Morgunblaðið - 10.12.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977
11
Jólagreni
Blessuð jólin nálgast óð-
fluga og jólatrén munu flest
þegar komin til landsins, —
það sem á vantar kvað vera á
næsta leiti. I vitund margra
mun jólahátið án fagurlega
skreytts jólatrés véra með
öllu óhugsandi, svo varan-
legur er þessi siður orðinn
sem upphófst við katólskar
jólahátiðir i kirkjum í Suður-
Þýskalandi í upphafi 16. ald-
ar.
Á þessum tíma er ekki úr
vegi að minnast aðeins á
þennan sigræna gróður sem
við berum inn i hibýli okkar,
tendrum Ijósum og gleðjumst
umhverfis um stund á ári
hverju. Sú tegund sem lang-
mest er notuð sem jólatré er
RAUÐGRENI (Picea abies).
Nálar þess eða barr eru smá-
gerðar og þéttstæðar, gras-
BRODDGRENI (P, pungens)
og sitkagreni (P. sitchensis).
Allr standa þessar tegundir
að baki rauðgrenis m.a. sök-
um þess hve grófgerðar og
þybbnar þær eru. Þær skortir
auk þess þann ferska græna
blæ sem einkennir svo rauð-
grenið.
I tengslum við aðventu og
jól eru greinar af sígrænu
mikið notaðar í allskonar
borðskreytingar, aðventu-
kransa, leiðísgreinar, krossa
o.s.frv. Aðventukransinn er
nýlegur siður hér og á ört
auknum vinsældum að
fagna. I vandaðar skreyting-
ar hentar kverskonar greni
illa sökum þess hversu fljótt
nálarnar vilja hrynja af þvl. í
þess stað eru notaðar greinar
af ÞIN (Abies) sem heldurvel
nálunum. Er þá að mestu um
grænar eða dökkgrænar og
gljáandi. Könglar rauðgrenis
eru fremur stórir og eru mikið
notaðir I allskyns jólaskreyt-
ingar. Vöxtur rauðgrenis er
flnlegri en hjá flestum örðum
grenítegundum og barrilmur
þess ríkulegri. Rauðgteni
hefur verið reynt hér sem
garðtré en virðist ekki lánast
vel nema á stöku stað Til
skógræktar hefur þvi verið
plantað hérlendis á álitlega
staði og þar lofar það góðu.
Er þegar farið að höggva tals-
vert af innlendu rauðgreni til
jólatréssölu og mun það
væntanlega aukast ört á
komandi árum. Aðrar
tegundir grenis sem notaðar
eru ögn sem jólatré eru:
HVÍTGRENI (Picea glauca)
blágreni (P.engelmannii)
að ræða svokallaðan NORÐ-
MANNSÞIN (A
nordmanniana) og nálar hans
eru langar, mjúkar dökk-
grænar og gljáandi Þær sitja
þétt og þekja greinina vel
Önnur tegund sem smávegis
er notuð I hina vönduðustu
aðventukransa og skreyting-
ar. er EÐALÞINUR (A
procera eða A. nobilis) en
nálar hans eru blágrænar og
sveigjast fagurlega út og upp
frá greinunum
Norðmannsþinur og reynd-
ar fleirri áþekkir þinir eru
einnig hafðir sem jólatré sök-
um áðurnefndra eiginleika.
Til skreytinga i umræddu
skyni eru einnig notaðar
furugreinar og til tilbreyting-
ar nota sumir orðið einnig
furu sem jólatré.
Ó.V.H.
Tónleikar
Kammersveit-
ar Reykjavík-
ur á sunnudag
Kammersveit Reykjavíkur
efnir á sunnudag til annarra
tónleika sinna á þessu starfsári
og verða þeir i Bústaðakirkju
kl. 17. Einvörðungu veráur
flutt barokk-tónlist á þessum
tónleikum og munu um 20
manns taka þátt í flutningi
verkanna, sem eru alls 4.
Verkin eru Konsert í g-moll
fyrir fimm ‘hljóðfæri eftir
Antonio Vivaldi og Konsert nr.
2 í d-dúr fyrir fjögur hljóðfæri
eftir Francois Couperin. Orðið
konsert merkir hér verk fyrir
margar sjálfstæðar hljóðfæra-
raddir þar sem segja má að
hver flytjandi sé einleikari.
Hin tvö verkin sem flutt eru
falla undir þá skilgreiningu
Félagar í Kammersveit Reykjavíkur.
orðsins konsert að það sé fyrir
einleikshljóðfæri og hljóm-
sveit, en þau eru Konsert í E-
dúr fyrir kontrabassa og kamm-
ersveit eftir Karl Ditters von
Dittersdorf og verður einleik-
ari í því verki Jón Sigurðsson
kontrabassaleikari og sfðast á
efnisskránni verður Konsert
nr. 1 í d-dúr fyrir trompet og
kammersveit eftir Johann
Melchior Molter og leikur Lár-
us Sveinsson trompetleikari
einleik í því verki. Aðeins eitt
þessara verka hefur verið flutt
á tónleikum hérlendis áður.
Aðgöngumiðar verða seldir
við innganginn.