Morgunblaðið - 09.11.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.11.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 1977 — Fyrri hluti Framhald af bls. 17 alllöngu nrðið ljóst að kostnaðarhækkan- ir hafa þegar farið fram úr þessari fjár- hæð. Þar við bætast svo áhrif þeirra kjarasamninga milli ríkisins og starfs- manna þess, sem nýgerðir eru og leiða munu til verulegra umframgjalda á þessu ári, bæði á launaliðnum sjálfum og einnig á öðrum liðum svo sem framlög- um til sjúkratrygginga. Að vísu munu þessi áhrif einnig verða til hækkunar á tekjuhlið, en tiltölulega minna i ár sök- um eðlilegra tafa i innheimtu. Þessi nýj- ung, að áætla fyrir verðhækkunum á fjárlagaárinu, veldur því með öðru að gjöld og tekjur munu sennilega fara tiltölulega minna fram úr fjárlagaáætl- un 1977 en verið hefur um alllangt ára- bil. A grundvelli upplýsinga úr ríkisbók- haldi fyrir fyrstu níu mánuði ársins og mats á áhrifum sérstakra ákvarðana, sem teknar hafa verið frá gerð síðustu fjárlaga, hefur verið gerð áætiun um gjöld, tekjur og afkomu ríkissjóðs á yfir- standandi ári. Áætlun þessi er sýnd í athugasemdum við frumvarpið. Að því er gjaldaáætlun varðar þykir nú líklegt að heildargjöld verði 95,9 milljarðar kr., tekjur eru áætlaðar 96,5 milljarðar kr. og halli á lánahreyfingum 0,6 milljarðar kr. Þessar áætlanír bentu til þess að tæpur jöfnuður gæti náðst I fjármálum ríkisins á árinu. I þessum áætlunum er gert ráð fyrir afborgunum lána til Seðla- bankans að fjárhæð 2,2 milljarðar kr. Þessar áætlanir tækju þó ekki mið af áhrifum kjarasamninga, sem nú er ný- lokið, enda hefur ekki gefist tækifæri til þess að áætla nákvæmlega hvaða breyt- ingar á gjaldahlið og tekjuhlið kunnu að leiða af þeim í einstökum atriðum. An sérstakra aðgerða til mótvægis mun af- koma þess vegna versna eins og ég hef þegar drepið á. Mun ég nú gera grein fyrir í stórum dráttum þróun gjalda og tekna frá því að fjárlög ársins 1977 voru afgreidd í desember s.l., með þeim fyrirvara, að áhrif kjarasamninganna eru ekki metin í einstökum atriðum á þessu stigi máls. Gjaldahlið. Svo sem jafnan á sér stað á verðbólgutímum eru það fyrst og fremst iaun og framlög til almannatrygginga sem hækka sökum sjálfkrafa tengingar þessara gjaldaliða við verðlagsvisitölur. Þannig er þessu einnig farið á yfirstand- andi ári. Séu laun metin á grundvelli kjarasamninga á hinum almenna vinnu- markaði í júní s.l. hafa laun í heild verið áætluð um 3.500 — 3.600 m.kr.Tiærri en í fjárlögum. Þá er líklegt að framlög til almannatrygginga, þ.e. lífeyris- og sjúkratrygginga, verði um 700 m.kr. yfir fjárlagaáætlun. Dregur það mjög úr þessari fjárhæð að ríflega hafi verið áætlað fyrir útgjöldum lífeyristrygg- inga, einkum vegna tekjutryggingar, í fjárlögum ársins. Niðurgreiðslur á vöru- verði innanlands voru auknar á árinu sem liður í lausn kjaradeilunnar á hin- um almenna vinnumarkaði og eru þær af þeim sökum áætlaðar 700 til 750 m.kr. umfram fjárlagaáætlun. Utflutnings- uppbætur voru sem kunnung er áætlað- ar um 80% af verðábyrgð ríkissjóðs. Var raunar vitað við samþykkt fjárlaga að ólíklegt væri að þessi forsenda héldi án sérstakra aðgerða. Líklegt má telja að verðábyrgðin verði fullnýtt á árinu og leiðir það til 450 m.kr. umframgjalda. Áætlun í fjárlögum 1977 um framlög til Lánasjóós íslenskra námsmanna byggð- ist annars vegar á beinu ríkissjóðsfram- lagi og hins vegar á lántökuheimild. Veittar hafa verið umframfjárveiting- ar vegna Lánasjóðs íslenskra náms- manna að fjárhæð 34Ó m.kr. og til greiðslu vegna uppgjörs skólakostnaðar frá fyrri tíð, þ.m.t. akstur skólabarna, að fjárhæð 350 m.kr. Heimild er fyrir lán- töku vegna þessara útgjalda en ekki hefur verið tekin ákvörðun um, hvort þessar lántökuheimildir verða nýttar. Afgangur áætlaðra umframgreiðslna, 660 m.kr., er vegna ýmissa gjaldaliða, þ.á.m. markaðra tekjuslofna til sam- ræmis við hækkaða tekjuáætlun. TEKJUR RÍKISSJÓÐS 1977 Heildartekjur rfkissjóðs 1977 eru nú taldar verða um 96,5 milljarðar kr. Gjöld af innflutningi og söluskattur valda mestu um hækkunina frá fjárlögum en tekjuskattur einstaklinga og rekstrar- hagnaður ÁTVR verður minni en reikn- að var með í fjárlögum. Athuga þarf, að sjúkratryggingagjald er hér ekki meðtal- ið fremur en gert var í fjárlögum. í athugasemdum við frumvarpið er sett fram tekjuátælun 1977 sem hérsegir: Eignarskattur verði seinnilega nokkru meiri en í fjárlögum eða um 1.340 m.kr. samanborið við 1.270 m.kr. á fjárlögum. fjárlagaræðu Tekjuskattur einstaklinga verður að líkindum um 7.000 m.kr. eða um 1.200 m.kr. minni en áætlað var við samþykkt fjárlaga. Tekjuskattur einstaklinga var lækkaður verulega í tengslum við gerð kjarasamninga, eða sennilega um nær 2 milljarða kr., en á móti vegur að tekju- aukningin frá 1975 til 1976 var vanmetin í fjarlagaforsendum. Tekjuskattur félaga er samkvæmt álagningartölum talinn verða um 300 — 350 m.kr. umfram fjárlög og nema 2.400 m.kr. Gjöld af innflutningi hafa reynst mun meir í ár en gert var ráð fyrir um ára- mót. Með tilliti til þess og með hliðsjón af innflutningsspám fyrir árið allt er gert ráð fyrir aó heildarinnflutnings- gjöld verði 3.000 m.kr. meiri en reiknað var með í fjárlögum og nemi alls 21.600 m.kr. Tollhlutfall almenns innflutnings hefur verið nokkru lægra 1 ár en 1 fyrra vegna tollalækkana um s.l. áramót en áhrif tollalækkananna hafa þó að veru- legu leyti verið vegin upp af miklum innflutningi hátollavöru, einkum bílum. Bensíngjald er nú áætlað óbreytt frá fjárlagatölum, innheimta þess var rýr fyrstu mánuði ársins en hefur nú aukist nokkuð, þannig að horfur eru á að það nái fjáríagatölunni. Bensíngjaldið hefur í ár hækkað minna en reiknað var með í fjártagaáætlun en hins vegar hefur bensínsala verið mjög mikil. Innflutn- ingsgjald af bílum er nú talið fara 500 m.kr. fram úr fjárlagatölum. Sérstakt vörugjald er nú talið verða 6.100 m.kr. eða 600 m.kr. umfram fjárlög vegna mun meiri innflutnings en reikn- að var með við samþykkt fjárlaga. Söluskattur reyndist að líkindum rúm- ir 35 milljarðar króna eða 3.500 m.kr. meiri en reiknað var með um s.l. áramót. Að venju ræður innheimta síðustu mán- aða ársins miklu um heildarútkomuna. A s.l. ári reyndist verslun i nóvember- mánuði ó venju lítil og var þeim mun meira verslað í desember. Fyrir ríkissjóð fólst í þessu fremur ódrjúg innheimta i desember en óvenju drjúg í janúar. Launaskattur er telinn verða 5.050 m.kr. eða 450 m.kr. um fjárlagatölur. Má þá hafa í huga að áhrif launahækk- ananna í júni gætir einvörðungu i inn- heimtu á síðasta fjórðungi ársins. Rekstrarhagnaður ATVR hefur reynst mun minni er fjárlög geróu ráð fyrir. Hér kemur einkum til að tóbakssala hef- ur dregist saman. Er nú gert ráð fyrir að rekstrarhagnaður ATVR nemi 8 milljörðum króna og verði því 600 m.kr. minni en reiknað var með í fjárlögum. Aðrir óbeinir skattar og ýmsar tekjur munu eftir innheimtunni á árinu að dæma verða nokkuð umfram fjárlög en arðgreiðslur úr B-hluta eru óbreyttar frá fjárlögum. 1 heild gætu þessar tekjur numið 5.900 m.kr. samanborið við 5.500 m.kr. á fjárlögum. Ég mun nú víkja nánar að útgjalda- og tekjuáætlunum fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 1978. Að þvi er varðar skýring- ar á breytingum fjárveitinga til helstu málefnaflokka og einstakra fjárlaga- hliða vísast til athugasemda með frum- varpinu. ÍJTGJALDATILLÖGUR FRUMVARPSINS 1978 Laun. 1 heild nemur launakostnaður 31.885 m.kr. sem er 9.796 m.kr. hækkun frá fjárlö'gum 1977, eða 44,3%. Er hér um að ræða 26% af heildargjöldum frumvarpsins. Þessi áætlunartala er byggð á þeirri forsendu að samningar, sem gerðir voru af aðilum vinnu- markaðarins síðastliðið vor, yrðu fyrir- mynd samninga við ríkið, eftir því sem við gæti átt, og voru áfangahækkanir Samkvæmt þeim samningum á árinu 1978 teknar með. Einnig var gert ráð fyrir 5% verðlagsbót í september s.l. en hún reyndist um 1 prósentustigi lægri sem kunnugt er. 1 samræmi við venju var ekki talin ástæða til á áætla hugsan- legar verðbætur á laun frá 1. desember 1977. A sama hátt var ekki reynt að taka mið af hugsanlegri útkomu úr samninga- viðræðum ríkisins og opinberra starfs- manna frekar en fram er komið. Nú er hins vegar ljóst aó þeir samningar leiða til mun meiri útgjaldaauka fyrir rikis- sjóð en áætlunarforsendur fjárlagafrum- varpsins gerðu ráð fyrir. Nánar verður gerð grein fyrir endurskoðun'iaunaliðar vegna nýrra kjarasamninga fyrir 3. um- ræðu. önnur rekstrargjöld eru áætluð 9.523 m.kr. og er það 18,7 hærri tala en í fjárlögum 1977. Þar sem sú fjárlagatala fól í sér áætlun um verðhækkanir árið 1977 er beinn samanburður ekki alls kostar eðlilegur, en sé áætlunarfjárhæð- in 1977 lækkuð sem nemur kostnaði vegna áætlaðra verðhækkana verður hækkun annarra rekstrargjalda 27,3%. Þessi tala er sambærileg við þá verðlags- hækkun sem orðið hefur frá gerð siðustu fjárlaga, þ.e. 27,5%, og er því nánast um að ræða sama magn rekstrargjalda á þessum tveimur árum. Viðhald. Útgjöld vegna viðhalds eru áætluð 4.034 m.kr. og er það 68,7% hækkun frá fjárlögum yfirstandandi árs. Þetta er mun meiri aukning en verðlags- hækkan nemur og skýrist af því átaki sem fyrirhugað er i vegamálum á næsta ári. Þannig hækkar vegaviðhald um 96,1% og verður alls 3.000 m.kr. Annað viðhald í rikisrekstrinum hækkar því mun minna eða um 20,5%. Er það all- verulega undir hækkun verðlags, sem á við þennan útgjaldalið, en sú hækkun er um 33% frá síðustu fjárlagagerð. Vextir. Vaxtagreiðslur af almennum lánum ríkissjöðs eru áætlaðar samtals 3.312 m.kr. Er það 45,6% hærri fjárhæð en í fjárlögum yfirstandandi árs. Þessi aukning, sem nemur 1.037 m.kr., á i fyrsta lagi rætur að rekja til vaxta og vísitölubóta af lánum teknum 1977, 684 m.kr., í öðru lagi til hækkana vísitölu- bóta af eldri spariskírteinalánum, 161 m.kr., og í þriðja lagi nettóhækkunar vaxta af öðrum lánum, 192 m.kr. vegna gengisákvæða. Almannatryggingar. Framlög til al- mannatrygginga hækka um 8.414 m.kr. eða 38,8%. Verða framlög þessi í heild 30.106 m.kr. eða fjórðungur allra ríkisút- gjalda. Sem kunnugt er ræður það mestu um aukningu framlaga til þessa mála- flokks, að þau eru beint og óbeint tengd kauptöxtum og að þvi leyti sjálfvirk. Hefði aukningin af þessum sökum orðið enn meiri frá tölu fjárlaga 1977 ef ekki hefði komið til mjög rúm framlög til lífeyristrygginga á yfirstandandi ári, en ekki er komið i ljós hversu mikilli fjár- hæð þetta kann að nema. Auk þess er tekinn inn nýr bótaflokkur, heimilisupp- bót, sem Iögfestur var fyrr á þessu ári í sambandi við lausn kjaradeilu aðila hins almenna vinnumarkaðar, og til hans ætiaðar 450 m.kr. Loks skal þess getið í sambandi við sjúkratryggingar, að nú er talinn með framlögum ríkissjóðs sá hluti kostnaðar er uppi var borinn með sjúkratryggingagjaldi og áætlaður er l. 900 m.kr. á næsta ári. Þessi hluti kostnaðarins var ekki talinn með ríkis- framlagi í fjárlögum 1977. Á sambæri- legum grundvelli nemur aukning ríkis- framlags því 30% í stað áðurnefndra 38,8%. 1 áætlun um framlag til sjúkra- trygginga er á þessu stigi ekki gert ráð fyrir breytingu á greiðslu til kaupenda lyfja og sérfræðiþjónustu, en fyrir af- greiðslu fjárlaganna þarf að taka ákvörð- un í þessu efni. Niðurgreiðslur. Kostnaður við niður- greíðslur á vöruverði innanlands er áætlaður 6.531 m.kr. og er það 28% hækkun frá fjárlögum 1977. Helsta or- sök þessarar hækkunar er sú ákvörðun, sem tekin var í sambandi við lausn kjaradeilunnar í júní, að auka niður- greiðslur allverulega frá fyrra stigi. 1 framangreindri fjárhæð er meðtalið 345 m. kr. framlag í Lífeyrissjóð bænda. Útflutningsuppbætur eru áætlaðar 2.963 m.kr. á næsta ári og er það 64,6% hækkun frá fjárlagatölu í ár. Eins og þegar er getið miðaðist fjárlagaáætlun yfirstandandi árs við að verðábyrgð ríkissjóðs yrði nýtt að fjórum fimmtu hlutum. Nú er ljóst að nýtingin á yfir- standandi ári verður mun meiri en þar var gert ráð fyrir og er fjárlagaáætlun 1978 byggð á fullnýtingu verðábyrgðar- innar. Þetta skýrir hluta hækkunarinn- ar. Að öóru leyti er skýringin fólgin í aukningu landbúnaðarframleiðslu eins og hún er metin af Hagstofu Islands, en sem kunnugt er miðast verðábyrgð ríkis- sjóðs við 10% af verðmæti áætlaðrar landbúnaðarframleiðslu að gildandi lög- um óbreyttum. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir ráðstöfunum til að draga úr offramleiðslu landbúnaðarafurða, m.a. með endurskoðun útflutningsbóta. Skilningur á þessu vandamáli kom fram á fundi Stéttarsambands bænda í haust. Aðrir rekstrarliðir og rekstrartilfærsl- ur. Þessi tegund útgjalda er áætluð sam- tals 9.504 m.kr. eða 43,4% hærri en í fjárlögum 1977. Hér er m.a. að ræða tilfærslur til stofnana í B-hluta fjárlaga þar sem launakostnaður er þungur á metunum, svo sem Flugmálastjórn, Þjóðleikhús o.fl. Framkvæmdaframlög eru i heild áætl- uð 28 milljarðar kr., en það er 34,5% hækkun frá fjárlögum yfirstandandi árs. Er það rétt rúmlega hækkun byggingar- kostnaðar sem er 33% frá síðustu fjár- lagagerð. Af helstu flokkum þessara framlaga hækka verklegar framkvæmd- ir um 35,5%. í því felst nokkur magn- aukning þeirra framkvæmda sem fjár- magnaðar eru um A-hluta fjárlaga en opinberar framkvæmdir í heild munu lækka um 5% að magni. Verður nánari grein gerð fyrir þvi i lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinnar. Það sem veldur framangreindri magnaukningu eru framlög til vegagerðar. Þar verður um að ræða allverulega aukningu frá áætlaðri útkomu i ár vegna þess sérstaka átaks, sem fyrirhugað er í vegamálum á næsta ári og áður getur. Fjárfestingar- styrkir eru áætlaðir samtals 955 m.kr., eða 55% hærri en í fjárlögum 1977, og skýrist þessi mikla hækkun að öllu leyti af auknum styrkjum til vega í kaupstöð- um og kauptúnum. Loks eru framlög til fjárfestingarsjóða og launagreiðslna áætluð 11.672 m.kr. sem er 31,8% aukn- ing frá fjárlögum 1977. Mikilvægustu hækkunarliðirnir þar eru framlög til stærstu fjárfestingarsjóðanna, sem að mestu eru lögbundin og verðtryggð, þ.e. til Byggðasjóðs, Fiskveiðasjóðs, Bygg- ingasjóðs rikisins og Iðnlánasjóðs, eins og nánar er skýrt í athugasemdum. tekjuAætlun RlKISSJÓÐS 1978 Tekjuáætlun ríkissjóðs fyrir árið 1978 er að venju reist annars vegar á endur- skoðaðri áætlun um tekjur ríkissjóðs á líðandi ári og hins vegar á ákveðnum fjárlagaforsendum fyrir árið 1977, eink- um þeirri að almenn þjóðarútgjöld auk- ist um 4% 1978, eða um líkt hlutfall og þjóðarframleiðslan. Verðlagsforsendur tekjuáætlunarinnar eru hinar sömu og útgjaldaáætlunarinnar. Innheimtar tekjur eru áætlaðar sam- tals 124,8 milljarðar kr. samanborið við 96,5 milljarða kr. í endurskoðaðri tekju- áætlun 1977 og 90 milljarða kr. í fjárlög- um líðandi árs. Samkvæmt þessu aukast tekjur um 28,3 milljarða kr. eða 29% frá áætlaðri niðurstöðu 1977, en frá fjárlög- um nemur aukningin 34,9 milljörðum kr. eða 39%. Við þennan samanburð verður að taka tillit til þess að sjúkra- tryggingagjald er nú fært í fjárlaga- frumvarpi en hefur ekki verið fært með ríkissjóðstekjum til þessa. Tekjur af sjúkratryggingagjaldi eru áætlaðar 1.900 m.kr. 1978 og sé sú fjárhæð dregin frá heildartekjum samkvæmt frumvarpinu verður tekjuaukningin milli áranna 1977 og 1978 26,4 milljarðar kr. eða 37%. I fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að álagning óbeinna skatta verði óbreytt frá þvi sem er á þessu ári, að öðru leyti en þvf, að tekið er tillit til tollalækkunar í ársbyrjun 1978 sam- kvæmt gildandi tollskrá. Er hér einkum um að ræða lækkun tolla samkvæmt friverslunarsamningum okkar og lækk- un tolla á hráefnum, vélum og fjárfest- ingarvörum til samkeppnisiðnaðar. Tekjutap ríkissjóós af þessum sökum er talið nema 1.600 — 1.800 m.kr. á árinu 1978. Eins og fyrr segir er í áætlun um bensíngjald og bifreiðaskatt ennfremur gert ráð fyrir 15 kr. hækkun bensín- gjalds nú undir lok ársins og tilsvarandi hækkun bifreiðaskatts. Er þá ekki reikn- að með frekari hækkunum sem áhrif hafa á þessa stofna 1978. Aætlanir um tekjur af beinum sköttum eru reistar á giidandi lögum. I áætlun um eignarskatt er reiknað með breytingu fasteignamats samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna frá 1976. Niðurstöður um hækkun mats lágu ekki fyrir þegar áætlunin var gerð en jafnframt er reikn- að með að skattastiga verði breytt nokk- uð með hliðsjón af hækkun matsins. Áætlun um tekjuskatt er reist á óbreytt- um lögum en gert ráð fyrir að skattvísi- tala hækki svipað og verðlag, þ.e. að skattvisitala við álagningu tekjuskatts 1978 verði sett 31% hærri en 1977. Svar- ar það til hækkunar verðlags milli ár- anna 1976 og 1977. Þar með veróur álagning tekjusaktts 1978 óneitanlega heldur þyngri en í ár vegna hækkandi tekna. Laun hækka meira en verðlag og eftirspurn fer vaxandi og er því nauð- synlegt að beinum sköttum verði beitt til að draga úr þenslunni. Um einstaka þætti í tekjuhlið frum- varpsins leyfi ég mér að vísa til greinar- gerðar með frumvarpinu. Hlutdeild markaðra tekna í heildar- tekjum rikissjóðs var 12,5% 1976 en verður 14,5% samkvæmt frumvarpinu að sjúkratryggingagjaldinu meðtöldu. Að því frátöldu hækkar hlutfallið engu að síður I 13% vegna hækkunar markaðra tekna til vegagerðar. Hlut- deild beinna skatta í tekjum ríkissjóðs verður um 14% 1977 i stað 16% i fjárlög- um ársins og stafar þessi líkkun hlut- fallsins af lækkun tekjuskatts einstaki- inga á miðju ári. A árinu 1978 verður hlutdeild beinna skatta samkvæmt frum- varpinu talsvert meiri, eða tæplega 18%, einkum vegna þess að sjúkratrygginga- gjald er nú fært í fjárlögum í fyrsta sinn. Hlutdeild óbeinna skatta verður um 81% og hlutdeild annarra tekna verður rúmlega 1 %.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.