski
og 1008 tonn af öðrum tegundum.
Arge.
RlKISSTJÓRNIN hefur
ákveðið að endurgreiða á
árinu 1978 áætlaðan upp-
safnaðan söluskatt af út-
flutningsvörum samkeppn-
isiðnaðar á árinu 1977.
Með uppsöfnuðum sölu-
skatti er átt við söluskatt,
sem íþyngir útflutnings-
iðnaði og samkeppnisiðn-
aði af því að atvinnurekst-
ur greiðir söluskatt af ýms-
um aðföngum. Hjá útflutn-
ingsiðnaðinum er aðallega
um að ræða söluskatt af
flutningstækjum, óvaran-
legum rekstrarvörum, olí-
um, orku o.fl. en í öðrum
tilvikum er einnig greidd-
ur söluskattur af vélum,
búnaði, varahlutum o.fl.
Þegar varan er fullgerð til
útflutnings hefur safnazt
upp nokkur söluskatts-
greiðsla í framleiðslu-
kostnaði, sem nefnd er
uppsafnaður söluskattur. I
nágrannalöndum er sam-
svarandi skattur endur-
greiddur við útflutning
eða sölu innanlands.
Matthías A. Mathiesen, fjár-
málaráðherra, skýrði frá þessari
ákvörðun ríkisstjórnarinnar í
fjárlagaræðu sinni á Alþingi í
gær. Sagði ráðherrann, vegna árs-
ins 1974 hefði þessi greiðsla verið
innt af hendi með áætlaðri fjár-
hæð. 1 ársbyrjun 1975 var gerð
gengisbreyting sem bætti hlut út-
FYRRI umferð í forvali Al-
þýðubandalagsins í
Reykjaneskjördæmi til
næstu alþingiskosninga
var um síðustu helgi og að
sögn Gunnlaugs Ástgeirs-
sonar formanns kjör-
dæmisráðs komu 30 nöfn
fram á listunum. Sagði
hann, að þessi fyrri umferð
þjónaði þeim tilgangi að fá
fram þá menn, sem fólk
gæti síðan valið um í síðari
umferð forvalsins, en hún
flutningsiðnaðar og hefur siðan
ekki komið til slikrar endur-
greiðslu. Hins vegar virðist af-
koma útflutningsiðngreina 1977
erfið og af þeim sökum hefur
ríkisstjórnin tekið þessa ákvörð-
un. Talið er, að uppsafnaður sölu-
skattur í útflutningsiðngreinum
nemi um 235 milljónum króna
miðað við verðlag í febrúar 1977.
Færri stöður
án heimildar
HEIMILDARLAUSUM stöðum
hjá rfkinu hefur fækkað verulega
að því er fjármðlaráðherra upp-
lýsti á Alþingi í gær i fjárlaga-
ræðu sinni. Hinn 1. janúar 1976
voru 576 stöður án heimildar f
ríkiskerfinu en um síðustu ára-
fnót voru þær 312. Þetta er m.a.
árangur af gerð sérstakrar
starfsmannaskrár ríkisins, sagði
fjármálaráðherra.
verður 27. nóvember n.k.
Gunnlaugur sagði að í síðari
umferðinni gæti fólk raðað þeim
30 nöfnum, sem fram komu í for-
valinu, á listann og síðan yrði
talið saman hvernig atkvæði
skiptust niður á milli manna, en í
síðari umferð mætti velja um 10
nöfn af þeim 30 sem fram komu i
fyrri umferðinni.
Aðspurður sagði Gunnlaugur,
að þvi væri ekki að neita að þing-
menn flokksins i Reykjaneskjör-
dæmi hefðu fengið flest atkvæði f
fyrri umferð forvalsins, en siöan
væru sex menn oft nefndir.
Ljósm. Mbl.: Kristínn.
Gott skautasvell er nú á Melavellinum og f gær var þar
fjöldi fólks áskautum og naut lífsins.
Alþýðubandalagið:
Forvali í Reykjaneskjör-
dæmi lýkur 27. nóv. n.k.