Morgunblaðið - 17.03.1979, Síða 1
40 SIÐUR OG LESBOK
64. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íran:
Fjöldaaftökum
slegið á frest
Abbas Hoveita fyrrverandi forsætisráðherra írans fyrir rétti í Teheran í dag. Máli hans var síðar slegið á
frest að fyrirskipan Ayatollah Khomeinis sem sagði að það yrði tekið upp þegar búið væri að ganga
endanlega frá réttarkerfi landsins að íslömskum hætti. Sfmamynd ap.
Tcheran, 16. marz. AP. Keuter.
AYATOLLAH Khomeini
trúarleiðtogi írana fyrir-
skipaði í dag að öllum
réttarhöldum og aftökum
skyldi hætt í landinu, þar á
meðal réttarhöldunum yfir
Abbas Iloveita fyrrverandi
forsætisráðherra landsins,
sem stóðu yfir, að því er
segir í fréttum frá Teheran
í dag.
Fréttaskýrendur telja þessa
ákvörðun bersýnilega tilkomna til
að milda reiði Medhi Bazargans
forsætisráðherra trúarleiðtogans
sem hefur þráfaldlega gagnrýnt
réttarhöld og aftökur fyrrverandi
stuðningsmanna keisarans, sem
stuðningsmenn Khomeinis hafa
staðið fyrir.
Samkvæmt áreiðanlegum póli-
tískum heimildum í Teheran sauð
upp úr hjá Bazargan þegar réttar-
011 eintök friðarsamningsins
verði undirrituð í W ashington
Kairó, Vín, Jerúsalem, Washington, 16. marz. AP. Reuter.
ANWAR Sadat forseti Egyptalands sagði í dag, að hann
vonaðist til þess að eintökin þrjú af friðarsáttmála
Egypta og ísraelsmanna, sem eru á arabísku, hebresku
og ensku yrðu undirrituð í Washington innan tíðar.
Talið er að með þessu vilji Sadat koma í veg fyrir aðra
ferð til ísraels, sem valda myndi enn frekari reiði
annarra Arabaþjóða í hans garð.
Sadat sagði að fyrst myndi
reyna á samninginn eftir að hann
hefði verið undirritaður. „Ég á
satt bezt að segja von á töluverð-
um vandamálum eftir að undirrit-
un hefur farið fram,“ sagði Sadat
á fréttamannafundi sem hann hélt
í heimabæ sínum Mit Abul í dag.
Sadat lofaði mjög framgöngu
Jimmy Carters Bandaríkjaforseta
í málinu, og sagði hann hinn
raunverulega sigurvegara, og hann
vonaðist Carters vegna til þess, að
hægt yrði að undirrita friðarsátt-
málann í Washington.
Viðbrögð víða um heim vegna
samningsins hafa verið mjög mis-
jöfn. Sovétmenn og Tékkar hafa
þegar gagnrýnt hann mjög harð-
lega og sagt hann markleysu, svo
og ýmis Arabaríki. Þá var haft
eftir Bruno Kreisky kanslara
Austurríkis í dag að friðarsamn-
ingur ríkjanna án samráðs við
Sovétmenn væri út í hött.
Til að reyna að vinna fylgi
annarra Arabaþjóða við samning-
inn hefur Carter nú ákveðið að
senda Zbigniew Brzezinski örygg-
isfulltrúa sinn til Saudi-Arabíu og
Jórdaníu, en þessar þjóðir hafa
þegar lýst andstöðu sinni við hann.
Saudi-Arabar og Jórdaníumenn
hafa til þessa verið helztu banda-
menn Bandaríkjanna í þessum
heimshluta.
Flugræningi
yfirbugaður
Tucson, Bandaríkjunum,
16. marz. AP.
FLUGRÆNINGI, sem rændi
Boeing 727 farþegaþotu
handaríska flugfélagsins Con-
tinental í innaniandsflugi f
Bandaríkjunum í dag, var
yfirbugaður eftir tveggja
klukkustunda samningaþóf á
flugvellinum í Tucson.
Flugræninginn hafði áður
gert kröfu um að fá 200 þúsund
dollara í lausnargjald eða um
65 milljónir íslenzkra króna,
auk þess að vera fluttur til
Havana á Kúbu. Með vélinni
voru alls áttatíu og níu farþeg-
ar auk átta manna áhafnar.
Peking, Tokyo, Bangkok, 16. marz.
AP. Reuter.
KÍNVERJAR tilkynntu í
dag að þeir hefðu lokið
brottflutningi herja sinna
frá Víetnam og Hua Guo-
feng formaður kínverska
kommúnistaflokksins
sagðist vonast til þess að
héðan í frá gætu þjóðirnar
farið samningaleiðina þeg-
ar deilumál sem þessi
kæmu upp.
Hins vegar sagði Hua að ef
Víetnamar sæju ekki að sér og
héldu áfram ögrunum sínum við
landamærin myndu Kínverjar
bregðast hart við og láta sverfa til
stáls á nýjan leik.
„Þar sem við höfum dregið allt
okkar herlið út úr Víetnam hlýtur
næsti leikur að vera hjá
Víetnömum, þ.e. að þeir dragi alla
sína hermenn út úr Kampucheu,"
sagði Hua ennfremur.
Þá var haft eftir Huang Hua
utanríkisráðherra Kína á fundi
með fréttamönnum í Peking í dag
að Kínverjar hefðu náð takmarki
sínu á sextán dögum og hefðu þeir
því nú dregið allt sitt herlið frá
Víetnam. Aðspurður vildi ráð-
herrann ekkert fara nánar út í
árangur hernaðar Kínverja þessa
sextán daga, sagði að slíkt hefði
engan tilgang.
höldin yfir Hoveita hófust og hafði
hann þá hótað að segja af sér yrði
ekki breyting á.
Khomeini sagði í útvarpsávarpi
sem hann flutti að unnið yrði að
því á næstunni að koma réttar-
farsreglum landsins í endanlegt
horf að íslömskum hætti og yrði
ekki úr frekari réttarhöldum fyrr
en þeirri vinnu væri lokið.
Kurt Waldheim aðalfram-
kvæmdarstjóri Sameinuðu þjóð-
anna mæltist fyrr í dag til þess við
írönsk yfirvöld að endir yrði bund-
inn á aftökur fyrrverandi stuðn-
ingsmanna keisarans, þar á meðal
Hoveida fyrrverandi forsætisráð-
herra.
Kínverjar hafa lokið
brottflutningi sínum
Einu viðbrögðin sem bárust frá
Hanoi-stjórninni í dag voru þau að
Kínverjar voru enn ásakaðir fyrir
að hafa farið ránshendi á undan-
haldi sínu, jafnframt því sem þeir
hefðu skemmt og eyðilagt ýmsar
samgönguæðar svo sem járn-
brautarteina og fleira.
Enn herjað
á skæruliða
Mugabes
Salisbury, 16. mars. AP.
RHÓÐESÍSKAR her-
þotur fóru í dag í sína
þriðju árásarferð yfir
landamærin á fimm dög-
um til að herja á skæru-
liða Roberts Mugabes
sem aðsetur hafa í Moz-
ambique, að því er áreið-
anlegar heimildir í Salis-
bury hermdu í dag.
Arásin var gerð á
birgðastöð skæruliða sem
er um 30 kílómetra norð-
vestur af borginni Beira og
herma fréttir þaðan að
litlar skemmdir hafi orðið
og ekkert mannfall.
Talsmaður Rhódesíu-
hers sagði hins vegar að
búðirnar hefðu að mestu
verið jafnaðar við jörðu og
að þar hefði verið gífurlegt
magn af vopnum í
geymslu.
Talsmaðurinn sagði
þetta áttundu herför
Rhódesíumanna inn í Moz-
ambique til atlögu við
skæruliða Mugabes á tæp-
um mánuði og hefðu allar
vélarnar snúið heim heil-
ar.
Landamæri Kína og Laos:
Kínverjar ásakaðir
um mikinn Uðssafnað
Bangkok, 16. marz. AP. Reuter.
YFIRVÖLD í Laos ásökuðu í dag
Kínverja um að vera með mikinn
liössafnað herja sinna við landa-
mæri ríkjanna, svo og fyrir að
senda herflokka til njósna inn fyrir
landamærin, að því er fréttir frá
Bangkok í Thailandi herma í dag.
I frétt útvarpsins í Vientiane í
Laos í dag sagði að tveir njósna-
flokkar Kínverja hefðu farið inn
fyrir landamærin í nótt, annar um 2
kílómetra inn fyrir og hinn um tíu
kílómetra. Þetta eru fyrstu raun-
verulegu fréttirnar sem berast um
hernaðaríhlutun Kínverja í Laos frá
yfirvöldum þar í landi.
Laosmenn, Sovétmenn og Víet-
namar hafa þráfaldlega á síðustu
vikum ásakað Kínverja fyrir að
draga saman lið á landamærum
Kína og Laos. Þá hafa Laosmenn
vísað öllum tækniráðgjöfum frá
Kína úr landi.
Fréttaskýrendur í Bangkok hafa
til þessa verið mjög vantrúaðir á
sögusagnir um liðssafnað Kínverja á
landamærunum en hafa hins vegar
sagt það mjög trúlegt að Kínverjar
reyni allt hvað þeir geti til að gera
Laosmönnum lífið leitt á allan hátt
vegna tengsla þeirra við Sovétríkin.