Morgunblaðið - 16.12.1977, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977
Morgunblaðið
óskar eftir
blaðburðarfólki
VESTURBÆR
Granaskjól.
AUSTURBÆR
Sjafnargata
Miðtún, Sóleyjargata
Upplýsingar í síma 35408
tffgmilrlflfrifr
Jónína Bjömsdótt-
ir—Minningarorð
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast mágkonu minnar, Jónínu
Björnsdóttur, nokkrum orðum, en
hún lézt i Borgarspitalanum 9.
desember s.l., og verður til mold-
ar borin frá Munkaþverárkirkju í
Eyjafirði í dag.
Mér er tregt tungu að hræra, er
ég minnist hennar, því að svo
mjög var hún mér hugstæð og
kær sakir mikilla mannkosta
sinna. Ég minnist hennar fyrst, er
hún ung að árum kom á æsku-
heimili mitt að Ytri-Tjörnum í
Eyjafirði í júlímánuði árið 1928,
þá nýgift bróður mínum, sr.
Benjamíni Krisjjánssyni, en þau
gengu í hjónaband 26. júní 1928.
Hún vakti þá þegar sérstaka at-
hygli mína vegna glæsileika og
hjartahlýju í öllu viðmóti sínu,
sem hún átti í ríkum mæli. Þau
hjónin dvöldu nokkrar vikur að
Ytri-Tjörnum í þetta sinn, en í
júlílok héldu þau til Winnipeg i
Canada þar sem bróðir minn varð
prestur Sambandssafnaðar um
fjögurra ára skeið, eða þar til á
haustmánuðum árið 1932, að þau
fluttu aftur heim í Eyjafjörð, þar
sem bróðir minn var kosinn prest-
ur í Grundarþingum. Þar dvöldu
þau síðan, lengst af að Syðra-
Laugalandi, sem gert var að
prestssetri, þar til á árinu 1967, að
þau fluttu til Reykjavikur, þar
sem þau hafa átt heima síðan.
Þetta er í stórum dráttum starfs-
ferill þeirra, eða hin ytri umgjörð
hans, en segir þó ekki þá sögu,
sem að baki liggur, sem er miklu
meiri og merkari, og er ég viss
um, að allir, sem til þekkja eru
mér sammála um, að þáttur
prestskonunnar hafi verið slíkur,
að vart yrði betra á kosið. Ég get
ekki hugsað mér, að nokkur
prestskona eða húsmóðir hefði
Fyrstirog fremstir:TEXAS INSTRUMENTS
HEFUR REIKNAÐ ÚT ÞARFIR YÐAR
ÚTSÖLUSTAÐIR
KEFLAVÍK:
Ver. Stapafell
VESTMANNAEYJAR:
Ver Kjarni
SELFOSS:
Radio & Sjónvarpsstofan
HVOLSVÖLLUR:
K.F. Rangæinga
VÍK:
K.F. Skaftfellinga
HÖFN:
K.A.S.K.
NESKAUPSSTAOUR:
K F Fram
EGILSSTAÐIR:
Gunnar Gunnarsson H/F
REYÐARFJÖROUR:
K.F. Héraðsbúa
SEYÐISFJÖRÐUR:
Stálbúðin H/F
VOPNAFJÖRÐUR:
K F. vopnfirðinga
HÚSAVÍK:
K.F Þingeyinga
AKUREYRI:
Filmuhúsið
SIGLUFJÖRÐUR:
Rafbær H /F
BLÖNDUÓS:
K.F Húnvetninga
ÍSAFJÖRÐUR:
Ver. Póllinn
Hjá okkur fáið þér vasatölvur frá
TEXAS INSTRUMENTS við allra
hæfi; einfaldar — fjölhæfar, —
en allt góðar vasatölvur. Lítið
inn og skoðið úrvalið, og munið,
að Texas tölvu er treystandi á.
ÞÓRf
SÍMI 81500-ÁRMÚLA11
getað gegnt þvf hlutverki betur
en mágkona mín, enda var það
alla tíð yndi hennar í lifinu að
taka á móti gestum og veita þeim
sem beztan beina, og aldrei held
ég að henni hafi liðið eins vel og
þegar sem fjölmennast var í
kringum hana.
Það var alltaf einhver hljóðlát
reisn yfir mágkonu minni, þannig
að allir hlutu að bera virðingu
fyrir henni. Það var ekki þóttafull
reisn, heldur reisn hjartans og
kærleikans. Aldrei minnist ég
þess að hafa heyrt hana hallmæla
nokkrum manni, miklu fremur
bar hún í bætifláka fyrir þeim,
sem hallað var á og var fundvís á
málsbætur. Hún var boðberi kær-
leikans í lifi sinu og störfum og
mátti ekkert aumt sjá, svo að hún
reyndi ekki eftir megni að rétta
hjálparhönd. Hef ég fáa þekkt,
sem báru jafn mikla umhyggju
fyrir skylduliði sínu öllu, hvort
sem um var að ræða systkini og
aðra nána ættingja eða tengda-
fólk. Og það fer ekki hjá því, að
við brottför slíkra af þessum
heimi finnist okkur við vera ber-
ari að baki en ella. Um tvítugsald-
ur eignaðist Jónína einn son,
Björn Ingvarsson, nú yfirborgar-
dómara í Reykjavík, en börn áttu
þau hjónin ekki saman. Björn
hefur verið þeim báðum kær og
reynst þeim mikil stoð og stytta,
einkum eftir að halla tók undan
fæti fyrir þeim aldurs vegna.
Þau hjónin tóku í fóstur stúlku-
barn, Þóru Björk Kristjánsdóttur
og ólu hana upp til fullorðins-
aldurs. Hún er nú hjúkrunarkona
á Akranesi og gift Jósef H. Þor-
geirssyni, lögfræðingi og for-
stjóra. Er óhætt að segja, að Þóra
Björk hafi komið eins og sólar-
geisli inn í líf þeirra, enda hefur
hún reynst þeim í hvívetna sem
hin bezta dóttir, trygglynd og
traust og hjartahlý.
Eg hef þessi orð ekki öllu fleiri,
enda efa ég, að mágkonu minni
væri þökk á því, að ég teldi frekar
fram mannkosti hennar, en víst
er um það, að af nógu er að taka.
Jónína var fædd að Karlsstöð-
um í Fljótum 25. júli 1897, dóttir
Björns Jónssonar bónda og skip-
stjóra þar, og konu hans, Guðríðar
Hjaltadóttur.
Ég óska henni Guðs blessunar í
nýrri tilveru og votta eftirlifandi
eiginmanni hennar, syni, fóstur-
dóttur, systkinum og vandamönn-
um öllum innilega samúð okkar
hjónanna.
Valgarður Kristjánsson
rogeR.Gallet
monsieur
Beint frá París
c^merióku "
Tunguhálsi 11, Árbæ,
Sími 82700