Morgunblaðið - 02.06.1978, Side 13

Morgunblaðið - 02.06.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978 45 „Reyni að tæpa á ýmsum atriðum" Fyrsta einkasýning Kristjáns Davíðs- sonar í sjö ár Einn af listasýningarviðburðum Lista- hátíðar verður sýning á verkum Kristjáns Davíðssonar listmálara í sýningarsal Félags íslenzkra myndlistarmanna, en nú eru hartnær 7 ár frá því að Kristján síðast hélt einkasýningu í Reykjavík. í stuttu samtali við Morgunblaðið sagði Kristján að hér væri ekki um að ræða yfirlitssýningu á verkum sínum heldur reyndi hann að tæpa á nokkrum tímabil- um á listamannsævi sinni, enda væri húsnæðið heldur þröngt og ekki hægt að koma fyrir nema u.þ.b. 50 myndum. „Ætli ég þyrfti ekki fjórfalt stærra sýningar- húsnæði ef koma ætti fyrir almennilegri yfirlitssýningu, sem að sjálfsögðu hefði verið ánægjuefni. Ég hef í sambandi við þessa sýningu orðið að leggja megin- áherzlu á smærri myndir til að koma sem flestum fyrir." Aðspurður sagði Kristján að sýningin væri að hluta sölusýning „enda ekki hjá því komist að maður reyni að fá eitthvað upp í kostnað og fyrir vinnu sína. Elsta myndin á sýningunni er frá 1934, þegar ég var 17 ára. Síðan kemur nokkuð bil fram til 1942 og aftur nokkuð löng eyða, en ég reyni eins og ég sagði áðan að tæpa á ýmsum hlutum. Meginhluti verkanna er frá síðustu árum og því, sem ég hef verið að vinna að. Mér fannst nauðsynlegt að eiga nokkuð af myndum sjálfur á sýningunni. Ég held varla að ég geti tekið eitthvert ákveðið timabil sérstaklega út úr. Það er t.d. aðeins ein mýnd frá lakktímabilinu mínu, sem ýmsir muna sjálfsagt eftir og það eru ekki nægilega margar myndir frá aðalstarfstímabili rnínu." Kristján Davíðsson við uppsetningu sýningarinnar. — Hvað áttu við með aðalstarfstíma- bili? — Það var það tímabil í lífi mínu, er ég hafði besta starfsaðstöðu. Það var löngum erfitt hjá mér í húsnæðismálum, maður var jafnvel að mála í útihúsum til að hafa einhverja aðstöðu. Það er ekkert smámál fyrir málara að flytjast búferl- um. — Hversvegna er svo langt frá síðustu einkasýningu.? — Ég gafst hreinlega upp á að standa í sýningum, því að þær tóku svo á mig að ég gat ekkert unnið í 2 mánuði á eftir og þá ákvað ég að hætta fremur en að leggja þetta á mig. Það er afskaplega bagalegt fyrir listamann að þurfa að hugsa um svona lagað sjálfur. — Koma menn til að sjá eitthvert nýtt skeið á þessari sýningu? — Ég hef málað mikið eftir að ég fluttist í Barðavoginn, þar sem ég bý í skrítnasta húsinu, en ég get ekki sagt um það sjálfur hvort það er eitthvað nýtt, menn verða að gera það upp við sig sjálfir er þeir sjá sýninguna. Ég vil að lokum láta í ljós þakklæti mitt til félaga minna, sem eru við völd í FÍM, og sem ég hélt satt að segja að væru ekkert hlynntir mér, fyrir að hafa valið mig sem framlag sitt á Listahátíð. F ærið listahátíðina heim og njótið þessara frábæru listamanna í ró og næði í stofu Eins og undanfarin ar reynum viö í Fálkanum aö eiga til eitthvaö meö öllum þeim listamönnum sem sækja okkur heim á yfir- standandi listahátíö. Aö vísu er töluveröur munur á því aö sjá listamanninn leika á sviöi og á því aö hlusta á hann á hljóm- plötu, en þaö er víst aö minning- in glatast síst ef menn eiga einhverja af þeim fjölmörgu hljómplötum sem þeir hafa leikiö inn á. Smokie The Dublíners Oscar Peterson VLADIMIR ASHKENAZY {mmSJ TCHAIKOVSKY P1ANO CONCERTO Nal MUSSORGSKY PtCTURES ATAN EXHIBÍTION LONDON SYMPHONY ORCHESTRA LORIN MAAZEL Mstislav Rostropovrtdi Mstislav Rostropovitch Vladimir Ashkenazy Sendlim í pÓStkrÖfU Um land allt Birgit Nilsson m • m 1 Col Captoi f^bia f ’W PARLOPHONE tEuAi. gtaríine IMI Rkoi«i Ud^ tMI SeconH lld s> i 8 ^tatpside Mfe Biwncii Jk> LWJIUi ©Íí Faitasy k MAV MCA ^ RKXMU i MCA 1 CORAL MOTOWN MWEST \Q> L>S KOtUtr RtivrUi ÉC ) IU w (§). S*\ntign # © Mesta hljómplötuúrval landsins. Verslið par sem úrvaliö er mest FÁLKIN N Suðurlandsbraut 8, sími 84670. Laugavegi 24. sími 18670. Vesturveri, sími 12110.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.