Morgunblaðið - 03.05.1979, Page 48
Kókainmálið:
Dæmdir
í þriggja
ára
fangelsi
í GÆR vorukveðnir upp í rétti
í Kaupmannahöfn dómar yfir
tveimur fslenzkum karlmönn-
um, sem setið hafa í gæzlu-
varðhaldi um tveggja mánaða
skeið vegna kókafnmálsins.
Báðir mennirnir voru dæmd-
ir í þriggja ára fangelsi. Þeir
heita Franklin Steiner, 32 ára,
og Sigurður Þór Sigurðsson, 26
ára.
Mennirnir voru dæmdir fyrir
aðild sína að kókaínmálinu og
ennfremur fyrir umfangsmikla
fíkniefnasölu í Danmörku og
Svíþjóð, en þeir munu m.a.
hafa saman selt um 14 kg af
hassi í Svíþjóð á s.l. hausti.
Mennirnir fengu 14 daga
frest til þess að ákveða hvort
þeir áfrýja dómnum eða ekki.
Sjá „Dæmdir fyrir um-
fangsmikla
ffkniefnasölu...“ á bls.
3.
Jóhannes Steinsson Eirfkur S. Bjarnason Stefán Guðmundsson Gunnar H. Ingvaráson Kjartan G. ólafsson Sveinn G. Eirfksson
„Magnús komdu strax”
— var það síðasta sem heyrðist frá Hrönn frá Eskifirði
„MAGNÚS komdu strax“ var neyðarkallið, sem skip-
verjar á Magnúsi NK 72 heyrðu írá vélbátnum Hrönn
írá Eskiíirði, sem fórst á Reyðarfirði, skammt innan við
Vattarnes, síðastliðið mánudagskvöld, en síðan rofnaði
sambandið.
Fimm skipverja á Hrönn er saknað, en lík þess sjötta,
Stefáns V. Guðmundssonar, fannst um hádegisbil á
þriðjudag.
Það var klukkan 22,55 á mánu-
dagskvöld, sem neyðarkallið frá
Hrönn SH 149 heyrðist og hafði
Guðmundur Stefánsson skipstjóri
á Magnúsi þegar samband við
Nesradíó og kallaði út aðstoð.
Klukkan 23.15 var Magnús kominn
á staðinn, þar sem talið er að
Hrönn hafi farist, en þar fundust
aðeins 3 netabelgir bundnir sam-
an, 2 bjarghringir og knippi af
netaflotum.
Skipstjórinn á Magnúsi hafði
séð til Hrannar í ratsjánni
skömmu áður en neyðarkallið var
sent út. Er hann leit aftur í
ratsjána sá hann ekki til skipsins
og telur að 2—4 mínútur hafi liðið
á mill'. Ábúendur á Vattarnesi
sáu er Hrönn sigldi fyrir Vattar-
nesið, en er Nesradíó tilkynnti
þeim um skip í nauð klukkan 23.04
sáu þeir ekki til skipsins. Hvasst
var og stóð vindurinn út fjörðinn,
en bjart yfir og ekki sjórok.
Leitarmenn sem komnir voru á
staðinn um miðnætti þurftu að
leita við erfiðar aðstæður. Leit
stendur enn yfir bæði af sjó og
landi og hefur mikill fjöldi tekið
þátt í leitinni.
Stefán V. Guðmundsson, stýri-
maður, var fæddur 9. 6. 1927.
Hann var til heimilis að Bakkastíg
9a á Eskifirði. Stefán lætur eftir
sig aldraða móður.
ÞEIRRA ER SAKNAÐ:
Jóhannes Steinsson, skipstjóri,
fæddur 16. 9. 1935, Túngötu 6,
Eskifirði. Kvæntur og á 2 börn.
Eiríkur Sævar Bjarnason, vél-
stjóri, fæddur 28. 2. 1942, Bakka-
stíg 5, Eskifirði. Kvæntur og á 2
börn.
Gunnar Hafdal Ingvarsson,
fæddur 18. 3.1929. Er frá Dölum í
Hjaltastaðaþinghá, en hefur unn-
ið á Eskifirði undanfarin ár.
Ókvæntur.
Kjartan Grétar Ólafsson, fædd-
ur 5.12.1947, Túngötu 5, Eskifirði,
ókvæntur, en býr hjá foreldrum.
Sveinn Guðni Eiríksson, fæddur
6. 8. 1942, Fossgötu 3, Eskifirði,
Ókvæntur, býr í foreldrahúsum.
Sjá blaðsíðu 18: Viðtal
við skipstjórann á Magn-
úsi NK 72 og tvítugan
mann, sem fór í land af
Hrönn á Breiðdalsvík og
nánari atvikalýsingu.
Stöðug vakt hefur verið staðin í
íjörunni í Vattarnesbótinni,
síðan vélbáturinn Hrönn frá
Eskifirði fórst þar skammt
innan við á mánudagskvöld.
(Ljðsmynd Ævar).
Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur:
Bregðumst hart við þessari
„aðför” VSI að undirmönnum
Yfirmenn eiga allt frumkvæði að hörku í deilunni—segir VSÍ
Vinnuveitendasamband ís-
lands hefur sett verkbann á
félaga f Sjómannafélagi Reykja-
vfkur, Sjómannasambandi
ísiands, Félagi matreiðslumanna
og Þernufélagi íslands. Er verk-
banninu beint gegn undir-
mönnum á farskipum skipa-
félaga, sem aðild eiga að VSÍ, og
gildir frá og með 11. maf næst-
komandi. Guðmundur Hallvarðs-
son, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, sagði í gær að
undirmenn myndu bregðast hart
við þessari „aðför“, sem hann
kallaði aðgerð VSl. Þorsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ,
sagði að vinnuveitendur hefðu
ekki að eigin frumkvæði dregið
undirmenn inn f deiluna. Þessi
aðgerð væri algjörlega á ábyrgð
yfirmanna, sem sýnt hefðu mikla
hörku m.a. með þvf aö boða
verkfall áður en sáttafundir hæf-
ust.
Fyrsti sáttafundur, sem sátta-
semjari ríkisins boðar til með
undirmönnum og vinnuveitendum,
hefst í dag klukkan 14. Áður hafa
undirmenn lagt fram kröfur sínar,
sem Guðmundur Hallvarðsson
sagði í gær að lagðar hefðu verið
fram fyrr en ella, vegna „óvenju
ósvífinna krafna" frá vinnuveit-
endum um breytingar, „sem hefðu
í för með sér mikla hækkun á
tekjum farmanna". í bókun, sem
Sjómannafélag Reykjavíkur gerði
í gær, harmar það þessi vinnu-
brögð Vinnuveitendasambandsins.
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, lagði í gær á
það áherzlu að aðgerðir VSI væru
varnaraðgerðir. Yfirmenn á far-
skipum hefðu haft allt frumkvæði
að hörku í deilunni, þar sem þeir
hefðu ekki gefið neitt svigrúm til
viðræðna um ágreiningsmálin.
Þeir bæru því ábyrgð á því að
undirmennirnir drægjust inn í
kjaradeiluna með þessum hætti.
Farmanna- og fiskimannasam-
band íslands lýsti í gær undrun
sinni og vanþóknum á gerðum VSÍ
gagnvart félögum innan Sjó-
mannasambands Islands.
Enginn sáttafundur hefur verið
boðaður með yfirmönnum á far-
skipum og vinnuveitendum.
Sjá: „Harka færist “ á bls. 18.
Tuttugasti og þrið ji
landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins:
Hátíðarfund-
uríHáskóla-
bíói í kvöld
MÖRG hundruð fulltrúar á
tuttugasta og þriðja lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins
munu væntanlega verða við-
staddir setningu fundarins á
hátíðarfundi f Háskólabfói f
kvöld. Á fundinum mun for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
Geir Hallgrfmsson, flytja
ræðu, Sigurður Björnsson og
Sieglinde Kahman syngja ein-
söngva og tvfsöngva, Matthfas
Johannessen les kafla úr
óbirtu ritverki sfnu um ólaf
Thors og Gísli Jónsson
menntaskólakennari flytur
ávarp.
I samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi sagði Sigurður Haf-
stein, framkvæmdastjóri Sjálf-
stææisflokksins, að hann VÝldi
sérstaklega vekja athygli
landsfundarfulltrúa á því, að í
dag kl. 14.30 til 18.30, verður
opið hús í Valhöll, þar sem
fólki verður boðið upp á kaffi
og salir verða opnir fyrir
landsfundarfulltrúa til kynn-
ingar og viðræðna. Þá geta
fulltrúar sótt fundargögnin í
Valhöll á morgun eftir klukkan
14.
Landsfundinum verður síðan
fram haldið á morgun klukkan
níu árdegis í Sigtúni við Suður-
landsbraut, og stendur fundur-
inn síðan fram á sunnudags-
kvöld.
Fundarsetning og hátíðar-
fundur verður sem fyrr segir í
kvöld klukkan 20.30 í Háskóla-
bíói.