Morgunblaðið - 03.05.1979, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ1979
39
Þorbergur Kjart-
ansson —Minning
Fæddur 26. ágúst 1891.
Dáinn 20. apríl 1979.
Þorbergur Kjartansson fædd-
ist að Skál á Síðu 26. ágúst 1891,
en eftir að faðir hans dó aldar-
mótaárið fluttist hann með
móður sinni að Holti í sömu
sveit þar sem móðurforeldrar
hans bjuggu, og þar átti hann
heima þar til hann fór suður til
náms. Eftir vetrardvöl í Flens-
borgarskóla tók Þorbergur sér
ferð á hendur til Englands í maí
1914. Eftir ársdvöl þar fór hann
til Noregs og síðan Danmerkur
þar sem hann stundaði nám í
tvö ár í skólanum í Askov. Eftir
það kom hann heim og gerðist
fyrst sölumaður hjá Sælgætis-
gerðinni Freyju en upp úr 1920
stofnaði hann ásamt Runólfi ,
bróður sínum, innflutnings- og
heildverslunina R. Kjartansson
& Co. og einnig Parísarbúðina
sem enn er starfrækt.
Samstarf þeirra bræðra var
með eindæmum gott. Ég man að
eitt sinn spurði ég lítill drengur
pabba að því, hvað þetta „kó“ í
R. Kjartansson & Co. þýddi.
Hann sagði að það væri stytting
á „kompaní" og þýddi félag eða
félagi, meðeigandi. Þegar ég
spurði nánar sagði hann að þeir
Þorbergur væru meðeigendur,
ættu Parísarbúðina saman. Þá
eruð þið félagar, sagði ég, og
faðir minn svaraði: Já, við
Þorbergur erum miklir vinir og
félagar. Þetta svar skýrir full-
komlega á hvaða grunni sam-
starf þeirra bræðra var byggt.
Það grundvallaðist á vináttu- og
tryggðarböndum sem tengdust í
bernsku, hæglátri framkomu og
rósemi hugans sem ekkert fékk
haggað og sameiginlegum
áhugamálum þar sem laxveiðar
skipuðu öndvegið.
Þegar Parísarbúðin var í
Bankastræti 7 man ég að þar
var oft glatt á hjalla. Eg var þá
strákur og undraðist stundum,
þegar ég kom inn í búðina, að
sjá hana fulla af „gömlum körl-
um“ sem þó voru ekki að kaupa
neitt. Skýringin var sú að
kontórinn inni af búðinni, var
nokkurs konar samkomustaður
laxveiðimanna. Allan veturinn
var skeggrætt um veiðistengur,
flugur og hjól, en fyrst og
fremst um veiðíarnar, hylji,
strengi, flúðir, — og LAXA.
Jafnvel um miðjan vetur og þótt
langur tími væri til vors, mátti
greinilega sjá hvernig veiðivon-
in og tilhlökkunin hríslaðist um
veiðimennina. í þessum hópi
man ég vel eftir Ósvaldi
Knudsen, Marteini Einarssyni
og þeim sem ég kallaði K.
Einarsson og Björnsson, ég vissi
að hann átti fullt af leikföngum.
Ég man eftir fleiri andlitum en
kann ekki lengur nöfn að nefna.
En meðal þessara vina sinna var
Þorbergur hrókur alls fagnaðar
og ég man að hann, og þeir
bræður báðir, áttu stundum
bágt með að slíta sig frá umræð-
unum, þótt frammi biði full búð
af kvenfólki. — Stundum feng-
um við bræður mínir, enn eða
fleiri, að fara með föður okkar
og Þorbergi í veiðiferð upp í
Laxá í Kjós eða austur að Sogi.
Það voru miklir dýrðardagar,
gist í Ualdi eða „gamla bænurn"
hans Ósvaldar. A kvöldin voru
sagðar veiðisögur og hernaðar-
áætlun næsta dags þaulhugsuð,
þá skyldi sá stóri sko ekki
sleppa. En við eina á batt
Þorbergur sérstakar tryggðir.
Það var Brúará. Þangað fór
hann á hverju sumri frá því um
1940 og allt þar til heilsan og
sjónin fóru að bila fyrir um 4—5
árum.
Alla tíð einkenndist fram-
koma þeirra bræðra af ljúf-
mennsku og öryggi. Þeir voru
glaðir í goðra vina hópi og engir
málskrúðsmenn. Ég held að
vísupartur úr Hávamálum lýsi
Þorbergi vel:
Glaður og reifur
skyldi gumna hver,
uns sinn bíður bana.
Hann var alla tíð glaður og
reifur, allt til endadægurs, og
þess vegna er margs að minnast
að þakka. En þær þakkir á
Guðríður, ekkja Þorbergs, ekki
síður skildar. Hún stóð við hlið
manns síns í 47 ár og bjó honum
og sonum þeirra, Gunnari og
Kjartani, fallegt og hlýlegt
heimili. Þar undi Þorbergur sér
líka best.
Með kveðju frá
Runólfsbörnum.
Valgarð
HaUdóra Björg Einars-
dóttir — Minning
sem leituðu stuðnings, litlir
fætur sem báru hana sín fyrstu
spor í þessari tilveru, saklausa
brosið og augun full af lífsgleði
og trausti á þá sem önnuðust
uppeldi hennar. Allt þetta er
horfið okkur sjónum, en
minningarnar getur enginn frá
okkur tekið, þær munum við
varðveita í hjörtum okkar sem
dýrmætan sjóð.
Sumir heyja langa baráttu við
dauðann, öðrum gefst enginn
kostur á að berjast. Stundum er
sagt að dauðinn sé ekki það
versta sem til er. Og rétt er það
að við getum betur sætt okkur
við komu hans, þegar hann
leysir fólk frá miklum þjáning-
um. En þegar lítil börn, sem
fyrir stuttu hafa hafið lífsgöngu
sína, eiga í hlut, þá leita spurn-
ingarnar á hugann. Af hverju?
Hver getur tilgangurinn verið?
Ekkert svar finnst, en í trúnni á
að við þessum spurningum séu
svör, yljum við okkur við eld
minninganna. Og þökkum þeim
sem öllu ræður um líf og dauða
fyrir stundirnar ógleymanlegu
sem við áttum með henni. Helen
var barn vorsins, leit fyrst
dagsins ljós að vori, og hún lagði
í sína hinstu för að vori.
Með þessum fátæklegu línum,
sem fremur eru skrifaðar af
vilja en mætti, sendum við vinir
Helenar hér á Sólbakkanum,
stórir og smáir, okkar hinstu
kveðju ineð þakklæti fyrir
björtu minningarnar sem hún
gaf okkur.
Við sendum Elísabetu og
Sigga okkar einlægustu sam-
úðarkveðjur, hugurinn dvelur
handan hafsins, hjá þeim. Við
biðjum af alhug, að enn einu
sinni komi í ljós að tíminn
læknar öll sár.
Vinir á Sólbakkanum.
Fædd 11. marz 1897.
Dáin 14. apríl 1979.
Veistu, ef vin þú átt,
þann er þú vel trúir,
ok vill þú af hánum gott geta,
gleði skaltu við hann blanda
ok gjöfum skipta,
fara að finna oft.
Hávamál.
Hún Björg í Ártúni var vinur
fjölskyldu minnar. Fundum við
hana því oft, og þá sú saga er öll,
finnst okkur að þær heimsóknir
hefðu gjarnan mátt vera tíðari, en
hver er ekki spámaður að leikslok-
um? Nú er vík stór milli vina, en
leitast vil ég að kveðja þessa látnu
heiðurskonu nokkrum orðum.
Er ég fluttist til Reyðarfjarðar
haustið 1975, þurfti ég að dvelja
tvo daga hjá Björgu í Ártúni með
fjölskyldu mína, þar eð húsnæði
okkar var ekki til reiðu. Síðar
skildist okkur, hversu mikið lán
okkar var að kynnast slíkri úrvals-
konu fyrstri allra á nýjum stað.
Fyrsta viðmót skiptir miklu. Þessi
skamma dvöl varð upphaf að
sleitu- og fölskalausri vináttu
okkar í millum, en slík vinátta er
sjaldgæf. Að vísu varð skammt
bæja á milli, en það er ekki einhlýt
skýring, skammur er spölur milli
heimila í fjölbýlishúsum, og held
ég þó að eindrægni sé síst einkenni
slíkra húsa. Ástæðan mun fremur
hafa verið hennar heilsteypti og
óhagganlegi persónuleiki, sem
enginn máttur fékk bugað né
beygt, nema dauðinn.
Björg fæddist að Tóarsseli í
Breiðdal árið 1897, dóttir hjón-
anna Einars Halldórssonar frá
Haugum í Skriðdal og Þórunnar
Sigurðardóttur frá Snæhvammi í
Breiðdal. Þau bjuggu síðar í Skrið-
dal og á Reyðarfirði. Leið Bjargar
til ævistarfsins, sem hótelstýra í
Ártúni á Reyðarfirði, lá um troðn-
ar slóðir vinnumennsku og ráðs-
konustarfa, uns hún giftist manni
sínum, Jóni Þorgrímssyni frá
Vallanesi, árið 1929. Tveimur
árum síðar kaupa þau hjónin
Ártún, og hefur Björg þá strax
greiðasölu þar vor og haust fyrir
aðvífandi Héraðsbúa í kauptíð. En
á löngum starfsdegi hafa fleiri en
Héraðsbúar átt þar leið um hlaðið,
því að ferðalangar úr öllum heims-
hornum hafa gist í Ártúni og
fengið þar beina góðan. Þeir eru
óefað margir, sem láta hugann
reika heim í Ártún nú að leiðarlok-
um, en þar er nú allt breytt, eftir
stendur aðeins grátt hús úr stein-
stypu, sem að vísu kallar fram
fjölda minninga, er ég á þar leið
framhjá.
Ég minnist hennar, sem aldinn-
ar konu með hvíta skuplu,
nostrandi yfir blómum sínum og
runnum, en það var hennar mesta
yndi er árin færðust yfir. Ég
minnist hennar einnig fyrir stað-
festuna, sem aldrei brást á hverju
sem gekk. Eigi þýddi fyrir
rógstungur að læðast með veggj-
um hennar eða dusilmenni að
vingast við hana, því að hún var
kona mannglögg, þótt eigi væri
hún óskeikul fremur en aðrir. Hún
var einlægur vinur vina sinna og
gat verið óvægin, ef beita átti hana
eða hennar rangindum. Hún var
skemmtileg viðræðu, og margan
kaffisopann þáði ég í eldhúsinu
hennar í Ártúni. Var þá jafnan
margt skrafað og víða komið við.
Hún dró eigi dul á skoðanir sínar,
og orð hennar voru hnitmiðuð og
ótvíræð, eins og þau væru klöppuð
úr bergi. Hún meinti það sem hún
sagði og sagði aðeins það sem hún
meinti.
Nú, þegar tjaldið er fallið, vildi
ég geta þakkað henni samfylgdina,
þakkað henni fyrir að fylgjast með
litlu telpunum mínum að leik í
nágrenni við Ártún, en því miður,
eigi verður framar í hönd tekið,
aðeins þakkað hljóðum huga. Þessi
styrka eik, sem ekkert óveður fékk
beygt, brotnaði í hinsta ofviðrinu,
sem brýtur okkur alla, misbeygða,
að lokum.
Forsjóninni þakka ég þau for-
réttindi að fá að kynnast slíkri
konu sem Björg var. Slíkt er mikill
og góður lærdómur.
Hvíli hún í friði,
Bolli Eiðsson og f jölskylda.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall og útför fööur
okkar, tengdafööur og afa,
SIGURÐAR E. INGIMUNOARSONAR,
Hringbraut 80.
Halldóra Siguröardóttir,
Sigr. Kristín Siguróardóttir,
Ragnheiður L. Siguröardóttir,
Jón M. Sigurösson,
Þrúður Siguröardóttir,
Siguröur A. Sigurösson,
Haraldur Sigurösson,
Stefán Jónsson,
Magnús Kr. Jónsson,
Trausti Friðbertsson,
Lilja Sigurjónsdóttir,
Guömundur Bergsson,
Guörún Þórhallsdóttir,
Alexía Gísladóttir,
og barnabörn hins látna.
BÍLASALA- BÍLASKIPTI
BORGARTUNI 29-SIMI28488