Morgunblaðið - 16.12.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977
5
Sveitarómantík
KLUKKAN 22.30 í kvöld er
í sjónvarpi bandaríska bíó-
myndin „Koma tímar,
koma ráð“ (Come next
spring), sem gerð var árið
1955. Leikstjóri er R.G.
Springsteen, en með aðal-
hlutverk fara Ann Sheri-
dan og Steve Cochran.
Myndin er 90 mínútna
löng.
Sögusvið myndarinnar
er fylkið Arkanas í Banda-
ríkjunum á þriðja áratug
þessarar aldar. Hún fjallar
um mann sem hefur verið
á flakki í átta ár en snýr þá
aftur til fjölskyldu sinnar
og búgarðs staðráðinn í að
bæta fyrir afglöp sín.
Ann Sheridan var ein af
vinsælustu leikkonum
Bandaríkjanna árin eftir
heimsstyrjöldina seinni.
Ann, sem er fyrrverandi
fegurðardrottning, hefur
leikið í fjölda mörgum
myndum, hinni fyrstu árið
1933. Hún hefur einnig
komið fram í sjónvarpi.
Kvikmyndahandbókin
gefur „Koma tímar, koma
ráð“ þrjár og hálfa stjörnu
og því ætti tímanum að
vera vel varið fyrir framan
sjónvarpið í kvöld.
Kastljós kl. 21.20:
Gjaldeyrismál
íslendinga
„KASTLJÓS" er að venju
á dagskrá sjónvarps í kvöld
klukkan 21.20. Umsjónar-
maður þáttarins er Guðjón
Einarsson og sagði hann að
í þættinum í kvöld yrði
„fjallað um gjaldeyrismál
íslendinga frá ýmsum hlið-
um“.
Teknir eru fyrir banka-
reikningar íslendinga er-
lendis og hin nýja reglu-
gerð um gjaldeyrisreikn-
inga í íslenskum bönkum.
Þá verður fjallað um þær
hömlur sem nú eru á gjald-
eyrisyfirfærslu, bæði hjá
ferðamönnum og þeim sem
eru að fara til útlanda með
búslóð sína og í framhaldi
af því verður svo rætt um
svarta markaðs braskið á
íslandi.
1 þættinum í kvöld koma
fram þeir Sigurður
Jóhannesson, forstöðu-
maður gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans, Björgvin
Guðmundsson, deildar-
stjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu, og Örnólfur Árnason,
leikritaskáld, en hann hef-
ur verið leiðsögumaður á
sólarströndum. Einnig
verður flutt í þættinum
viðtal við Ólaf Jóhannes-
son. Spyrill með Guðjóni í
kvöld er Svala Thorlacius
fréttamaður.
Menntarit Þjóðsögu:
Sjálfsþekking
Yoga fyrir vestræna nema
BÖKAÚTGAFAN Þjóðsaga hefur
gefið út bókina „Sjálfsþekking —
yoga fyrir vestraena nema“.
Höfundur bókarinnar dr.
Laurence J. Bendit, brezkur sál-
könnuður, sem hefur notið að-
stoðar konu sinnar við ritun
bókarinnar, Phoebe Payne, sem
þekkt er fyrir verk sín um sálar-
fræði og dulskynjun. Sverrir
Bjarnason íslenzkaði bókina.
„Sjálfsþekking" kemur út i
bókaflokknum „Menntarit Þjóð-
sögu.“ A bókarkápu segir svo
m.a.:
„Dr. Bendit trúir þvi, að unnt sé
að þróa yogaaðferð, sem byggð sé
á vestrænni þekkingu, og með að-
stoð hennar geti menn uppgötvað
sérstæðileika sinn i hæfileikum
og lifsskilningi. t umfjöllun sinni
um leið sjálfsþekkingarinnar
ræðir dr. Bendit um sálræna
reynslu ýmiss konar, svo sem
drauma, dulræna reynslu, innsæi,
hugboð og skaþandi ímyndun".
Bókin er 134 blaðsíður, prentuð
I Prentsmiðju Arna Valdimars-
sonar h.f. bundin i Örkinni h.f. og
hönnuð af Hafsteini Guðmunds-
syni.
TlZKUVERZLUN unga fólksins
WKARNABÆR
Laugaveg 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155
VANTAR ÞIG VENNU
VANTAR ÞIG FÓLK
Þt AIGLVSIR l M ALLT
LAND ÞEGAR Þl AL'G-
LÝSIR í MORGl'NBLADINL