Morgunblaðið - 17.03.1979, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
25
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Óskum að taka á leigu
12—15 manna bíl, á sumri
komanda. Upplýsingar veita:
Þorfinnur Finnlaugsson, sími
96-44154 og Ásgeir Baldursson,
í sima 96-44132.
óskast
Óskum eftir 40 til 60 fm.
verzlunarhúsnæöi viö Laugaveg
eöa nágrenni. Tilboö sendist
Mbl. fyrir fimmtudag merkt:
„Verzlun — 5627".
K.S.S. og K.S.F.
Biblíudagur
aö Amtmannsstíg 2 B. hefst f
dag kl. 4. Samvera þar sem hin
ýmsu rit biblíunnar veröa kynnt.
Einnig verður fjallaö um
Gideonfélagiö og Hiö íslenzka
biblíufélag. Kl. 20.30 veröur
síöan kvöldvaka á sama staö.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Skíðasvæöi K.R. í Skálafelli.
Lyftur í gangi alla daga. Uppl. í
símsvara s. 22195.
Akstur í Skálafell á vegum
Hópferöamiöstöövarinnar.
Skíöadeild K.R.
Sálarrannsóknar-
félag íslands
Félagsfundur veröur aö
Hallveigarstööum mánudaginn
19. marz n.k. kl. 20.30.
Ævar Kvaran flytur erindi. Hvaö
gerist á dauöastund? Stjórnin.
KFUM - KFUK
Samkoma á vegum Kristniboös-
sambandsins veröur f húsi
félaganna viö Amtmannsstíg,
sunnudagskvöld kl. 20.30.
Kristnlboösvlka hefst.
Guömundur Guömundsson,
Ingunn Gísladóttir og Helgi
Hróbjartsson tala.
Tvísöngur. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Aðalfundur
Önfiröingafélagsins veröur hald-
inn aö Hótel Esju miövikudaginn
21. marz. kl. 20.30
Stjórnin.
Heimatrúboðið
Óðinsgötu 6a
Almenn samkoma aö Óöinsgötu
6a á morgun kl. 20.30.
Allir velkomnir.
UTIVISTARFERÐIR
Utivistarferðir.
Sunnudag. 18.3
Kl. 10.30 Gullfos* — Geysir í
klaka og snjó. Fararstj.
Þorleifur Guömundsson. Verö
4000 kr.
Kl. 10.30 Snókafell —
Almenningur. Fararstj. Stein-
grímur Gautur Kristjánsson.
Verö 1500 kr.
Kl. 13. Almenningur, Létt ganga
sunnan Hafnarfjaröar. Verö
1500 kr. frftt. f. börn m. fullorðn-
um.
Akureyri um næstu helgi.
Farseölar á skrifst. Útivlstar.
Páskaferðir: Snæfellsnes og
Öræfi, 5 dagar.
Útivist.
Kristilegt fólag
heilbrigðisstétta
Á fundinum næsta mánudag
þann 19.3 kl. 20.30, í Safnaöar-
heimili Grensássóknar flytur Dr.
med. Ásgeir B. Ellertsson fyrir-
læknir erindiö: Nútíma læknis-
fræöi Kristin trú. Fyrirspurnir og
umræöur á eftir. Kaffiveitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Stjórnin.
Áríöandi tilkynningar
frá Skíðafélagi
Reykjavíkur
30 km skiðaganga
í Reykjavíkurmeistaramótinu
veröur í Bláfjöllum í dag laugar-
daginn 17. mars kl. 2. Nafnakall
kl. 1 viö Borgarskálann.
Boögangan í framhaldsskóla-
mótinu veröur kl. 2 á sunnudag
18. marz í Bláfjöllum. Nafnakall
kl. 1 viö Borgarskálann.
Gönguskíöakennsla
Þátttaka tilkynnist við Borgar-
skálann kl. 2 á sunnudaginn.
Kennari veröur: Einar Ólafsson.
Stjórn Skíöafélags
Reykjavíkur.
Fíladelfía
Almenn guöþjónusta í kvöld kl.
20.30. Carman W. Lynn, kunnur
hvítasunnupredikari frá Kanada
talar.
Affi Aferðafélag
WÍSLANDS
r ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
SUNNUDAGUR 18. marz.
Kl. 09. Göngufarö á skíöum yfir
Kjöl.
Gengiö veröur frá Fossá, upp
Þrándarstaöafjall yfir Kjöl og
komiö niöur hjá Stíflisdal. Erfiö
ganga. Fararstjórar: Þorsteinn
Bjarnar og Tryggvi Halldórsson.
Verð kr. 2500. gr. v/bílinn. .
Kl. 13.1. Gönguferð um Innsta-
dal og yfir Húsmúlann.
Létt og róleg ganga. Fararstjóri:
Guömundur Jóelsson.
2. Skíðaganga vestur meö Hús-
múlanum og Bolavelli
í Engidal og til baka niöurá
Sandskeiö. Létt skíöaganga
fyrir vana sem óvana.
Fararstóri: Tómas Einarsson,
Verö í síödegisferöirnar kr.
1000. gr. v/bílinn.
Feröirnar eru farnar frá
Umferöarmiöstööinni aö
austanveröu. Feröafélag íslands.
Samkoma
í Færeyska sjómannaheimilinu
sunnúdaginn 18. marz kl. 5.
Allir velkomnir.
Opið bréf
— til Einars Loga Einarssonar
í grein þinni í Þjóðviljanum 10.
mars og Morgunblaðinu 11. mars,
„Gerjun í NLFR“, segir þú: „Um
allmörg ár undanfarin hefur fá-
mennur „hópur", í raun tveir til
þrír menn, verið allsráðandi í
stjórnum NLFR og NLFÍ. Ekki
þarf að fjölyrða um þær hættur
sem slíkt býður heim. “ Og hætt-
Fæddur 30. apríl 1908.
Dáinn 2. mars 1979.
Mig langar til að skrifa um Ella
afa sem nú er horfinn sjónum
okkar. Ætíð var hann góður við
mig, frá því ég kom fyrst til hans,
þar til hann dó. Þær voru ófáar
ferðirnar sem ég fór með honum
þegar hann var að keyra vöru-
bílana, og var það oft viðkvæðið að
stoppa við einhverja búðina og fá
sér eitthvað til hressingar. Þegar
ég varð eldri og fór að fara í skóla,
þá var Elli ætíð reiðubúinn til að
hjálpa mér með lærdóminn.
Og svona var það að ætíð þegar
ég átti í vandræðum með eitthvað,
eða lá eitthvað þungt á hjarta, þá
var hann alltaf fús og reiðubúinn
að hjálpa mér með glöðu geði.
Einnig var hann alltaf reiðubúinn
unum hefir þú áður lýst, ásamt 23
öðrum „aðstandendum félagasöfn-
unar“, m.a. í Þjóðviljanum 7.3. ‘79,
með þessum orðum: „Við teljum að
svo illa horfi fyrir NLFR, að
félagið eigi það á hættu að daga
uppi eins og ljósfælinn þurs.“
Þú nefnir engin nöfn, þannig að
þessi ummæli þín geta átt við alla
að hjálpa systrum mínum, Ástu og
Sólveigu. Og ég er sannfærður um
að þær minnast hans sem gamla
góða Ella afa.
Að seinustu vil ég segja það að
Elli var sá maður sem allir gátu
haft sem fyrirmynd. Kátur og
léttur, hóflegur í öllu, án þess þó
að hann sæi í peningana, og
kjarkmikill í veikindum sínum.
Það var mikill missir að missa
Ella, og við amma söknum hans
mjög mikið. En hann mun lifa sem
góð minning í hjörtum okkar.
Þröstur Ólafsson
Ásta María Ólafsdóttir
Sólveig Arndís Hilmarsdótir.
Fæddur 6. júní 1956.
Dáinn 1. marz 1979.
Er togbáturinn Ver frá Vest-
mannaeyjum fórst að kvöldi 1.
marz og fjórir menn drukknuðu
með, þá var einn þeirra systurson-
ur minn, Eiríkur Gunnarsson,
sonur Sigrúnar Eiríksdóttur og
Gunnars Haraldssonar. Eiríkur
hefur alltaf staðið mér mjög nærri
og því langar mig að minnast hans
hér fáum orðum, en minningarat-
höfn um hann fer fram í Dóm-
kirkjunni í dag kl. 10.30.
Þau systir mín og mágur flutt-
ust með Eirík 11 mánaða gamlan
hingað til okkar að Hlíðarhvammi
í Kópavogi og áttu heima í okkar
þá sem setið hafa í stjórnum NLFÍ
og NLFR undanfarin ár. Þú hefur
nú verið kosinn í stjórn NLFR og
átt eftir að vinna með okkur
undirrituðum um eins árs skeið.
Hins vegar höfum við ekki átt sæti
í stjórn NLFÍ, Marinó aldrei og
Björn ekki síðan 1954.
Það er því krafa okkar, að þú
finnir orðum þínum stað, nefnir
nöfn þeirra sem þú átt við og lýsir
því í hverju ráðríki þeirra hefir
verið fólgið.
Þér til hægðarauka fara hér á
eftir nöfn þeirra sem setið hafa í
stjórnum NLFÍ og NLFR frá og
með árinu 1970.
í stjórn NLFÍ: Arnheiður Jónsd.,
Eggert V. Kristinsson, Eiður
Sigurðsson, Guðbjörg Birkis,
Hörður Friðþjófsson, Jóhannes
Gíslason, Jón Gunnar Hannesson,
Klemens Þorleifsson, Oddgeir
Ottesen, Zophonías Pétursson.
í stjórn NLFR: Anna
Matthíasd., Björn L. Jónsson,
Björn Þórisson, Eggert V. Krist-
insson, Eiður Sigurðsson, Guðjón
B. Baldvinsson, Guðmundur Ragn-
ar Guðmundsson, Hulda Jensd.,
Hörður Friðþjófsson, Jón G.
Hannesson, Marinó L. Stefánsson,
Njáll Þórarinsson.
Á þessu tímabili hafa setið í
báðum stjórnunum Eggert, Eiður,
Hörður og Jón G. Hannesson, og
ættu því böndin að berast að þeim
öðrum fremur.
Verðir þú ekki við þeirri kröfu
okkar að skýra og rökstyðja
framangreind ummæli þín hlýtur
að verða að líta á þau sem mark-
laust fleipur.
Björn L. Jónsson
Marinó L. Stefánsson
húsi til ársins 1969, er þau fluttust
niður í Aðalstræti 16.
Það var því eðlilega náið samfé-
lag milli fjölskyldnanna. Elsti
sonur okkar hjóna, Kristmundur,
og Eiríkur voru jafnaldrar og eins
og bræður. Og þótt þeir færu hvor
sína leið, Kristmundur í iðnnám,
en Eiríkur á sjóinn, þá hélst alltaf
vinátta þeirra.
Eiríkur var yndislegur piltur og
vel gerður. Hann var snemma
duglegur til starfa. Ég man hve
hann var atorkumikill, er hann var
að vinna í garðinum hjá okkur
ungur drengur, og með aldri og
þroska óx honum afl og áræði og
hann var eftirsóttur í skiprúm.
ELÍAS SIGURÐS-
SON—KVEÐJUORÐ
Eiríkur Gunnars-
son-Minningarorð
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Mér er umhugað um. að fimm ára gamall sonur minn
verði staðfastur, kristinn maður. Hvernig get eg unnið sem
bezt að því, að svo verði?
Það er nokkuð seint að byrja að leggja grundvöll að
kristinni skapgerð, þegar sonur yðar er orðinn fimm
ára gamall. En þér hafið áhugann, og kannski hafi þér
því byrjað fyrr. Eg vona það.
Sálfræðingar eru á einu máli um, að þau áhrif, sem
barnið verði fyrir, áður en það er fjögurra ára, móti
skaphöfnina meira en það, sem barninu ber að
höndum eftir þann aldur.
Til er gömul helgisaga um móður, sem sat við vöggu
barns síns. Fimm andar komu til hennar og vildu gefa
barni hennar gjafir. Hinn fyrsti mælti: „Eg er
hreystin, Sjúkdómar og þjáning koma aldrei nálægt
þeim, sem eg snerti.“ Annar sagði: „Eg er auðurinn, og
sá, sem eg snerti, kynnist aldrei fátækt né skorti.“
Svo mælti hinn þriðji: „Eg er frægðin, og sá, er eg
snerti, verður þekktur um allan heim.“ Hinn fjórði
sagði: „Eg er vizkan, og sá, sem eg snerti, verður
kunnur fyrir þekkingu sína.“ Sá fimmti sagði: „Eg er
Kristur, og sá, sem eg snerti, verður ætíð trúr vonum
sínum og hugsjónum.“
Við hjónin trúum því bæði, að við leggjum
hornsteininn að kristinni skapgerð barna okkar, ef
okkur lánast að leiða þau til þekkingar á Jesú Kristi.
Lesið fyrir börn yðar um Jesúm. Segið söguna um
hjálpræðisverkið, sem hann vann, og þegar þau hafa
aldur til að veita Kristi viðtöku, þá leiðið þau til
þeirrar ákvörðunar. Hún breytir lífinu. Kennið þeim
svo að lifa í heiminum sem kristið fólk.
Foreldrum sínum reyndist hann
hlýr og góður, og var móður sinni
mikil stoð, þegar hann var í landi,
en faðir hans á sjónum. Og yngri
bróður sínum, Haraldi, sem nú er
16 ára, reyndist Eiríkur einstakur
vinur og félagi. Þeir áttu svo
margt sameiginlegt og voru mikið
með okkar drengjum.
Eiríkur var hlédrægur, en samt
alltaf einlægur. Við Rafn erum í
dag mjög þakklát fyrir trúnað
hans. Endurminningarnar um
hann verða eins og perlur í okkar
minningasjóði.
En nú er skarð fyrir skildi og
harmur í hug. Eiríkur er horfinn.
En við sækjum huggun okkar í
trúna, sem segir okkur, að hann sé
ekki allur heldur sé hann horfinn
yfir á nýtt lífssvið, þar sem við öll,
sem þótti vænt um hann, fáum að
njóta hans á ný síðar meir og allra
hans góðu eiginleika.
I þeirri trú biðjum við hér í
Hlíðarhvammi foreldrum hans,
bróður, ömmu og öðrum ástvinum
huggunar og styrks.
Guð blessi góðan dreng.
Karolína Eiríksdóttir.