Morgunblaðið - 09.11.1977, Síða 28

Morgunblaðið - 09.11.1977, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1977 \40*&ÚU-V KAFP/NO U ^— ((»c 4'&}< Þetla er fjórria flóttatilraunin þín. — Þú kemur óorði á þetta fangelsi! IIH> Heyrðu gamli vinur — IVIá ég vekja ath.vgli þína á þvf að flugvélar eru friðaðar allt árið! Afsakið hiðina, prestur minn, mér ætlaði aldrei að takast að fá pössun fyrir krakkann! Ræða þarf vanda- mál unglinga BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Til eru nöfn á flestum brögöum og spilaaðferðum, sem notuö eru. Nokkur þeirra eru ágæt eins og t.d. trompbragð, en það heiti skýr- ir spilaaðferðina nokkuð. Önnur eru lakari. Stórbragð kemur sjaldan fyrir en er mun skyldara trompbragðinu en nafnið gefur til kynna. , Gjafari suður, norður og suöur á hættu. Nurður S. A853 H. 72 T. G L. AG9652 Vestur Austur S. KDG96 S. 1042 H. 5 • H. G983 T. A9542 T. 763 L. 104 L. 873 Suöur S. 7 II. AKD1064 T. KD108 L. KD Hjartaás og kóngur sýndu leg- una en þá var laufunum spilað og austur réð ekki við stöðuna. Unn- ið spil. Eini munur trompbragðs og stórbragðs kom fram hjá spilaran- um þegar hann trcmpaði tígul- vinningsslag í blindum. POSPFR .............................................!í,“,7ií.w!i Hver fylgdi mér heim? — Þaö veit ég ekki, en kemst aö því seinna; Sitthvað um vandamál unglinga er umræðuefni, sem lengi hefur verið fjallað um, að hléum, en er sífellt rætt engu að síður. Áfengisvandamál koma þar til sögunnar, vandamál um þetta og vandamái um hitt og hér á eftir fer bréf frá konu sem leggur til að þessi mál verði rædd meira í út- varpi: „Kæri Velvakandi. Eg las nýlega í dálkum þínum bréf þess sem skrifaði um að tala þ.vrfti meira við fölk, og var það Y.J.. sem skrifaði. Það þarf endi- lega að koma með meira af viðtöl- um við fólkið i útvarpinu og sjón- varpinu um dagleg vandamál. sem oft geta verið mjög alvarleg. Nefni ég nokkur dæmi. sem hægt væri að ræða um: Unglinga, sem ekkert hafa að gera eða geta hvergi verið, eftir að skóla er lokið á daginn. og á kvöldin: Unglinga sem eru einhverra hluta vegna i fangelsi og hvernig megi hjálpa þeim: Unglinga. sem eru eiturlyfja- ne.vtendur: Unglinga sem hafa enga til að tala við: Unglinga í skólakerfinu, breyt- ingar á skólakerfinu og breyting- ar á kennslu: Fátækt fólk, sem lifir á vegum Félagsmálastofnunar: Fátækt fólk, sem þarf á lög- fra'ðingi að halda. en getur ekki greitt honum fyrir það: Og siðast en ekki sízt fráskildar konur, sem þurfa að byrja nýtt líf. sem þurfa hjálpar með frá rikinu til að halda húsnæði sinu fyrir sig og börn sin og sem þurfa hjálp tii að komast aftur í atvinnu eftir mörg ár í „heimavinnu" og öll önnur vandamál. sem einstæð móðir þarf að leysa. Öll þessi vandamál þurfa að komast uppá yfirborðið og það heizt í gegnum útvarp og sjón- varp. Vitna má i Mattheus 24.12 þar sem talað er um að lögmálsbrotin muni magnast og kærleikur alls þorra manna kólna. Þetta ér lýs- ing á nútímanum, þetta erum við! Og við erum öll á sama báti. Hvenær skyldi fólk vakna upp og sjá þennan sannleika? S.R.H." Hér er drepið á mörg og marg- visleg umræðuefni. sem taka má fyrir i þessum fjölmiðlum. Oft eru tekin fyrir ýmis vandamál i hinu daglega lifi i hinum og þess- um umræðuþáttum útvarpsins og t.d. má nefna að i fyrravetur var þáttur þar sem fólk gat spurt spurninga um lögfræðileg efni og V'€‘stur Norrtur Austur 2 S :i l pass pass :t ff pass pass 5 tf pass pass pass pass spilaði Út spaðakóng, Sudur 2 II :j t 4 <; a n sem tekinn var með ás blinds. Hefði suður farið beint í tromp- ið, eins og flest okkar hefðu ef- laust gert umhugsunarlítið, hefði spilið reynst óvinnandi. En spilar- inn var varkár og undirbjó loke- stöðuna strax í öðrum slag með því að trompa spaða á hendinni. Það eitt að vestur hafði sagt spaða benti til slæmrar legu og suður var ákveðinn í að gera það sem hann gæti til að vinna spilið. I þriðja slag spilaði hann þvi lágum tígli að gosanum. En vestur tól sinn og spilaði aftur tígli. Sa;. afi gat tekið slaginn á hend- inm en trompaði samt í blindum til að halda samgönguleiðum sín- ui. 'ium seinna. Siðan tromp- aði i aftur spaða og áttu þá bæc i jnn og austur fjögur tromp á hendi. RETTU MER HOND ÞINA 91 yrði tilveran ekki eins nötur- leg. t raun og veru hugsaði Ahmed líkt og hún, enda þótt hann reyndi að brynja sig fyrir nýjum vonhrigðum með kulda- legri afstöðu: Erik er ekki hægt að treysta framar. Vilji hann í raun og sannleika verða vinur minn, þá er það gott og hlessað. En það borgar sig ekki að gera sér vonir um, að hann vilji það. — Anna, sagði hann, þegar hún kveikti sér í sígarettu að lokinni máltið, — það tekur þvl sjálfsagt ekkí, að þú gerir þér of miklar vonir um Erik. Sambandið á milii okkar kemst aldrei í lag, nema hann játi hreinskilnislega, að hann hafi falið sig tíl þess að komast hjá því að hitta mig og að hann hafi skrökvað að mér f hréfinu. Þetta verður hann að viður- kenna, áður en hann fer héðan í þetta sinn. Anna gekk um í herberginu og hlúði að blómunum. Hún leit ekki á málið á sama hátt. Hún mat það mest að þau fengju Erik aftur. — Já, en hugsaðu þér, Ahmed, ef það er nú satt, sem hann skrifaði f bréfinu. Hugsaðu þér, ef hann hefur f raun og veru ált erindi inn í húsið. — Nei, góða mfn, það stenzt ekki. Eg sá það greinilega á því, hverniig hann hagaði sér, þeg- ar hann stanzaði og hljóp inn í portið, að hann vildi forða sér. Það liggur I augum uppi, að hann segir ósatt f bréfinu. Ég get orðið vinur hans með einu skilyrði — að hann játi allt fyrir mér hreinskilnislega. Anna lét ekki haggast. — En ef hann viðurkennir ekkert, hvað hyggstu þá fyrir? — Þá vil ég ekki, að hann komi aftur. Það var sem myrk- ur færðist yfir Önnu. Hún hélt áfram ósjálfrátt að sinna blóm- unum. En hún þorði ekki að horfa á Ahmed. Augnaráð hennar hefði komið upp um líðan hennar. Andúðin vaknaði aftur I hjarta hennar. XX\ Þau sátu þrjú f setustofunni og reyndu að tala saman. En andrúmsloftið var þvingað. Erik og Ahmed höfðu breyzt bæði ytra og innra. Það var varla, að þeir þekktu hvor ann- an aftur. Drættirnir voru orðn- ir skarpari og meira áberandi. Heill heimur ólfkrar reynslu skildi þá að. Erik hafði notið lífsins ríkulega kannað ný og skemmtileg svið. Hann hafði þroskazt að sumu leyti. Hann hafði náð betri tökum á Iffinu, og ný viðhorf höfðu lokizt upp fyrir honum. En Ahmed — og Anna Ifka á sinn hátt — höfðu fjötrazt f beiskju, hugur þeirra var þreyttur, nær því án allra tilfinninga og Iffs. Hið eina, sem þau höfðu lifað á liðnu ári, var það, að ástin og vonirnar höfðu smámsaman dvínað. Nú héldu þau þreytt í þetta eina hálmstrá: Að Erik vildi tala og Framhaldssaga eftir GUNNAR HELANDER Benedikt Arnkelsson þýddi bæta um betur. Þau einblíndu á hann. En Erik var rígbundinn þeirri aðferð, sem hann vildi við hafa. Fyrst áttu þau að verða góðir vinir, og sfðan ætl- aði hann að gera út um málin við þau. Hann verkjaðí f axlirn- ar, og honum re.vndist erfitt að tala rólega og vingjarnlega. Hann reyndi að fjörga þau með alls konar skrafi um gaml- ar, góðar minningar frá Eng- landi. En honum tókst ekki að koma þeim á skrið með sér. Umræðurnar voru stirðar. Það var eins og að róa f sfrópi. Hann varð þvf aö snúa sér að venju- legum samræðum, kuldalegu blaðri um stríðið og um einskis- verða hluti. Spjallið varð eintai í æ ríkari mæli. Ahmed og Anna sátu þögul f hægindastól- um, en Erik rakti nákvæmlega ævintýri sfn f Jóhannesarborg, Durban og Jagersdrlft. Ahmed reykti hverja sfga- rettuna af annari og hlustaði. Hann hafði ekki geð f sér til þess að minnast á. hvað fyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.