Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
138. tbl. 66. árg.
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Olíu- og orkumálaráðherra Noregs:
íslendingar geta fengið
norska olíu innan tíðar
Olíuverð á íslandi væri helmingi lægra ef við hefðum ohusamning við Noreg
Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara Morgunblaðsins í Osló.
— Ég geri ráð íyrir að innan tíðar geti íslendingar fengið keypta norska olíu, scgir Bjartmar Gjerde
orkumálaráðherra Noregs í viðtali við Morgunblaðið. í viðtalinu sagði ráðherrann einnig að fyrir tveimur
eða þrcmur árum hefðu íslendingar látið í ljós áhuga á því að fá keypta olíu í Noregi. og væri
langtímasamningur um olíukaup Islendinga af Norðmönnum í gildi nú. næmi verðið á olíufatið um 20
bandaríkjadölum, cn á Rotterdam-markaði kostar sama magn nú nærfcllt 40 dali.
Bjartmar Gjerde, olíu- og orku-
málaráðherra Noregs.
— Olíunotkun íslendinga er um
600 þúsund tonn á ári, og það er
ekki mikið þegar tekið er tillit til
þess hversu olíuframleiðsla Norð-
manna mun aukast á næstu árum,
meðal annars þegar stærsti olíu-
pallurinn í Norðursjónum, Stat-
fjord a, fer að gefa af sér í haust.
Það gerir að verkum að innan eins
eða tveggja ára getum við bætt
Islendingum í hóp þeirra mörgu
þjóða, sem við munum selja olíu. Ég
get hins vegar ekkert sagt um það
nú hversu mikið magn getur orðið
um að ræða eða hvernig verðlagið
verður, einfaldlega af því að enn
hefur ekki borizt formleg ósk um
olíukaup, segir Gjerde.
Hann leggur áherzlu á að margt
þurfi að ræða um áður en af
olíukaupum Islendinga í Noregi geti
orðið, meðal annars hvernig olíu-
hreinsun yrði háttað, — hvort
Islendingar hyggist sjá um hana
sjálfir eða hvort hún eigi að fara
fram annars staðar. Þá leggur
Gjerde áherzlu á í viðtalinu, að það
sé ekki norska ríkið, sem selji
olíuna, heldur þau olíufélög, sem
vinni olíu í-Norðursjónum. Meðal
Bandaríkin:
Stjórnin krefst þess
að Somoza fari frá
Washington — 21. júní — Reuter.
B AND ARÍK J ASTJÓRN hefur
krafizt þess að stjórn Somozas í
Nicaragua láti af völdum og að
þjóðir Vesturálíu sendi friðar-
gæzlusveitir til landsins hið
fyrsta. Það er Cyrus Vance utan-
ríkisráðherra, sem bar fram
þessa kröfu á skyndifundi Sam-
taka Ameríkuríkja í Washington
í kvöld. Sagði Vance að eina
leiðin til að binda endi á borgara-
styrjöldina í Nicaragua væri að
þar tæki við völdum ný stjórn,
sem nyti trausts landsmanna og
segði afdráttarlaust skilið við
stefnu stjórnar Somozas.
Þessi yfirlýsing Bandaríkja-
stjórnar kemur i kjölfar morösins
á bandaríska fréttamanninum
Bill Stewart í Managua í gær, en
það hefur vakið mikinn úlfaþyt í
Bandaríkjunum og víðar. Her-
maður úr liði Somozas skaut
Stewart þar sem hann lá á grúfu
ofan á vegatálma í Managua í
gær. Túlkur hans var einnig
skotinn til bana.
Barizt er af hörku víða í
Nicaragua, og veitir uppreisnar-
mönnum víðast betur, einkum í
norðurhluta landsins, sem þeir
hafa nú að mestu á valdi sínu.
þeirra félaga, sem gætu komið til
greina fyrir íslendinga, er félagið
Statoil, sem er ríkisrekið.
Um verðið kvaðst hann þó geta
sagt það, að til greina kæmi að selja
olíuna á meðalverði. Hann vildi
ekki skilgreina slíkt verð nánar, en
slíkt OPEC-verð á hráolíu er um
þessar mundir 18—20 bandarikja-
dalir á hvert fat, það er að segja 159
lítra, en það er nálægt helmingi
þess verðs, sem tíðkst á Rotter-
dam-markaðnum.
Sú hráolía, sem íslendingar gætu
að líkindum fengið í Noregi, er
mjög létt og þyrfti að blandast
þyngri olíutegundum frá öðrum
löndum um leið og hreinsun færi
fram, að því er Morgunblaðið hefur
heimildir um. Því yrðu Islendingar
jafnframt að kaupa olíu annars
staðar að, og gætu því ekki ein-
skorðað sig við hráolíu úr Noyð-
ursjó.
Areiðanlegar heimildir í norska
fjármálaráðuneytinu hafa tjáð
Morgunblaðinu, að Norðmenn selji
hráolíu á svipuðu verði og OPEC-
löndin gera, það er að segja á
18—20 dali fatið. Verðið gæti þó
reynst aðeins hærra því að norska
olían er í hærri gæðaflokki en
OPEC-olían, meðal annars vegna
þess að í henni er minni brenni-
steinn.
Olíu- og gasframleiðsla Norð-
manna í ár er áætluð 40 milljónir
tonna, og í þeirri hít verða þau 600
þúsund tonn, sem íslendingar þurfa
á að halda, léttvæg fundin.
Svíar taka
aðsér1250
flóttamenn
Lundúnum — 21. júní — AP.
SVÍÞJÓÐ, Kanada og ísrael
hafa bætzt í hóp þeirra ríkja.
sem eru fús til að taka við
fleiri flóttamönnum frá Víet-
nam, og allmörg ríki hafa
gefið í skyn að þau muni fara
að dæmi þeirra á næstunni.
Fimm . Suðaustur-Asíuríki
undirbúa nú sameiginlegt
átak til lausnar flóttamanna-
vandamálinu, og munu þau
gera grein fyrir afstöðu sinni
til málsins á fundi, sem hald-
inn verður á Bali í lok þessa
mánaðar.
Miðað við fólksfjölda eru
Svíar stórtækastir í viðtöku
sinni á flóttafólkinu og ætla
þeir að taka við 1250 manns til
viðbótar þeim 262, sem komið
hafa þangað frá Asíu að und-
anförnu. Israelsmenn ætla að
taka við 200, en þangað eru
nýkomnir 168 Víetnamar úr
hópi þeirra, sem velkzt hafa
um á Suður-Kínahafi. Kanada-
menn munu auka leyfilegan
fjölda flóttamanna til landsins
um 1000, en hámarksfjöldi á
ári hefur verið 10 þúsund
manns.
Morðið á bandaríska fréttamanninum var kvikmyndað og sýnt í
ABC-sjónvarpinu, en Bill Stewart starfaði á vegum þcirrar stöðvar. Á
efri myndinni má greina hvar Somoza-hermaður nálgast Stcwart þar
sem hann liggur á grúfu og neðar hvar hann skýtur hann til bana.
Er nýtt fargjalda-
stríð í uppsiglingu?
Lundúnum — 21. júní. AP—Reuter.
LAKER-flugfélagið brezka hefur
farið þess á leit við brezk flug-
málayfirvöld að fá að hefja flug-
lcstar-þjónustu til 35 borga í
Evrópu frá næstu áramótum. Ekki
hefur fengizt staðfest hver far-
gjöld Lakers muni verða, ef Ieyfið
fæst, en The Financial Times hefur
það eftir áreiðanlegum heimildum,
að þau verði allt að helmingi lægri
en þau, sem nú tíðkast. Má fast-
lega gera ráð fyrir fargjaldastríði
á Evrópuleiðum í líkingu við það,
sem hófst er Laker hóf fluglest-
arþjónustu milli Brctlands og
Bandaríkjanna á sínum tfma.
Brezka flugmálastjórnin sagði í
dag, að nokkrir mánuðir kynnu að
líða áður en unnt væri að taka
afstöðu til umsóknar Lakers.
Laker sækir um
fluglestarleyfi til
35 Evrópuborga
Ástæðan væri meðal annars sú að
búizt væri við slíkum umsóknum
frá fleiri flugfélögum, og eðlilegt
þætti að veita þeim ráðrúm til að
leggja þær fram, svo hægt væri að
taka afstöðu til allra umsókna í
einu.
Talið er að Laker ætli að nota 10
Airbus-þotur, sem hann pantaði í
apríl s.I., á Evrópuleiðunum. Að því
er áreiðanlegar heimildir herma
vill Sir Freddie Laker gefa við-
skiptavinum sínum kost á því að
panta far með fyrirvara, jafnframt
því sem þeir eigi að geta notfært
sér fluglestina , en sú þjónusta
felst sem kunnugt er í því að
farþegar kaupa miða um leið og
þeir ganga um borð, en geta ekki
tryggt sér sæti fyrirfram. Flug-
málastjórnin brezka hefur nú til
íhugunar beiðni Lakers um að
farþegar geti pantað sæti með
fyrirvara með fluglest hans til
New York og Los Angeles gegn
aukagjaldi.
Sir Freddie Laker sagði fyrr í
þessum mánuði að stóru flugfélögin
væru enn að reyna að koma í veg
fyrir starfrækslu fluglestarinnar,
en hann ætlaði að halda áfram
tilraunum sínUm til að „frelsa
farþega úr prísund stóru flugfélag-
anna“.