Morgunblaðið - 16.12.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977
Finnland:
Hagstæður við-
skiptajöfnuður
Helsinki, 15. des. AP.
NÓVEMBER varð Finnum hag-
stæður í viðskiptum, þvf fyrir
mánuðinn varð greiðslujöfnuður-
inn við útlönd hagstæður um 100
milljónir finnskra marka. Fluttu
Finnar út fyrir 2940 milljarða en
innflutningur nam 2840 milljörð-
um marka. Er útkoman í ár betri
en árið 1976, því þá varð greiðslu-
jöfnuðurinn fyrir nóvember
óhagstæður um 320 milljón mörk.
Tölurnar fyrir nóvember gera
það einnig að verkum að við-
skiptajöfnuður Finna við útlönd
fyrstu 11 mánuði ársins er hag-
stæður um 160 milljón mörk, en
fyrir sama tímabil í fyrra var
jöfnuðurinn óhagstæður um 3.3
milljarða finnskra marka. Ut-
flutningsaukning í ár er 27%, sé
miðað við janúar — nóvember
tímabilið, en innflutningur hefur
í ár vaxið um aðeins 9% frá því í
fyrra.
Mikill eldsvoði var ( Wenonahótelinu f Ba.v Cit.v í Michigan í fyrri viku og fórust 10 manns, en 45
slösuðust, sumir Iffshættulega. Þessi loftmvnd var tekin, er slökkvistarfið stóð sem hæst.
Breyting-
ar á S.Þ.
Reuter.
SÉRSTÖK nefnd Allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna lagði 1 dag
blessun sína yfir tillögur um
endurskipulagningu S.Þ., en þær
eiga að gera stofnunina hæfari til
að sinna þörfum þróunarland-
anna.
SkipulagstiHögurnar kveða á
um stofnun nýs embættis sem
kemur í stað embættis aðstoðar-
framkvæmdastjóra S.Þ., en því
embætti gegnir nú Gabriel van
Laethem. Það verður í verkahring
Kurt Waldheim framkvæmda-
stjóra að skipa í hið nýja embætti,
og reikna menn með að hið nýja
embætti verði veitt einhverjum
frá þróunarlöndunum. 1 þessu
sambandi hefur nafn Mansur
Khalids fyrrverandi utanríkisráð-
herra Súdans, borið nokkuð á
góma og búizt er við að honum
verði brátt veitt embættið til fjög-
urra ára.
1 skýrslu með skipulagstillögun-
um segir að breytingarnar séu
nauðsynlegar svo vilji og stefna
Allsherjarþingsins, svo og efna-
hags- og félagsmálanefndanna
komist sem greiðast og skjótast í
ljós.
Varnarkerfi
fyrir blinda
Edmonton, Kanada, 15. desember AP
SVO mikið er um að stolið sé frá
blindu fólki, að sjónvarpskerfi
hefur verið komið fyrir á öllum
starfsstofnunum kanadíska
blindravinafélagsins.
Þessar stofnanir hafa veitt
blindum atvinnu frá lokum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. A einni
stofnuninni í Edmonton var á
einni viku stolið meiru en 200$,
en það er mikið um það, að fólk
reyni að gefa blindum til baka
með dollaraseðlum í stað 10 doll-
ara seðla. Þjófnaðir á ýmsum
munum og fleiru á þessum stofn-
unum ógna því atvinnu fjölda
blindra að sögn yfirmanns stofn-
ananna.
9 nullj. fyrir
málverk
af húsi
Presleys
Nashville, Tennessee,
15. desember AP.
MÁLVERK af húsi Elvis Presley
var 1 gær selt á uppboði fyrir 40
þúsund $ sem eru um 9 milljónir
íslenzkra króna.
Um 200 manns voru viðstaddir
uppboðið þar sem ýmsir munir
rokkkóngsins voru seldir. Fyrst
voru boðnar upp plötur með
söngvaranum, þó þær hefðu ekki
verið I hans eign. Síðan voru hlut-
ir úr eigu hans seldir, þar á meðal
biblfa og málverk af húsi hans.
Biblían seldist á 1.375$ og kaup-
andinn sagði við hamarshöggið að
þetta hefði verið mikil fjárfest-
ing. Kaupandi málverksins var
uppboðshaldari f Cookeville.
Símumynd AP.
Amy Carter, dóttir Carters Bandaríkjaforseta, fékk í gær fyrstu jóJLagjöf sína, tvö hreindýr frá finnsku
ríkisstjórninni. Ekki fær Amy þó að hafa dýrin hjá sér í Hvíta húsinu, heldur verða þau geymd í
dýragarðinum í Washington. Hér sézt Amy gefa öðru hreindýrinu.
Finnar senda Amy jólagjöf
VEÐUR
víöa umheim
New York. AP
Amsterdam 4 skýjað
Aþana 3 sólskin
Berlín 7 skýjað
Brussel 5 skýjað
Kairó 9 skýjaS
Chicago 2 skýjaB
Kaupmannah. 6 skýjaB
Frankfurt 3 þoka
Gonf 4 skyjaS
Helsinki 0 skýjaB
London 6 sólskin
Madrid 9 sólskin
Montreal + 11 snjór
Moskva + 18 heiSskirt
New York 1 skýjaB
Ósló + 3 skýjað
Paris 7 skýjaB
Róm 0 heiBskirt
Stokkhólmur + 1 skýjaB
Tel Aviv 12 rigning
Tóklo S heiðskirt
Vki + 2 skýjaB
V-þýzk yfirvöld krefjast
framsals hryðjuverkamanna
Haag, Hollandi. 15. des. AP.
AÐ SÖGN dómsmálaráð-
herra Hollands óskuðu V-
Þjóðverjar eftir því í dag,
að þrír v-þýzkir hryðju-
verkamenn sem eru í
fangelsum í Holiandi verði
framseldir.
Hryðjuverkamennirnir eru
Knut Folkerts, Christopher
Wackernagel og Gerd Schneider.
Folkerts var handtekinn eftir
skotbardaga við hollenzku lög-
regluna i Utrecht í setpember s.l.
þar sem einn lögreglumaður beið
bana. Það mál er fyrir rétti i
Hollandi og búizt við dómi í lok
mánaðarins. Hann er jafnframt
grunaður um aðild að morði
þýzka rikissaksóknarans,
Siegfried Bubacks. Wackernagei
og Schneider voru handteknir í
Amsterdam eftir skotbardaga í
nóvember s.l. Wackernagel er
eftirlýstur fyrir ránið og morðið á
Hanns Martin Schleyer og
Schneider fyrir sprengjutilræði
við dómshúsið í Zweibrucke.
V-þýzk yfirvöld hafa áður kraf-
izt framsals á Wackernagel en
þessi nýja beiðni felur í sér að
hann verði dæmur fyrir skotbar-
dagann í Amsterdam af þýzkum
dómstólum. Dómsmálaráðherr-
ann sagði það mögulegt sam-
kvæmt samningi sem Evrópu-
löndin hafa gert með sér um
framsal sakamanna.
Ráðherrann sagði að hollenzkir
dómstólar myndu taka beiðnina
til umfjöllunar, en ákvörðunar
yrði ekki að vænta strax.
Mál Folkerts hefur þegar verið
tekið fyrir í Hollandi, en þar er
krafizt 20 ára fangelsisdóms yfir
honum. Það er ekki útilokað að
hann verði framseldur og með
mál hans farið á sama hátt og með
mál Wackernagels.
ERLENT