Morgunblaðið - 16.12.1977, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977
Jólatón-
leikar í Frí-
kirkjunni
HÁSKÓLAKÓRINN í samvinnu
við Fríkirkjusöfnuðinn í Reykja-
vík heldur tónleika undir stjórn
frú Rutar Magnússon í Fríkirkj-
unni laugardaginn 17. desem-
ber n.k. kl. 20 00.
Efnisskráin er afar vönduð
og fjölbreytt — m.a. jólalög frá
Bretlandi, Bolivíu, Katalóníu,
Frakklandi, Ítalíu og Þýzkalandi
auk gamalla islenzkra jólalaga
Einsöng með kórnum syngur
Guðfinna Dóra Ólafsdóttir,
sópran, og Monika Abendroth
leikur á hörpu. Þá flytur kórinn
verkið A Ceremony of Carols,
op. 28 í minningu brezka tón-
skáldsins Benjamins Britten, en
hann er nýlátinn sem kunnugt
er. Britten samdi verkið á með-
an hann dvaldi i Bandaríkjun-
um á árunum 1939—42 og
notaði hann ensk og latnesk
miðaldakvæði og gömul skozk
Ijóð jafnt eftir kunna sem
ókunna höfunda. Upphaflega
samdi Britten þetta verk fyrir
þriraddaðan drengjakór og
hörpu. Seinna útsetti Julius
Harrison það fyrir blandaðan
kór með leyfi höfundar og er
það sú útsetning sem kórinn
notar.
Frikirkjan hefurá liðnu sumri
verið máluð að utan og innan.
Þá hefur altaristaflan, sem er
yfir fimmtíu ára gömul, verið
hreinsuð og umgjörðin gyllt að
nýju Verður þetta fyrsta sam-
koman i kirkjunni eftir hina
gagngeru viðgerð og endur-
bætur, og mun marga fýsa að
sjá hvernig til hafi tekist. Að-
gangseyri hefur verið stillt
mjög í hóf og mun hagnaður ef
einhver verður renna til að
standa straum af kostnaði við
viðgerð á kirkjunni Aðgöngu-
miðar fást við innganginn.
Fjölmennum á tónleika Há-
skólakórsins og hlýðum á hann
syngja með gleðiraust og helg-
um hljómi lög, sem fylla kirkj-
una af hátíðlegum, tilgerðar-
lausum aðventusöng, sem
hrekur á burt skammdegis-
drungann á þessu myrkasta
tímabili vetrarins, eins og Leif-
ur Þórarinsson kemst að orði í
ritdómi sínum um söng kórsins
nú nýverið. (Frá Fríkirkjusöfn-
uðinum)
Fundur um æskulýðsmál:
Rætt um hlut ungs fólks
í störfum kirkjunnar
ÆSKULÝÐSSTARF þjóðkirkj-
unnar hefur boðað til umræðu-
fundar um æskulýðsmál er
standa á yfir tvö kvöld í janúar-
mánuði næstkomandi. Fundar-
efnið er nefnt Söfnuðurinn og
unga fólkið og segir í bréfi þar
sem fundurinn er kynntur að
markmið hans sé að gera sér
grein fyrir hvernig ástandið sé og
að komast að niðurstöðum um
hvað gera eigi til að byggja upp
árangursríkara starf.
Til fundarins er boðið prestum,
guðfræðideild Háskólans, fulltrú-
um frá Hjálpræðisher, KFUM,
KFUK, KSS, KSF, Kirkjuráði og
menntamálanefnd þjóðkirkjunn-
ar. Fundurinn verður mánudags-
og þriðjudagskvöld 23. og 24.
janúar og hefst bæði kvöldin kl.
19 og er þátttaka öllum opin. A
fundinum verður unnið í hópum
þar sem lagðir verða fram ýmsir
umræðupunktar svo sem: Er
unga fólkið að fjarlægjast kirkj-
una eða kirkjan unga fólkið?
Gagnrýni ungs fólks á messu-
formið. Almenn þátttaka ungs
fólks og áhrif þess innan safnað-
anna og rædd verður einnig
spurningin: Starfsemi kirkjunnar
kom ekki við sögu i sænska sjón-
varpsþættinum Skóladagar, er
það eins hérlendis? Sr. Þorvaldur
Karl Helgason æskulýðsfulltrúi
þjóðkirkjunnar sagðist vonast eft-
ir góðri þátttöku í þessum um-
ræðufundum og vonaðist jafn-
framt til að árangur þeirra yrði sá
sem vænzt væri, þ.e. að komizt
yrði að niðurstöðum um hvað gera
mætti til að byggja upp árangurs-
ríkara starf. Væntanlegir þátttak-
endur utan af landi geta fengið
25% afslátt af flugi með Flugfé-
lagi Islands og þarf að tilkynna
skrifstofu Æskulýðsstarfsins um
það.
Jólaandakt
í Innstadal
á sunnudag
GONGUDEILD VSkings efnir til all
sérstæÖrar gönguferðar á sunnudag-
inn. Verður haldið frá Víkingsskálan-
um I SleggjubeinsskarSi á sunnu-
dagsmorgun klukkan 11 og gengið
inn I Innstadal, en þangað er röskur
hálftíma gangur. Verður þaf flutt
hugvekja og sungnir jólasálnar. en
siðan haldið til baka ef fólk vill. Fyrir
þá sem vilja ganga meira, má benda
á að úr Innstadal eru ótal gönguleiðir
og tilvalið að lengja gönguferðina ef
veður verður gott.
FÁST HJÁ ÖLLUM
BÓKSÖLUM
í þessari bók er lýst, þegar
þeir félagar taka þátt í fræg-
asta kappakstri veraldar, sem
haldinn er í Le Mans í Frakk-
landi. Þar hittast flestir allra
frægustu ökusnillingar heims,
og þar er sannarlega líf í
tuskunum. - Þeir félagar aka
CHEVROLET-MONZA í GTX-
flokki, en það eru tryllitæki,
sem hægt er að tæta áfram.
Arngrímur Thorlacius þýddi.
KRAGGUR
i* \
Finnar eiga mikinn fjölda frá-
bærra ævintýra.en flest þeirra
eru okkur enn sem komið er
lítt kunn, vegna þess, hve
finnsk tunga er fjarskyld
tungumálum hinna Norður-
landaþjóðanna.
Sigurjón Guðjónsson þýddi.
Saga um fjallahrút, sem er óviðjafnanlegum gáfum gæddur
og foringi hjarðar sinnar og gætir hennar af slíkri kostgæfni,
að furðu vekur og undrun þeirra, sem til þekktu, en aðalóvinir
hjarðar Kraggs var fjallaljónið og úlfarnir — að veiðimönnun-
um ógleymdum. Helga Kristjánsdóttir þýddi.
FINNSK
ÆVINTÝRI
FÁST HJÁ ÖLLUM
BÓKSÖLUM
fR ANKog jOI
IA DYRUNUMI
LEIFTUR
NANCY
07 WfkkiáBa fe<3ndri’&ið'
mm
FRANK og JÓI, Hardýbræður:
MERKIÐ Á DYRUNUM
HRAÐLESTIN FLJÚGANDI
Þetta er 18. og 19. bókin um
þessa snarráðu og hugdjörfu
bræður og áhættusöm ævin-
týri þeirra.
Gísli Ásmundsson þýddi.
LABBA . . .hertu þig!
LABBA er sjálfri sér lík!
Nú eru komnar fjórar bækur
um LÖBBU litlu, og margar
fleiri koma síðar. Hún er 13
ára, lífið er dásamlegt, því að
hún á margar vinstúlkur, og
alltaf er eitthvað skemmtilegt
að gerast í þeim glaða hóp.
Gísli Ásmundsson þýddi.
GIMSTEINAR Á GRÆNLANDSJÖKLI
Eftir JACK HIGGINS. (Áður útkomið eftir sama höfund: „ÖRNINN ER SESTUR“).
Hörkuspennandi bók um dularfullt leyndarmál eins og allra best gerist hjá Alistair McLean.
Þetta er bók handa þeim, sem vilja lesa æsisoennandi sögur en vel skrifaðar. í bókinni
segir: „Þetta reyndist eitt af þeim málum, er nær ógerlegt virtist að lyfta hulunni af.“ En
bókin gefur lesandanum svar við því. Gísíi Ásmundsson þýddi.
UiOI.yW KEENH
NANCY
og hlykkjótta handriðið
NANCY
og glóandi augað
Það er óþarfi að kynna þess-
ar bækur nánar. Þær eru vin-
sælar og víðlesnar.
Gunnar Sigurjónsson þýddi.
GAMLAR TALGÁTUR
Gátur þessar urðu þannig til,
að höfundar höfðu það að
leik sínum, að semja þær og
senda hver öðrum.
Höfundur:
Sr. Kjartan Helgason í Hruna.
Þessi saga er að mörgu leyti
einstætt verk í íslenskum
barnabókmenntum. — Engu
barni verður rótt í brjósti, fyrr
en það veit hvernig Hindinni
góðu reiðir af í þeim átökum
og hættum, sem hún lagði á
sig til þess að hjálpa öðrum
dýrum í hlíðum Miklufjalla.
LEIFTUR
IHIND/N GOÐA\
ævintýri
kristjén jóhannsson