Morgunblaðið - 10.12.1977, Side 7

Morgunblaðið - 10.12.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977 7 Dagvistunar- stofnanir Það kom fram í máli Markúsar Arnar Antons- sonar, borgarfulltrúa, er dagvistunarmál vóru rædd í borgarstjórn, að á þessu ári hefðu verið tek- in í notkun 230 ný dag- vistunarrými í Reykjavík. Á næsta ári yrðu tekin I notkun 102 rými til við- bótar, auk nýs skóladag- heimilis i Fellahverfi. Áætlun um röð nýrra framkvæmda í dag- vistunarmálum, sem félagsmálaráð borgarinn- ar hefði gert, var lagt fram með frumvarpi til fjárhagsáætlunar borgar- innar fyrir árið 1978. Þar hafði verið efst á blaði blönduð stofnun, dag- heimili / leikskóli, við Iðufell og önnur við Arnarbakka. Þá stæði yfir endurskoðun á rekstri vistheimila á vegum félagsmálastofnunar borgarinnar. E.t.v. yrði hægt að koma þar inn 50 nýjum dagvistunarrýmum á næsta ári. Markús Örn sagði að í nóvembermánuði sl. hefðu leikskólapláss verið 2422 og dagheimilispláss 775. Þessi pláss hefðu hinsvegar getað verið yfii 3300, ef ekki hefðu til komið niðurskurðar ákvæði i reglugerð serr öllum væri kunnugt um Auk framangreindra dag- vistunarrýma væru 517 pláss á einkastofnunum og 700 börn á vistun hjá svokölluðum „dagmömm- um". Heildartala rýma er þvi 4414 sem er yfir 50% af öllum börnum i borg- inni á aldrinum 0—5 ára. Nú liggja fyrir samþykktar teikningar af tveimur nýj- um dagvistunarstofnun- um: dagheimili og skóla- dagheimili við Tungusel og skóladagheimili við Blöndubakka og munu þessar stofnanir fullbúnar rúma 74 börn. Markús Örn sagði að skv. fyrirliggjandi kostnaðaráætlunum kost- aði hvert pláss á dag- heimili 2 milljónir króna i uppbyggingu. Vistun hvers barns á dagheimili kostar í rekstri 60 þús. krónur á mánuði. Þar af greiðir borgin 40 þús. krónur en forráðamenn barns 20 þúsund. Árið 1978 munu þessar niður- greiðslur yfir heildina nema rúmlega 500 millj- Markús Örn Antonsson ónum króna. Þessar fram- kvæmdir væru, ekki síður en aðrar, háðar fjárhags- stöðu borgarinnar hverju sinni og framkvæmdaþörf á öðrum sviðum sam- félagsþjónustu við borgar- búa. Efnahags- ráðstafanir í ísrael Þorvarður Elíasson ritar grein um efnahagsvanda ísraela og efnahagsráð- stafanir i Mbl. i gær. Vandi þeirra er að hluta til svipaður okkar, segir Þorvarður, en verðbólgu- vöxtur þar i landi verður nálægt 40% á þessu ári. Halli hefur verið á rikisbú- skap þeirra og vöruskipta- verzlun við útlönd, gengi gjaldmiðils sigið og vextir innanlands verið óraun- hæfir (lægri en verð- bólga). Auk þessa hefur Þorvarður Eliasson sambúð við nágranna og herkostnaður sett strik í rikisbúskap og efnahags- mál landsins. Þorvarður segir að ísraelar hafi gripið til eftirtalinna ráðstafana: Hætt opinberri gengis- skráningu en skráð gengi skv. framboði og eftir- spurn afnumið út- flutningsuppbætur; af- numið sérstakt 15% vöru- gjald; lækkað almenna innflutningstolla um 20%; fyrirtækjum hafi verið heimilað að opna gjaldeyrisreikninga er- lendis, kaupa og selja gjaldeyri sem og að flytja hann út og inn eftir þörf- um; almenningi heimilað og eiga ótakmarkaðan gjaldeyri i innlendum við- skiptabönkum og allt að $3000 í erlendum bönk- um; viðskipti erlendra aðila til gjaldeyrisvið- skipta i israelskum bönk- Framhald á bls. 26 ftltðður á morgun DÓMKIRKJAN Messa kl 1 1 árd Séra Þórir Stephensen Messa kl. 2 síðd Séra Hjalti Guðmundsson NESKIRKJA Barnasamkoma kl. 10 30 árd og guðsþjónusta kl 2 síðd Séra Guðmundur Óskar Ólafs- son Bænamessa kl 5 síðd Séra Frank M Halldórsson. GRENSÁSKIRKJA Barnasamkoma kl 1 1 árd og guðsþjónusta kl 2 síðd Organisti Jón G Þórarinsson Séra HalldórS Gröndal HÁTEIGSKIRKJA Barnaguðsþjón- usta kl 1 1 árd Séra Tómas Sveins- son Messa kl 2 síðd Séra Arn- grímur Jónsson. Síðdegisguðsþjón- usta kl 5. Séra Tómas Sveinsson K.F.U.M. Amtmannsstíg 2 B. Sunnudagaskóli fyrir öll börn kl. 1 0 30 árd HALLGRÍMSKIRKJA M essa kl. 11 árd Altarisganga Lesmessa n.k þriðjudag kl 1 0 30 árd Beðið fyrir sjúkum Séra Ragnar Fjalar Lárus- son. LANDSPÍTALINN Messa kl 10 árd Séra Ragnar Fjalar Lárusson DÓMKIRKJA Krists Konungs, Landakoti. Lágmessa kl 8 30 árd Hámessa kl 10 30 árd og lág- messa kl. 2 siðd Alla virka daga er lágmessa kl 6 siðd nema á laugar- dögum, þá kl 2 síðd LAUGARNESKIRKJA Barnaguðs- þjónusta kl 1 1 árd Fluttur verður helgileikur Messa kl. 2 siðd Séra Jónas Gislason dósent prédikar Aðventukvöld verður kl. 20 30: Kórsöngur, einleikur á tropmet og einleikur á kirkjuorgelið, upplestur, fermingarbörn og börn úr kirkju- skólanum sýna helgileik Séra Þorvaldur Karl Helgason hefur hug- leiðingu Sóknarprestur FRÍKIRKJAN Reykjavik Barna- samkoma kl 10.30 árd Guðni Gunnarsson Messa kl 2 síðd Séra Þorsteinn Björnsson FELLA- og HÓLASÓKN Barnasam- koma í Feilaskóla kl 1 1 árd Séra Hreinn Hjartarson ÁSPRESTAKALL Messa kl 2 síðd að Norðurbrún 1 Séra Grimur Grimsson BREIÐHOLTSPRESTAKALL Sunnudagaskóli kl 1 1 árd í Breið- holtsskóla Jólasöngvar í Breiðholts- skóla kl 2 síðd , organisti Daniel Jónasson Séra Lárus Halldórsson HJÁLPRÆÐISHERINN Helg unar- samkoma kl 1 1 árd Sunnudaga- skóli kl 2 síðd. Hjálpræðissamkoma kl 8 30 siðd Lautinant Evju BÚSTAÐAKIRKJA Barnasamkoma kl 1 1 árd Guðsþjónusta kl 2 síðdegis Séra Heimir Steinsson prédikar Kaffi og umræður eftir messu Barnagæzla Organisti Guðni Þ Guðmundsson Séra Ólaf- ur Skúlason KIRKJA ÓHÁÐA safnaðarins Messa kl 2 siðd Séra Emil Björns- son. ÁRBÆJARPRESTAKALL Barna- samkoma i Árbæjaskóla kl 10 30 árd Skátamessa i skólanum kl 2 síðd Æskulýðsfélagsfundur á sama stað kl 8 30 siðd ..Ungt fólk með hlutverk” kemur á fundinn og Gisli Arnkelsson sýnir mynd frá Kristni- boðsstarfinu. Séra Guðmundur Þorsteinsson FÍLADELFÍUKIRKJAN Klukkan 2 síðd: Guðsþjónusta i Hafnarfjarðar- kirkju, kór Fíladelfiu syngbr, stjórn- andi Árni Arinbjarnarson, prédikun Einars J Gislasonar Almenn guðs- þjónusta verður í Fíladelfíukirkjunni kl 8 síðd Einar J Gíslason LANGHOLTSPRESTAKALL Barna- samkoma kl 10 30 árd Kór Öldu- túnsskólans kemur i heimsókn ásamt stjórnanda sínum, Agli Frið- leifssyni Við orgelið Jón Stefáns- son. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson DIGRANESPRESTAKALL Barna- samkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. 1 1 árd Guðsþjón- usta i Kópavogskirkju kl 2 síðd Séra Þorbergur Kristjánsson GUÐSPJALL DAGSINS: Matteus 11: Orðsending Jóhannesar. LITUR DAGSINS: Fjólublár. — Litur undir- búnings og iðrunar. KÁRSNESPRESTAKALL Barna- samkoma i Kársnesskóla kl 1 1 árd Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl 1 1 árd Séra Gunnar Árnason fyrrv sóknarprestur prédikar í tilefni af 25 ára afmæli kirkjusóknar i Kópavogi og 1 5 ára afmæli Kópavogskirkju Séra Árni Pálsson GARÐAKIRKJA Barnasamkoma i skólasalnum kl 1 1 árd Messa kl 2 síðd Sigurður Örn Ragnarsson stud theol prédikar Séra Bragi Friðriksson KAPELLA St. Jósefssystra i Garðabæ. Hámessa kl 2 síðd FRÍKIRKJAN i Hafnarfirði Barna- samkoma kl 10 30 árd Guðsþjón- usta kl 2 síðd Vænzt er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Séra Magnús Guðjónsson HAFNARFJARÐARKIRKJA Barna- samkoma kl 1 1 árd Guðsþjónusta kl 2 síðd Einar J Gislason prédik- ar, Filadelfíukórinn syngur Séra Gunnþór Ingason NJARÐVÍKURPRESTAKALL Saga skóli í Stapa kl 1 1 árd og i safnað- arheimili Innri-Njarðvikurkirkju kl 1 30 síðd Séra Páll Þórðarson KEFLAVÍKURKIRKJA Sunnu- dagaskóli kl 1 1 árd Aðventukvöld kl 5 siðd með hljóðfæraleik, ein- söng og kórsöng Jólafundur safnaðarfélagsins i kirkjunni kl 8 30 síðd Sóknarprestur GRURKIRKJA Barnasamkoma kl 1 1 árd. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA Barna- samkoma kl 10 30 árd Sóknar- prestur EYRARBAKKAKIRKJA Barnasam- koma kl 2 siðd AKRANESKIRKJA Barnasamkoma kl 10 30 árd Kór Barnaskóla Akra- ness kemur í heimsókn Messa kl 2 síðd Séra Björn Jónsson SIGLUFJARÐARKIRKJA Aðventu- kvöld kl 5 síðd : Guðrún Ásmunds- dóttir leikkona flytur hugvekju, kirkjukórinn undir stjórn Páls Helga- sonar organista flytur vandaða dag- skrá Erindi flytur Rúnar Guðjónsson og Anna Magnúsdóttir les upp Sóknarprestur Matthías Johannessen Sverrir Haraldsson Árituð eintök Bókin verður meðal annars til sölu á heimili listamannsins að Hulduhólum í Mosfellssveit laugardaginn 10. desember og sunnudaginn 11. desember frá kl. 13.00 — 19.00 og mun liann þá árita seld eintök.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.