Morgunblaðið - 03.05.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ1979
47
w,
Pólverjar gerðu það gott gegn Hollendingum í gærkvöldi ekki
síður en íLaugardalnum gegn íslandi þegar mynd þessi var tekin.
íbáðum tilvikum 2—0sigrar.
Pólver jar flengdu
Hollendinga!
MIKIÐ var um að vera í Evrópu-
keppni landsliða í knattspyrnu í
gærkvöldi, m.a. leikur Póllands
og Hollendinga í 4. riðli, en það
er riðill sá sem íslendingar leika
í. Þrátt fyrir að leikið væri í
Póllandi, komu úrslit leiksins
nokkuð á óvart, en Pólverjar
sigruðu með 2 mörkum gegn
engu. Pólverjar höfðu allan tím-
ann nema sfðustu 10 mínútur
leiksins umtalsverða yfirburði
og mikið reyndi á vörn og
markvörslu Hollendinga. Zbign-
ew Boniek, tengiliðurinn rauð-
hærði, skoraði fyrsta markið á
16. mínútu, en í sfðari hálfleik
bætti Mazur örðu markinu við
úr vítaspyrnu. Undir lokin sóttu
Ilollendingar töluvert, en sköp-
uðu sér engin umtalsverð færi.
o — o— o
írsku liðin tvö, Norður-írland
og Irska lýðveldið, saumuðu mjög
að Englendingum í baráttunni
um efsta sætið í 1. riðli, en þar
höfðu Englendingar forystu fyrir
leikina í kvöld. Norður-írar tóku
nú þá forystu með góðum sigri
yfir Búlgörum, 2—0, í Belfast í
gærkveldi. Chris Nicholl og
Gerry Armstrong skoruðu mörk
íranna í fyrri hálfleik, en í þeim
síðari var leikurinn hvorki fugl
né fiskur og voru um 19.000
áhorfendur orðnir æði þreyttir.
Irska lýðveldið gerði það einnig
gott í gærkveldi, sigraði Dani í
Dyflinni með 2 mörkum gegn
engu. Danir tefldu fram flestum
af sínum sterkustu leikmönnum,
en stóðust írunum samt ekki
snúning. Gerry Daly kom írska
liðinu yfir í fyrri hálfleik, en í
þeim síðari bætti Don Givens
síðara markinu við. í 1. riðli er nú
staðan þannig, að Norður-írar
eru efstir m.eð 7 stig eftir 5 leiki,
Englendingar og Suður-írar hafa
5 stig, þeir fyrrnefndu eftir 3 leiki
en þeir síðarnefndu eftir 4 leiki.
Danir og Búlgarir reka lestina
með 2 og 1 stig hvor þjóð og
hvorug kemur til álita sem sigur-
vegari í riðlinum úr þessu.
o — o — o
Austurríkismenn og Belgar
skildu jafnir í landsleik þjóðanna
í Vín í gærkvöldi. Leikurinn var
liður í 5. riðli Evrópukeppninnar.
Um 40.000 manns létu sjá sig
þrátt fyrir kulda og leiðinda-
Mikil þátttaka í
Vormóti ÍR í kvöld
Meðal fjölmargra keppenda á
Vormóti ÍR, sem fram fer á
Laugardalsvelli í kvöld, verður
KA-maðurinn Aðalsteinn
Bernharðsson sem hljóp 400 m
hlaup á 48,9 sekúndum á móti
Ítalíu fyrir skömmu.
VORMÓT ÍR, fyrsta frjáls-
íþróttamót sumarsins, verður
háð á frjálsíþróttavellinum í
Laugardal í dag. Á mótinu
verður meðal keppenda flest
fremsta frjálsíþróttafólk lands-
ins, þ.e. sá hluti þess sem dvelst
í landinu, og má í mörgum
greinum búast við skemmti-
legri keppni.
íþróttafólk frá ÍR, KR, Ár-
manni, KA, UBK, Aftureldingu
og UMSB hefur tilkynnt þátt-
töku í mótinu. í mörgum grein-
um er mikil þátttaka, og hafa
t.d. 18 konur skráð sig til
þátttöku í 200 m hlaupi, 15
konur ætla að þreyta 800 m
hlaup, 13 karlmenn hlaupa 400
m, og þannig mætti áfram telja.
Mótið hefst kl. 19 og verður
stuðst við eftirfarandi tímaseðil:
Kl. 19.00:
Kl. 19.15
Kl. 19.25
Kl. 19.30
Kl. 19.50
Kl. 20.05:
Kl. 20.15:
Kl. 20.30:
110 m grindahl., lang-
stökk kvenna, kúlu-
varp karla og sveina.
100 m karla.
100 m sveina.
5.000 m karla.
200 m kvenna, lang-
stökk karla og kúlu-
varp kvenna.
1.500 m drengja.
400 m karla.
800 m kvenna.
veður. Þeir urðu flestir fyrir
vonbrigðum með úrslitin, ekki
síður en sjálfan leikinn, því að
hann var í heildina frekar slakur.
Fyrri hálfleikurinn var frekar
jafn, en Belgar þó sterkari á
lokasprettinum. í síðari hálfleik
reyndu heimamenn mjög að
knýja fram sigur, en markvörður
Belga, nýliðinn Michel Preud-
’Homme, varði oft af snilld.
Preud’Homme er félagi Ásgeirs
Sigurvinssonar hjá Standard
Liege.
Staðan í riðlinum er sú, að
Austurríkismenn hafa 6 stig úr 5
leikjum, Portúgalir hafa 5 stig úr
3 leikjum. Belgar eru í þriðja sæti
með 4 jafntefli í 4 leikjum.
o — o — o
I 6. riðli bitust Ungverjar og
Grikkir í Búdapest og voru flestir
hinna 10.000 áhorfenda fullvissir
þess að betur hefði verið heima
setið því að leikurinn var alger-
lega sviplaus og leiðinlegur, mest
miðjuhnoð og kýlingar út í busk-
ann. Það var rétt í lokin ,sem
Ungverjarnir sóttu af einhverju
viti. En án árangurs. Grikkir
standa nú best að vígi í riðlinum
með 5 stig úr 5 leikjum, Finnar
eru í öðru sæti með 4 stig úr 3
leikjum. Rússar eru einnig í
þessum riðli og hafa 2 stig úr jafn
mörgum leikjum.
o — o — o
Vestur-Þjóðverjar náðu sér vel
á strik gegn Walesbúum í 7.
riðlinum, en leikið var í Wrex-
ham. 29.000 manns, velflestir á
bandi heimamanna, urðu þrumu-
lostnir þegar Herbert Zimmer-
man skoraði í fyrri hálfleik.
Klaus Fischer gerði síðan vonir
heimamanna um jafntefli að
engu þegar hann bætti öðru
marki við.
Sigurinn
í höfn hjá
Liverpool
TÖLUVERT hefur verið leikið í
ensku knattspyrnunni síðustu
kvöldin og hafa helstu úrslit
verið eftirfarandi:
Wolves—Nott. Forest 1—0
Southampton—Man.Utd. 1—1
Bolton—Liverpool 1—4
Everton—WBA 0—2
Man. City—Birmingham 3—1
Úlfarnir höfðu ótrúlega yfir-
burði gegn Forest, en það var þó
ekki fyrr en á 89. mínútu, að
John Richards skoraði sigur-
markið. Fram að því hafði Peter
Shilton markvörður haldið For-
est á floti upp á eigið eindæmi.
Liverpool lék Boltin sundur og
saman og skoraði öll mörkin í
4—1 sigri. Ray Kennedy (2),
Dave Johnson og Kenny Dal-
glish skoruðu fyrir Liverpool, en
mark Bolton var sjálfsmark
Graeme Souness.
WBA virðist nú hafa náð sér á
strik á ný, en of seint til að vega
að Liverpool. David Mills og
Bryan Robson skoruðu mörk
WBA. Kazimoerz Deyna klædd-
ist skotskónum og gekk vel gegn
Birmingham, en hann skoraði 2
af þremur mörkum City í leikn-
um.
Aðal-
fundur FH
AÐALFUNDUR FH verður
haldinn í Rafha-húsinu á
fimmtudagskvöld 3. maí og
hefst fundurinn klukkan 20.
Fundarefni venjuleg
aðalfundarstörf.
Norðangarrinn
vann góðan sigur
VALUR glopraði niður úrvalsmöguleika á að tryggja sér sigur
í Reykjavíkurmótinu í fótbolta, þegar eitt af neðstu liðunum í
mótinu, Víkingur, vann góðan sigur á þeim. Eins og staðan í
mótinu er nú, á Fram möguleika á því að hirða sigurinn af Val
með því að leggja liðið að velli í síðasta leik mótsins, sem fram
fer á sunnudaginn.
Það væri synd að segja að vorangan hafi verið í loftinu á
þriðjudaginn þegar liðin mættust. Hávaðarok beinustu leið frá
Norðurpólnum og margra gráðu frost herjaði á alla sem úti
stóðu. Var kuldinn slíkur að varamenn liðanna höfðust við
innandyra. Knattspyrnan sem á boðstólum var hlaut að bera
keim af frekar óæskilegum aðstæðum. Áhugi var Ifka á
núllpunkti og leikmenn hlaupu um miklu frekar til að frjósa
ekki í hel. Eina mark leiksins skoraði Gunnar örn Kristinsson
úr vítaspyrnu rétt fyrir miðjan sfðari hálfleik. Vilhjálmur
Kjartansson braut þá klaufalega á Heimi Guðmundssyni innan
vítateigs og víti varð ekki umflúið. Gunnar skoraði af öryggi.
Sigurður hljóp
ágætt 5 km hlaup
SIGURÐUR P. Sigmundsson frjálsíþróttamaður úr FH, sem
stundar nám við Edinborgarháskóla, náði sæmilegum árangri í
sínu fyrsta hlaupi í vor. Hljóp Sigurður 5.000 metra hlaup á
15:22,7 mín., en það er ekki fjarri hans bezta árangri.
Það var á meistaramóti félags þess í Edinborg sem Sigurður
keppir fyrir að hann náði þessum árangri. Hlaupið fór fram á
hinum fræga velli í Edinborg, Meadowbank. Varð Sigurður í
öðru sæti. Hafði hann eftirfarandi um hlaupið að segja í viðtali
við Mbl.:
„Það var bölvaður vindur þegar hlaupið fór fram. Af þeim
sökum vildi enginn taka forystu í hlaupinu og var fyrsti
hringur „genginn“. Sandy nokkur Keith tók nú forystuna og
ég og náungi að nafni Niguel Jones fylgdum fast á eftir.
Gordon Surtees, sem aðstoðað hefur marga íslenzka hlaupara,
er ráðgjafi Jones sem á um 14:40 í 5 km hlaupi og 9:12 í 3.000 m
hindrunarhlaupi. Sandy Keith á um 14:46 í 5 km hlaupi.
Þegar við höfðum lagt 3 km að baki var milli tíminn ekki
uppörvandi, aðeins 9:20 mínútur. En rétt áður en bjallan gaf til
kynna að við ættum einn hring eftir setti ég á fulla ferð og náði
að hrista Sandy af mér, en Jones fylgdi eftir og sigraði á 15:19
mínútum. Ég hef hlaupið síðasta hringinn á um 63 sekúndum. í
víðavangshlaupum í vetur var ég alltaf vel á eftir þeim Sandy
og Niguel.
Það er greinilegt að ég er miklu sterkari nú en í fyrra. Er ég
því spenntur að sjá hvernig gengur á næstunni og við betri
aðstæður“, sagði Sigurður að lokum, en hann keppir fljótlega í
öðru 5.000 metra hlaupi ytra.
— ágás
KvennaliðlS til Helsinki
Körfuknattleiksdeild ÍS hélt í apríl firmakeppni í íþrótta-
húsi Háskólaris. 8 lið tóku þátt í mótinu sem var riðlakeppni.
Sigurvegarar urðu Flugleiðir A eftir úrslitaleik við Skýrslu-
vélar ríkisins og Reykjavíkurborgar. önnur lið sem tóku þátt í
keppninni voru Orkustofnun, Flugleiðir B, Reiknistofa
bankanna, 2 iið frá borgarskrifstofum og Félag háskólakenn-
ara með næsta háskólarektor, Guðmund Magnússon í farar-
broddi. Tókst keppnin mjög vel og vill ÍS þakka þátttakendum
stuðning. Keppnin var haldin til fjáröflunar fyrir ferð
kvennaliðsins til Helsinki á Norðurlandamót stúdenta, sem fer
fram 5.-6. maí. ÍS er núverandi handhafi Norðurlandatitils-
ins, og fékk að gjöf frá Adidas nýja búninga í vetur í tilefni
þess. Fararstjóri í Helsinki-ferðinni verður Valdimar örnólfs-
son, íþróttakennari Háskólans.
Endir bundinn á
einokun Kínverja
VELDI Kínverja í borðtennis er hugsanlega að hrynja, en
Ungverjar urðu heimsmeistarar í borðtennis á mótinu sem
fram hefur farið í Norður-Kóreu síðustu daga. Ungverjar unnu
ekki aðeins Kínverja einu sinni, heldur tvívegis til að sýna að
það var engin tilviljun í fyrra skiptið.
Fyrst mættust Kínverjar og Ungverjar í riðlakeppninni og
unnu þá Ungverjar 5—2. Þegar þjóðirnar mættust síðan í
úrslitaleik keppninnar, reiknuðu flestir með því að Kínverjar
myndu hefna ófaranna, en svo fór þó ekki, heldur var tapið
verra að þessu sinni, eða 1—5. Ungverjar eru því óvænt
heimsmeistarar í karlaflokki, en þar hafa Kínverjar verið
einráðir síðustu árin.
í kvennaflokki unnu Kínverjar hins vegar öruggan sigur á
Norður-Kóreu í úrslitaleiknum. Unnu kínversku stúlkurnar
3-1.