Morgunblaðið - 16.12.1977, Qupperneq 32
ÚTVEGSSPIUÐ
sölusími 53737
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977
Demantur M
æðstur eðalsteina -
(@ull &
Laugavegi 35____
Særótið:
Viðlagatrygging bæt-
ir tjón á húseignum
og lausafjármunum
,,„ÞAÐ er ljöst, aö viölagatrygg-
ing bætir þad tjón sem orðið hef-
ur á húseignum og lausafjármun-
um í særótinu, sem gekk yfir
Stokkseyri, Eyrarbakka og
Grindavík í fyrradag,“ sagði As-
geir Ólafsson formaður stjórnar
Viðlagatryggingar þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær.
Að því er Ásgeir Ólafsson sagði,:
þá er enn engan veginn ljóst hve
mikið tjón varð á húseignum og
lausa fjármunum og einhver
tími mun líða þar til það verður
ljóst. Asgeir sagði að maður frá
Viðlagatryggingu væri farinn
austur á Stokkseyri og Eyrar-
bakka til að kanna lauslega það
tjón, sem þar hefir orðið.
Bátarnir fjórir, sem fóru á land
á Stokkseyri, eru allir taldir mjög
mikið skemmdir, og verður ekki
séð fyrr en búið verður að draga
þá á flot og koma þeim í slipp
hvort viðgerð borgar sig. Bæði
eru síður sumra bátanna mjög illa
farnar og eins er fjöldi banda
sprunginn í þeim. Bátarnir eru
allir tryggðir hjá Samábyrgð ís-
lands.
Morgunblaðinu var tjáð í gær,
að það gæti tekið nokkurn tíma að
ná bátunum á flot, ekki sizt
Bakkavíkinni, sem stendur uppi á
hafnarbryggjunni. 1 Grindavík
var unnið að því i gær að ná
vélbátnum Erlingi KE 20 á flot,
en hann stóð á Kvíabryggju i
Grindavik þegar fjaraði út i fyrra-
dag. Mun auðveldara verður að
koma Erlingi á flot en Bakkavik,
þar sem Erlingur er aðeins 15
rúmlestir en Bakkavík um 50.
Hlaut 16 ár
fyrir að bana
unnustu sinni
írland:
Hafnarverkamenn neit-
uðu að landa úr Erlingi
tRSKIR hafnarverkamenn
neituðu í gærmorgun að
landa úr skuttogaranum
Erlingi GK frá Sandgerði,
þegar löndun átti að hefj-
ast í írsku hafnarborginni
Drogheda. Þegar ljóst var
að hafnarverkamennirnir
myndu ekki landa fiskin-
um fór Erlingur frá
Drogheda og er nú ákveðið
Jafntefli
Sjá bls.: 16
NlUNDU einvfgisskák þeirra
Spasskys og Korchnois lauk í
gær með jafntefli f Belgrad.
Er skákin fór f bið eftir 41 leik
var Korchnoi talinn standa
heldur betur, en í fram-
haldinu varðist Spassky vel og
var síðan samið um jafntefli
eftir 70 leiki.
að togarinn selji í Cuxhav-
en n.k. mánudag.
Aður en Erlingur kom til Drog-
heda var búið að selja enskum
fiskkaupendum fiskinn og átti að
flytja fiskinn beint i kössum til
Hull og Grimsby. Hins vegar
hafði verið skýrt frá þvi í írskum
blöðum, að landað hefði verið úr
íslenzka bátnum Mánatindi á ír-
landi á þriðjudag og það mun
hafa orðið til þess að hafnar-
verkamenn á meginlandi Eng-
lands höfðu samband við hafnar-
verkamenn í Drogheda og fóru
þess á leit við þá að þeir lönduðu
ekki fiskinum úr Erlingi og var
þessi beiðni samþykkt.
Siglufjarðartogarinn Stálvík
landaði hins vegar í fyrradag i
Hollandi og var aflinn fluttur úr
skipinu beint yfir til Englands og
ekki var vitað annað í gær en að
sá fiskur hefði runnið út á stund-
inni, þegar hann kom til Eng-
lands, enda er nú mikill fiskskort-
ur þar í landi.
DÓMUR var f gær kveðinn upp f
Sakadómi Reykjavíkur yfir Ein-
ari Hirti Gústafssyni, er varð unn-
ustu sinni, Halldóru Astvaldsdótt-
ur, að bana á Elliðavatnsvegi síð-
degis mánudaginn 15. ágúst í
sumar. Einar Hjörtur
var dæmdur í 16 ára fang-
elsi, en frá refsingunni drægist
gæzluvarðhaldsvist hans, 121 dag-
ur. Dómsforseti greiddi sér-
atkvæði þess efnis að hann teldi
hæfilega refsingu 12 ára fangelsi
en væri að öðru leyti sammála
niðurstöðum dómsins.
Morgunblaðið fékk í gær eftir-
farandi upplýsingar í Sakadómi
Reykjavíkur: „1 dag var kveðinn
upp dómur í sakadómi Reykjavík-
ur í máli, sem höfðað var 1.
nóvember sl. gegn Einari Hirti
Gústafssyni fyrir manndráp. Ein-
ar Hjörtur var sakfelldur fyrir að
hafa skotið unnustu sfna, Hall-
dóru Astvaldsdóttur, til bana i
bifreið þeirra á Elliðavatnsvegi
siðdegis mánudaginn 15. ágúst í
sumar. Einar var dæmdur i 16 ára
fangelsi, en frá refsingunni skal
draga gæzluvarðhaldsvist hans í
121 dag. Þá er hann dæmdur tii
greiðslu sakarkostnaðar og skot-
vopn hans gert upptækt. Að
Framhald á bls. 19
Ríkisstjórnin
fjallaði uni
tilmæli bænda
„MALIÐ var til umræðu á
fundi ríkisstjórnarinnar í dag
og ég lagði fram ýmis gögn, en
málið var ekki tekið til af-
greiðslu,“ sagði Halldór E. Sig-
urðsson, iandbúnaðarráð-
herra, er Mbl. spurði hann í
,gær, hvað liði umfjöllun ríkis-
stjórnarinnar á tilmælum
Stéttarsambands bænda um
aðgerðir í kjaramálum bænda.
Framhald á bls. 19
Fjárhagsáætlun Reykjavikur fyrir 1978:
Rekstrarútgjöld hækka
um 37.8%
Ekki verður um hlutfallslega hækk-
un útsvara í Reykjavik að ræða
FJÁRHAGSAÆTLUN Reykja-
víkurborgar fyrir árið 1978 var
lögð fram á fundi borgarstjórnar
Reykjavfkur í gær og fylgdi borg-
arstjóri henni úr hlaði með ítar-
legri ræðu um fjármál borgarinn-
ar. Helztu þættir í fjárhagsáætlun
borgarinnar fyrir næsta ár eru
þessir:
# Heildartekjur borgarsjóðs á
næsta ári eru áætlaðar 14.4 millj-
arðar króna, sem er 38.2% hækk-
un frá áætlaðri útkomu þessa árs.
• Rekstrarútgjöld borgarinnar á
næsta ári eru áætluð 10.8 millj-
arðar króna, sem er 37.8% hækk-
un frá áætlaðri útkomu þessa árs.
• Aætlað er að verja til gatna- og
holræsamála rúmlega 2.2 millj-
örðum króna, sem er 36.9% hækk-
un frá fjárhagsáætlun yfirstand-
andi árs.
# Framlög til svonefndra eigna-
breytinga, þ.e. til framkvæmda og
ýmissa annarra þarfa, nema 3.6
milljörðum króna, sem er 39.5%
hækkun frá gildandi fjárhags-
áætlun.
Birgir Isleifur Gunnarsson
# Ef nýbygging gatna og holræsa
(sem talin er með rekstrarút-
gjöldum) er tekin sérstaklega
ásamt framkvæmdalið eigna-
breytinga kemur í ljós að áætlað
er að verja fil verklegra fram-
kvæmda á næsta ári 4.2 milljörð-
um króna eða um 38.8% af
heildarútgjöldum borgarsjóðs.
Helztu tekjur borgarinnar
Aðaltekjustofn borgarinnar eru
útsvörin og er gert ráð fyrir að
þau muni nema á næsta ári 7.4
Framhald á bls. 18