Morgunblaðið - 09.11.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1977
7
Hriplekt sigti
Hugsjónir eru flestuir
mönnum hvati til starfs
og dáða; markvissrar bar
áttu aS settum mörkum.
Þetta á við um þjóðmála
hugsjónir eins og hugsjón-
ir á öðrum sviSum mann-
legra viðfangsefna. Á
vettvangi stjórnmála hafa
hugsjónir þó á stundum
orðið úti i valdatafli
flokka og einstaklinga;
orðið sýndarmennska i
raun. þó að hampað sé i
slagorðum og heitstreng-
ingum. Þann veg getur
stjórnmálaflokkar orðið
að hripleku hugsjónasigti.
sem glutrað hefur niður
markmiðum sinum, og
stendur eftir sem nakinn
hentistefnuhópur á mark-
aði sýndarmennskunnar.
Enginn islenzkur stjóm-
málaflokkur hefur komizt
lengra i þessari kúnst en
Alþýðubandalagið, sem
haft hefur tungur tvær i
öllum meiriháttar við-
fangsefnum samtimans
— og talað sitt með
hvorri. eftir þvi hvort það
hefur verið innan eða ut-
an ríkisstjórnar.
Mýmörg dæmi
tvískinnungs
Dæmin um tviskinnung
Alþýðubandalagsins er
mýmörg. Hver man ekki
atkvæðahendur Alþýðu-
bandalagsins uppréttar.
allar með tölu. er sam-
þykktar voru á Alþingi
veiðimeimildir til handa
139 brezkum togurum
ínnan 50 milna land-
helgismarka. til tveggja
ára. árið 19737 Hver man
ekki hnúta þá er orkuráð-
herra Alþýðubandalagsins
hnýtti Union Carbide og
járnblendisverksmiðju i
Hvalfirði með aftan i Sig-
ölduvirkjun? Hver man
ekki gengislækkun og af-
nám kaupgjaldsvisitölu i
stjórnartíð Alþýðubanda-
lagsins árið 1974. þvert á
nýgerða kjarasamninga
þá? Hver man ekki heit
strengingar um „herinn
burt. Ísland úr Nato".
„saltaðar" i tveimur
vinstri stjórnum? Þessum
söltuðu heitstrengingum
hefur siðan, á stundum,
verið umbreytt i „Evrópu
kommúnisma", sem felur
i sér allt i senn. 1) rétt-
læting að aðild að Atlants-
hafsbandalaginu. 2)
hægagang um hvers kon-
ar þjóðnýtingu og 3) rök-
stuðning fyrir stjórnar-
samstarfi við borgaralega
stjórnmálaflokka. Þegar
hæst er sungið i Þjóðvilj-
anum. telur hann sig jafn-
vel höfund „Evrópu-
kommúnismans" — hann
héðan kominn til komm-
únistaflokka Frakklands,
ítaliu og Spánar!
Já. það er hentugt
„hinni nýju stétt" i Al-
þýðubandalaginu að hafa
tungur tvær — og tala
sitt með hvorri.
Nótastöð í
fískihöfn
Reykjavíkur
j viðtali við Morgun-
blaðið sl. sunnudag gerir
Gunnar B. Guðmundsson.
hafnarstjóri i Reykjavik.
grein fyrir nauðsyn þess
að koma upp nótastöð fyr-
ir nótaskipaflotann i
Reykjavikurhöfn. Hafnar-
stjóri segir að nótastöð af
þvi tagi, sem hann hefur
áhuga á. verði að reisa á
hafnarbakka, svo hægt sé
að taka nót beint úr skipi
og inn i stöðina — og
siðan beint úr henni um
borð i skipin. Stöðin verði
að vera i tveggja hæða
byggingu. Áætlað er að
slik nótastöð þurfi að vera
i húsi. sem að grunnfleti
er ekki undir 800 fermetr-
ar — og hæð byggingar
12 metrar. svo hér er um
stórt hús að ræða.
Skemmur þær. sem nú
eru i Vesturhöfninni. geta
ekki leyst þennan vanda.
Hafnarstjóri segir i viðtal-
inu að æskilegt sé að slik
nótastöð „risi hér i fiski-
höfninni, við Norðurgarð-
inn, i framhaldi af nýja
Ísbjarnarhúsinu". Þarna
þarf að gera nauðsynlega
uppfyllingu og athafna-
svæði fyrir stöðina. sem
kostar mikið fjármagn.
í þessu viðtali kemur
hafnarstjóri enn að þeirri
staðreynd. að ef Reykja-
vikurhöfn á að halda sin-
um hlut um eðlilega upp-
byggimgu og þjónustu
fiskihafnarinnar, verður
hún að njóta hliðstæðrar
fjármögnunar fram-
kvæmda i jafnaráætlun og
á fjárlögum og aðrar fiski-
hafnir sveitarfélaga i land-
inu. Til þessa hefur
Reykjavikurhöfn verið al-
farið afskipt um slikan
stuðning, meðan aðrar
hafnir fá stofnkostnað
greiddan úr sameiginleg-
um sjóði landsmanna —
frá 75% (sem er algeng-
ast) i 100% (landshafnir).
Þetta einsdæmi þarf að
leiðrétta. e.t.v. i áföngum.
en áður en meiri skaði er
skeður um eðlilega upp-
byggingu i fiskihöfninni.
LITSJÓNVARPSTÆKI
Úrvalstæki, búin öllum tækninýjungum, svo sem línulampa og
viðgerðareiningum. Varahluta- og viðgerðarþjónusta á staðnum.
Hagstæðir afborgunarskilmálar.
Verð:
20" tæki kr. 276.000- 22" tæki kr. 324.950.- 26" tæki kr. 366.900,-
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Sendum
bæklinga,
ef óskað er.
QBBQQ
Dömur ath. Músík-
leikfimi íþróttahúsinu
Seltjarnarnesi
Nýtt hressandi og styrkjandi 5 vikna nám-
skeið í leikfimi fyrir dömur á öllum aldri
hefst þann 14. nóv. n.k.
Kennt verður á mánudags- og fimmtu-
dagskvöldum í íþróttahúsinu Seltjarnar-
nesi,.
Leikfimi — vigtun — mæling — matar-
æði — sturtur.
Innritun og upplýsingar í síma 75627 eftir
kl. 1 alla virka daga.
Auður Valgeirsdóttir.
Umbreytingin
Endurminningar kvikmyndastjörnunnar
LivUllmann
flýgur út, kanske uppseld fyrr en varir.
Tvímælalaust mest um talaða bókin á jóla-
markaðnum bók full af sterkum og heitum
tilfioningum, ást- og afbrýði, grímulausum lífs-
^°rSta Helgafellsbók.