Morgunblaðið - 16.12.1977, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977
g6í»*
\ VóteP
aV!6an«
„News og the World"
er 6. platan með Queen
Hér sannast að þeir eru fremsta rokk grúppa heimsins i
dag.
Rokk eins og það best gerist.
„Bright Lights
and Back Alleys"
heitir nýjasta platan með Smokie
Hér eru bæði ný lög og eldri lög eins og t.d. ..Needles
and pins Þessi plata gefur þeim fyrri ekkert eftir.
„Out of the Blue"
með E.L.O.
Ekki bregðast Jeff Lynne og félagar fremur en endra-
nær. Hlustið á þetta frábæra nýja tveggja plötu albúm.
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8 — Laugaveg 24 —
Vesturver.
m
*
1
TISKUVERSLUN
Bjóðum margs konar glæsilegan tískufatnað fyrir
dömur svo sem buxnadress, samfestinga, smekkbux-
ur, anorakka, kjóla, pils, flauelsbuxur, vesti og
margt fleira. Saumað og hannað í klæðagerðinni
Lorelei. Það er vel þess virði að líta inn og verðið er
hóflegt.
Tískuverslunin GLAUMBÆR
HVERFISGÖTU
SUVII 13880
32
Tekjuöflunarfrumvörp:
Skyldusparnað-
ur mætir skiln-
ingi á Alþingi
Andstaða við skattvísitölu, sjúkratrygg-
ingagjald, vörugjald og benzínskatt
í fyrrakvöld var mælt fyrir hliðarfrumvörpum ríkis-
stjórnar með frumvarpi að fjárlögum fyrir komandi ár,
þ.e. tekjuöflunarfrumvörpum til að mæta útgjaldaauka
ríkissjóðs. Fjármálaráðherra mælti fyrir frumvörpum
um skyldusparnað og ráðstafanir í ríkisfjármálum, um
sérstakt tímabundið vörugjald, um fjáröflun til vega-
gerðar (benzíngjald), ráðstafanir vegna lánsfjáráætlun-
ar 1978 og um jöfnunargjald af innfluttu sælgæti, brauð-
vörum o.fl. Þá mælti heilbrigðisráðherra fyrir frumvarpi
um almannatryggingar (sjúkratryggingagjaldi). Hér á
eftir verða lauslega rakin efnisatriði úr máli fjármála-
ráðherra sem og andmælenda hans, en framsögn heil-
brigðismálaráðherra er getið á öðrum stað í blaðinu.
Útgjaldaauki ríkis-
sjóðs árið 1978
MaUhíaii Á. Mathiesen, fjár-
málaráðherra, sagði fjárlaga- pg
hagsýslustofnun áætla hækkun
ríkisútgjalda, til samræmis við
breyttar fjárlagaforsendur (m.a.
vegna launasamninga), 18.3
milljaðra króna, þ.e. 13.1 millj-
arður á Iaunalið og 3.9 milljarðar
i útgjöldum almannatrygginga,
sem fylgja launum. Hækkun á
öðrum liðum nemur 1.3 milljörð-
um, þ.e. 500 m. kr. vegna uilarnið-
urgreiðslna og tæplega 500 m. kr.
vegna hækkunar markaðra tekju-
stofna. Hér er átt við hækkun
miðað við fjárlagafrumvarp, eins
og það var lagt fram í haust, en
hækkun milli ára er verulega
meiri.
Endurskoðun tekjuáætlunar
vegna breyttra verðlagsforsenda
1978 og miðað við 4% aukningu
þjóðarútgjalda leiðir líkur að 10.7
milljarða tekjuhækkun frá fjár-
lagafrumvarpi. 1 þessari áætlun
er miðað við að skattvísitala verði
213 stig en hækkun meðaltekna
milli áranna 1976 og 1977 verður
líklega 42%. Auk þess er reiknað
með um 300 m. kr. tekjuauka af
eignaskatti. Hækkun gjalda af
innflutningi er talin um 3.7 millj-
arðar og af sköttum af seldri vöru
og þjónustu nálægt 5 milijörðum.
Sá fjáröflunarvandi, sem um er
Sjúkratryggingagjald:
Kostnaður sjúkra- og
lífeyristrygginga hækk-
ar um 7500 millj. kr.
Hækkun sjúkratryggingagjalds gefur 1900 m.kr.
UTGJÖLD til sjúkratrygginga á
yfirstandandi ári vóru áætluð
10.862 m. kr. en hækka um 3.200
m. kr. í 14.084 m. kr., sagði Matt-
hías Bjarnason, heilbrigðisráð-
herra, er hann mælti fyrir frum-
varpi til hækkunar á sjúkratrygg-
ingagjaldi. Þá hækka lífeyris-
tryggingar og verulega milli ára.
tJtgjöld lífeyristrygginga vóru
12.100 m. kr. á árinu 1977 en eru
áætluð 16.387 m. kr., eða 4.300 m.
kr. hærri á komandi ári. Allar
lífeyristryggingar hækkuðu ný-
verið um 20%.
Ráðherra vakti athygli á því að
launatengd útgjöld í rekstri
sjúkrastofnana væru 70% heild-
arrekstrarkostnaður þeirra. Laun
í heilbrigðiskerfinu hefðu hækk-
að verulega á liðandi ári, auk til-
færslna milli launaflokka, sem
væru miklar.
Ráðherra gat þess að sjúkra-
tryggingagjald hefði verið lagt á
bæði 1976 og 1977, en það væri
brúttóskattur á alla skattgreið-
endur, þann veg, að þeir greiddu
mest er hæstar hefðu tekjur.
Gjald þetta hefði verið 1% á
gjaldstofn útsvars en hækkaði nú
í 2%. Þessi hækkun ætti að gefa
1.900 m. kr. upp í margfalt hærri
útgjaldaauka í heilbrigðiskerfinu.
Vmsar aðrar leiðir mætti að
vísu fara til tekjuöflunar, m.a.
leið persónugjalds, eins og áður
hafi verið farin til tekjuöflunar
sjúkrasamlaga og almanna trygg-
inga. Þá hefðu allir greitt sama
nefskattinn, hverjar sem tekjur
að efnahagur viðkomandi hafi
verið. Hér er gert ráð fyrir að
skatttekjur mæli sjúkratrygg-
ingagjald hvers og eins. Þeir, sem
ekki hafi tekjur til að greiða út-
svar, greiða ekkert sjúkratrygg-
ingagjald. Þær breytingar verða
á, ef frumvarpið verður sam-
þykkt, að gjaldskylda sjúkratr.gj.
er miðuð við, að viðkomandi haf’
greitt útsvar eftir 10% ál.reglu á
gjaldstofn. Ennfremur að skatt-
stjórar leggi viðkomandi gjald á
en ekki álagningaraðilar útsvars,
sem geta verið hreppsnefndir eða
niðurjöfnunarnefndir.
Viöbrögð
stjórnarandstöðu
Lúðvik Jósepsson (Abl), Bene-
dikt Gröndal (A) og Karvel
Pálmason (SFV) mæltu gegn
frumvarpi þessu. Taldi LJó það
verst af tekjuöflunarfrumvörpum
ríkisstjórnarinnar. Það drægi úr
gildi tryggingakerfisins i heild.
Frumvarpið gengi og þvert á lof-
orð ríkisstjórnarinnar við lausn
kjarasamninga á þessu ári um að
minnka skattbyrði og gjaldið
næði það langt niður í tekjuflokk-
um, að það legðist allþungt á
launafóik i aðildarfélögum ASt.
Hjón, sem bæði þyrftu að vinna
úti til að framfæra fjölskyldu, og
hefðu samtals 2 m. kr. í tejur,
greiddu 40 þús. króna sjúkra-
tryggingagjald — en hjón með 3
m. kr. tekjur, 60 þús. króna gjald.
Þá deildi LJó á hækkun gjald-
skrár lyfja til almennings. Taldi
LJó að hér væri það langt gengið
á orð ríkisstjórnar gagnvart laun-
þegahreyfingu og þann veg dreg-
ið úr gildi tryggingakerfis, að bú-
ast mætti við alvarlegum við-
brögðum í þjóðfélaginu. B.Gr.
sagðist af tvennu illu heldur hafa
viljað fallast á stighækkandi skatt
eftir tekjum, til að mæta fyrirséð-
um útgjaldaauka í heilbrigðis-
kerfinu 'en 2% brúttóskatt á allar
tekjur, án tillits til fjölskyldu-
stærðar eða annarra aðstæðna. Þá
benti hann og á að leggja hefði
mátt eitthvert „prósentubrot" á
veltu atvinnurekstrar, til að mæta
þessum kostnaði, í stað þessarar
tekjuöflunarleiðar, þó ekki á út-
flutningsframleiðduna, eins og
hann komst að orði.