Morgunblaðið - 09.11.1977, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.11.1977, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 1977 Þegar Ólafur Noregskonungur setti norska þingið, voru stúlkur úr norska hernum I fyrsta skipti I heiðursverðinum. Eyjólfur Guðmundsson skrifar frá Noregi: Stórfelld hækkun til varnarmála Aukið fé til baráttunnar gegn mengun Þann 12. október sl. opnaði Olafur V Noregskoningur norska þingið með stuttri ræðu. Hann kom lauslega inná fjárlög þau sem norska stjórnin mun leggja fram, og verður hér á eftir komið inná nokkur atriði varðandi fjárlögin, út frá því sem komið hefur fram í blöðum og fjölmiðlum. Eitt þýðingarmesta verkefni stjórnarinnar verður að koma í veg fyrir atvinnuleysi, og veita öllum þegnum landsins örugga atvinnu og sem bezt lífskjör. Hin „alþjóðlega kreppa“ í efna- hagsmálum er ekki liðin hjá ennþá, og þarafleiðandi má ekki búast við jafn mikilli lífs- kjaraaukningu og gert var i upphafi ráð fyrir. Lægst laun- uðu stéttirnar fá hins vegar nokki ar kjarabætui’ og ellilaun og fjölskyldúbætur munu hækka. Framundan eru verð- hækkanir á bensíni, olíum og áfengi og tóbaki. Einnin mun,u fargjöld hækka, og verð á'nýj- um bifreiðum hækkar um sem svarar rúml. 100 þúsund ísl. kr. Heíldarupphæð áætlaðra fjárlaga er 72375 millj. n. kr., sem segja má að skiptist á 14 ráðuneyti, þar af fer mest til: SamKÖnKiimála. HH!M) millj. n. kr. liiMlbriKöismála. H4IH millj. n. kr. kirkju- ou mrnnlamála 77H5 millj. n. kr. varnarmála ÖH47 millj. n. kr. lamlhúnaáarmála fíl(>4 millj. n. kr. lónaóarinála 52.J0 millj. n. kr. Onnur rá«)um*yli fá minna <*n 5000 millj. ni. kr. Vert er að veita þvi athygli að framlög til varnarmála hækka um 1200 millj. n. kr. miðað við árið áður, og er hér um að ræða stórfellda hækkun, en Norð- Landhelgisgæzlan við strendur Noregs verður efld. Þyrlum verð- ur fjölgað. Verða þær bæði notað- ar-til eftirlits og hjorgunarslarfa.- menn gera sér nú Ijösari grein f.vrir því en oft áður, að frelsi þjóðarinnar verður aðeins var- ið með vopnum, og því full- komnari sem þau eru, þeim mun meiri líkur á að þeir geti rekið óvinaher af hönddum sér, ef til ófriðar kæmi. Af því fjármagni sem fer til varnarmála, er gert ráð fyrir að 1500 millj. gangi til hergagna- kaupa, en þar af rúmur þriðji hluti til F-16 orrustuflugvél- anna. Svipuð upphæð fer til kaupa á nýjum varðskipum, búnum eldflaugum og með lendingarpöllum fyrir þyril- vængjur. Ætla má að í framtíð- inni verði öll varðskip Norð- manna með lendingarpalla fyr- ir eina eóa fleiri þyrílvængjur, sem bæði verða notaðar til eft- irlits og við björgun, ef nauð- syn krefur. Ráðuneyti það sem fer með náttúruverndarmál, og ber veg og vanda í sambandi við barátt- una gegn mengun láðs, lagar og lofts, fær minnst af fjórtán ráðuneytum, eða 526 millj. n. kr. I sambandi við aukna meng- un í vatninu Mjösa, í A-Noregi, ér ráðgert að verja um 100 millj. n. kr. til að gera stöðu- vatnið á ný lífvænlegt fyrir fisk. Nú er svo komið að mörg stöðuvötn og ár í Suður- og Austur-Noregi eru orðin, eða að verða, fiskilaus, og ástæðurnar ýmist súr úrkoma vegna verk- smiðjureyks sunnar í Evrópu, eða eitur- og úrgangsefni frá ýmisss konar efnaiðnaði. Þess ber einnig að geta, að í þéttbýl- um landbúnaðarhéruðum er ár- lega dreift miklu af alls konar efnum til að eyða illgresi eða sníkjudýrum, og að áliti margra er hér um áð ræða mjög hættu- lega þróun, sem getur haft hin- ar uggvænlegustu afleiðingar bæði fyrir gróöur og lífið i heild. Mengun sjávar, lands og lofts er hlutur sem Norðmenn ræða mikið, en vegna olfuborana fyr- ir utan ströndina óttast margir að mengun geti átt sér stað, og það geti þýtt upphafið að enda- lokunum á fiskveiðum við norsku ströndina. Tízkulínan í hárgreiðslu fyrir veturinn 1977-78 Einkenni: Permanent Hreyfing Mýkt og Lampaþurrkun DAGANA 25. — 26 septem- ber sl kynntu hártízkustofn- unin i hárgreiðslu, Haute Coiffure Francaise, vetrar- tízku sína í París. Þar sem íslenzkir hárgreiðslumeistarar eru nú orðnir aðilar að þess- ari alþjóðastofnun fóru tveir úr þeirra hópi, Guðbjörn Sævar (Dúddi) og Marteinn Guðmunds (Matti), á sýning- una fyrir hönd H.C.F. hóps- ins hér á landi. Sá háttur er hafður á að frönsku hárgreiðslumeistar- arnir leggja tízkulínuna og sýna hana, en þátttakendur i hverju landi koma siðan sam- an og hanna hana við þar- lendar aðstæður. Það gerði hópurinri islenzki um daginn, en í honum eru Lovisa Jóns- dóttir, Elsa Haraldsdóttir, Hanna K. Guðmundsdóttir, Bára Kemp, Þóra B. Ólafs- dóttir, Guðrún Þorvarðar- dóttir, Marteinn R Guðmundsson og Guðbjörn Sævar. Lögðu þau nýju vetr- artizkulinurnar i hárgreiðslu sem eru tvær, og Ijósmyndari blaðsins, Friðþjófur, tók með- fylgjandi myndir. Eftirfarandi upplýsingar fengust um einkenni tízku- greiðslunnar 1977: Greiðsla nr. 1 minniráárið 1930. Mjög kvenlegar permanentbylgjur setja svip á hana. Sidd hársíns er mis- munandi, en hárið er samt jafnsítt. Greiðsla nr. 2 er byggð upp á klippingu og perman- enti. Það er áberandi í vetrar- tízkunni í ár, að hárið fær mýkri, liðaðri, krullaðri og kvenlegri svip Einnig er litun á hári eðlilegri og litir hafa gullinn blæ. Óþarfi er að bæta miklu hér víð Myndirnar sýna þessar tvær tizkulínur i hár- greiðslu, sem kynntar voru í París og siðan hannaðar af islenzkum hárgreiðslumeist- urum. — E Pá Hautc Coiffure Trancaise (Ljósm Friðþjófur)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.