Morgunblaðið - 03.05.1979, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ1979
Guðmundur Pálsson og Gísli Halldórsson í hlutverkum Tryggva
Ólafs og Tryggva læknis í „Blessuðu barnaláni“.
„Blessað bamalán,,
á fjalimar á ný
MEÐ HÆKKANDI sól er kom-
inn ferðahugur í leikara Leik-
félags Reykjavíkur og hefur
verið ákveðið að fara með leik-
ritið „Blessað barnalán“ í leik-
ferð um Vesturland í sumar.
Til undirbúnings leikferðinni
verða nokkrar sýningar á leik-
ritinu í Austurbæjarbfói og
verður fyrsta vorsýningin laug-
ardaginn 5. maí.
„Blessað barnalán" eftir
Kjartan Ragnarsson var frum-
sýnt hjá LR 19. apríl 1977. Þessi
ærslaleikur vr síðan sýndur
samfleytt til októberloka 1978,
þegar hætta varð sýningum
vegna frumsýningar „Rúm-
rusks". 47 þúsund áhorfendur
hafa til þessa séð leikinn, sem
þar með er kominn í annað sæti
vinsældarlistans á eftir „Fló á
skinni".
Herskáir
alþingismenn
Sumir menn eru þannig
gerðir, að þeir virðast ekki
þrifast nema þeir standi í
illdeilum við samborgara sína.
Beita þeir þá oft furðulegri
hugkvæmni við að verða sér
úti um deilur og illindi, —
málefni og málstaður skipta
minnstu, — illdeilur ill-
deilnanna vegna, það er mark-
miðið
Þessi árátta kemur glöggt í
ljós í þingsályktunartillögu,
sem nýlega var lögð fram á
Alþingi, borin fram af tveim
krötum, þeim Braga
Sigurjónss. og Árna Gunnars-
syni, og hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að beita sér
fyrir því að samkomulag náist
um að ljúka Laxárvirkjun III
við Brúar í Aðaldal." Greinar-
gerð þeirra kumpána með til-
lögunni ber það með sér , að
þeir hafa ekki einu sinni haft
fyrir því að kynna sér hvers
með þarf tæknilega, til að
fullgera Laxárvirkjun III. Ég
hirði ekki um að upplýsa í
hverju hinar röngu staðhæf-
ingar þar um eru fólgnar, það
geta þeir og alþingismenn
kynnt sér hjá viðkomandi
stofnunum.
Það mun og mála sannast,
að eitthvað annað liggur til
grundvallar tillöguflutningi
þessum, en áhugi fyrir raf-
orkuaukningu, enda skiptir
það engum sköpum fyrir sam-
tengdan raforkumarkað lands-
manna, hvort framleitt er 10
megavöttum meira eða minna
í Laxárvirkjun.
Það er ekki meiningin að
rekja hér gang hinnar lang-
vinnu og harðvítugu Laxár-
deilu, enda mun hún mönnum í
fersku minni. Þó vil ég minna
á, að á það var lögð hvað mest
áhersla af okkur landeigend-
um, að hindra stíflugerð í
Laxárgljúfrum, og það tókst.
Afstaða okkar bænda í því efni
er óbreytt, samheldni okkar
hin sama og áður. Það mun
kosta nýtt Laxárstríð, ef ætti
að kúga okkur til að sam-
þykkja 22 m stíflu í La xár-
gljúfrum, eins og þings-
ályktunartillaga þeirra félaga
hljóðar upp á. Það tókst ekki
að sigra okkur í hið fyrra sinn,
því síður mun það takast nú,
þegar við höfum á bak við
okkur samninga, er gerðir
voru milli deiluaðila 1973, og
auk þess lög frá Alþingi um
sérstaka verndun Laxár- og
Mývatnssvæðisins, sem yrði að
þverbrjóta, ef byggja ætti_
stífluna. Auk þess er ég þess
fullviss, að hvorki stjórn
Laxárvirkjunar, er stóð að
Laxársamningum 1973, né
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, er undirritaði þá
fyrir ríkisins hönd, munu hafa
minnsta áhuga á því, að vekja
upp Láxárdeilu að nýju fyrir
þau skitnu 10 megavött sem
þeir félagar ræða um, og munu
því hreint ekki kunna þeim
mönnum nokkrar þakkir, er
reyna að stofna til slíks.
Hver er þá skýringin á
frumhlaupi þeirra Braga og
Árna?
Ég held að það sé særður
metnaður Braga Sigurjóns-
sonar, alþingismanns, sem hér
ræður ferðinni.
Meðan á Láxárdeilu stóð,
beitti hann sér ákveðið gegn
okkur bændum, sem börðumst
gegn því að hluta af fæðingar-
hreppi hans, Laxárdal, yrði
sökkt í vatn, og fleiri óbætan-
leg spjöll unnin á hinu dýr-
mæta Laxár- og Mývatns-
svæði. Það geldur víst hver og
einn sínum æskustöðvum
Torfulögin, eftir því sem hann
hefur lund til. Bragi hefur
kosið að gera það á þennan
sérstæða hátt. Og enn er Bragi
að, — kann illa ósigrinum, og
hefir nú fengið sér meðreiðar-
svein, Árna nokkurn Gunnars-
son. Ég minnist Árna morgun-
inn eftir að við sprengdum
Miðkvíslarstíflu. Hann var þá
mættur hér sem fréttamaður
Ríkisútvarpsins. Nú vil ég
spyrja Árna hvort honum
sýndust bændur hér daginn
þann líklegir til að gefast upp í
Laxármálum?
Ég býst við, að hann svari
því neitandi, enda hafði hann
fengið þann grun staðfestan
um það Laxárdeilum lauk. Og
það get ég sagt Árna Gunnars-
syni, að enn erum við harðir í
horn að taka, ef honum skyldi
takast að vekja nýtt Laxár-
stríð í félagi við Braga Sigur-
jónsson. Þar réðist þú í meira
en þú ert maður til, Árni. Og
hverjum manni er holt að
kunna fótum sínum forráð,
alþingismönnum sem öðrum.
Ég vona, að alþingismenn,
aðrir en þeir Bragi og Árni,
átti sig strax á því, hve fárán-
leg og fráleit þessi þings-
ályktunartillaga er, og afgreiði
hana hið skjótasta í samræmi
við það. Að þeir sjái einnig, að
Alþingi hefir öðrum þarfari
störfum að sinna en að eyða
löngum tíma í að munnhöggv-
ast við þá kumpána um
fásinnu þessa.
19. apríl,
Starri í Garði.
Veruleikinn
í sandkassa
LISTAIIÁTÍÐ barnanna
Svona gerum við hófst laugar-
daginn 28. april með ávörpum
og lúðrablæstri.
Um daginn var dagskrá frá
Fossvoaskóla sem nefndist
Við, umhverfið og framandi
þjóðir. Þessi dagskrá og fleiri
dagskrár af svipuðu tagi lýsa
fyrst og fremst því sem verið
er að fást við í skólunum,
kynna viðleitni nemenda til að
skemmta sér og öðrum. Það
sem einkenndi dagskrá Foss-
vogsskóla var ákveðinn vilji til
að átta sig á umhverfinu og
umheiminum, hinu liðna og
samtímanum. Brugðið var upp
svipmynd baðstofulífs og
einnig sýnt inn í hinn önnum
kafna hversdagsheim nútíma
lifnaðarhátta. Skeleggur
þáttur var um sumarleyfi ís-
lendinga á Ítalíu, ekki skirrst
við að lýsa hinum dökku hlið-
um sólskinsparadísarinnar:
mengun, sjúkdómum, fátækt.
Félagsleg afstaða kom einnig
fram í þætti um Indíána, saga
þeírra rakin og ekki síst sagt
frá kúgun þeirra. Greinilegt
var að nemendur Fossvogs-
skóla vilja vekja til
umhugsunar um þjóðfélags-
mein. Þetta efni sem
nemendur úr öllum aldurs-
flokkum fluttu, var yfirleitt
skemmtilega sviðsett.
Að kvöldi fyrsta dags Lista-
hátíðar barnanna, fluttu
nemendur úr Réttarholtsskóla
þætti úr leikritinu Sand-
kassanum eftir Kent Ander-
son, leikstjóri var Guðmundur
Þórhallsson. Sandkassinn
fjallar á fyndinn hátt um
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
3amskipti barna og fullorð-
inna. Hann sýnir okkur
hræsni, eigingirni og hégóm-
leik foreldra og hvernig börnin
eru mötuð af þeim og alin upp
til að verða eins og þau. Verkið
hefur marga leikræna kosti og
er vel fallið til skólasýninga.
Nemendur Réttarholtsskóla
hafa greinilega fengið góða
tilsögn því að þeir réðu vel við
það sem þeir voru að gera.
Hlutur þeirra er Listahátíð
barnanna lyftistöng, en þeir
munu koma aftur fram sunnu-
daginn 6. maí.
Sunnudaginn 29. apíl fluttu
nemendur Austurbæjarskól-
ans atriði úr söngleiknum Lísu
í Undralandi undir stjórn
Sólveigar Halldórsdóttur. Lísu
og ævintýri hennar í draum-
heimum þekkja allir og enginn
verður þreytt.ur á að fylgjast.
með henni. Sýning Austur-
bæjarskólans var að mörgu
leyti vel unnin, frammistaða
sumra nemenda góð, gervi vel
heppnað. Það spillti að vísu að
illa heyrðist til sumra leik-
enda, en það má ekki ske í
verki sem byggist mest á texta.
Söngatriði voru vel æfð.
Margt fleira gerist á Lista-
hátíð barnanna. Þeir sem
standa að Listahátíðinni eru
Félag íslenskra myndlistar-
kennara, fræðsluráð Reykja-
víkur, félög handavinnukenn-
ara, heimilisfræðikennara,
smíðakennara, vefnaðarkenn-
ara, tónmenntakennara,
skólasafnvarða og Fóstrufélag
Islands. Börnin eru gerð að
virkum þátttakendum í ýmsu,
til dæmis smíði og allskyns
föndri, brúðuleikhúsi og hag-
nýtri listsköpun. Börn og
foreldrar munu kunna vel við
sig á Kjarvalsstöðum þessa
dagana. Eitt af því athyglis-
verðasta á Listahátíðinni eru
myndir barnanna, en í þeim er
að finna óvenjulega hug-
kvæmni og fjölbreytni. Margar
þessara mynda lýsa vel heimi
barnsins og afstöðu þess til
veraldar hinna fullorðnu.
Frá vinstri: Olafur Kristjánsson forseti bæjarstjórnar, Stefán
Karlsson heilsugæzlulæknir. Guðmundur Kristjánsson bæjar-
stjóri og í stólnum situr Kristján Jensson.
Gáfuhjólastól 1
heilsugæzlustöð
Bolungarvík, 29.4.
NÝLEGA afhenti Sjálfsbjörg hér í Bolunarvík
heilsugæzlustöðinni hjólastól að gjöf. Er gjöfin
gefin í tilefni af því að hér hefur verið opnuö ný og
fullkomin heilsugæzlustöð, en hún var formlega
opnuð sl. haust. Formaður Sjálfsbjargar í Bolung-
arvík afhenti gjöfina. Gunnar.