Morgunblaðið - 17.03.1979, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
37
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100 KL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
njóti líkamlegra nautna. Ég mæli
ekki með meinlætalifnaði. Síðasti
(ekki hinsti) boðberi Guðs til
mannkynsins Baha’u’lláh, sagði að
lífið væri skapað fyrir gleði en
ekki hryggð. En mér finnst að fólk
ætti að velja sér nautnir sem ekki
eru jafn heilsuspillandi og áfengið
og tóbakið. Þessi efni veita mjög
skammvinna gleði en geta gert
fólk að lífstíðarþrælum sínum.
Sonur Baha’u’lláh, sem var nefnd-
ur Abdúl-Bahá, sagði að maðurinn
hefði tvo vængi, annan efnislegan
og hinn andlegan, og að báða þyrti
að leggja rækt við til að flug gæti
átt sér stað. Það er ómögulegt að
fljúga á einum vængi.
• Ástamálin
Að lokum vil ég drepa á
ástamálin. Tillag kvikmyndarinn-
ar í þeim málum virtist mér síst til
bóta. Þjóðin má síst við aukinni
lausung í þeim málum. Eins og við
vitum er oftast stofnað til þeirra
kynna, sem leiða til hjúskapar, á
vínveitingahúsum, oft eftir að
dómgreindin hefur verið svæfð.
Þess vegna þykir mér hlýða að
kynna lítið brot af kenningum
Bahá’ítrúarinnar um samband
karls og konu. Áður er rétt að geta
þess, að guðfræðingar liðinna alda
hafa mjög svo misskilið kenningar
Jesú í þessu málum. Vegna þess að
Jesús giftist ekki á sinni stuttu
ævi hér hafa sumir fylgjendur
hans talið að einlífi væri Guði
þóknanlegt og því skyldi stofnað
klaustur. Einnig hefur mikil
áhersla verið lögð á meyfæðinguna
því að það var talið of saurugt að
setja mannleg kynmök í samband
við komu frelsarans.
Samkvæmt kenningu
Bahá’u’lláh erum við sköpuð tii
lífsins til að þekkja Guð og tilbiðja
hann. Guð gaf okkur boðorð um
hjónaband svo að við gætum notið
ásta og getið af okkur börn sem
halda áfram að tilbiðja hann í
þessum jarðneska heimi.
Tilbeiðsla er ekki bara bænalestur,
heldur líka öll heiðarleg störf,
listir og góðgerðarstarfsemi.
Heillavænlegustu skilyrðin fyrir
heilbrigðan þroska barns er ham-
ingjusamt hjónaband foreldra
þess. Megintilgangur hjónabands-
ins er að eignast börn og ala þau
vel upp. Það er samt ekkert sem
mælir á móti takmörkun barn-
eigna með getnaðarvörnum.
Hjónabandið gengur ekki út á það
að karlmaðurinn geri vilja kon-
unnar eða öfugt. Nei, þau eiga að
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pótursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Bogota í Kólumbíu í fyrra kom
þessi staða upp í viðureign tveggja
heimamanna. Cuartas, sem hafði
hvítt og átti leik gegn Zapata.
22. Hh6+! — Kxh7 23. Df7+ —
Kh6 (Eða 23. ... Bg7 24. Bd3 -
Bg4 25. Hhl+ — Bh5 26. Bxg6+ og
mátar) 24. Dxf6 - Bg4 25. Be2!
og svartur gafst upp. Lokin hefðu
getað orðið: 25. ... Bxe2 26. Hhl+
- Bh5 27. g4 — Kh7 28. gxh5 — g5
29 h6 — Hg8 30. h7 o.s.frv.
hjálpast að að gera vilja Guðs.
Bæði kynin eiga að iðka skírlífi
fyrir giftingu og vera hvort öðru
trú í hjónabandinu. Foreldrar eiga
að biðja fyrir börnum sínum allt
frá þeim tíma sem líf þeirra
kviknar í móðurkviði og kenna
þeim að biðja þegar þau hafa
þroska til.
Baldur B. Bragason.
• „Hvers vegna að
skera sig úr?“
H.J. hringdi:
„Ég las það í Velvakanda ekki
alls fyrir löngu að sjónvarpið
ætlaði ekki að sýna „Nýárs-
konsertinn" frá Vínarborg í ár.
Ástæðurnar sem gefnar voru af
hálfu sjónvarpsins voru þær, að
konsertinn væri svo líkur frá ári
til ársp
Ég mæli fyrir mig, vini mína og
fjölskyldu, að þegar leið á janúar
biðum við öll eftir konsertinum og
undruðumst það mjög að hann
skyldi ekki vera sýndur. Nokkur
okkar hafa búið á hinum Norður-
löndunum og söknuðum hans því
mjög þar sem honum er sjónvarp-
að þangað beint frá Vínarborg að
kvöldi nýársdags. Þetta er orðinn
árviss viðburður líkt og sýning
Hnotubrjótsins í flestum stórum
leikhúsum um heimsbyggðina.
En íslenska sjónvarpið þarf
alltaf að skera sig úr. Því ekki einu
sinni að semja sig að siðum ann-
arra landa en ekki taka upp á þeim
um tíma vegna þess að þeir eru
nýmæli. Er líka ekki nokkuð
margt í sjónvarpinu sem er eins
frá ári til árs, jafnvel viku eftir
viku? Ég fæ ekki betur séð en
ýmsir þættir hafi gengið árum
saman og alltaf verið svipaðir.
Nýjárskonsertinn er alls ekki verri
en Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
í Evrópu sem sýnd er í sjónvarpinu
árlega og er alltaf eins. Nema
íslenska sjónvarpið ætli ekki að
sýna hana í ár þar sem hún verður
að öllum líkindum mjög svipuð og í
fyrra?"
HÖGNI HREKKVÍSI
Höfum kaupendur að eftirtöldum veröbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
17. marz 1979 Innlausnarverö Seölabankans
Kaupgengi m.v. 1 ars Yfir-
pr. kr. 100.-: tímabil frð: gengi
1968 1. flokkur 3.028,74 25/1 '79 2.855.21 6,1%
1968 2. flokkur 2.849,04 25/2 ’79 2.700.42 5,5%
1969 1. flokkur 2.119.45 20/2 ’79 2.006.26 5,6%
1970 1. flokkur 1.946,49 15/9 '78 1.509.83 28,9%
1970 2. flokkur 1.411.46 5/2 '79 1.331.38 6,0%
1971 1. flokkur 1.324.82 15/9 '78 1.032.28 28,3%
1972 1. flokkur 1.154.69 25/1 '79 1.087.25 6,2%
1972 2. flokkur 987.87 15/9 ’78 770.03 28,3%
1973 1. flokkur A 750.94 15/9 '78 586.70 28,0%
1973 2. flokkur 691.99 25/1 '79 650.72 6,3%
1974 1. flokkur 480.68
1975 1. flokkur 393.00
1975 2. flokkur 299.92
1976 1. flokkur 284.47
1976 2. flokkur 229.19
1977 1. flokkur 212.87
1977 2. flokkur 178.30
1978 1. flokkur 145.32
1978 2. flokkur 114.69
VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100,-
1 ár Nafnvextir: 26% 77—79
2 ár Nafnvextir : 26% 68—70
3 ár Nafnvextir: 26% 62—64
*) Miðað er við auðseljanlega fasteign.
HLUTABRÉF
Sjóvátryggingarfélag íslands HF. Sölutilboð óskast
Hampiðjan h.f. Sölutilboð óskast
Eimskipafélag íslands h.f. Sölutllboð óskast
Flugleiðir h/f
Kauptilboð óskast
Nýtt útboð verðtryggðra spariskírteina
ríkissjóðs:
1. flokkur 1979Sölugengi 100.00 (+dagvextir)
FlÁRPCiTinCRRÞCUKI ÍIIAnDI Kft
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaðarbankahúsinu).
Sími 2 05 80.
Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæöis-
flokksins veröa til viötals í Sjálfstæöishúsinu
Háaleitisbr. 1 á laugardögum frá klukkan 14:00 til
16:00. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öllum borgarbúum boðiö aö
notfæra sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 17. marz eru til viðtals:
Markús Örn Antonsson er í Félagsmálaráði og Heilbrigðis-
málaráði.
Margrét Einarsdóttir varaborgarfulltrúi er í Heilbrigðismála-
ráði, Leikvallaiwfnd og jafnréttisnefnd.
Margrét
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík