Morgunblaðið - 16.12.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16, DESEMBER 1977
3
Aðstoð „A-pressunnar”
á Norðurlöndum við
Alþýðublaðið í athugun
IJósm. Friðþjófur.
OPNUÐ hefur verið sýning fjögurra listamanna að Bergstaðastræti 15 i Reykjavík, en þeir eru:
Örlygur Sigurðsson, Jóhannes Geir, Gunnar Hjaltason og Rudolf Wissauer. A sýningunni eru alls 45
myndir, 10—15 eftir hvern listamannanna og eru þetta vantslitamyndir, olfmálverk, teikningar og
grafík, allt nýjar myndir og nýlegar eftir fyrrgreinda listamenn. Sýningin verður opin fram á
Þorláksmessu, 23. desember, og er hún eins og áður sagði að Bergstaðastræti 15, i vinnustofu
Guðmundar Arnasonar. Hún er opin á venjulegum verzlunartfma, kl. 9—18.
Flutti inn notaða Mercedes Benz á fölskum forsendum:
Útvegaði sér eyðublöð
og Msaði vörureikninga
MAÐUR nokkur hefur undanfar-
ið flutt inn notaðar Mercedes
Benz-bifreiðar frá Vestur-
Þýzkalandi á fölsuðum vörureikn-
ingum. Hefur hann á einhvern
hátt komizt yfir eyðublöð erlend-
is og sfðan falsað fylgibréfin með
bílunum hér heima. Munar veru-
legum upphæðum á grunnverði
bifreiðanna, sem sfðan magnast,
er innflutningsgjöld eru reiknuð
á grunnverðið. Fluttir hafa veVið
inn tugir slfkra Benz-bifreiða.
Innflytjandinn var hinn 8. desem-
ber úrskurðaður f gæzluvarðhald
til 26. janúar eða í 6 vikur á
meðan málið er f rannsókn hjá
Rannsóknarlögreglu rfkisins.
A síðastliðnu sumri var eftir
því tekið að sama framieiðslu-
númer var ekki á undirvagni og
vélarhúsi Benz-bifreiðar, sem
flutt hafði verið notuð til lands-
ins. Kom í ljós að skipt hafði verið
um þá númeraplötu, sem aðgengi-
legri var, og ennfremur að bíllinn
var ekki eins gamall og nýja plat-
an gaf til kynna. Munar yfirleitt
einu til tveimur árum á uppgefn-
um aldri bifreiðanna og raun-
verulegum aldri þeirra.
Erla Jónsdóttir, deildarstjóri
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins,
sagði að eftir væri að yfirheyra
fjölda fólks vegna þessa máls, en
rannsóknin beinist m.a. að því.
hvort viðskiptavinir mannsins,
sem úrskurðaður var í gæzluvarð-
hald og flutti bifreiðarnar til
landsins, hefur veitt þeim ein-
hver sérstffk kjör. Þá ná viðskipti
þessa manns og talsvert langt aft-
ur i timann.
„ALÞVÐUBLAÐIÐ hefur um
langt skeið fengið sent ýmiskonar
erlent efni frá A-pressunni á
Norðurlöndum. sem eru samtök
blaða jafnaðarmanna, en þau
hafa lengi greitt hvert fyrir öðru
á ýmsan hátt. Þegar þeir svo
fréttu af því að við ættum í vax-
andi erfiðleikum með útgáfu Al-
þýðublaðsins, þá buðust þeir til
að athuga hvort þeir gætu aðstoð-
að okkur eitthvað og þá helzt í
sambandi við pappírskaup og er
það mál nú í athugun," sagði
Benedikt Gröndal, formaður Al-
þýðuflokksins, í samtali við Mbl. í
gær.
Samstarfssamningur Alþýðu-
blaðsins og Reykjaprensts rennur
út nú um áramótin og sagði Bene-
dikt, að nokkrar umræður hefðu
farið fram um áframhaldandi
samstarf. „Við teljum tvímæla-
laust að þetta samstarf hafi orðið
til hagræðingar á sviði sjálfs
reksturs blaðsins og hafi verið til
gagns,“ sagði Benedikt. „Og því
teljum við rétt að reyna að ná
samkomulagi um áframhaldandi
samstarf." Benedikt kvaðst ekki
geta sagt, hvert tapið af útgáfu
Alþýðublaðsins yrði á þessu ári,
en í gær lauk söfnuninni A-77,
sem var fjársöfnun til styrktar
blaðinu. „Það fé, sem fengizt hef-
ur í þessari söfnun, hefur að lang-
mestu Ieyti verið látið ganga til að
létta á eldri skuldum blaðsins,“
sagði Benedikt. Ekki kvaðst Bene-
dikt geta tiltekið allar skyldi.
Alþýðublaðsins „en við drögum á
eftir okkur talsverðan slóða“.
„Dagblöðin eiga nú öll i miklum
erfiðleikum," sagði Benedikt, „og
hafa haft samráð um hugsanlega
fyrirgreiðslu opinberra aðila
varðandi blaðakaup og fleira.
Þetta og ýmislegt fleira mun ráða
því, hvort samningar takast um
áframhaldandi rekstur Alþýðu-
blaðsins, eins og verið hefur.“
Flugvélin
fannst ekki
FLUGVÉL og skip frá Landhelg-
isgæzlunni leituðu í gær að flug-
vélinni, sem lenti á sjónum
skammt frá Reykjanesi á mið-
vikudag. Flugvélin fannst ekki.
Viðbygging við
Lækjarskóla
Hafnarfjarðarbær hefur boðið
út vinnu við grunn Lækjarskóla i
Hafnarfirði en í ráði er að byggja
við skólann. Alls bárust 6 tilboð í
verkið og voru lægstbjóðendur
Knútur og Steingrimur h.f., kr.
3.060.000.- og samþykkti bæjar-
ráð að taka tilboði þeirra. Fyrsta
skóflustunga að viðbyggingunni
hefur verið tekin og gerði það
Þorvarður Arni Þorvarðarson
nemandi í skólanum.
Mál Hauks Guðmundssonar:
Bæjarfógeti vill láta
vísa honum úr starfi
„RÁÐUNEYTIÐ hefur
skrifað Hauki Guðmunds-
syni bréf, þar sem honum
er gefinn kostur á að taka
afstöðu til tillagna, bæjar-
fógetans í Keflavík með til-
vísun til þeirrar iagagrein-
ar, þar sem segir að jafnan
skuli gefa viðkomandi
starfsmanni kost á að tjá
sig um tillögur þess efnis
að honum verði vísað úr
stöðu,“ sagði Baldur Möll-
er, ráðuneytisstjóri í dóms-
málaráðuneytinu, í sam-
tali við Mbl. í gær. „I þessu
felst engin ákvörðun ráð-
herra, en þetta þýðir að
bæjarfógetinn í Keflavík
hafi gert þá tillögu til
Lýst eftir vitnum
AREKSTUR varð á gatnamótum
Háaleitisbrautar og Kringlumýr-
arbrautar hinn 29. nóvember síð-
astliðinn klukkan 08,50 'milli
Volkswagen-bifreiðarinnar R-
47810 og Hillman-fólksbifreiðar
S-1453. Agreiningur er um það,
hvort S-1453 hafi verið ekið Ijós-
iausri. Lögreglan óskar eftir að
ná tali af vitnum í máli þessu.
Þá var hinn 13. desember á
tímabilinu frá klukkan 09 til
16.30 ekið á bifreiðina P-626, þar
sem hún stóð á bifreiðastæði á
mótum Suðurgötu og Túngötu í
Reykjavik. Bifreiðin er af gerð-
inni Austin, brúnsanseruð fólks-
bifreið. Líklegt er að bakkað hafi
verið á bifreiðina. Lögreglan ósk-
ar eftir vitnum að árekstrinum.
ráðuneytisins að Hauki
verði veitt lausn að fullu“.
Baldur sagði, að Haukur hefði
vikufrest til að tjá sig um tillögu
bæjarfógetans. Haukur Guð-
mundsson sagði í samtali við Mbl.
í gær, að hann myndi skýra sínu
stéttarfélagi frá gangi mála og
gera sínar athugasemdir til ráðu-
neytisins, en að öðru leyti kvaðst
hann ekki vilja ræða málið að svo
stöddu. Jón Eysteinsson, bæjarfó-
geti i Keflavík, kvaðst ekkert
vilja segja fyrr en endanlegur úr-
skurður dómsmálaráðuneytisins
lægi fyrir.
Aukafundur SH
hefst í dag
AUKAFUNDUR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hefst í dag kl.
14 í Atthagasal Hótel Sögu. A
þessum fundi verður fyrst og
fremst rætt um rekstrarerfiðleika
frystihúsanna og þá erfiðleika
sem við blasa. Upphaflega átti
þessi fundur að vera fyrr, en var
frestað vegna ýmissa atvika.
Kona týndi
peningaveski
FULLORÐIN ekkja tapaði á mið-
vikudaginn milli kl. 17—18 pen-
ingaveski sínu, með allverulegri
fjárhæð í. Þær götur tvær sem til
greina koma eru öldugata eða
Hafnarstræti. Skilvis finnandi
geri lögreglunni viðvart, en að
sjálfsögðu verða fundarlaun
greidd. Veskið með peningunum i
er svart frá Sparisjóði Reykjavík-
ur og nágrennis.
% og þú ert kominn
* langt áleiðis
eð ió
Skófatnaður og klæðnaður
á ALLA fjölskylduna.
simi:2721
Austurstræti