Morgunblaðið - 16.12.1977, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977
17
Tillaga um sölu Alberts:
Tekur af okkur varaskipið
— segir Þröstur Sigtryggsson, skipherra
MEÐAL niðurskurðarlillagna
ríkisst jórnarinnar er iækkun
útgjalda vegna landhelgisgæzl-
unnar um 1S0 milljónir króna
með því að hætta rekstri varð-
skipsins Alberts og selja skip-
ið. „Með þessari ráðstöfun verð-
ur tekið af okkur varaskipið,"
sagði Þröstur Sigtryggsson,
sem nú gegnir störfum for-
stjóra Landhelgisgæzlunnar í
fjarveru Péturs Sigurðssonar.
Þröstur sagði, að Albert hefði
að undanförnu verið notaður
sem varaskip, þannig að gripið
væri til hans, þegar eitthvert
stóru varðskipanna stöðvaðist
vegna viðhalds eða bilana.
Þröstur sagði, að starf land-
helgisgæzlunnar hefði síður en
svo minnkað. „Meðan átökin
við útlendinga og eftirlit voru í
algleymingi má segja að við
höfum lítið sem ekkert getað
sinnt eftirliti með veiðum ís-
lenzkra skipa og önnur verk-
efni voru líka látin sitja á hak-
anum," sagði Þröstur. ,,En eftir
að útlenoTngarnir hafa horfið,
höfum við aftur getað sinnt
eftirliti með íslenzkum skipum
og öðrum verkefnum og við það
hefur verið nóg áð gera. Þá
virðist mér að talsverðs aukins
eftirlits með veiðum íslenzkra
skipa sé þörf með vaxandi
stjórnunaraðgerðum á veiðum
þeirra."
Auk Alberts rekur Land-
helgisgæzlan fjögur stór varð-
skip og Arvakur, en síðasttalda
skipið er oft bundið i sérhæfð-
um verkefnum.
„í sóknogvörn”
Ræður og ritgerðir eftir Eystein Jónsson
Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér nýja bók eftir Eystein
Jónsson fyrrv. ráðherra. Ber hún
heitið ,,I sókn og vörn“ og er
ræðu- og ritgerðasafn. Jón Helga-
son ritstjóri hefur annazt útgáf-
una og ritar formála um höfund-
inn, þar sem hann gerir grein
fyrir ævi hans og störfum. Auk
þess ritar hann stutt aðfaraorð
fyrir hverjum kafla, en hún skipt-
ist í 15 kafla.
þeim, sem vill kynna sér íslenzka
samtiðarsögu.
Siðustu árin hefur Eysteinn
Jónsson helgað sig náttúruvernd
og útivistarmálum, og er hér einn-
ig að finna sýnishorn af greinum
sem hann hefur ritað um þau
efni.“
í sókn og vörn er 302 bls. að
stærð.
Eysteinn Jðnsson
Listi Alþýðubandalags
í Reykjaneskjördæmi
Aftan á bókarkápu segir á þessa
leið:
„í Sókn og vörn er ræðu- og
ritgerðasafn Eysteins Jónssonar
frá meira en 40 ára stjórnmála-
ferli hans. Höfundurinn var ráð-
herra tæpan helming þessa tíma
og allan tímann helzti forystu-
maður næststærsta stjórnmála-
flokksins og einn af áhrifamestu
stjórnmálamönnum landsins. Bók
hans er því ekki aðeins frum-
heimild um sjónarmið Fram-
sóknarflokksins, heldur einnig
ómissandi upplýsingárit hverjum
KJÖRDÆMISRAÐ Alþýðubanda-
lagsins í Reykjaneskjördæmi hef-
ur ákveðið framboðslista flokks-
ins við næstu Alþingiskosningar.
Listann skipa: 1. Gils Guð-
mundsson, alþingismaður,
Reykjavik. 2. Geir Gunnarsson,
alþingismaður, Hafnarfirði. 3.
Karl Sigurbergsson, skipstjóri,
Keflavik. 4. Bergljót Kristjáns-
dóttir, kennari, Hafnarfirði. 5.
Svandis Skúladóttir, fulltrúi,
Kópavogi. 6. Björn Ólafsson, verk-
fræðingur, Kópavogi. 7. Albína
Thordarson, arkitekt, Garðabæ. 8.
Kjartan Kristófersson, vélstjóri,
Grindavík. 9. Njörður P. Njarð-
vík, lektor, Seltjarnarnesi. 10.
Magnús Lárusson, húsgagnasmið-
ur, Mosfellssveit.
Prófkjörsreikningar:
Kostnaður Benedikts
Gröndal 424 þús. kr.
— lagði sjálfur fram 77.317 krónur
BENEDIKT Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, hefur birt
reikninga vegna þátttöku sinnar í
prófkjörinu í Reykjavík. Niður-
stöðutöiur reikninganna eru
423.817 krónur og kemur fram, að
Benedikt hefur sjálfur lagt fram
77.317 krónur.
Reikningarnir eru sem hér
segir:
Tekjur:
Framlög á kjörd Auglýsingar Eigið fé . kr. . kr. . kr. 86.500 260.000 77.317
kr. 423.817
Gjöld:
Húsnæði . kr. 38.000
Prentun 283.400
Simakostnaður . kr. 76.577
Ritföng .. kr. 5.740
Kaffi og gosdrykkir . kr. 20.100
kr. 423.817
1 skýringum með reikningnum
segir Benedikt, að skýringin á há-
um prentkostnaði og auglýsinga-
tekjum sé útgáfa 8 siðna blaðs og
ennfremur segir hann, að ekki sé
unnt að reikna framlög áhuga-
fólks, tíma, húsnæði, síma, bíla og
ýmislegt fleira.
Engin kæra
hefur borizt
MORGUNBLAÐIÐ spurði i
gær Þórarin Þórarinsson, for-
mann útvarpsráðs, hvort ráðið
hefði tekið fyrir þá gagnrýni,
sem komið hefði fram á frétta-
flutning ríkisfjölmiðlanna i
sambandi við undanrennu-
málið svonefnda. Þórarinn
kvað enga kæru hafa borizt
ráðinu um fréttaflutning ríkis-
fjölmiðlanna og þvi hefði þetta
ekki komið á dagskrá á fundi
útvarpsráðs. Síðasti fundur
var nú á föstudag.
Listi framsóknar-
manna í Kópavogi
Framboðslisti framsóknarmanna
við næstu bæjarstjðrnarkosning-
ar í Kópavogi hefur verið
ákveðinn og er hann þannig
skipaður:
1. Jóhann H. Jónsson bæjarfull-
t'rúi Nýbýlavegi 48. 2. Skúli Sigur-
grímsson bankafulltrúi Kársnes-
braut 99. 3. Magnús Bjarnfreðs-
son bæjarfulltrúi Lundarbrekku
4. 4. Jón Sigurðsson ritstjórnar-
fulltrúi Auðbrekku 31. 5. Sólveig
Runólfsdóttir gjaldkeri Auð-
brekku 17. 6. Ragnar Snorri
Magnússon skrifstofumaður
Lundarbrekku 4. 7. Guðrún Ein-
arsdóttir skrifstofumaður Fífu-
hvammsveg 31. 8. Dr. Bragi
Árnason prðfessor Auðbrekku 1.
9. Jóhanna Valdimarsdóttir verk-
stjóri Kársnesbraut 139. 10. Guð-
mundur Þórðarson héraðsdóms-
lögmaður Stórahjalla 11. 11. Örn
Andrésson prentari Lundar-
brekku 10.12. Kristján Ingimund-
arson framkvæmdastjóri Viði-
hvammi 3. 13. Anna Ágústsdóttir
húsmóðir Kjarrhólma 32. 14.
Grímur S. Runólfs. framkvæmda-
stjóri Álfhólsvegi 8 A. 15. Krist-
ján G. Guðmundsson húsasmiður
Þinghólsbraut 13. 16. Auðunn
Snorrason blikksmiður Furu-
grund 50. 17. Guðmundur H. Jóns-
son framkvæmdastjóri Hlíðarvegi
14. 18. Gestur Guðmundsson
skrifstofumaður Meðalbraut 8.
19. Salomon Einarsson deildar-
stjóri Löngubrekku 10. 20.
Ingjaldur Isaksson bifreiðastjóri
Álfabrekku 11. 21. Þorbjörg
Halldórs frá Höfnum Hófgerði 6.
22. Jón Skaftason alþingismaður
Sunnubraut 8.
Þingsályktun-
artillaga um
veiðisamning
við Færeyinga
LÖGÐ hefur verið fram tillaga
til þingsályktunar á Alþingi
um staðfestingu á niðurstöðum
viðræðna um gagnkvæmar
fiskveiðiheimildir íslendinga
og Færeyinga. Hljóðar hún
svo:
„Alþingi ályktar að staðfesta
niðurstöður viðræðna um
gagnkvæmar veiðiheimildir Is-
lendinga og Færeyinga, sem
undirritaðar voru 12. desem-
ber s.l.“
Jón Þorsteinsson:
Húsfreyjukaupið í
verðlagsgrundvellinum
Samkvæmt úrskurði yfir-
nefndar er kaup bóndans í bú-
vörugrundvellinum miðað við
kaupgjald iðnaðarmanna og
verkamanna þannig að 54,8%
reiknast eftir kaupi iðnaðar-
manna en 45,2% eftir kaupi
verkamanna í 2. og 3. taxta
Dagsbrúnar. Þetta eru ná-
kvæmlega sömu hlutföll og
bændur hafa áður samið um
innan sexmannanefndar. í úr-
skurði yfirnefndar er kaup hús-
freyju miðað við 2. taxta Dags-
brúnar eftir fjögurra ára starf,
en undir þann taxta fellur með-
al annars byggingavinna, jarð-
vinna með handverkfærum,
vinna við fóðurblöndunarvélar,
almenn vinna í sláturhúsum og
aðstoð við fagvinnu. Þetta er
mjög hliðstæður taxti og áður
gilti um kaup húsfreyjunnar.
Vinna húsfreyjunnar hefir
aldrei verið metin að hluta sem
iðnaðarmannavinna.
Fulltrúar bænda kröfðust
þess í haust að bændum og hús-
freyjum yrði úrskurðuð sömu
laun á klukkustund i verðlags-
grundvellinum, en létu ógert að
rökstyðja þessa kröfu í greinar-
gerð sinni til yfirnefndar. Full-
trúar neytenda voru kröfunni
andvígir. Yfirnefndin hafnaði
kröfu bænda, þar sem hún taldi
að eigi væri um jafnverðmæt
störf að ræða. Verkstjórar hafa
hærri laun en verkamenn, eins
hafa faglærðir hærri laun en
ófaglærðir. A svipuðum for-
sendum er það reist hjá yfir-
nefndinni, að bóndanum beri
hærri laun en húsfreyjunni við
landbúnaðarstörfin. Á það ber
einnig’að lita að starf bóndans
er aðalstarf en starf húsfreyj-
unnar við landbúnaðarfram-
leiðsluna er íhlaupavinna.
Fulltrúar bænda i sexmanna-
nefnd hafa nú kært meirihluta
yfirnefndar fyrir jafnréttisráði
fyrir brot á lögum um jafnrétti
kvenna og karla. Þessi kæra er
með tilvísun til framanritaðs á
algerum misskilningi byggð,
énda getur jafnréttisráð ekki
sagt yfirnefnd fyrir verkum. Ef
til vil hefði málið þróast á ann-
an veg, ef yfirnefndin hefði
skírt húsfreyjuna upp og kallað
hana starfskraft á nútímavísu,
en yfirnefndin hefir það sér til
málsbóta að húsfreyjunafnið á
sér stoð i framleiðsluráðslögun-
um og langri hefð. Eftir að jafn-
réttislögin frá 1973 gengu í
gildi hafa bændafulltrúarnir
sjálfir samið um það fjórum
sinnum innan sexmannanefnd-
ar, að bóndinn skuli hafa hærri
laun en húsfreyjan. Því eru
bændafulltrúarnir nú að kæra
aðra fyrir það sama og þeir
hafa sjálfir gert.
Hitt er svo annað mál að úr-
skurður yfirnefndar, sem er
fyrst og fremst fjárhagsáætlun,
hindrar bóndann ekki í því að
borga húsfreyju sinni i reynd
sama kaup og sjálfum sér, ef
hann vill. Jafnan er það svo að
bóndinn og húsfreyjan eru
hjón og eiga búið i sameiningu.
Afrakstur búsins skiptist þá
jafnt á milli þeirra hvernig sem
vinnuverðmætið er mælt eða
metið.
Flestum er ljóst að lengi hef-
ir ríkt röng stefna í landbúnað-
armálum, sem nú hefir leitt til
öngþveitis hjá bændastéttinni.
Þetta hefir ruglað forystumenn
bænda svo í riminu, að þeir
beina nú reiði sinni að yfir-
nefndinni og úthrópa hana með
kærum og mótmælum. í þess
stað ættu bændaleiðtogarnir að
íhuga vandann í ró og næði í
þeim tilgangi að leita betri úr-
ræða heldur en þeirra aó taka
skattfé af bændastéttinni til að
endurgreiða bændum tapið af
offramleiðslunni. Leiðtogarnir
gætu einnig íhugað þann hrika-
lega vanda, sem bændastéttin
stæði frammi fyrir við sölu af-
urða sinna, ef allar kröfur
bænda um verðhækkanir hefðu
verið teknar gildar af yfir-
nefnd. Sannleikurinn er sá að
með úrskurði yfirnefndar hlutu
bændur meiri leiðréttingu mála
sinna en þeir hafa að jafnaði
áður fengið með samningum
við neytendur. I ljósi þessarar
staðreyndar eru bændur nú all-
vel í stakk búnir til þess að gera
vel við sínar húsfreyjur, ef
þeim búður svo við að horfa.
Jón Þorsteinsson
fulltrúi íyfirnefnd