Morgunblaðið - 02.06.1978, Side 1

Morgunblaðið - 02.06.1978, Side 1
Föstudagur 2. júní 1978 Bls. 33-48 „Yfirleitt held ég tveimur myndum eftir af hverri seríu. Sérðu þessa, þetta er ferð Kínverja um heiminn. Þarna er Maó í Feneyjum, þeirri yndislegu borg. Og þarna er hann fyrir framan sigurbog- ann, nema París er græn eins og sveitin á þessari mynd. Polanski keypti þrjár úr syrpunni. Hann er fínn strákur, svolítið gjarn á að lenda í klandri“, og aftur bregður fyrir brosi. „Sumir hafa líkt mér við fréttamann," segir hann. „Það er svo mikið á seyði að ég verð að festa það á léreftið. En þetta er ekki áróður, kannski pólitík, en ég hef gaman af svona skrípamyndum. Þær eru svo fígúratívar. Ætli ég sé ekki farsamál- ari. Hef gaman af að velta mér upp úr því sem er að gerast og hefur þegar átt sér stað. ísrael, Afríka, eiturlyf, Atlants- hafsbandalagið, túristar og sprengjur. Ég held að ég hafi viðað að mér nægu efni til næstu fimmtíu ára. Næst er ég á förum til New York, þar er nægur efniviður. En fyrst fer ég hringveginn hér um landið. Nei, ég hefði aldrei getað dvalist hér eingöngu og málað. Hér er skortur á efni, þó hef _ég verið að velta fyrir mér fiskumbúðunum. Annars er ég þannig gerður að ég verð að vera.á ferð og flugi. París er þreytandi til lengdar, maður borðar og drekkur of mikið. Ég er hins vegar alltaf sem nýr maður eftir ferðir LIST ERRÓ er svipuð ferðasögu, hún lýsir stjórnmálum og atburðum samtímans, segir í bók um verk hans frá 1974. Erró strýkur hendinni hratt í gegnum hár sitt og geysist eftir gólfum Kjarvalsstaða, eins og hann eigi lífið aö leysa. Okkur gefst vart ráörúm til að staldra við og dást aö hverju verki fyrir sig. Maöurinn í bláu gallabuxunum talar hratt og kemur „franskt fyrir sjónir“, hann hlær að þeirri athugasemd. Þaö geislar frá Erró einhver lífskraftur, svipaöur og úr verkum hans. Samt er hann ofurlítiö preytulegur eftir viku starf viö aö hengja myndirnar sínar upp ásamt Aðalsteini Ingólfssyni og fleiri aöstoöarmönnum. Hann lýsir fyrir okkur hverri myndasyrpunni á fætur annarri. La vie de Van Gogh. „Ég held mjög upp á Van Gogh og Picasso vegna frjálsræð- isins og kraftsins í vinnubrögðum þeirra og einnig vegna hlýjunar í litum þeirra. I baksýn eru f jöll við sóiarupp- rás. Ég sá einu sinni sólina koma upp yfir Himalayaf jöllum. Það er stórfeng- leg sýn. því þá kviknar á hæstu tindum jarðar. hverjum á fætur öðrum. eins og röð af ljóskösturum. Fyrir miðju að ofan sjáum við geisla sólar með mikiivægustu manneskjum í lífi Van Goghs, móður hans, Gauguin og Gachet lækni. í geislanum til vinstri sjáum við sjálfs- myndir eftir Van Gogh í réttri tímaröð. frá hinni fyrstu og minnstu, sem er næst sólinni. til hinnar stærstu sem hann málaði síðast. Að ofan sjáum við eftirmyndir málverka. m.a. „Lqndslag við Grandville“ með trjám scm orðin eru að penslum. bar fyrir ofan sjáum við þversneið af innviðum eyrans. Efst til vinstri sjáum við svefnherbcrgi Van Goghs mcð mynd af Maó sem er andstæða hans. Fyrir miðju til vinstri sjáum við Van Gogh lokaðan inni á vinnustofu sinni og þar er honum færður matur. Vinnustofan er jafnframt B' fc.% V |ir^ Wi - -/tctLiÍ B í Ml'A n? I til Thailands og Spánar. New York hefur þau áhrif á mig að ég vinn. Það er eitthvað í loftinu þar, sem gerir það að verkum að ég vinn eins og óður. Jú, það er gaman að vera kominn heim, þótt ég hafi ekki haft tíma til að hitta margt fólk ennþá. Þetta er skemmtileg- asti tími ársins á Islandi og mikil stemning fólgin í því að koma heim í morgunsárið. Ég hef borðað heilmikið af gömlum, íslenzkum mat, reyndi tuttugu tegundir í kjötbúð Tómasar. En hér borða allir hamborgara, sem er erfitt að skilja, þegar grásleppan er svo góð. Það hefur einnig komið mér á óvart hversu frammámennirnir hér eru ungir og klárir," og aftur brosir Erró. SJA NÆSTU SIÐU Ég hef gaman af skrípamyndum — ætli ég sé ekki farsamálari... peningaskápur sem gætt er af kaupa- héðnum. en þeir hafa auðgast mjög á málverkum listamannsins. Fyrir miðju er portret eftir ljósmynd af Van Gogh á ungum aldri. Umhverfis unga mann- inn eru kassar með málverkum. eins og líkkistur. Neðst til vinstri er kona eftir Picasso en hún situr á stól eftir Van Gogh. Þessi mynd á að sýna hve stíll beggja einkennist af lipurleika og hamingju. Neðarlega fyrir miðju er Van Gogh að flýja úr skurðstofunni í kvikmyndinni MASII. Neðarlega til vinstri er sjálfsmynd, þar sjáum við Van Gogh innilokaðan fyrir málverk sín. sem eru ýkt á lengdina. Þar við hliðina er fimleikafólk frá Asíu hangandi á hárinu að snæðingi en það merkir áhrifin frá japanskri og kínverskri list í verkum Van Gogh.“ - ERRÓ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.