Morgunblaðið - 17.03.1979, Page 22

Morgunblaðið - 17.03.1979, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979 Leikstjóri og leikendur í „Strompleiknum" sem leikklúbbur Menntaskólans í Kópavogi sýnir. Sextíu manns á námskeiði fy rir leiðbeinendur í félagsstarfi Menningar- og fræðslusamband alþýðu og bandalag starfsmanna ríkis og bæja standa um þessar mundir fyrir fræðslufundum fyrir leiðbeinendur í félagsstarfi. Að sögn Kristínar Tryggvadóttur fræðslufulltrúa BSRB sækja um 60 manns námskeiðið, sem hófst sl. fimmtudag og lýkur í dag, laugardag. K/að Kristín aðsókn- ina vera mun betri en ráðgert hafði verið, en vonast var eftir 30 manns. Námskeiðið sækir fólk úr öllum landshlutum og það er í fyrsta sinn sem MFA og BSRB standa saman að námskeiðshaldi sem þessu. Hefur verið farið í ýmsa þætti félagsmálastarfs, svo sem um ræðumennsku, fundarsköp og fundarreglur, samtalstækni starf- semi ASI, BSRB, MFA o.fl., en ásamt Kristínu hefur annast undirbúning námsskeiðsins Tryggvi Þór Aðalsteinsson fræðslufulltrúi MFA. „Strompleikurinn ” í Kópavogi LEIKKLÚBBUR Menntaskói- ans í Kópavogi írumsýnir „Strompleikinn“ eftir Halldór Laxness í Félagsheimili Kópa- vogs í kvöld, laugardag 17. mars, kl. 20. Leikstjóri er Sól- veig Ilalldórsdóttir. Þetta er í þriðja sinn sem klúbburinn ræðst í að setja upp sjónleik í fullri lengd en alls koma 22 nemendur fram í sýn- ingunni. Jassband sem kallar sig „Strompsextettinn" mun spila á sýningu leikklúbbsins sveiflurn- ar frá árunum kringum 1950 og dansmeyjar munu sveifla pils- um í takt við „Strompana". Næstu sýningar á „Stromp- leiknum" verða n.k. mánudag, 19. mars, kl. 20 og fimmtudag, 22. mars, kl. 20. Kristín Þorkelsdóttir með Silfur-Vísinn. Ljósm. Kristján. Vísir verðlaunar Auglýsingastofa Kristínar hlaut verðlaun frá Vísi fyrir bestu aug- lýsinguna sem birtist í blaðinu á síðastliðnu ári. Verðlauna- gripurinn sem er í formi silfur- styttu nefnist Silfur-Vísir og er ráðgert að afhenda hann árlega. Auglýsingin sem viðurkenninguna hlaut var fyrir Skipafélagið Bifröst „Á hjólum yfir hafið". Taldi dóm- nefndin hana vera heilsteypta í útliti og tæknileg vinnsla og myndgæði góð og auglýsinguna málefnalega og læsilega. Dómnefndina skipuðu Páll Stefánsson frá Vísi, Þröstur Magnússon frá Félagi íslenskra teiknara, Kristmann Magnússon frá Verslunarráði Islands, Rafn Jónsson frá Neytendasamtökunum og Björn Vilmundarson frá SÍA. PáU Stefáns- son auglýsingastjóri Vísis afhenti Kristínu Þorkelsdóttur verðlaunin í fjölménnu hófi á Hótel Esju en þar voru saman komnir fulltrúar fyrir- tækja, auglýsingastofa og dagblaða. Leiðrétting MISHERMT var í frétt Mbl. um hækkun afnotagjalda útvarps og sjónvarps, að gjaldið væri kr. 5.800 fyrir afnotagjald útvarps á árs- fjórðungi. Hið rétta er, að gjald þetta er fyrir hálft ár, þannig að gjaldið á einu ári er 11.600 og fyrir afnot af svarthvítu sjónvarpi ber að greiða á ári kr. 24.600 og litsjónvarpi kr. 32.600. Maraþ onmegrun í Hafnarfirði Tilgangurinn ad vekja athygli á „Gleymd börn ’79” Ljósm. Kristján. Maraþonmegrunin að hefjast. Talið frá vinstri: Kristján Þorsteinsson, Halldór Árni Sveinsson og Ingvar Viktorsson. MARAÞONMEGRUN hófst s.l. fimmtudagskvöld í Veitingahús- inu Snekkjunni í Hafnarfirði. Þrír menn, vel í holdum, þeir Ingvar Viktorsson, 109 kg, Jón (samlokubani) Sigurðsson 107 kg, og Kristján (Kiddi kroppur) Þorsteinsson 88 kg, skoruðu á plötusnúð staðarins Halldór Árna Sveinsson (Dóra feita), 120 kg, í megrun. Tilgangurinn með þessari megrun er að vekja athygli og safna fyrir „gleymd börn ‘79“ en ágóðinn af þeirri söfnun fer til þess að bæta aðstöðu barnanna í Lyngási. Munu kapparnir verða viktaðir á hverjum fimmtudegi af Báru Magnúsdóttur frá heilsu- rækt Jassballettskóla Báru en hún mun einnig gefa þeim góð ráð og fylgjast vel með þeim. Einnig munu þeir félagar skemmta fólki með ýmsu móti næstu fimmtu- dagskvöld, m.a. með því að dansa ballett. Halldór Árni sagði' gær að hann hefði strax náð af sér 2'h kílói en alls þarf hann að ná af sér 20 kílóum til þess að standast áskoranirnar. Halldór sagðist hafa hugsað sér að léttast alls um 30 kíló. Halldór sagðist búast við fleiri keppendum þegar á liði en áætlað er að keppnin standi í 2 mánuði. Á tíma munu þeir sem þátt taka í henni fara í fyrirtæki og stofnanir og safna peningum fyrir „Gleymd börn ‘79“ og einnig gefst fólki kostur á að heita á þá kappa meðan á megruninni stendur. Ljósm. ól.K.M. Sextíu manns hafa setið námskeið fyrir leiðbeinendur í félagsstarfi sem MFA og BSRB hafa staðið fyrir nú í vikulokin. Þessi skemmtilega mynd af Albert Guðmundssyni alþingismanni var tekin á Alþingi fyrir nokkrum dögum. Þá var ljósmyndari Morgunblaðsins staddur í þinginu með tvær mynda- vélar. Albert vildi þá fá að prófa aðra vélina, fékk hana að láni og smellti mynd af. Ljósmyndarinn tók þá mynd af Albert, þar sem hann var að taka myndina. Á neðri mynd- inni sjáum við svo myndina hans Alberts. Efri mynd — Ljósm. Mbl.: Kristján. Neðrl mynd — Ljósm.: Aibert Guómunds- aon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.