Morgunblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978 Erichsen Seppo Mattinen og Helle-Vibeke Erichsen sýna í Norræna húsinu í Norræna húsinu eru sýnd verk Seppo Mattinens og Helie-Vibeke Erichsen. Mattinen er fæddur í Helsinki, en fluttist til Danmerkur 1954. Hann stundaði nám í Helsinki, Gautaborn o(í Kaup- mannahöfn o« sýndi fyrst verk sín opinberlega á haustsýningu lista- manna í Kaupmannahöfn 1955. Allt frá þeim tíma hefur hann haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum í Evrópu og Bandaríkjunum og eiga söfn og stofnanir í mörgum löndum verk eftir hann. Mattinen er fyrst og fremst grafík-listamaður, en hefur á seinni árum fengist æ meira við málverkið. Hann notar margar aðferðir grafík-listarinnar, ekki sízt í tréristu með lit, sem ef til vill má segja að sé sérgrein hans, tekst honum að ná sjálfstæði og listræn- um aga. Mattinen lýsir gjarnan atburðum úr mannlífinu. I list- heimi hans úir og grúir af kynlegum kvistum. Helle-Vibeke Erichsen er fædd í Kaupmannahöfn þar sem hún stundaði nám við Listaháskólann. Hún sýndi verk sýn fyrst opinber- lega á haustsýningu listamanna árið 1962, en hefur síðan haldið einkasýningar í Kaupmannahöfn og víða í Danmörku auk þess, sem hún hefur tekið þátt í grafíksýn- ingum og málverkasýningum víða í Evrópu. Verk hennar prýða mörg af helztu söfnum og stofnunum á Norðurlöndum. Um Helle-Vibeke er það sagt, að hún sé einn þeirra listamanna, sem sæki myndefni sín í veruleikann allt í kringum þá. Það minni, sem hún fæst við hvað ákafast og oftast, eru meðbræð- urnir eins og við kynnumst þeim hverjum og einum i sínu hvers- dagslega umhverfi. Það fólk, sem hún lýsir í myndum sínum, birtist oft í afkáralegum búningi, nánast skopstælt, en fyrirmyndanna er þó í rauninni að leita til venjulegs fólks, sem orðið hefur á vegi listamannsins, en Helle hefur ætíð haft mikla ást á sérkennum einstaklingsins. Verk nr. 20 eftir Mario Prassimos. Frönsk vefjarlist og grafík í Bogasal á listahátíð í Bogasal verður á Lista- hátíð frönsk myndlistar- sýning, sem heitir „Frönsk vefjarlist og Grafík" og er hingað komin fyrir milli- göngu franska sendiráðsins í Reykjavík. Á sýningunni eru 43 verk eftir 24 franska listamenn, sem starfandi eru í dag og eiga það sameiginlegt að vinna verk sín til útfærslu í vefnaði. Meðal listamannanna eru mörg heimsþekkt nöfn. Sýningin er umferðar- sýning sem farið hefur víða um lönd og samanstendur af frummyndum, grafík- myndum og ofnum teppum. í stuttum formála í sýning- arskrá segir m.a.: „Við viljum setja saman hóg- vært yfirlit yfir ýmsar tegundir veflistar með því að tefla saman viðurkennd- um listamönnum og þeim yngri og lítt þekktari. Þeir koma úr mörgum greinum, málaralist, höggmyndalist, grafík og jafnvel bygging- arlist og allir fylla þeir upp ákveðna mynd af þróun veflistar og flestir líta þeir björtum augum til framtíð- arinnar." AllttilaÖ auka listina í hinni nýju teiknivörudeild Pennans Hallarmúla 2 höfum við á boðstólum m.a.: olíuliti, acrylliti, vatnsliti, pastelliti, Pappír í flestum gerðum, ramma striga, blindramma, pensla allskon- fyrir grafíkmyndir, dúkskuróarsett, ar, olíur, þurrkefni, pallettur og dúk og liti. trönur. Sendum í póstkröfu. Mattincn V Hallarmúla 2 sími 83211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.