Morgunblaðið - 03.05.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1979
27
Ólafur G. Einarsson:
Ráðstöfunarréttur tekinn
af eigendum lífeyrissjóða
ólafur G. Einarsson (S) mælti
fyrir nefndaráliti minnihluta
fjárhags- og viðskiptanefndar
neðri deildar Alþings, er láns-
fjáráætlun 1979 kom til annarr-
ar umræðu í deildinni f gær.
Gagnrýndi hann harðlega að
lánsfjáráætlun, sem réttilega
ætti að afgreiða með fjárlögum,
væri svo seint á ferð. Ennfrem-
ur, að margar óhjákvæmilegar
framkvæmdir lentu utan þessar-
ar lánsfjáráætiunar, auk þess
sem tekið væri fram fyrir hend-
ur fjárveitinganefndar og þings
með því taka framkvæmdir inn í
lánsfjáráætlun, sem hafnað var
við afgreiðslu fjárlaga. Nú væri
og farið út fyrir þann ramma,
sem settur hefði verið í nýlegri
efnahagsmálalöggjöf varðandi
erlendar lántökur.
Olge benti á, að nauðsynlegt
yrði að leysa fjárþörf ýmissa
hitaveitframkvæmda, sem skorn-
ar hefðu verið niður í þessari
lánsfjáráætlun, s.s. hitaveitu
Akureyrar, hituveitu Akraness
og hitaveitu Borgarness. Sama
mætti segja um fjármagnsþörf
ýmissa ríkisstofnana: Pósts og
síma, Ríkisútvarps o.fl. Þá hefði
heyrzt að leysa ætti vanda land-
búnaðar með 3%—4 milljarða
erlendri lántöku, sem þó kæmi
ekki fram í þessu frumvarpi að
lánsfjárlögum ársins. Hin nýju
efnahagslög byðu ekki erl. lán-
tökur utan lausfjáráætlunar.
Þegar alls væri gætt þá vantaði
milli 8—10 milljarða, til þess að
rétt mynd yrði dregin.
Ólge taldi sýnt, að fjárfesting í
landinu færi fram úr því 25%
marki af þjóðartekjum, sem sett
var í hinum nýju efnahagslögum.
Það sé þó bót fyrir stjórnarliða
að engin ákvæði um viðurlög hafi
verið í efnahagslöggjöfinni. Þá
megi og gera ráð fyrir því, að
erlendar lántökur fari upp í 50
milljarða króna í stað þeirra 39
milljarða, sem lánsfjáráætlunin
tíundi. A sl. ári voru þessar
lántökur 32 milljarðar búttó, 11,8
milljarðar nettó, sem svaraði til
2,1% af þjóðarframleiðslu. Á
þessu ári verði þær naumast
undir 3% framleiðslunnar. Þar
að auki haldi skuldir ríkissjóðs
við Seðlabankann áfram að vaxa,
þrátt fyrir allar yfirlýsingar.
ólge vék að vanda Landsvirkj-
unar, en ekki fengist upplýst,
hvort fresta ætti framkvæmdum
eða auka lántökur. Ekki væri
heldur hlustað á forráðamenn
lífeyrissjóðanna. Þriðja grein frv.
skuldbyndi lífeyrissjóði á
samningssviði ASÍ til að kaupa
skuldabréf Byggingasjóðs ríkis-
ins fyrir 20% af ráðstöfunarfé.
Hér væri um veigamikið atriði að
ræða, þar sem skuldabréfakaupin
væru bundin einum aðila. Áður
hafi tilgangur slíkra kaupa verið
tvíþgttur: annars vegar að greiða
fyrir þátttöku í fjármögnun
atvinnuvega og íbúðabygginga og
hins vegar að gefa sjóðunum kost
á að verðtryggja hluta af ráð-
stöfunarfé sínu. Þau ákvæði, sem
þá giltu, hafi ekki verið bundin
við tiltekin skuldabréf og yfirleitt
byggð á samkomulagi við eigend-
ur sjóðanna. ÓLGE sagði að hér
væri í raun verið að taka ráð-
stöfunarrétt af þeim, sem eignar-
rétt hefðu á þessu fjármagni, og
að hann drægi í efa, að slík
'ákvæði stæðust gagnvart
stjórnarskránni. Þó ætti að ráð-
stafa skyldusparnaði, sem inn-
heimtur var til að auðvelda ungu
fólki íbúðarbyggingar, til
annarra hluta.
Þessi lögþvingun í stýringu
fjármagns bitnaði og á atvinnu-
vegunum, sem ekki gætu stuðst
við lánsfjármagn úr þessari átt-
inni í sama mæli og áður, sem
kæmi ofan á drápsklyfjar skatta
og skertar afskriftarheimildir. Á
sl. ári fóru 23% af heildarkaup-
um sjóðanna í annað en kaup á
bréfum Byggingar- og Fram-
kvæmdasjóða, þ.e. til Iðnlána-
sjóðs, verzlunarlánasjóðs og
stofnlánadeildar SÍS, og stofn-
lánadeildar landbúnaðarins.
Ólge sagði að lokum að
stjórnarandstaðan hefði ekki
tekið framgang lánsfjár-
aæætlunar. Tafirnar ættu rætur
að rekja til sambúðarerfiðleika
stjórnarflokkanna sjálfra.
Stjórnarandstaðan myndi heldur
ekki nú tefja framgang þessa
síðbúna máls. — En við teljum
Ólafur G. Einarsson.
fara bezt á því að stjórnar-
flokkarnir beri einir ábyrgð á
afgreiðslu þessa frumvarps, eins
og að því og meðferð þessa hefur
verið staðið.
Lausaskuldir bænda í föst lán:
Ekkí rætt í þingflokki Alþýðuflokksins
sagði Vilmundur Gylfason
Steingrímur Hermannsson
landbúnaðarráðherra mælti í
gær fyrir stjórnarfrumvarpi
um breytingu á lausaskuldum
bænda í föst lán. Frumvarpið
gerir ráð fyrir því að Veðdeild
Búnaðarbanka íslands sé
heimilt að gefa út nýjan flokk
bankavaxtarbréfa, sem ein-
göngu skulu notuð til þess að
breyta í föst lán lausaskuldum
bænda, sem ekki hafi fengið
lán til hæfilegs tíma vegna
fjárfestinga 1970—1979. Lánin
skulu einungis veitt gegn veði í
fasteignum. Lán þessi eru
verðtryggð en lánakjör að
öðru leyti ákveðin af stjórn
veðdeildar.
• Páll Pétursson (F) þakkaði
ráðherra frumkvæði hans í
þessu máli.
• Pálmi Jónsson (S) sagði
góðra gjalda vert að vilja mæta
þeim vanda bændastéttar, sem
ekki yrði lengur fram hjá geng-
ið. Hitt væri miður, að ekki
kæmi fram, hvern veg fjármagn
til þessara breytinga yrði
tryggt. Einnig það að lánakjör-
in væru ákveðin verri en á þeim
lánum, sem þau ættu að leysa af
hólmi.
• Albert Guðmundsson (S)
sagði hér stefnt að nýjum lög-
um fyrir eina stétt í þjóðfélag-
inu, sérréttindum. Spurði hann
ráðherra og þingmenn Alþýðu-
flokks hvort þeir væru sammála
um slíka málsmeðferð.
• Vilmundur Gylfason (A)
sagði frumvarpið hvorki hafa
verið kynnt né rætt í þingflokki
Alþýðuflokksins, þó flutt væri
sem stjórnarfrumvarp. Eins
mætti flytja frumvarp um að
breyta lausaskuldum launþega í
föst lán, eða lausaskuldum
annarra atvinnugreina. Sérrétt-
indi ættu ekki að vera í lána-
kjörum.
• Finnur Torfi Stefánsson (A)
taldi vanda bændastéttarinnar
þess eðlis, að ekki væri hægt
annað en taka afstöðu til hans í
þá veru, sem reynt væri með
þessu frumvarpi.
Lárus Jónsson:
N eðan jarðarhagkerf i
stjórnarflokkanna
Lárus Jónsson (S) gagnrýndi
efnisatriði frv. að lánsfjáráætl-
un og breytingartillögur meiri-
hluta fjárhags- og viðskipta-
nefndar neðri deildar við það í
umræðu í neðri deild í gær.
Helztu gagnrýnisatriði hans
voru:
• Fjárlögum yrði breytt við
samþykkt frumvarpsins, í veiga-
miklum atriðum. án rökrétts
samhengis við ákvarðanir, sem
teknar voru við fjárlagaaf-
greiðsluna.
• Lögfest yrði alger þvingun á
ráðstöfun mikilla fjármuna í
eigu lífeyrissjóða í landinu.
• Húsnæðismálastofnun yrði
svipt meir en næmi öllum
skyldusparnaði í ár.
• Útlánageta ýmissa sjóða. sem
hafa markaða tekjustofna, yrði
stórlega skert, sem þýddi m.a.,
að dregið yrði verulega úr lána-
getu til íbuðabygginga, endur-
Lárus Jónsson alþ.m.
hæfingar fatlaöra og fleiri fé-
lagsiegra verkefna.
• Frumvarpið felur í sér stór-
felldan niðurskurð á fjármagni
til hitaveituframkvæmda.
• Orkuöflun til Kröflu yrði
stöðvuð en hafnar byrjunar-
framkvæmdir við virkjanir, sem
ekki kæmu í gagnið fyrr en eftir
mörg ár.
• í frv. vanti stórar fjárfúlgur,
sem ríkisstjórnin væri nauð-
beygð til að reiða fram á árinu,
t.d. til þess að standa við verk-
samninga Landsvirkjunar við
Hrauneyjafoss (a.m.k. 2'k millj-
arð kr).
• í frumvarpið vantar 2—3
milljarða króna vegna fyrirhug-
aðra iána ríkisstjórnarinnar til
að greiða bændum útflutnings-
bætur umfram það, sem fjárlög
greina.
Þetta frumvarp er því viðbót
við þá skrumskælingu, sem núv.
stjórnarflokkar hafa gert ís-
lenzkt hagkerfi að á skömmum
tíma, sagði LJ. Ég vil nefna þessa
skrumskælingu neðanjarðarhag-
kerfi. Einstakir mikilvægir þætt-
ir hafa verið dregnir niður í
undirheima niðurgreiðslna,
skattpíningar, verðlagshafta,
feluleik með vísitölu og milli-
færslna, þannig að í augum
almennings er einungis hluti hag-
kerfisins sjáanlegur. Hinn hlut-
inn tilheyrir neðanjarðarhag-
kerfi stjórnarflokkanna.
Þetta neðanjarðarhagkerfi
felst m.a. í því að ausa fjármun-
um almennings til niðurgreiðslna
á vöruverði, í stærri stíl en dæmi
eru um áður, þann veg að fólk
missir sjónar á, hvað varan
kostar í framleiðslu. Það felst í
því að taka þessa fjármuni með
gífurlega aukinni skattheimtu,
sem ekki mælist sem lífskjara-
skerðing í vísitölu, en rnælist í
niðurgreiðslum til lækkunar
launa. Þetta neðanjarðarhagkerfi
felst og í gegndarlausum blekk-
ingum stjórnarflokkanna, al-
gjörri ríkisforsjá í launamálum,
lítt skiljanlegum félagsmála-
pökkum o.s.frv. í stað beinharðra
peninga, sem áður hét „samn-
ingana í gildi“.
*a\NNIAfo
Diegið í dag
NÝTT HAPPDRÆTTISÁR 79-80
MIÐI ER MÖGULEIKI
Nokkrir lausir miöar eru enn fáanlegir.
Dregiö í 1. flokki kl. 17.30 í dag.