Alþýðublaðið - 08.11.1958, Page 1

Alþýðublaðið - 08.11.1958, Page 1
xxx s «8 Laugardagur 8. nóv. 1958 254. tbl. * DAG? Cape Canaveral, föstudag. FRESTA varð tunglskotinu í gænnorgun, en í kvöld eru vís- indamenn og tæknar önnum kafnir við að undirbúa nýja tilraun til að skióta eldflaug- inni, er komst á braut umhverf is tungl'ð. Til bráðabirgða er gert ráð fyrir, að næsta tilraun verði gerð klukkan hálf sjö á laugardagsmjorgun. AFP segir, að fresta hafi orð- Gamalf og nýt! í GÆR var landað karfa úr Pétri Halidórssyni með nýj- um löndúnartækjum snríð- uðum í Vélsmiðjunni Kletti í Hafnarfirði. Tæki þessi eru enn á reynslustigi en búast má við að þau spari mikla vinnu og erfiði við löndun úr togurum og bátum í fram- tíðinni. Á n,eðri myndinni er verið að landa fiski nVeð gamla laginu. ið skotinu í dag, þar eð skot- pallurinn hafi legið undir vatni eftir óhemjulega rigningu. Hins vegar segír Reuter, að tilraun- in hafi verið stöðvuð vegna ein hvers braks, er heyrzt hafi úr flauginni, Takist tilraunin ekki á laugardagsmorgun. er enn einn möguleiki að þessu sinni, en hann er á sunudagsmorgun. Takist hún ekki; þá verðúr að bíða, þar til tunglið er aftur næst jörðu. 25. nóvember 26. ÞING Alþýðusambands íslands hefst þriðjudaginn 25. nóveniber n. k. Verður þingið lialdið í íþróttahúsi KR við Kap'IaskjóKsveg. Búizt er við að um 350 fulltrúar sitji þingið, sem stendur a. m. k. í 4—5 daga. Washington, Genf og London, föstudag. BANDARÍKJAMENN til- kynntu í dag þríveldaráðstefn- unni um stöðvun tilrauna með kjarnorkuvopn, að Sovétríkin hefðu gert tilraunir með slík vopn síðan ráðstefnan hófst fyr ir viku. Jafnframt er sagt af áreiðanlegum heimildum í Washington, að Bandaríkja- menn niundu sennilega hefja á ný t'lraunir með lítil atómvopn, nema því aðeins, að Sovétríkin fallist á að hætta tilraunum í eitt ár. í Genf eru menn þeirrar skoðunar, að hinar nýju til- raunir Rússa hafi skapað ó- heppilegt andrúmsloft í viðræð- um Bandaríkjanna, Bretlands og Sovétríkjanna um bann við stöðvun slíkra tilrauna-. í London lýsti Selwyn Lioyd, utanríkisráðherra, því yfir að hinar nýju tilraunir Rússa, sem Bandaríkjamenn segja hafa ver ið gerðar 1. og 3. nóvember, geti varla ta'lizt vera í sam- ræmi við tilgang. þann, er Genf arráðstefnan ætti að hafa. — „Sovétríkin hafa látið ályktun Sameinuðu þjóðanna fyrir nokkrum dögum, þar sem atóm veldin eru beðin um að gera ekki tilraunir á meðan á Genf- arráðstefnunni stendur, algjör. lega sem vind um eyrun þjótá“, sagði Lloyd. Hann kvað Breta ekki hyggjast byrja tilraunir að nýju fyrst um sinn. Hann lagði áherzlu á, að Bretar hefðu mik inn áhuga á stöðvun tilrauna, en það gæti ekki orðið um alla framtíð, nema samkomula.g hefði tekizt um eftirlitskerfi. Eng'inn af sovézku nefndinni í Genf vildi segja neitt um það í dag, hver væri skoðun Sovét- ríkjanna á hinni opinberu yfir- lýsingu Bandaríkjamanna. Til- kynningin var send frá Hvíta húsinu í nafni Eisenhowers for- seta. Haldinn var fundur í Genf enn í dag til að reyna að ná samkomulagr um dagskrá. — Stóð fundurinn í einn tíma og þrjá stundarfjórðunga, og eft- ir fundinn var tilkynnt, að vf- irlýsingu Eisehhowers hefði ver ið droift á fundinum. í felra sinna $ b NÚ er uppi meðal lýðveld- ^ • ismannai í Færeyj am hreyf-• ^ ing í þá átt, að eyjaskeggjar ^ ^ taki upp nafnsið okkar Is- ^ ^ lendinga og hverfi frá ættar ^ nöfnunum. ^ S, Eiga Færeyingar þá að S S kenna börn við föður, eins V Sog hér tíðkast. S S Ungur Færeyingur — svar S S inn lýðveldissinni — sem hér $ dvelst, sagðl fyrir skemmstu ^ ^ urn ættarnöf n landa sinna, • • að þau væru velflest „dansk- ■ • ur andskoti“. , Skákmót á vegum Dagsbrúnar og Ip DAGSBRÚN og Iðja halda skákmót á morgun kl. 2 e. h. í Alþýðuhúsinu við Hveffisgötu. Teflt verður á 30 borðum. Bæði félögin eiga góðum skákmönn* um á að skipa. Öllum er heimill aðgangur. FJÓLMÖRG félagslieimili hafa risið upp í sveitum lands- ins, flest byggð af m'.klum myndarbrag og framsýni. Eitt hið nýjasta og jafnframt glæsi legasta er félagsheimilið að Freyvangi í Eyjafirði. Þar eru — sem annars staðar haldnir dansleikir af og til g hafa ung- lingar frá Akureyri og ná- grenn'! þótt þar all aðsóps- miklir á stundum, er þeir komu drukknir til fagnaðar- ins. Gekk svo langt, að blöð á Akureyri létu málið til sín taka og töldu sveitamenn lítt hafst að til þess að halda uppi velsæmi. Þessu vildu sveitamenn ekki una og næst er dansleik- ur var haicíinn að Freyvangi var dyravarzla efld að imm. Tóku dyraverðir fleyga marga og álitlega af gestum og geymdu, en unglingar, er ekki höfðu aldur til, var mein uð innganga. Þá voru og „spí- onar“ úti við er komu í veg fyrir að sprúttsalar gætu stundað viðskipti. Húsinu var lokað klukkan hálf tólf og fór gleðin hið bezta fram. Um tólf-leyt'ð kom maður að dyrum .samkomþhússins og krafðist inngöngu. Dyraverðir sögðiu manninum að búið væri að loka og skipuðu lionum að hafa sig á brott. Læstu þeir síðan dyrum rammlega. Ekki vildi komumaður þar við una. Fór að húsahaki og komst inn um bakdyr. Hélt síðan inn í saiu(komusal og fram að aðaldyrum. Dynjavörður ,sá, er áðuir liafði úthýst mann'.num, bar kennsl á hann og þótti sýnt að hann væri þar kominn með ólöglegum hætti. Hefði hvorki greitt inngangseyri eða komið inn í húsið fyrir hinn lögskip- aða lokunartíma. Snaraðist hann að komumann', tók hann hryggspennu, hóf hann á loft og færði til dyra. Annar dyra- vörður hafði þá opnað hurðina og var manninum' fleygt út. Það var ekki fyrr en maðurinn lá í svaðinu fyrir utaa að ein- hver gæzlumanna bar kennsl á hann: Þar var kominn sett- ur bæjarfógeti á Akureyri og sýslumaður Eyjaf jarðarsýslu, j en óeinkennisklæddur!! 1 Nýjuslu fréttir (innlendar) af HÚLA-HOPPI eru á 12. síðu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.