Morgunblaðið - 03.05.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ1979
19
slegnir vegna þess hörmulega
atburðar, að skip skuli farast
svona inni á firðinum. Verður
sjálfsagt erfitt að geta sér til
um hvað komið hafi fyrir.
Eigendur Hrannar voru þeir
Jóhannes Steinsson skipstjóri,
Eiríkur Bj-arnason vélstjóri og
Stefán Guðmundsson stýrimað-
ur. Hrönn var keypt til Eski-
fjarðar frá Ólafsvík fyrir réttu
ári. Baturinn var úr eik, smíðað-
ur á Akureyri 1956, og var 41
tonn að stærð. — Ævar.
Vattarnesbændur sáu
Hrönn sigla fyrir nes-
ið en um 15 mínútum
síðar sáust engin ljós
Eskifirði 2. maí.
VEÐUR var mjög vont á Vatt-
arnesi er Hrönn fórst á manu-
dagskvöld og er enn. Aðstaiður
til leitar voru því mjög erfiðar,
norðanrok var og sex stiga frost,
fjörur svellaðar og stórgrýttar.
Bóndinn á Vattarnesi, Sigurður
Úlfarsson, sá Hrönn fara fyrir
Vattarnesið og inn í fjörðinn.
Virtist honum báturinn þá á
eðlilegri siglingaleið. Það næsta
var, að hringt var frá Nesradíói
að Vattarnesi og tilkynnt um
skip í nauð. Fóru þeir Vattar-
nesbændur strax af stað, en sáu
þá engin ljós. Héldu þeir að
þarna hefðu kannski liðið 15
mínútur á milli.
Björgunarsveitarmenn kunnu
ábúendum á Vattarnesi beztu
þakkir fyrir þeirra þátt í björgun-
arstarfinu. Konurnar stóðu með
rjúkandi kaffi og góðgerðir alla
nóttina og gátu menn skotist inn,
yljað sér og fengið sér hressingu.
Það var ómetanlegt við þessar
erfiðu aðstæður. — Ævar.
heyrði ég kallað á bylgju 6 á
örbylgjutækinu, en það bylgju
nota bátarnir mikið. Eftir að við
höfðum heyrt kallað: „Magnús
komdu strax“, slitnaði samband-
ið. Ég þekkti rödd Jóhannesar
skipstjóra og vissi ekki um annað
skip þarna nærri okkur, þannig
að þetta gat ekki verið annað en
Hrönn.
— Við snerum um leið við og
ég leit aftur í ratsjána. Þá hafa
verið liðnar 2—4 mínútur frá því
að ég kíkti í hana í fyrra skiptið. í
þetta skiptið sá ég ekkert, þar
sem báturinn átti að vera, um 3
mílur innan við Vattarnestang-
ann. Ég ákvað þá strax að kalla
út í gegnum Nesradíó.
— Við fórum eins nálægt tang-
anum og við þorðum, en vindur
var sterkur út Reyðarfjörð. Ég
þóttist vita nákvæmlega hvar
Hrönn átti að vera, en við höfðum
ekki farið nema innan við mílu
þegar við komum að fyrsta rek-
inu úr bátnum, bjarghringjum og
lóðabelgjum og síðan fundum við
netaflot. Ég er viss um að ef
gúmbátur hefði verið ofan sjávar
þá hefðum við fundið hann, en við
keyrðum beint á rekstefnuna út
fjörðinn.
— Ég og Jóhannes skipstjóri á
Hrönn höfðum rabbað saman alla
leiðina frá Kambanesi. Hann
hafði sagt áður en leiðir skildu að
það yrði baks hjá sér inn fjörð-
inn. Ég sagði honum að ég myndi
hafa samband við hann þegar
hann kæmi inn á fjörðinn til að
sjá hvernig honum gengi á móti.
Það var það síðasta, sem við
töluðum saman. Síðan heyrðum
við neyðarkallið.
— Viðbrögð voru undur fljót
hjá bátum á Eskifirði og Reyðar-
firði og við skipulögðum þegar
leit. Varðskipið Týr, bátar og skip
af fjörðunum komu síðar á vett-
vang. Svæðið var spannað frá
Brökum, skerjum úti af Vattar-
nestanganum, á reklínu suður af
Skrúðnum, sagði Guðmundur
Stefánsson skipstjóri á Magnúsi
NK, en þess má geta að hann er
frá Karlsskála, sem er norðan-
vert við Reyðarfjörðinn.
Harka færist í farmannadeiluna
Eins og fram kemur í baksíðu-
frétt Morgunblaðsins í dag sam-
þykkti framkvæmdastjórn VSÍ að
iýsa yfir verkbanni gagnvart
undirmönnum á farskipum þeirra
skipafélaga, sem aðild eiga að
sambandinu. Ákvörðun þessi tek-
ur gildi frá og með miðnætti
fimmtudagsins 10. maf. Verk
bannið er sett f þeim tilgangi
fyrst og fremst að knýja á um að
samningar við undirmenn og yfir-
menn á farskipum séu gerðir
samtímis. Aðgerð þessi er þannig
afleiðing yfirstandandi verkfalls
yfirmanna, segir í fréttatilkynn-
ingu VSÍ, sem staðið hefur frá
miðnætti 24. apríl. Tilkynningum
um verkbannið var í gær beint til
Sjómannafélags Reykjavfkur,
Sjómannasambands íslands, Fé-
lags matreiðslumanna og Þernu-
félags íslands.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannafélags Islands,
kvað undirmenn myndu bregðast
mjög harkalega við þessari aðför
vinnuveitenda að þeim. Verk-
bannið væri boðað áður en til
fyrsta samningafundar hjá sátta-
semjara ríkisins kæmi, en hann
væri boðaður í dag klukkan 14.
Ekki þýddi nú lengur fyrir vinnu-
veitendur að taka gildar þær
kröfur, sem afhentar hefðu verið,
þær þyrftu nú endurskoðunar við
eftir þessa aðför. Guðmundur kvað
stjórn Sjómannafélags Reykjavík-
‘ur hafa bókað eftirfarandi á fundi
í gær:
„Stjórn Sjómannafélags Reykja-
víkur kom saman síðdegis og gerði
einróma eftirfarandi samþykkt:
Þar sem hér eru frá hendi Vinnu-
veitendasambands íslands tekin
upp ný vinnubrögð við félag okkar,
sem hvorki fyrr né síðar hefur
gefið ástæðu til slíkra aðgerða,
munum við skoða málið í samráði
við lögfræðinga okkar, svo fljótt
sem við verður komið. í framhaldi
af því munum við ræða við önnur
stéttarfélög, sem samninga gera
við skipafélögin og hin ýmsu fyrir-
tæki, sem í eigu þeirra eru eða þau
eiga eignaraðild að. Stjórn Sjó-
mannafélags Reykjavíkur bendir
á, að félagið hefur ekki boðað til
vinnustöðvunar á farskipaflotan-
um og á ekki í neinu verkfalli. Hins
vegar bárust félaginu óvenju
ósvífnar kröfur um miklar breyt-
ingar á samningum undirmanna á
farskipum fyrir nokkrum dögum
frá VSÍ, sem hafa í för með sér
mikla lækkun á tekjum farmanna,
ef samþykktar yrðu. Hafði þetta í
för með sér að Sjómannafélag
Reykjavíkur varð að leggja fram
sínar kröfur fyrr en ella. Engar
samningaviðræður á vegum sátta-
semjara hafa farið fram, þegar
verkbannið er boðað. Stjórn
Sjómannafélags Reykjavíkur
harmar þessi vinnubrögð Vinnu-
veitendasambandsins og telur að
þau séu sízt til þess fallin að ná
þeim vinnufriði með frjálsum
samningum á milli aðila vinnu-
markaðarins, sem þeir manna
mest boða.“
Þorsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands, kvað verk-
bannið komið til vegna hörku
yfirmannanna. Kröfur þeirra væru
úr takt við það, sem væri að gerast
í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þá
kvað hann verkfall hafa verið
boðað áður en til fyrsta sáttafund-
ar kom og að um mjög flókna
kerfisbreytingu væri að ræða, sem
báðir aðilar hefðu lýst áhuga á.
Yfirmennirnir hefðu engan tíma
gefið til þess að ræða þær: Hefðu
því yfirmennirnir haft allt frum-
kvæði að hörku í málinu. „Okkar
viðbrögð eru varnaraðgerðir gegn
þessu harkalega frumkvæði yfir-
mannanna, sem ekki hafa gefið
svigrúm til þess að ræða
ágreiningsmálin undir venjulegum
kringumstæðum," sagði Þorsteinn.
Morgunblaðið benti Þorsteini á,
að þeir álösuðu yfirmönnum fyrir
að hafa boðað verkfall áður en til
fyrsta sáttafundar hefði komið. Nú
setti VSI á verkbann á undirmenn
áður en til fyrsta sáttafundar
kæmi með þeim. Þorsteinn kvað
yfirmennina eiga nánast sök á því.
„Við erum þarna að draga undir-
mennina inn í deilu, sem yfir-
mennirnir hafa haft forystu um að
stofna til. Við hefðum ekki að eigin
frumkvæði dregið undirmennina
inn í kjaradeilu með þessum hætti.
Það er algjörlega á ábyrgð yfir-
mannanna."
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá Farmanna- og
fiskimannasambandi íslands. Þar
segir að samninganefnd FFSÍ lýsi
undrun sinni og vanþóknun á hinni
harkalegu boðun verkbanns
Vinnuveitendasambándsins gagn-
vart félögum í Sjómannasamband-
inu. „Nefndin telur að framkvæmd
Listahátíð
Dagskrá fimmtudaginn 3. maí
Kl. 17.30:
Frá Tónlistarskóla Kópavogs: Ein-
leikur, samleikur og hljómsveit
undir stjórn Inga B. Gröndals.
Frá Listdansskóla Þjóðleikhússins:
Ballett saminn og stjórnað af
Ingibjörgu Björnsdóttur, fluttur
með aðstoð hljóðfæraleikara frá
Tónlistarskóla Kópavogs.
kl. 20.30: *
Frá Hlíðaskóla: Yngri nemendur
kynna verk eftir Tómas
Guðmundsson.
Frá Heyrnleysingjaskólanum: Lát-
bragðsleikur. Stjórnandi Berglind
Stefánsdóttir.
verkfalls yfirmanna á farskipum
hafi verið eins léttbær landsmönn-
um og nokkur kostur er í slíkum
tilvikum. í ljósi verkbannsaðgerð-
anna telur nefndin að ekki verði
komizt hjá harðari afstöðu í fram-
kvæmd vinnustöðvunar yfir-
manna. Nefndin hefur því ákveðið
að skipum í eigu félaga Vinnu-
veitendasambandsins verði héðan í
frá ekki heimil færsla innan hafn-
arsvæðis Reykjavíkur. Fundur hef-
ur verið boðaður í samninganefnd
kl. 14.00 á morgun og verður þar
tekin afstaða til frekari aðgerða."
barnanna
Nemendur úr Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar sýna nokkra dansa.
Auk þess tefla daglega ýmsir
skákmeistarar úr skólunum á stóru
útitafli. Mennina smíðuðu nemend-
ur Hvassaleitisskóla undir leiðsögn
Júlíusar Sigurbjörnssonar og
nemendur vinna við smíðar, vefnað
handavinnu og verkefni tengd
heimilisfræðslu.
Kvikmyndir nemenda í Álfta-
mýraskóla sýndar kl. 16.30 í
fundarsal.
Sýningar á verkum barna í öllum
sölum Kjarvalsstaða kl. 14.00 til kl.
22.00 undir nafninu: Svona gerum
við!
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri:
Borg með byggð
Borg með byggð.
Valddreifing.
Sterk forysta.
Borgin og landsbyggðin
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins, sá er nú stendur yfir
er að mörgu sérstakur í sögu
flokksins.
Eftir stór-tap í síðustu kosn-
ingum bendir margt til að fram-
undan sé tími mikils uppgangs
Sjálfstæðisflokksins, jafnvel
hreins meirihluta ef vel er hald-
ið á spilum og sá byr nýttur,
sem flokkurinn hefur.
Því er mjög mikilvægt fyrir
flokkinn að haga málum sínum
á þann veg að sem flestir geti
sett traust sitt á flokkinn og
fundið þar fótfestu skoðunum
sínum.
Sjálfstæðisflokkurinn á fylgi
um allt land í öllum stéttum.
Á þessum landsfundi eigum
við þess kost að tengja borg og
byggð ennþá traustari böndum
en verið hefur.
Geir Hallgrím88on
Sterk forysta
Sjálfstæðisflokkurinn þarfn-
ast nú sterkrar og samhentrar
forystu, sem á traust flokks-
manna og kjósenda um land allt.
Við landsfundarfulltrúar höfum
nú í hendi okkar framtíð flokks-
ins.
Á 50 ára afmæli Sjálfstæðis-
flokksins gæti flokkurinn ekki
fengið betri gjöf en sterka og
Matthfas Bjarnason
virka forystu. Þess vegna tök-
um við höndum saman um
formann okkar, Geir
Hallgrímsson, og sem varafor-
mann kjósum við þann mann,
sem sýnt hefur á hann á traust
okkar skilið, Matthías Bjarna-
son.
Með þessa menn í brúnni
þarf flokkurinn ekki að kvíða
framtíðinni.
Pétur Pétursson, útvarpsþulur:
Ríkisstjómin á ekki verkfalls
réttinn og getur ekki selt hann
SAMTÖKIN Andóf 79 hafa opn-
að skrifstofu á Laugavegi 39, 2.
hæð, og verður hún opin þá tvo
daga, sem allsherjaratkvæða-
greiðsla BSRB um samkomulag
stjórnar BSRB og ríkisstjórnar-
innar fer fram. Pétur Pétursson,
talsmaður andófsmanna, sagði f
samtali við Mbl. í gær, að þeir
gengju baráttuglaðir til leiks.
Hann kvaðst ekki vilja gefa út
neina spá, „en við treystum því
eindregið, að sem flestir segi nei
og við höfum það á tilfinning-
unni, að þeir verði allmargir,“
sagði Pétur.
„Þá verður það hlutverk
Kristjáns Thorlacíusar og félaga
að færa ríkisstjórninni fréttirnar
og skila frá okkur kveðju um að
við höfum ekki viljað afsala okkur
3%,“ sagði Pétur og bætti við að
síðan myndu opinberir starfs-
menn einhuga fara þess á leit við
Alþingi, að þar yrði lagt fram
frumvarp um breytingu á lögum
um kjarasamning opinberra
starfsmanna um rýmkaðan samn-
ingsrétt, án þess að þeir þyrftu að
kaupa hann „eins og stangaveiði-
leyfi“.
„Arthur Miller lætur aðalper-
sónuna í „Sölumaður deyr“, Willy
Lohmann, segja: „Þú átt ekkert,
nema þú getir selt það.“ Við
segjum hins vegar við ríkisstjórn-
ina: Þú átt ekki verkfallsréttinn,
og hefur þar með ekki leyfi til
þess að selja hann. Það er sjálft
löggjafarþingið, sem með laga-
setningu staðfestir ótvíræðan rétt
einhuga samtaka til þess að fara
með verkfallsvopnið,“ sagði Pétur,
og bætti við: „Margir hafa sagt,
að verkfallsvopnið eigi heima á
Þjóðminjasafninu meðal úreltra
amboða frá liðinni tíð. Því neitum
við, en þó svo kynni að fara að það
yrði einhvern tíma sent á Þjóð-
minjasafnið, þá munum við sækja
það þangað. Þess eru líka dæmi,
að þjóðin hafi sótt þangað það,
sem hún taldi sér nauðsynlegt.
Var ekki sjálfur forsetinn sóttur á
Þj óðminj asafnið ?“
Að lokum sagði Pétur: „Um leið
og ég þakka Morgunblaðinu fyrir
að flytja þessi skilaboð okkar í
Andófi 79, þá skal því hér með
lýst af minni hálfu, að það er ekki
að neinni fylgispekt við Morgun-
blaðið, að það hefur birt greinar
mínar um þessi efni. Málgagn
þjóðfrelsis, sósíalisma og verka-
lýðshreyfingar hefur hins vegar
ekki leitað eftir neinum upplýs-
ingum hjá okkur andófsmönnum,
en birt fjölda greina um „mis-
skilning" okkar. Ég mun í þessu
máli láta þá afstöðu eina ráða að
vinna málstaðnum gagn. Ég skal
bíta í skjaldarrendur og skrifa
gegn Morgunblaðinu, hvenær sem
ég tel að það snúist gegn hags-
munum okkar eða annarra verka-
lýðssamtaka."
Símar Andófs 79 á Laugavegin-
um eru: 25570 og 25533.
Pétur Pétursson talsmaður „And-
ófs 79“ flytur hér ræðu sína á
Hallærisplaninu í Reykjavík.