Morgunblaðið - 09.11.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.11.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÖVEMBER 1977 31 „Litli DaninnA/ talinní sama f lokki og Cruyff ÞAÐ KEMUR eflaust ýmsum á óvart að umtalaðasti knatt- spyrnumaður Evrópu um þess- ar mundir skuli vera danskur. Það er enginn annar en Ailan litli Simonsen, sem blöð Evrópu eru uppfull af fréttum um nú sem stendur. Þessi lág- vaxni leikmaður, aðeins 1.60 sentimetrar á hæð, hefur svo sannarlega gert það gott eftir að hann hóf feril sinn sem at- vinnuknattspyrnumaður sum- arið 1972, nokkrum vikum eftir að hann hafði leikið tslendinga grátt I landsleik tslendinga og Dana á Laugardalsvellinum, skorað tvö mörk f 5:2 sigri Dana. Við sögðum f gær frá því að bandarfska liðið Tampa Bay Rowders vildi kaupa Allan frá Borussia Mönchengladback fyrir 210 milljónir fslenzkra króna. Allan hefur aldrei verið betri en um þessar mundir og í sfðustu þremur leikjum Borussia hefur hann skorað sjö mörk. Mörg stórlið hafa sýnt áhuga á þvf að kaupa Allan en Borussa vill fá mikla peninga fyrir hann eða þrjár milljónir þýzkra marka, sem samsvara 280 milljónum fslenzkra króna og 750 þúsundum brezkra punda. Segja sérfræðingar að Allan sé núna dýrasti knatt- spyrnumaður Evrópu ásamt stórstjörnunni hollensku Jo- han Cruyff og má til saman- burðar nefna að Kevin Keegan er metinn á 2 milljónir marka eða 186 milljónir króna og f brezkri mynt eru það 500 þús- und sterlingspund. Allan Simonsen átti algjöran stjörnuleik með Borussia f deildarleik á móti Eintracht Braunschweig á dögunum, en Borussia vann þann leik 6:0 á útivelli. Allan skoraði þrjú mörk hvert öðru betra. Einn þeirra, sem fylgdust með leikn- um, var Gunter Netzer fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja og félagi Allans hjá Borussia. Það var frægt á sfnum tíma, þegar Allan kom til Borussia og Net- zer spurði þjálfara sinn, Weis- weiler, að þvf, hvort breyta ætti féiaginu í barnaheimili! Netzer sagði eftir leik Bor- ussia og Eintracht Braun- schweig. „Fyrir marga er það gáta hvernig á þvf stendur að svona Iftill leikmaður skuli vera svona góður. Ég er ekkert undrandi. Ég þekki engan knattspyrnumann, sem hefur jafn góða skottækni og Allan. Hann getur skotið með báðum fótum. Skotin eru ekki föst en þau eru ótrúlega nákvæm." Þjálfari Eintracht sagði eftir leikinn að hann hefði sett tvo menn til höfuðs Allan í leikn- um en þeir hefðu einfaldlega ekki ráðið við hann f þeim mikla ham, sem hann var í. Nú er í alvöru farið að taia um Allan Simonsen sem Ifkleg- an kandidat f kosningunni um knattspyrnumann Evrópu næsta vor. IR og KR unnu í gærkvöldi TVEIR LEIKIR fóru fram í mfl. karla i Reykjavíkurmótinu i handknattleik i gærkvöldi. ÍR vann Þrótt 23:22 (10:12) og KR vann Ármann 22:19 (9:10) Þróttur hafði lengst yfir i leiknum gegn ÍR, en ÍR náði forystunni undir lokin. IS/lörk ÍR skoruðu: Sigurður Svavarsson 6, Ásgéir Eliasson 5, Vil- hjálmur Sigurgeirsson 5 (3v), Guð- mundur Þórðarson 2, Jóhann Ingi Gunnarsson 2 og Jóhannes Gunn- atsson 2. Mörk Þróttar: Konráð Jónsson 8 (1 v), Jóhann Frimanns- son 3, Sveinlaugur Kristjánsson 3, Sveinn Sveinsson 3, Halldór Braga- son 2, Ari Einarsson 2 og Sigurður Sveinsson 1 mark. Leikur KR og Ármanns var mjög jafn allan timann. Liðin skiptust á um að skora og KR tryggði sér ekki sigurinn fyrr en i lokin. Mörk KR: Simon Unndórsson 6 (3 v), Haukur Ottesen 4 (1 v), Björn Pétursson 3, Ingi Steinn 2, Þorvarður Guðmunds- son 2, Jóhannes Stefánsson 2. Þor varður Höskuldsson og Friðrik Þor- björnsson eitt mark hvor. Mörk Ár- manns: Björn Jóhannesson 6 (3 v). Friðrik Jóhannsson 4, Jón Viðar 3. Pétur Ingólfsson 3, Þráinn Ásmunds- son 2 og Vilberg Sigtryggsson 1 mark. í kvöld klukkan 20 keppa Leiknir og Fram kl. 20 i Laugardalshöll og strax á eftir Fylkir og Vikingur. ÁHUGI Á GETRAUN- UM ER AÐ AUKAST Vinningurinn kominn í 800 þúsund krónur vikulega Þau fóru á NM fatlaðra f sundi. Frá vinstri: Hörður Barðdal, Þorbjörg Andrésdóttir, Snæbjörn Þórðarson og Erlingur Jóhannsson þjálfari. Ljósni. Kristinn. Góður árangur íslenzkra sundmanna á NM fatlaðra: TVÖ SILFUR OG TVÖ BRONZ TÖLUVERÐ aukning hefur orðið á sölu getraunaseðla að undan- förnu og er það vel, þvf getrauna- starfsemin gefur íþróttafélögun- um drjúgar tekjur ef vel er á málunum haldið. 1 sfðustu leik- viku námu vinningar samtals 789 þúsund krónum. Fram komu fjórir seðlar með 10 réttum leikjum og var vinningur á hvern þeirra 139.500 krónur. Holbæk féll DANSKA liðið Holbæk, sem Atli Þór Héðinsson leikur með, er fall- ið niður f 2. deild f Danmörku. Holbæk lék um helgina gegn KB og tapaði 2:1. Þar með féll Holbæk. Eins og menn muna lék Jóhannes Eðvaldsson um tíma með Holbæk. Stjarna liðsins hef- ur heldur betur hrapað upp á síðkastið, því seinast í fyrra var liðið eitt af toppliðum 1. deildar- innar dönsku. STJÖRNUHLAUP STJÖRNUHLAUPIN, víðavangs- og götuhlaup, sem FH-ingar hafa gengist fyrir eru að hefjast á ný en fyrirhuguð eru fjölmörg hlaup í vetur. Fyrsta hlaupið fer fram n.k. laugardag og annað hlaupið verð- ur 10. desember. Hefjast þau klukkan 14 við Lækjarskólann i Hafnarfirði. Keppt er um vegleg- an verðlaunagrip, sem Stjörnulit- ir gáfu til keppninnar. Fram meistari ÞAÐ SKAL tekið fram vegna fréttar f gær um úrslit leikja í mcistaraflokki kvenna f Reykja- vfkurmótinu að með sigri sfnum yfir Val tryggðu Framstúlkurnar sér meistaratitil f sfnum flokki. Ennfremur komu fram 55 raðir með 9 réttum leikjum og var vinn- ingurinn 4200 krónur á hverja röð. Eins og í síðustu viku komu engir seðlar fram með 11 eða 12 réttum leikjum, þrátt fyrir það, að seldum röðum fjölgar stöðugt. Sennilega er skýringin á svo mörgum óvæntum úrslitum sú, aó vellirnir eru að breytast vegna veðurfarsins. Þurrir og sléttir vellir breytast til hins verra með stöðugri rigningu. Það hefur ávallt mikil áhrif á leik liðanna. Miðvikudaginn 16. nóvember fer fram landsleikur á Wembley milli Englendinga og ítala f for- keppni heimsmeistarakeppninnar og er þegar uppselt. Samkvæmt upplýsingum Enska knattspyrnu- sambandsins verður landslið þess ekki með neinn forgang á laugar- dag, eins og var i fyrra, er flestir leikir í 1. deild féllu nióur næsta laugardag fyrir landsleik. UM SlÐUSTU helgi var haldið fyrsta Norðurlandamót fatlaðra f sundi. Fór mótið fram f Þránd- heimi f Noregi og þótti takast mjög vel. Þátttakendur voru um 100, þar af fjórir tslendingar. Þeim gekk vel á mótinu og kræktu f tvö silfur og tvö bronz. Islenzku keppendurnir fóru ut- an á vegum lþróttasambands Is- lands. Þorbjörg Andrésdóttir keppti í 50 metra bringusundi og hreppti hún 5. sætið. Hörður Barðdal hlaut silfurverðlaun f 100 metra baksundi, synti á 1.28,3 mínútum, og hann hlaut einnig silfurverð- laun i 100 metra skriðsundi, synti á 1.15,2 mínútúm. I þessari grein setti Norðmaðurinn Erling HEIMSMEISTARINN i hnefaleikum, Múhameð Ali, undirritaði nýlega samning við kvikmyndafyrirtæki nokkurt j umræddri mynd á kappinn að leika þræl, sem vinnur sig uppí stöðu fógeta Myndin, sem sýnd verður i sjónvarpi. er um sex klukku stunda löng og verður sýnd sem framhaldsþáttur. Einu sinni áður hefur hinn málóði heimsmeistari leikið i kvikmynd, þá lék hann sjálf- an sig i mynd sem hét að sjálfsögðu „The Greatest." Tvenn alþjóðleg hnefaleikasambönd Trondsen nýtt heimsmet, 1.07,7 minútur. Loks keppti Snæbjörn Þórðarson í 100 metra baksundi og hlaut annað sætió á 1.33,7 mín- útum og hann hlaut einnig bronz- ið i 100 metra skriðsundi, synti á 1.14.8 minútum. Fararstjóri i ferðinni var Magnús Einarsson læknir og einnig var Erlingur Jóhannsson þjálfari með i ferðinni, en hann annaðist þjálfun sundfólksins hafa nú lagt að heimsmeistaranum að fara i hrmginn á ný og berjast vAð annaðhvort Ken Norton eða Jimmy Young og verja þar titil sinn eða vera sviptur honum að öðrum kosti Lögum samkvæmt verðui heimsmeistari að kljast við hátt skrifaðan áskoranda a m k árlega til þess að halda titli sinum og miða Alþjóðasambondm við keppni Alis gegn Ken Norton i septem ber á siðasta ári Þvi vill kappinn eigi una og minnir á leik smn gegn Earnie Shavers fyrir um mánuði sem hann sigraði naumlega Verður nú fróðlegt að fylgjast með framvindu mála ÞETTA Eru Reykjavfkurmeistarar lS í körfuknattleik kvenna. Aftari röð frá vinstri: Dirk Dunbar, þjálfari, Kolbrún Jónsdótt- ir, Kolbrún Leifsdóttir, Ragnhildur Steinbach, Ester Adamsdótt- ir, Margrét Eirfksdóttir og Sigurlaug Karlsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Anna Björk Aradóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Þórdfs Anna Kristjánsdóttir, Ingibjörg Birgis- dóttir og Guðný Eirfksdóttir. Ljósm. Arni Guðmundsson. Sænskt fyrirtæki með iþróttavörur í háum gæðaflokki óskar eftir aðalumboðsmanni á Islandi AB NMW Sportprodukter, Sportvágen 3, S—360 71 Nottebáck, Sweden. AU TREÐUR UPP í KVIKMYND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.